Morgunblaðið - 28.06.1985, Blaðsíða 6
6
MORGUNBLAÐID, FÖSTUDAGUR 28. JÚNÍ 1985
ÚTVARP / S JÓN VARP
Ljóti
andarunginn
Það er bjart yfir landi voru á
ári æskunnar, þótt vissulega
megi ætíð greina óveðursský við
sjóndeiidarhring. Hvað um það þá
hefir æskuljóminn lýst upp
dagskrá ríkisfjölmiðlanna að und-
anförnu, er þar skemmst að minn-
ast líflegs spjalls fimm ungmenna,
er var á dagskrá nú á þriðjudag-
inn, en ég fjallaði um eitt efnisatr-
iði þess í gærdagsþætti mínum,
sum sé blessuð skólamálin...
virtust mér krakkarnir einhuga
sammála um að allir ættu að sitja
við sama borð hvað varðar aðgang
að grunnskóla. Hér átti að
standa ... virtust mér krakkarnir
einhuga um.
... Leiðréttist þetta hér með.
En af fleiru er að taka í dagskrá
ríkisfjölmiðlanna en spjall er
minnir á lífsglaða jafnréttissinn-
aða æsku lands vors, til dæmis:
Barnaútvarpið á rás 1. Ragnheiður
Gyða Jónsdóttir stýrir þessu út-
varpi smáfólksins og kennir þar
margra grasa ... einsog segir í
dagskrárkynningu. Starfs míns
vegna hef ég nokkuð fylgst með
barnaútvarpinu og get verið sam-
mála um að þar kennir margra
grasa, þannig er rætt um ýmis
áhugamál krakkanna og einnig fá
þau að velja lög í þáttinn og fyrir-
spurnum er svarað.
Barnssálin
Já, það ber svo sannarlega
margt fyrir augu og eyru í hinum
margþættu barnatímum ríkis-
fjölmiðlanna þessa dagana og ekki
gieymist að lesa sögur fyrir börnin
jafnvel ekki í sjónvarpið. Hafði ég
býsna gaman af leikrænum til-
burðum Gunnlaugs Ástgeirssonar
framhaldsskólakennara er hann
las þar nú á miðvikudaginn sögu
H.C. Andersen af fjöðrinni er-
breyttist í fimm hænur. Ég hafði
reyndar ekki bara gaman af lestri
Gunnlaugs vegna hinna leikrænu
tilburða heldur og vegna þess, að
ævintýri Andersen gamla lýsa í
senn inní barnssálina og samfélag
okkar fullorðnu. Þessi fátæki skó-
arasonur virtist alla ævi sjá sam-
félagið með augum barnsins og
finn ég hvergi jafn næma skynjun,
í senn á barnssálinni og þeim
heimi er hinir fullorðnu hafa
skapað og í verkum Andersen,
nema ef vera skyldi hjá Dickens.
Andersen & Dickens
Ég hef oft velt fyrir mér hver sé
ástæða þess að bæði Andersen og
Dickens virðast á nánast
áreynslulausan hátt getað siglt í
gegnum úfnar tilfinningaöldur
barnssálarinnar, yfir á það haf er
vér fullorðnir siglum um þjóðar-
skútum. Eftir nokkra athugun tel
ég að skýringarinnar sé ef til vill
að leita í þeirri staðreynd, að bæði
Dickens og Andersen voru við-
kvæmir en jafnframt stórgáfaðir,
metnaðargjarnir og réttlætissinn-
aðir einstaklingar en áttu það
sameiginlegt að alast upp við erf-
iðar aðstæður. Andersen í mikilli
fátækt einsog áður sagði og faðir
Charles Dickens hefur sennilega
verið drykkjusjúklingur. Bæði
Dickens og Andersen komust síðar
á ævinni til mikilla metorða og
varð Dickens reyndar forríkur, en
samt lifði innra með þessum
mönnum samúðin með þeim er
minna máttu sín hvort sem það
var lítil stúlka að selja eldspýtur
fyrir utan glugga, þar sem börn
hinna betur stöddu veifuðu
áhyggjulaus jólagjöfum eða
svangur drengur á fátækrahæli er
barði í borðið og bað um meiri
mat. Eiga slíkar sögur annars
nokkurt erindi við okkur á því
herrans ári er nú lifir og er helgað
hinni frjálsbornu æsku? Svari
hver fyrir sig.
Ólafur M.
Jóhannesson
öskunni
eldinn
■I Bresk-banda-
15 rísk heimilda-
mynd, „Úr ösk-
unni í eldinn", er á
dagskrá sjónvarpsins
klukkan 21.15 í kvöld.
