Morgunblaðið - 28.06.1985, Page 10

Morgunblaðið - 28.06.1985, Page 10
iö MORGUNBLAÐID, POSTUDAGUR 28. JÚNÍ 19g5 Ólympíuleikarnir í eðlisfræði: Eingöngu júgóslavnesk tæki í verk- lega hlutanum Júgóslavía, Portoroz, 26. júní. Frá fréttaritara Morgunblaósins, Vidari Ágústssyni. Eftir fimm klukkutíma í til- raunastofu menntaskólans í Kobra komu íslensku keppendurnir fjórir hressir út aftur. „Það er miklu auö- veldara að framkvæma tilraun og skrifa skýrslu en sitja við prófborð- ið. Tilraunirnar voru skemmtilegri en heima því hér þurftum við að framkvæma án verkseðils og feng- um óhindraö að nota tæki. Fegn- astir erum við þó að keppninni skuli vera lokið.“ Sumir drengirnir voru þó óánægðir með hve íslenskir menntaskólar kenna lítið af at- riðaskrá ólympiuleikanna. „Við vorum að læra í fyrsta skipti á ævinni um hverfitaugar á þjálfun- artímanum, sem hefði mátt vera miklu lengri. Margir samkepp- enda okkar hafa fengið þjálfun fyrir ólympíuleikana mánuðum saman og rússneska námsskráin er beinlínis sniðin að atriðaskrá Ólympíuleikanna." Pator Joze, eðlisfræðingur og kennari í rafeindatækni við há- skólann í Ljeéljana, kynnti farar- stjórum verkefnin tvö í verklega hlutanum í gærkvöld. Fjallaði hið fyrra um falda segla í svörtum kassa, stefnur þeirra og styrk. í hinu síðara var leitað eftir kraft- vægi mótors, með hjálp hornhröð- unar og hverfitregðu. Voru Júgó- slavar stoltir af því að hafa smíð- að öll tilraunatækin, aflgjafa, mæla og borðtölvu í rafeindafyr- irtækinu Iskra. Verkefnin kostuðu hins vegar fararstjórana aðra andvökunótt við þýðingar og vél- ritun. Keppendur á Ólympíuleikunum hafa ekki undan neinu að kvarta í aðbúnaði. Allir búa þeir á hótelum og lifa kóngalífi í fæði. Þeir eru í engum vandræðum með að eyða frístundum sínum á ströndinni og í sjónum. Islensku keppendurnir hafa einnig lært mikið í slóvensku af stúlkunum tveimur sem þeir fengu sem leiðsögumenn. Fram- kvæmdanefnd Ólympíuleikanna í Portoroz bauð þátttakendum til skoðunarferðar til Postojna-hell- ana í Slóveníu, 24 kílómetra langa dropasteinshella og á föstudaginn er ferðinni heitið til Lipica. Sam- komusalur Portoroz er hinn glæsi- legasti og í fyrrakvöld hlýddu þeir þar á einn fremsta píanóleikara Slóveníu, Dubravka Pomcic Sreeötnjak. í dag munu fararstjórarnir fara yfir lausnir keppendanna með dómnefndinni. Fararstjórarnir munu þá leita eftir þeim réttu at- riðum í lausnum keppendanna sem dómnefndinni hefur sést yfir. Hér kemur einnig til þýðing á texta þeirra keppenda sem skrifa á torskildum málum eins og ís- lensku. Allt hefur þetta áhrif á röð keppenda við verðlaunaaf- hendinguna á laugardag sem þeir bíða spenntir eftir. Utanríkisráðuneytið: Hafréttar- samningur fullgildur HINN 21. þ.m. afhenti Hörður Helgason, fastafulltrúi íslands hjá Sameinuðu þjóðunum, yfir- manni samningadeildar Samein- uðu þjóðanna fuligildingarskjal íslands vegna hafréttarsamnings- ins. (FrétUtilkynning) Fri aðalfundi Arnarflugs hf. í gær. Haukur Björnsson stjérnarfonnaður Arnarflugs í ræðustóli. HorgunbiaðiA/ói.K.M. Eigið fé neikvætt um tæpar 80 m.kr. Aðalfundur Arnarflugs: AðALFUNDUR Arnarflugs hf. var haldinn í gær á Hótel Sögu. Rúmlega 64 milljóna króna halli var á rekstri félagsins 1984 og er eigið fé um síðustu áramót neikvætt um 79,9 milljónir króna, en hlutafé var aukið um 40 milljónir á liðnu ári. Engar arðgreiðslur verða á þessu ári. Heildartekjur 1984 voru 397,9 milljónir króna og drógust saman frá fyrra ári um 46,7 milljónir króna. Þar munaði mestu um leiguflug, en tekjur af því lækkuðu um 30%. Á síðasta ári voru tekjur af leiguflugi erlendis 42,2% af tekjum félagsins á móti 60,8% 1983. Meðfylgjandi tafla sýnir samanburð milli ára á hlutfalls- skiptingu einstakra tekna- og gjaldaliða í tekjum og gjöldum. Arnarflug flutti 1984 í milli- landaflugi 27.063 farþega og fjölg- aði þeim um 23%. \ leiguflugi fyrir íslenskar ferðaskrifstofur voru farþegar 12.694. Innanlands ferðuðust tæplega 19 þúsund far- þegar og var það