Morgunblaðið - 28.06.1985, Blaðsíða 44

Morgunblaðið - 28.06.1985, Blaðsíða 44
44 MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 28. JÚNl 1985 • Gunnlaugur Jónsson (til hssgri á myndinni) og félagi hana aru hér á æfingu á bát sínum, 470, en þeir keppa einmitt á slíkum bát á Kiel-vikunni i V-Þýskalandi. Þeir hafa stadid sig mjög vel og unnu sér þátttökurétt í úrvalsflokki. Wilander úr leik SVÍINN knái, Mats Wilander, er úr leik í einlidakeppninni á Wimble- don-tennismótinu í Englandi, sem hófst um helgina. Wilander var sleginn út af Júgóslavanum Slobodan Zivojinovic, sem talinn er 77. besti tennisleikari í heimin- um í dag en Wilander er í fjóróa sæti. Mikiö hefur rignt þá daga sem mótiö hefur staöiö og því oröiö aö fresta mörgum leikjum. Völlurinn var mjög blautur þegar Júgóslav- inn sigraði Wilander, en hann er nýbakaöur sigurvegari í Opna franska meistaramótinu þar sem hann sigraöi McEnroe, en í gær Dregið í lukkupotti í SAMBANDI viö leik íslands og Skotlands starfrækti KSÍ getraun — Lukkumióa KSÍ. 36 rétt svör bárust á tilskildum tíma og var dregiö úr réttum lausnum á stjórnarfundi KSÍ 20. júní. 1. Vínningur % af potti — 20% af sölu kr. 36.660.- þar kom upp miöi nr. 4017. 2. Vinningur % af potti — 10% af sölu kr. 18.330.- þar kom upp miói nr. 4606. Fréttatilkynning frá •tjórn Knatt- •pyrnuaambands íslands. Mót í Leiru OPIÐ kvennamót í golfi (Guer- lain) veröur haldiö á Hólmaveili í Leiru í dag. Ræst verður út frá kl. 16.00. Samkvæmt kappleikjaskrá átti mótiö að vera 22. sept. en færist fram. Keppa á Kiel-vikunni unnu ser r . m r * i urvalsflokki FYRIRHUGAÐ er aö nokkrir sigl- jngamenn frá Siglingasambandi ístands keppi erlendis á þessu sumrí. Þar er helst aó nefna Gunnlaug Jónasson, sem keppti á ólympíuleikunum á síðasta ári meö Jóni Ólafi Péturssyni, en þeir sigldu bát af tegund 470. í vetur hefur Gunnlaugur veriö viö nám í Osló, og æft þar vel. Háseti hans nú er Haraldur Ólafs- son. Þeir Gunnlaugur og Haraldur eru nú aö keppa á svokallaöri Ki- el-viku í Þýskalandi, en hana ber einna hæst af öllum frægum keppnum. Þar er teflt fram öllum hugsanlegum keppnisfleytum, allt frá smæstu bátum til hinna stærstu, ásamt seglbrettum. Alls taka þátt 130 bátar af sömu tegund, 470, og þeir Gunnlaugur og Haraldur sigla, og var þeim strax skipt í tvo flokka, úrvals- og almennan flokk. í úrvalsflokk kom- ust einungis þeir sem hafa hæstu stigagjöf úr fyrri keppnum, en eftir tvær umferöir var raöaö á ný í flokka. Þeim Gunnlaugi og Haraldi tókst strax aö vinna sér rétt til setu í úrvalsflokki, en þaö telst góöur árangur aö veröa meöal bestu sigl- ingamanna á móti sem þessu. Keppnin í úrvalsflokki er hörö, en þegar eru sigldar 4 af 6 keppn- um, þannig aö væntanlega fást nánari fréttir af þeim fljótlega. Eftir Kiel-vikuna“ halda þeir til Koper í Júgóslavíu, þar sem Evr- ópumeistaramót á 470 veröur haldiö innan skamms. Heímsmeistaramót á Finn Rúnar Steinsen, siglingamaður úr Ými í Kópavogi, hélt til Gauta- borgar í gær til aö taka þátt í heimsmeistaramóti á