Morgunblaðið - 28.06.1985, Blaðsíða 46

Morgunblaðið - 28.06.1985, Blaðsíða 46
46 MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 28. JÚNl 1985 Evrópukeppni með skilyröum Frjálsíþróttasambandi íslands, FRÍ, barst í gœr skeyti frá Frjáls- íþróttasambandi Evrópu, EAA, þar sem EAA samþykkir fyrir sitt leyti aó einn riðill Evrópubikar- keppninnar fari fram hér á landi, en með skilyröum. Mót þetta hef- ur verið í sviðsljósinu síöustu daga vegna ástands frjálsíþrótta- vallarins í Laugardal. Enskur sór- fraeðingur skoðaöi völlinn á mánudag og sagöi hann ekki boðlegan til keppninnar nema aö undangengnum endurbótum. Borgaryfírvöld hafa ákveðið aö ráðast í þessar endurbætur. EAA hefur borizt skýrsla enska sérfræðingsins og ákvaö sam- bandiö aö riðill Evrópubikar- keppninnar fari hér fram eins og til hefur staöiö, aö uppfylltum því skilyröi, að viögerö vallarins veröi lokið 31. júlí næstkomandi. Þá óskar EAA eftir skeyti frá FRÍ 10. júlí þar sem staöfest veröi aö gerviefniö, sem notaö veröur til viögeröarinnar, veröi komiö til landsins, eins og íþróttaráö Reykjavíkur fullyröir i bréfi til FRÍ í fyrradag. B-llðið sigraðl B-LANDSLIÐ íslands í handknattleik sigraði lið Hollands í fyrsta leik Flugleiöamótsins í handknattleik sem hófst í íþróttahúsi Digraness í gærkvöldi. Úrslit uröu þau aö íslenska landsliðiö skoraði 28 mörk gegn 25 mörkum Hollands. Markahæstir hjá íslandi voru Hans Guömundsson og Hermundur Sigmundsson en þeir skoruöu báöir sjö mörk. Morgunblaöiö/Friöþjófur • Þorgils Óttar sést hér kominn inn á línuna í leiknum í gær gegn Norðmönnum. • Einar kastaði 90,54 metra og varð í öðru sæti á Bislet í gær Bislet-leikarnir í Osló: Einar kastaöi 90,54 en varð í ööru sæti EINAR Vilhjálmsson keppti í gærkvöldi á hinu fræga Bislet- frjálsíþróttamóti í Noregí og náöi frábærum árangri. Einar kastaði 90,54 metra en varð þó að láta sér lynda annaö sætið í keppninni. Bandaríkjamaðurinn Tom Petran- off sigraöi, kastaöi 91,56 metra. í þriöja sæti varð norski kastarinn Reíder Lorentzen kastaöi 84,56 metra. Per Erling Olsen varð fjóröi meö 81,30 og Roald Brad- stock Bretlandi varö fimmti með 79,36 metra. Mjög góöur árangur náöist á leikunum i gærkvöldi. Þar bar hæst 5 km hlaupiö. Marokkóbúinn Aouita hljóp á 13:04,52 mín. sem er annar besti tími sem náöst hefur í greininni. Heimsmsetið í greininni er 13:00,42. Brickford, Bandaríkj- unum, varö annar á 13:13,49 mín. Þá munaöi ekki miklu aö Bretinn Steve Cram setti heimsmet í 1500 metra hlaupi. Hann hljóp á 3:31,34 mín. Steve Scott og Jim Spivey frá Bandaríkjunum komu jafnir í mark á 3:35,15 mín. Cram sagöi eftir hlaupiö aö hann heföi hægt á ferö- inni síöustu metrana og því heföi hann misst af metinu. „En óg er ánægöur meö árangurinn," sagöi Cram viö fréttamenn AP. ísland vann Noreg ÍSLENSKA landsliðinu í hand- knattleik tókst að merja sigur yfir norska liðinu þegar liðin mættust á Digranesi í gærkvöldi í öðrum leik Flugleiðamótsins. Lokatölur urðu þær að ísland skoraði 24 mörk gegn 21 marki Norðmanna, en í leikhléi höfðu Norðmenn yfir, 8:10. ystu, aö þessu sinni 6:8. Á þeim tíma sem eftir var bættu bæöi liöin viö tveimur mörkum og staöan í leikhléi því 8:10. islenska liöiö tók sig aöeins saman í andlitinu í síöari hálfleik og náöi aö jafna snemma i leikn- um. Jafnt var á öllum tölum upp í 19:19 en þá skoruðum viö tvö mörk og komumst síöan i 24:20 en Norömenn áttu síöasta oröiö og skoruöu sitt 21. mark áöur en flautaö var til leiksloka. Þaö var Sigurður Gunnarsson sem varö markahæstur íslensku leikmannanna, skoraöi alls 10 mörk, þar af 8 i síöari hálfleik. Páll Ólafsson var næstur meö fjögur- Þaö var lítið skoraö í fyrri hálf- leik. Þegar leikið haföi veriö í 20 mínútur var staöan 4:5 fyrir Noreg og þegar um fimm mínútur voru til leikhlés höföu Norömenn enn for- ísland í C-riðli Morgunblaðsliöið LIÐ 7. umferðar er tilbúið í slag- inn. Guðmundur Steinsson dettur út úr liðinu að þessu sinni og viö erum með þrjá ný- liða í liðinu sem viö bjóðum alla velkomna og óskum þeim góðs gengis í þeim leikjum sem framundan eru. Gunnar Gíslason KR (2) Þorgrímur Þráinsson Val (1) Guömundur Þorbjörnss. Ómar Torfason Val (3) Fram (6) Jón Erling Ragnarsson FH(1) Gísli Hreiöarsson Víöi (2) Valþór Sigþórsson ÍBK (2) Guöjón Guðmundsson Viöi(1) Ragnar Margeirsson ÍBK (5) Viöar Halldórsson FH (2) Karl Þóröarson ÍA (3) ÍSLENSKA landsliöinu í golfi sem þátt tekur í Evrópumeistaramót- inu í golfi gekk ekki nógu vel í gær. Liðið hafði nokkra mögu- leika á að komast upp í B-riðil en þau liö sem voru á eftir þeim eftir fyrri daginn léku mun betur í gær og komust upp fyrir okkar menn, þannig að þeir leika í C-riðli. Þaö voru Hannes Eyvindsson og Siguröur Pétursson sem léku best í gær af okkar mönnum, en þeir léku báöir á 75 höggum. Siguröur lék samtals á 150 höggum báöa dagana, sem er sex höggum yfir pari vallarins og 22. besti árangur í þessu móti. Ulfar Jónsson lék á 81 höggi, Ragnar Ólafsson á 82 höggum, Siguröur Sigurösson á 83 höggum og Björgvin lék á 85 höggum, en hann var síöastur og tók því nokkra áhættu undir lokin til aö reyna aö ná B-riöli, en þaö mis- tókst. i dag leika íslendingar viö Belga og Austurríkismenn viö Tékka. Þeir sem sigra í þessum viöureign- um leika síöan saman um 16. sæt- iö og ætiar íslenska landsliöiö aö enda í því sæti. Víkverji vann VÍKVERJI sigraði Leikni í 4. deild íslandsmótsins í knattspyrnu á gervigrasvellinum í gærkvöldi. Það voru þeir Hermann Björns- son og Smári Hilmarsson sem skoruðu mörkin tvö. Mark Smára var sérlega glæsilegt, þruma af um 25 metra færi í bláhornið.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.