Morgunblaðið - 28.06.1985, Side 4
4
MORGUNBLAÐIÐ, FÓSTUDAGUR 28. JÚNÍ 1985
Einkaskólar mis-
muna börnum eftir
efnahag foreldra
— segir Sigrún Ásgeirsdóttir formaður
Kennarafélags Reykjavíkur
„Stjórn Kennarafélags Reykjavíkur befur komið saman og rætt um stofn-
un einkaskólans, Tjarnarskóla, sem hefur starfsemi sína í haust,“ sagði
Sigrún Ágústsdóttir, forraaður félagsins, þegar hún var spurð um afstöðu
félagsins til skólans.
„A fundinum var ákveðið að afla
frekari upplýsinga um hvernig
samningur skólans er við Reykja-
víkurborg og einnig hvernig
rekstri annarra einkaskóla er
háttað. Þegar við höfum kynnt
okkur þessi atriði og önnur sem
okkur finnast vera óljós en von-
umst til að fulltrúar okkar í
fræðsluráði fái svör við munum
við móta okkar stefnu.
Vinsældalisti
hlustenda
rásar 2
VINSÆLDALISTI hlustenda rásar 2
var að venju valinn í gær, fimmtu-
dag. Fara úrslitin hér á eftir:
1. (2) Icing on the Cake
2. (1) A View to a Kill
3. (4) Rasberry Beret
4. (3) Axel F
5. (9) Get It on
6. (8) Celebrate Youth
7. (7) Móðurást
8. (10) Left Right
9. (5) Clouds across the Moon
10. (13) Kittý
Ég sjálf sem kennari er hinsveg-
ar ekki hrifin af einkaskóla sem
rekinn er með þessu sniði og hlýt-
ur að fela í sér að börnum er mis-
munað eftir efnahag foreldra. Mér
finnst þarna verið að ganga I
berhögg við stefnu grunnskólalag-
anna sem kveða á um að tryggja
beri nemendum jafna aðstöðu til
náms. Því er ég mjög undrandi á
þeim geysigóðu viðtökum sem
þessi skóli hefur fengið hjá yfir-
völdum. Auk þess finnst mér ekki
eðlilegt að einkaskóli, sem tekur
þetta há gjöld, fái ókeypis hús-
næði frá borginni á meðan
grunnskólar Reykjavíkur búa við
mjög þröngan kost bæði hvað hús-
næði og viðhald á þvi varðar.
Eins og launakjörum kennara er
háttað í dag er ekkert undarlegt
þó svona fyrirbæri spretti upp.
Það er hinsvegar full ástæða fyrir
kennarasamtökin í landinu að
fylgjast mjög náið með bæði
hvernig skólahald fer fram í skól-
anum og eins kjörum kennaranna
við hann. Því auðvitað geta kenn-
arar I ríkisreknum skólum ekki
sætt sig við að búa við lakari kjör
en kennarar í einkaskóla. Þar með
er ég alls ekki að segja að þetta sé
leið í kjarabaráttu kennara," sagði
Sigrún að lokum.
För Pólýfónkórsins
til Ítalíu ákveöin
„Við fengum góóar undirtektir hjá Albert Guðmundssyni, fjármála-
ráðherra, í morgun og Davíð Oddsson borgarstjóri hefur einnig tekið
málaleitan okkar vel, þótt engin sUðfesting liggi fyrir fyrr en að
loknum fundi borgarráðs. Ýmsir mætir borgarar og stofnanir leggja líka
eitthvað af mörkum, t.d. komu kr. 57 þúsund inn á bók okkar nr. 240 f
Múlaútibúi f gær,“ sagði Ólöf Magnúsdóttir úr stjórn kórsins.