Finn-segl- bátum, sem haldiö veröur næstu daga. Siglingamönnum er ekki auöveld þátttaka í mótum erlendis, þar sem þeir þurfa að leggja sér til báta sjálfir, og i flestum tilvikum þarf aö senda báta á undan þegar taka á þátt í keppnum sem þeim sem á undan er lýst. varö hann sem sagt aö láta í minni pokann. Ekki er gott aö spá um sigur- vegara í þessari mestu tennis- keppni sem fram fer í Evrópu ár- lega. En sérfræðingar gefa sér eft- irfarandi lista um bestu tennisleik- ara heims í dag. 1. John McEnroe 2. Ivan Lendl 3. Jimmy Connors 4 .Mats Wilander 5. Anders Jarryd 6. Pat Cash 7. Joakim Nyström 8. Kevin Curren 9. Johan Kriek 10. Aaron Krickstein 11. Yannick Noah 12. Miloslav Mecir 13. Eliot Teltscher 14. Stefan Edberg 15. Tomas Smid 16. Tim Mayotte Kvennaflokkur 1. Chris Evert Lloyd 2. Hana Mandlikova 3. Manuela Maleeva 4. Pam Shriver 5. Claudia Kohde 6. Helena Sukova 7. Zina Garrison 8. Bonnie Gadusek 9. Kathy Jordan 10. Steffi Graf 11. Katarina Lindquist 12. Carling Bassett 13. Wendy Tornbull 14. Gabriela Sabatini 15. Kathy Rinaldi • Mats Wilander, Svíinn, sem vann franska opna meistaramótiö á dögunum, hefur veriö sleginn út í Wimbledon keppninni í tenn- is. Kom þaó mjög á óvart. Golfmót í Borgarnesi HÁTÍÐISDAGAR golfara veróa í Borgarneai um næstu helgi en þá veröur Ping Open-golfmótið haldiö, en þaó er þegar oröiö vin- sælasta golfmótiö í Borgarnesi. Til marks um það mættu 70 manns á síöasta ári þrátt fyrir brjálaó veöur. Nú er veöurspáin hinsvegar góö og má því búast Einar tók myndina í GÆR féll niður nafn Ijósmynd- ara á leik Víöis og Vals í 1. deild- inni í knattspyrnu í Garöinum. Það var Einar Falur Ingólfsson, sem tók myndina úr leiknum í fyrrakvöld. viö miklum fjölda keppenda. Golfklúbbur Borgarness er staösettur á mjög fögrum staö og aöstaöa öll eins og best veröur á kosið og svo eru þeir Hamarsfó- lagar þekktir fyrir einstaka gest- risni og smellinn húmor. Golfarar ættu því aö leggja lykkju á leið sína og heimsækja þá Hamarsfélaga. Völlurinn hefur aldrei veriö betri, en þaö er stööugt unniö aö endur- bótum á brautum og grínum. Þrír efstu í flokki meö og án for- gjafar veröa verölaunaöir. Glæsi- legt golfsett er veitt fyrir holu i höggi. Öll verölaun eru gefin af Is- lensk-Ameríska hf. sem er um- boösaöili fyrir hinar þekktu Ping-golfkylfur. • Guðmundur Steinsson, 24 ára gamall leikmaður með Fram. Guömundur og Ómar efstir NÚ ÞEGAR sjö umferðum er lokiö í 1. deildarkeppninní í knatt- spyrnu hafa þeir félagarnir i Fram, Guðmundur Steinsson og Ómar Torfason, forystu í ein- kunnagjöf Morgunblaösins. Báöir hafa þeir félagar leikiö alla leiki Fram til þessa og staöið sig meö mikilli prýöi og hafa þeir skor- aö lungann af mörkum Fram í sumar eöa tólf mörk af tuttugu. Framarar eru meö forystu í deild- inni eins og öllum er kunnugt og hafa leikiö mjög vei þaö sem af er sumri. Ragnar Margeirsson, sóknar- maöurinn knái hjá Keflvíkingum, er i þriöja sæti í einkunnagjöfinni, hefur hlotiö 3,7 í meðaleinkunn.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.