1 myndinni er rætt við
fjóra bandaríska fanga,
sem börðust í Víetnam-
striðinu, og fjallað verður
um áhrif stríðsins á fyrr-
verandi hermenn en
margir þeirra bíða aldrei
reynslu sinnar bætur.
Þýðandi er Bogi Arnar
Finnbogason.
Gypsy á þjóðhátíð
■^■* nGypsy á þjóð-
0(140 hátíð" nefnist
dagskrárliður í
sjónvarpinu í kvöld klukk-
an 20.40. Dagskrá þessi er
frá 17. júní-tónleikum í
Laugardalshöllinni, sem
haldnir voru þar á vegum
Æskulýðsráðs Reykjavík-
ur.
Hljómsveitin Gypsy
leikur þungarokk.
Hljómsveitina skipa: Jón
Ari Ingólfsson og Ingólfur
Ragnarsson, gítarleikar-
ar, Hallur Ingólfsson,
trommuleikari, Heimir
Sverrisson bassaleikari og
Jóhannes Eiðsson, söngv-
ari.
Upptöku stjórnaði Rún-
ar Gunnarsson.
Dagskrá þessi er 45
mínútna löng.
Sally Kellerman í tit ilhlutverkinu með aðdáendum
„Með ljósa lokka“
— bandarfsk sjónvarpsmynd
■I Bandarísk sjón-
05 varpsmynd,
““ „Með ljósa
lokka“ er á dagskránni í
kvöld klukkan 22.05.
Myndin er gerð eftir
kunnri smásögu eftir Dor-
othy Parker. Leikstjóri er
Kirk Browing og með að-
alhlutverkin fara: Sally
Kellerman, John Lithgow,
George Coe og Peg
Murray.
Söguhetjan er ljóshærð
fyrirsæta, ímynd þeirra
kvenna, sem eiga allt sitt
undir því að falla karl-
mönnum í geð. Á það
reynist þó valt að treysta
þegar á móti blæs.
Þýðandi er Kristrún.
Þórðardóttir.
Kvöld
vaka
■■■■ Kvöldvaka er á
<)A 40 dagskrá rásar 1
í kvöld klukkan
20.40 og kennir þar ým-
issa grasa sem fyrr.
Tveir liðir eru í kvöld-
vökunni að sinni. Fyrst
kemur Helga Einarsdóttir
og lýkur lestri æviminn-
inga Helgu Níelsdóttur úr
bókinni „Fimm konur"
eftir Vilhjálm S. Vil-
hjálmsson. Sá liður nefn-
ist „í miðju straumkast-
inu“.
Síðan kemur þáttur,
„Hafið bláa hafið ... “ en
í honum flytur Þorsteinn
Matthíasson frásöguþátt
byggðan á samtölum við
Guðlaug Pálsson, kaup-
mann á Eyrarbakka.
Umsjónarmaður kvöld-
vöku er Helga Ágústs-
dóttir.
Lög og lausnir
■i Þátturinn „Lög
00 og lausnir" er
nýlegur þáttur,
sem er á rás 2 í kvöld og
er það þriðji þátturinn,
sem útvarpað er í kvöld
klukkan 20.00. Stjórnandi
þáttarins er Adolf H. Em-
ilsson.
Adolf sagði i samtali
við Mbl. að þátturinn væri
spurningaþáttur um tón-
list sem væri í tvennu
formi. „Leikin verða tíu
lög og síðan spyr ég
spurninga um þau lög.
Gefin verða upp þrjú
möguleg svör við hvert lag
og á fólk síðan að krossa
við hjá sér rétt svar, og
eru seðlarnir svipaðir og í
fótboltagetraunum, 1X2.
Eftir fimm spurningar
er gerður hálfleikur og er
þá leikið lag og er fólk
beðið um að hringja og
tveir fyrstu til að hringja
með rétt svar um heiti
lags og heiti hljómsveitar
fá síðan að keppa sín á
milli um hver þeirra sé á
undan að þekkja byrjun-
ina á ýmsum lögum,“
sagði Adolf að lokum.
Þáttur þessi er vikulega
á dagskrá og er klukku-
tíma langur í senn.
ÚTVARP
FÖSTUDAGUR
28. júnl
7.00 Veðurfregnir. Fréttir.
Bæn.
Morgunútvarp. 7.20 Leik-
fimi. 7.55 Daglegt mál.
Endurt. páttur Sigurðar G.
Tómassonar frá kvðldinu áð-
ur.
8.00 Fréttir. Tilkynningar.
Dagskrá. 8.15 Veöurfregnir.
Morgunorð: — Anna Maria
Ogmundsdóttir, Flateyri, tal-
ar.
9.00 Fréttir.
9.05 Morgunstund barnanna:
„Litli bróöir og Kalli á þak-
inu" eftir Astrid Lindgren.
