Morgunblaðið - 28.06.1985, Blaðsíða 19

Morgunblaðið - 28.06.1985, Blaðsíða 19
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 28. JÚNt 1985 19 Á vatnaleið ... 1. Leitið upplýsinga um straumvötn á fyrirhugaðri ferðaleið. 2. Leggið aldrei út í straumvötn á litlum aflvana bílum með illa varða vél. 3. Verið í fylgd með öðrum, er bíða átekta og geta hjálpað, ef þörf gerist. 4. Treystið aldrei að óreyndu að hjólför sem liggja út í straumvötn, sé sönnun þess að þar sé greiðf- ært. 5. Munið að straumvötn skipta oft um farveg og verða að skaðræðisfljóti á skömmum tíma. 6. Kannið vöðin af fyrirhyggju og kynnið ykkur botninn 7. Bindið línu um þann, er kannar leiðina og látið hann klæðast björgunarvesti eða fleytigagni. 8. Klæðist hlýjum fatnaði og hafið ávallt meðferðis létt hlífðarföt í áberandi lit. Gunnar Snorrason eigandi Hólagarðs (Lv.) ásamt syni sínum, Sigurði, en þeir feðgar eru sameigendur að kjörbúðinni í Hólagarði. Blásið um munn: Styðjið annarri hendi á enni sjúklingsins, en lyftið með hinni í hnakkagrófina. Sveigið höfuðið ræki- lega aftur á við þar til mótstöðu verður vart. Þá er öndun- arvegurinn opinn. Opnið vel munninn, dragið djúpt andann, látið varimar leggjast þétt yfir munn sjúklingsins og blásið síðan ofan í hann. Látið vangann hvíla vel að nefi sjúklings- ins til að hindra að loftið leiti þar út þegar blásið er. Loftleka um nef má koma í veg fyrir með því að taka með þumal- og vísifingri þeirrar handar, sem á enninu hvílir, um nasir sjúklingsins og þrýsta saman. Blásið um nef. Sem fyrr er annarri hendi stutt á enni sjúklingsins, en tekið með hinni undir hökuna og henni ýtt upp á við þannig, að munnur hans lokist vandlega, svo að loftið leiti ekki þar út. Opnið vel munninn, dragið djúpt andann og látið varimar ná vel yfir nef sjúklingsins þegar blásið er. Auðveldið útöndun sjúklingsins með því að opna munn hans eða varir. ... og öræfaslóð 1. Gerið ferðaáætlun og látið að- standendur og eða vini vita um fyrirhugaða ferðaleið. 2. Grannskoðið allan búnað ykkar og vandið hann af stakri um- hyggju. 3. Fylgist með veðurhorfum og leggið ekki upp í öræfaferð ef spáð er slæmu veðri. 4. Á öræfaslóðum er allra veðra von. Klæðist vel og vandið fótab- únaðinn. 5. Aflið ykkur ávallt sem bestra upplýsinga um það landsvæði sem þið hyggist fara um. 6. Kynnið ykkur vel meðferð og notkun hitunartækja. Sýnið ávallt sérstaka varúð í meðferð elds. Forðist spjöll á jarðargróðri. Gangið vel um landið. 7. Ef þið verðið fyrir meiðslum eða öðrum óhöppum þá haldið ró ykkar og stillingu. Vanhugsaðar ráðstafanir geta hæglega gerð ástandið enn verra. Ef þið hafið undirbúið ferðina vel og allan nauðsynlegan búnað meðferðis þá mun sjaldnast líða langur tími þar til hjálp berst. O"—% Skjótt skipast veöur í lofti MUNIÐ NEYÐARS1MANN - 2 7 111 HJALP OG AÐSTOÐ - LEITAR- OG BJÖGUNARÞJONUSTA VARÐSTAÐA ALLAN SOLARHRINGINN Hólagarður 10 ára: Framkvæmdir við loka- áfangann að hefjast Verslunarmiðstöðin Hólagarður við Lóuhóla er 10 ira á þessu ári. Þar eru til húsa 14 verslanir og þjón- ustufyrirtæki. í tilefni afmælisins boðaði Gunnar Snorrason, eigandi Hóla- garðs, til blaðamannafundar. Þar kom fram að nú hafa verið sam- þykktar teikningar að þriðja og síðasta áfanga hússins og munu framkvæmdir hefjast á þessu ári. Þessi lokaáfangi verður á tveimur hæðum alls um 2.000 fm. Áætlað er að ljúka framkvæmdum á næstu 3 til 5 árum og verður Hóla- garður þá alls um 4.500 fm að stærð og þar með ein stærsta verslunarmiðstöð landsins að sögn Gunnars. Verða þá í húsinu 25 til 26 fyrirtæki með margskonar þjónustu. Sagði