Morgunblaðið - 28.06.1985, Blaðsíða 13

Morgunblaðið - 28.06.1985, Blaðsíða 13
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 28. JÚNl 1985 13 Hvers vegna? Sala Hafnarbúða - eftir Frosta Sigurjónsson Frá því um haustið 1977 hefur Borgarspítalinn rekið Hafnarbúð- ir og haft af því ómetanlega stoð. Þangað er sent fólk, sem hvergi á höfði sínu að halla — eldra fólk. Undanfarið hefur í sívaxandi mæli borið á ásókn í þessa deild Borgarspítalans af hendi Landa- kots og virðist nú sem Reykjavík- urborg sé að láta undan þrýstingi og færa Landakotsspítala þessa deild á silfurfati með útborgun að upphæð 5 milljónir. Landakot er spítali, sem rekinn er á öðrum forsendum en Borg- arspítalinn og Landspítalinn. Þar er engin taugaskurðlækninga- deild, engin brjóstholsskurðlækn- ingadeild. Landakot tekur ekki næturvaktir á borð við hina spít- alana í Reykjavík og sjaldan eða aldrei slys. Færri læknar eru þar á Frá því haustið 1977 hefur Borgarspítalinn rekið Hafnarbúðir. Und- anfarið hefur í sívax- andi mæli borið á ásókn í þessa deild Borgarspít- alans af hendi Landa- kots og virðist nú sem Reykjavíkurborg sé að láta undan þrýstingi. rúm en á áður nefndum spítulum. Þrátt fyrir þetta birtast greinar hvað eftir annað í þá veru að taka þessa deild af Borgarspítalanum. Ég fæ ekki séð þein rök fyrir því að svipta Borgarspítalann þessari deild, sem hefir sl. 7—8 ár þjónað ómetanlegum tilgangi. Mér skilst að eigi að hrifsa Frosti Sigurjónsson þessa deild af Borgarspítalanum og færa hana yfir á Landakot. Hvers vegna? — skil ég ekki. Landakot þarf ekki fleiri rúm. Höíundur er íorseti íslandsdeildar alþjóóaskurðlækningaíélagsins. Hugmyndir um aðkeypta raun- Framhaldsskólamir: greinakennslu - fimm umsóknir um 28 stödur í ÁLYKTUN, sem samþykkt var ein- róma á fundi Skólameistarafélags íslands á Laugarvatni nýlega, kemur fram að skortur er á kennurum í eðlisfræði, stærðfræði og tölvufræði í framhaldsskólum landsins. í þeim greinum voru auglýstar 28 stöður i vor en aðeins 5 hafa sótt um þær, flestir réttindalausir. f ályktun þess- ari segir að ekki sé annað sýnna en að fella verði niður að verulegu leyti kennslu í þessum greinum í mörgum framhaldsskólum. „Ástandið er víða virkilega slæmt,“ sagði Ingvar Ásmunds- son, formaður Skólameistarafé- lags fslands, er blm. innti hann nánar eftir ástæðum kennara- skortsins. „Auk fyrrnefndra greina, er útlitið heldur dökkt í öllum viðskiptagreinum, rafeinda- virkjun og bókagerðagreinum." Kvað Ingvar það alveg ljóst að launakjörin væru það, sem skipti sköpum í máli þessu. „Menn, sem hafa menntun á fyrrgreindum sviðum, fá mun betri laun í öðrum störfum á vinnumarkaðinum. Eft- irspurnin eftir þeim er gífurleg. Það er hinsvegar athyglisvert að nóg framboð er á kennurum í ýms- um félagsvísindagreinum — ekki bara hér á landi heldur út um all- an heim,“ bætti hann við. Aðspurður hvort réttindalausir menn yrðu ráðnir í áður auglýstar stöður sagði Ingvar að vitanlega gætu menn orðið ágætir kennarar, þó svo fullkomin réttindi hefðu þeir ekki. „Hitt er svo eins ljóst að stórvarasamt er að ráða fólk með litla þekkingu til kennslu, en þeg- ar ástandið er svona slæmt, sé ég ekki fram á að við hreinlega höf- um efni á að hafna þeim.