örlítil fækkun frá árinu 1983. Mest var aukning í vöruflutningum félagsins milli landa eða 100%, og á síðasta ári voru 568 fluttar lestir. Að meðaltali störfuðu 105 starfsmenn hjá Arnarflugi og voru launagreiðslur um 47,3 millj- ónir króna. Á aðalfundinum kom fram til- laga frá Páli Andréssyni, er hann sendi stjórn félagsins 21. júní sl., um að hætt verði öllu áætlunar- flugi, en þess í stað einungis stundað leiguflug. Samkvæmt lög- um félagsins var tillagan of seint fram komin til að bera mætti hana undir atkvæði, en fundar- stjóri, Magnús Óskarsson, opnaði mælendaskrá ef fundarmenn vildu ræða hana. Einn tók til máls og lagðist eindregið gegn henni. Eftir að formaður stjórnar, Haukur Björnsson, hafði þakkað fundar- mönnum setuna var fundi slitið. Samanburður milli ára: TEKJUR: 1984 1983 Leiguflug erlendis 42,2% 60,8% Áætlunar- og leiguflug til og frá isiandi 48,7% 32,4% Innanlandsflug 9,1% 6,8% Samanburður milli ára: GJÖLD: 1984 1983 Flugrekstrargjöld: Eldsneyti 13% 36% Viðhald 15% 9% Laun 8% 5% Afgreiðslu og þjónustu- gjöld flugvéla 11% 8% Flugvélaleiga 18% 17% Tryggingar 2% 1% Afskriftir 4% 4% Önnur reksfrargjöld: Skrifstofu- og stjórnunar- kostnaður 6% 3% Markaðs- og auglýsinga- kostnaður 7% 4% Fjármagnskostnaður 6% 3% Farþegaþiónusta 6% 3% Annað 4% 6% PASTCicnnimA' VITflSTIG 13, J. 26020.26065. Hátún Einstakl ib. 35 fm á 5. haeö í lyftublokk. Verð 1200 þús. Laus. Eyjabakki 3ja herb. íb. 90 fm á 1. hæö. Sérþvottah. á hæðinni. Verö 1900-1950 þús. Furugeröi 3ja herb. ib. 75 fm á 1. hæö. Sérgaröur. Verö 2,1 millj. Laugarnesvegur 3ja herb. íb. á 2. hæö. 90 fm. Suðursv. Verö 1850 þús. Rauðalækur 3ja herb. íb. ca. 100 fm. Falleg íb. Verð 2250 þús. Furugrund 3ja herb. íb. á 5. hæð í lyftublokk. Vinkilsvalir. Sérþvottah. á hæö- inni. Verö 2,2 millj. Laus. Njálsgata 3ja herb. íb. á 1. hæö 80 fm í steinhúsi. Verð 1650 þús. Laus. Einarsnes Skerjafirði Raðhús á tveim hæöum 160 fm + teikn. að ca. 20 fm garöstofu. Frábært útsýni. Verö 4950 þús. Orrahólar Glæsileg 70 fm 2ja herb. ib. á 1. hæð. Suöursv. Verö 1650-1700 þús. Álfaskeiö Hf. 5 herb. íb. á 2. hæö 125 fm + bílsk. Falieg íb. Verð 2,6-2,7 millj. Suöurgata Hf. 160 fm sérhæö í tvíbýlishúsi. Bílsk. Hornlóð. Nýbygging. Verö 4,5 millj. Flyörugrandi 4ra-5 herb. íb. m. sérinng. 140 fm. Suöursv. Verö 3,9 millj. Bergur Oliversson hdl., Gunnar Gunnarsson hs: 77410. Höfóar til . fólks í öllum starfsgreinum! Miss Universe- keppnin: Halla Bryndís Jónsdóttir í Miami Frá Þóri S. Gröndal, fréttaritara Morgun blaösins í Miami. Áttatíu og fjórar fegurðardísir víðs vegar að úr heiminum eru koranar til Miami til þess að taka þátt í Miss Universe-keppninni. Fegurðardrottning íslands, Halla Bryndís Jónsdóttir, sem er í her- bergi með ungfrú Belgíu, sagði að þær ynnu við æfingar, myndatökur, viðtöl og annan undirbúning frá morgni til kvölds. Hún sagði að- búnað ailan á Hyatt-hótelinu vera mjög góðan og að sér líkaði vel að öllu leyti. Á mánudagskvöldið verður fegurðardísum Norðurlanda leyft að eyða kvöldstund með löndum sínum í hófi, sem haldið verður í norska sjómannaheimil- inu í Miami. Halla Bryndís hefur verið val- in ein af 20 stúlkum til að taka þátt í tískusýningu, sem haldin verður í Miami 2. júli. Hún er hress og kát og biður kærlega að heilsa heim til Islands. — REYNIMELUR — Utlit Efri hæö Jaröhæö Höfum til sölu í byggingu einstakt hús sem skiptist í tvær sérhæöir + bílskúr og tvær 3ja herb. íbúöir, allt sér. 3ja herb. íbúöirnar henta sérstaklega vel öldruöu fólki og hreyfihömluöum. Ibúðirnar afhendast tilbúnar undir tréverk og fullfrágengnar aö utan. Einstakt tækifæri til aö eignast glæsilega íbúö á besta staö í Vesturbænum. VERÐ: Efri hæö: 4.300 þús. Neðri hæö: 4.000 þús. íbúöirájaröhæö: 2.150þús. Teíkningar og allar nánari upplýsingar á skrifstofunni. Arkitekt: KNÚTUR JEPPESEN. FASTEK3NASALA Langholtsvegi 115 AÖalsteínn Pétursson I (Bæjarieióahúsinu) simi: 810 66 BergurGuónason hdl

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.