Gunnar að hann legði á það áherslu að í húsinu yrðu sem fjölbreyttust þjónusta og yrðu aðilar þeir sem fá munu inni í hinu nýja húsnæði valdir með hliðsjón af könnun sem gerð hafi verið fyrir nokkru á því hvaða þjónustu íbúar hverfisins teldu helst vanta þar nú. Nefndi hann sem dæmi um starfsemi, sem væntanlega verður í nýbygging- unni, skóbúð, úrsmíðaverkstæði, heilsuræktarstöð, snyrtistofu og veitingastað. Á fundinum kom einnig fram að auk þessara framkvæmda verður á næstunni ráðist í byggingu fyrsta áfanga húss yfir starfsemi fyrirtækisins Kjöt og álegg, sem þeir feðgar Gunnar og Sigurður sonur hans reka í tengslum við kjörbúðina í Hólagarði. Það hús mun rísa við Krummahóla. Athugasemd við leiðara Morgunblaðsins frá Þórði Ásgeirssyni, forstjóra OLÍS í leiðara Morgunblaðsins 26. júní sem heitir „Svartolían selst ekki“ er því slegið fram að það sé vegna ótta olíufélaganna við raunverulega sam- keppni, sem úreltu verðlags- og stjórnkerfi er viðhaldið í olíumálum. í leiðaranum er talað um að olíufé- lögin láti aðra gjalda þess að þau fluttu inn mikið magn af svartolíu á verði sem gerir hana óseljanlega og þar er talað um að ég hafi í Morgun- blaðinsviðtali leitast við að rökstyðja nauðsyn þess að viðhalda hinu háa olíuverði. Ég gæti skrifað langt mál til andsvara ofangreindu og mörgum fleiri atriðum í leiðaranum. Stilli mig þó um það en verð að láta það koma skýrt fram að afstaða mín til þessara mála hefur ekki breyst frá því sem ég sagði á aðalfundi LlU sl. haust og við nokkur tæki- færi síðan. Ég er sem sagt þeirrar skoðunar að það eigi: 1. að auka frelsi í innflutningi olíuvara. 2. að gefa verðlagningu olíunnar frjálsa. 3. að afnema verðjöfnun olíu. 4. að afnema innkaupajöfnunar- reikning olíu. Ef þetta yrði gert myndi óhjákvæmilega hefjast verðsam- keppni milli olíufélaganna eins og Morgunblaðið virðist vera mér sammála um að sé hið eðlilega og heilbrigða ástand, sem sé neyt- andanum fyrir bestu og þá væri það tryggt að hver farmur sem fluttur er til landsins verði rétt verðlagður svo neytandinn fengi notið lækkunar á innkaupsverði eins og í sykurdæminu sem nefnt er í leiðaranum. Þá sætum við ekki uppi með birgðir eins og svartolíuna núna sem eru hátt verðlagðar ekki bara vegna þess að mikið hafi verið keypt inn á háu verði heldur fremur vegna þess að verðinu hefur verið haldið niðri í lengri tíma með því að safna milljónatuga skuldum á inn- kaupajöfnunarreikningi og með niðurskurði á álagningu. Útgerðin nýtur þess þegar verð- inu er þannig haldið niðri og e.t.v. var það þess vegna sem hugmynd- ir mínar (og vonandi líka Morgun- blaðsins) um frelsi í innflutningi og verðlagsmálum fengu engan hljómgrunn á aðalfundi LÍÚ. Þeg- ar svo ekki er hægt að lækka verð- ið hér til samræmis við verðlækk- anir erlendis vegna þess að skuldahalann verður að greiða, þá er rekið upp ramakvein. Það er hins vegar verið að hengja bakara fyrir smið með því að ráðast þá á olíufélögin. Við OLÍS -menn erum reiðubún- ir til að keppast um það að bjóða viðskiptavinum sem lægst verð á hverjum tíma. Til þess þurfum við aukið frelsi. Frelsi sem LÍÚ vili ekki að við fáum (þeir vilja halda í opinbera verðlagningu og verð- jöfnun), frelsi sem ráðherrar Sjálfstæðisflokksins vilja ekki heldur að við fáum sbr. glæný lög um flutningsjöfnunarsjóð og inn- kaupajöfnun olíu og bensíns, sem viðskiptaráðherra lét samþykkja. Þau lög klæða gamla kerfið í nýj- an búning, sem hylur það ekki bet- ur en nýju fötin keisarans hér forðum daga. Þóróur Ásgeirsson, forstj. OLÍS

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.