„Enn vantar því mikið að end-
ar nái saman, en við vonum að
það takist. Nú er æft á hverju
kvöldi til miðnættis enda veitir
ekki af, því að á Ítalíu eru kröf-
urnar hæstar, a.m.k. hvað söng-
inn varðar. Við höfum ekkert
haldið því á lofti, að til stóð að
kór St. Hedwig-dómkirkjunnar í
Berlín og félagar úr Fílharmon-
íusveit Berlínar flyttu H-moll-
messuna við opnun tónlistarhá-
tíðarinnar í Assisi, en þeir
samningar fóru út um þúfur og
við komum í staðinn. Það er
mikill heiður en líka mikil
ábyrgð sem lögð er á flytjendur
og stjórnanda.
Langholtskirkja hefur sýnt
okkur þá velvild að lána okkur
kirkjuna fyrir styrktartónleika
kvöldið fyrir brottför, 2. júlí, og
vonandi safnast þá enn í sjóð-
inn,“ sagði Ólöf.
Morgunblaöiö/Bjarni
Fundaö um félagslegar
íbúðir í sólarlöndum
Stofnfundur undirbúningsfélags um félagslegar íbúðarbyggingar í sól-
arlöndum var haldinn á Hótel Borg í gærdag. Fjölmenni var á fundin-
um enda viðbúið að mikill áhugi sé fyrir hendi um framgang þessa
m»ls Hugmyndin er í stuttu máli sú, að byggðar verði all margar íbúðir
á sama stað og þannig komið upp eins konar nýlendu, á Spáni eða í
öðrum sólarlöndum, þar sem ellilífeyrisþegar geta dvalið á vetrum eða
jafnvel árlangL
Aðalkjarasamningur BSRB og ríkisins undirritaður af Kristjáni Thorlacius formanni BSRB og Albert Guð-
mundssyni fjármálaráðherra, í fundarsal BSRB um áttaleytið í gærkvöldi. Þá var búið að undirrita sérkjara-
samninga allra aðildarfélaga bandalagsins, að samningum bæjarstarfsmannafélaga undanskildum. Báðir lýstu
ánægju sinni með andrúmsloftið í samningunum og Kristján bætti við: „Já, það var gott andrúmsloft, enda kom
óvenjulítið út úr þessum samningum. Næst þarf fjármálaráðherra að borga meira."
„Vildi ekki semja um
annaó en það sem
ég gæti staðið við“
— segir Albert Guðmundsson fjármálaráöherra
„Ég er ánægður yfir því að það
nótum og sá samningur sem ASÍ <
Guðmundsson, fjármálaráðherra í
samningagerðinni í gær.
„Það sem er frábrugðið í þess-
um samningi frá samningi ASf og
VSf er að samningurinn gildir frá
1. júní og kennarar fá leiðrétt-
ingu, sem þeir áttu samkvæmt úr-
skurði Kjaradóms. Síðan er auk
annars um það samkomulag að
það verði kannað að lífeyrissjóðs-
gjöld verði greidd af öllum laun-
um. f þeim efnum hefur engu ver-
ið lofað öðru en að ég muni beita
mér fyrir framlagningu frum-
varps þessa efnis, en þetta hefur
ennþá ekki verið rætt í ríkis-
skuli hafa náðst samningar á líkum
og VSÍ gerðu með sér,“ sagði Albert
samtali við Morgunblaðið að lokinni
stjórninni.
Svigrúm til launahækkana er
lítið. Það verður að gæta aðhalds
og má ekkert út af bregða til að sú
teygja sem er nú í greiðslumögu-
leikum ríkissjóðs slitni. Áfram
verður að gæta aðhalds í öllu sem
heitir fjármál ríkisins," sagði Al-
bert.
„Samningarnir að þessu sinni
hafa farið fram í mikilli vinsemd
og í góðum skilningi beggja aðila.
Það er til sóma þegar hægt er að
ná samkomulagi á þann hátt sem
nú var gert og sá tími sem vinnst
gefur svigrúm til að undirbúa
næstu samningalotu. Það ríkti
ólíkt betra andrúmsloft nú en í
samningunum á síðasta ári og allt
annað að vinna þegar rfkir gagn-
kvæmur skilningur og traust.