“ Sagði Ingvar þá tillögu hafa borið á góma að skólarnir keyptu þjónustu af verkfræðiskrifstofum og öðrum þess háttar fyrirtækj- um. Enn hefur þó ekki verið tekin afstaða til þeirrar hugmyndar. Ekki treysti Ingvar sér til að segja til um hve mikið launin þyrftu að hækka til lausnar þessu máli. „Kennarar fara þó yfirleitt ekki úr kennslu, nema þeim séu boðin allt að því þreföld laun ann- ars staðar. Það er því ljóst að mál- ið er allt hið erfiðasta viðureign- ar,“ sagði Ingvar Ásmundsson að lokum. í stjórn Skólameistarafélags ís- lands sitja þeir Ingvar Ásmunds- son, formaður, Karl Kristjánsson, aðstoðarskólameistari Fjölbrauta- skólans við Ármúla og Þór Vigfús- son, skólameistari á Selfossi. Varastjórnin er skipuð skóla- meisturunum Kristni Krist- mundssyni á Laugarvatni og Tryggva Gíslasyni á Akureyri. Séra Hans-Joachim Bahr - níræður Níræður verður í dag, 28. júní, séra Hans-Joachim Bahr, sem er kunnugur mörgum hér frá þeim tíma, er hann ferðaðist um landið fyrir um það bil tuttugu árum, bæði á vegum lúthersku kirkjunn- ar í Þýskalandi og sem leiðsögu- maður með ferðamannahópum á vegum KFUM-samtakanna þýsku (CVJM). Einnig hafa ófáir íslend- ingar notið gestrisni á heimili þeirra hjóna i Þýskalandi. Þau dveljast nú á elliheimili í Minden, og er heimilisfang þeirra: Stettin- er Strasse 29, 4950 Minden/West- falen, Bundesrepublik Deutsch- land. Þess má geta, að hinn 29. júlí eiga þau séra Hans-Joachim og frú Gertrud Bahr demantsbrúð- kaup. B.I. Jón Baldvin um ályktun verkalýðsmálaráðs Alþýðubandalagsins: „Endurspeglar upp- lausnina og stefnuleysið“ „ÞETTA er bara nýjasti þátturinn í löngu sjónarspili innan Alþýðu- bandalagsins. Var það ekki Ólafur Ragnar Grímsson sem lýsti því yfir að Alþýðubandalagið sé flokkur í kreppu?,“ sagði Jón Baldvin Hanni- balsson formaður Alþýðuflokksins er Morgunblaðið leitaði álits hans á þeirri stöðu sem komin er upp innan Alþýðubandalagsins, eftir að verka- lýðsmálaráð Alþýðubandalagsins ályktaði á opnum fundi í síðustu viku að það legðist gegn því að nýgerðir kjarasamningar væru sam- þykktir og forystumenn inuan Al- þýðubandalagsins sögðu í kjölfar þess að þessi ályktun væri mistök. Jón Baldvin rifjaði upp orð Björns Arnþórssonar, hagfræð- ings BSRB, sem hefði sagt að það lið sem réði í verkalýðsmálaráði Alþýðubandalagsins hefði engin tengsl við verkalýðshreyfinguna í landinu. „Þetta endurspeglar ósköp einfaldlega það stefnuleysi og þá upplausn sem er ríkjandi innan Alþýðubandalagsins,“ sagði Jón Baldvin. Sumargleðin í Varðarferð Sumarferð Varðar 29. júní 1985 Lagt af stað frá Sjálfstæöishúsinu Valhöll kl. 8.00. Morgunkaffi á bökkum Skorradals- vatns. Ekiö niöur Andakílinn og sveigt til hægri nálægt Vatnshömrum og á Lundarreykja- dalsleiö. Ekiö yfir gömlu Hvítárbrúna hjá Ferjukoti og sem leiö liggur aö Grábrók. Hádegisverður snæddur á Brekkuáreyrum vestan Grábrókar í fallegu umhverfi. Á bakaleið veröur komiö viö í Borgarnesi þar sem Sumargleöin mun skemmta Varðar- félögum í Hótel Borgarnesi. Ávörp flytja Þorsteinn Pálsson formaður Sjálfstæöisflokksins, Jónas Bjarnason formaöur Varöar og Valdimar Indriöason alþingismaöur. Aðalleiösögumaður veröur Einar Þ. Guö- johnsen. Pantanir í síma 82900 frá kl. 9—21. Miðasala í Valhöll á sama tíma frá miðvikudeginum 26. júní. Verð aðeins kr. 950 fyrir fullorðna, kr. 400 fyrir börn 4—12 ára og frítt fyrir börn yngri en 4 ára. Innifalið í miðaveröi: Ferðir, hádegisveröur frá Veitingahöllinni og skemmtun Sumargleöinnar. Morgunhressingu veröa menn aö hafa með sér sjálfir.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.