Ég er ánægður með að það skuli
hafa tekist samningur sem trygg-
ir vinnufriðin næstu mánuðina,
þó best hefði verið að gera samn-
ing til lengri tíma. En við þekkj-
um ekki forsendur næstu fjárlaga
nægilega vel og ég vildi ekki
semja um annað en það sem ég
vissi að ég gæti staðið við,“ sagði
Albert Guðmundsson, fjármála-
ráðherra að lokum.
Byrjunarlaun kennara 22 þúsund krónur á mánuöi:
„Fjarri því að ná þeim
kjarabótum sem þarf“
— segir Valgeir Gestsson formaöur Kennarasambands Islands
„í þessum samningi felst ekki annað en leiðrétting á kjörum kennara
til samræmis við niðurstöðu kjaradóms í málum BHM og ennfrcmur þær
hækkanir sem samdist um í samningi ASÍ og VSÍ,“ sagði Valgeir Gests-
son, formaður Kennarasambands Islands, í gærkveldi að afloknum
samningum BSRB og ríkisins, en auk aðalkjarasamnings voru sérkjara-
samningar ríkisstarfsmanna einnig undirritaðir.
„Dómur Kjaradóms fól í sér kennara,“ sagði Valgeir ennfrem-
hækkanir fyrir félaga í BHM og í
Hinu íslenska kennarafélagi og
við erum að fá þessar hækkanir
nú með þessum sérkjarasamningi.
Þrátt fyrir þessa launahækkun
eru byrjunarlaun grunnskóla-
kennara eftir þriggja ára háskóla-
nám 22 þúsund krónur á mánuði
og þeir komast hæst eftir 18 ára
starf í um 30 þúsund krónur á
mánuði. Við erum því ennþá mjög
fjarri því að ná fram þeim kjara-
bótum sem þarf til að rétta hlut
Hann sagði að það væri mjög
mismunandi eftir starfsaldri
hversu mikil hækkun kæmi til
kennara, en gegnumsneitt gæti
hann trúað að hækkunin væri á
bilinu 5—10% sem kæmi nú.
Hann sagði það gera erfiðara um
vik að átta sig á hækkuninni að í
aðalkjarasamningi væri tekinn
upp nýr launastigi. Hann sagði að
eitt atriði sem fengist hefði fram
og þeir teldu verðmætt væri það
að framhaldsnám eftir kennara-
próf yrði nú metið til launa-
flokkahækkana.
„Það er því miður ekki um nein-
ar stórkostlegar hækkanir að
ræða í þessum samningi, en það
er enginn vafi að þennan samning
urðum við að gera nú til að ná
þessum hækkunum strax. Við er-
um búnir að vera með lausan
samning frá 1. mars og erum því
búnir að bíða í þrjá mánuði eftir
þessari leiðréttingu sem er til
samræmis við úrskurð Kjara-
dóms. Okkur þykir sú bið orðin
löng. Að sjálfsögðu hefðum við
viljað sjá miklu betri samning, en
miðaö við aðstæður var engin
spurning um að gera hann,“ sagði
Valgeir Gestsson að lokum.
Lánskjaravísitalan:
2,97 % hækkun frá í júní
SEÐLABANKI íslands hefur reikn-
að út lánskjaravísitölu fyrir júlí
næstkomandi. Unskjaravísitala
1178 gildir fyrir júlí og er hækkun
iánskjaravísitölu frá mánuðinum á
undan 2,97%.
I fréttatilkynningu frá Seðla-
bankanum egir að þessi hækkun
stafi einku af því að taxtar út-
seldrar vir.nu hækkuðu vísitölu
byggingarkostnaðar um 4,3%.
Líkur benda nú til, að meðalhækk-
un næstu mánuði verði talsvert
lægri. Umreiknuð til árshækkunar
hefur breytingin verið: í síðasta
mánuði 42,1%, síðustu 3 mánuði
28,7%, síðustu 6 mánuði 37,1% 0g
síðustu 12 mánuði 30,5%.