Siguröur Benedikt Bjðrnsson
les þýðingu Siguröar Gunn-
arssonar (9),
9.20 Leiktimi. 9.30 Tilkynn-
ingar. Tónleikar. Þulur velur
og kynnir.
10.00 Fréttir. 10.10 Veður-
fregnir. Forustugr. dagbl.
(útdr.). Tónleikar.
10.45 „Mér eru fornu minnin
kær". Einar Kristjánsson frá
Hermundarfelli sér um þátt-
inn. FtÚVAK.
11.00 Morguntónleikar. Tónlist
eflir Louis Spohr og Pjotr
Tsjalkovský.
12.00 Dagskrá. Tilkynningar.
1220 Fréttir. 12.45 Veður-
fregnir. Tilkynningar. Tón-
leikar
14.00 „Hákarlarnir" effir Jens
Björneboe. Dagný Kristjáns-
dóttir þýddi. Kristján Jóhann
Jónsson les (18).
14J0 Miðdegistónleikar a.
„Silkistiginn", forleikur eftir
Gioacchino Rossini og b.
Ungversk rapsódfa nr. 2 eftir
Franz Liszt. Lamoureux-
hljómsveitin leikur: Roberto
Benzi stjórnar. c. Planókon-
sert nr. 1 I b-motl op. 32 eftir
Xaver Scharwenka. Earl Wild
og Sinfónluhljómsveitin I
Boston leika: Erich Leinsdorf
stj.
15.15 Létt lög.
15.30 Tilkynningar. Tónleikar.
16.00 Fréttir. Dagskrá. 16.15
Veðurfregnir.
16.20 A sautjándu stundu. Um-
sjón: Sigrlður 0. Haralds-
dóttir og Þorsteinn J. Vil-
hjálmsson.
17.00 Fréttir á ensku.
17.05 Barnaútvarpið. Stjórn-
andi: Ragnheiður Gyða
Jónsdóttir.
17.35 Frá A til B. Létt spjall um
umferðarmál. Umsjón: Bjðrn
M. Björgvinsson og Tryggvi
Jakobsson. Tilkynningar.
18.45 Veðurfregnir. Dagskrá
kvöldsins.
19.00 Kvöldfréttir. 19.40 Til-
kynningar.
Daglegt mál. Valdimar
Gunnarsson flytur þáttinn.
20.00 Lög unga fólksins. Þóra
Björg Thoroddsen kynnir.
20.40 Kvöldvaka.
a) i miöju straumkastinu.
Helga Einarsdóttir lýkur lestri
æviminninga Helgu Nlels-
dóttur úr bókinni „Fimm
konur" eftir Vilhjálm S. Vil-
hjálmsson.
b) Kórsöngur. Karlakór
Keflavlkur syngur undir
stjórn Sigurðar Demets
Franzsonar.
c) Hestamenn I Reykjavlk og
reiðskjótar þeirra. Baldur
Pálmason les úr minninga-
bók Danlels Danlelssonar,
Ijósmyndara, sem Iftur aflur
tíl aldamóta og betur þó.
Umsjón: Helga Agústsdóttir.
21.30 Frá tónskáldum. Átli
Heimir Svelnsson kynnir
„Kantðtu IV" eftir Jónas
Tómasson.
22.00 Hestar. Þáttur um hesta-
mennsku I umsjá Ernu Arn-
ardóttur.
22.15 Veðurfregnir. Fréttir.
Dagskrá morgundagsins.
Orð kvöldsins.
22.35 Ur blöndukútnum —
Sverrir Páll Erlendsson.
RUVAK.
23.15 Kammertónleikar Sin-
fónluhljómsveitar Islands I
Bústaðakirkju 31. janúar sl.
Stjórnandi og einleikari: Ja-
ime Laredo. a. Concerto
SJÓNVARP
19.15 A döfinni
Umsjónarmaður Karl Sig-
tryggsson. Kynnir Birna
Hrólfsdóttir
1925 Krakkarnir I hverfinu
Kanadlskur myndaflokkur
um hversdagsleg atvik I llfi
nokkurra borgarbarna. Þýð-
andi: Kristrún Þórðardóttir.
19.50 Fréttaágrip á táknmáli
20.00 Fréttir og veöur
20.30 Auglýsingar og dagskrá
20.40 Gypsy á þjóðhátlð
Frá 17. júni tónleikum I Höll-
inni á vegum Æskulýðsráðs
Reykjavlkur. Hljómsveitin
Gypsy leikur þungarokk.
Hana skipa: Jón Ari Ingólfs-
FÖSTUDAGUR
28. júní
son og Ingólfur Ragnarsson,
gltarleikarar, Hallur Ingólfs-
son, trommuleikari, Heimir
Sverrisson, bassaleikari, og
Jóhannes Eiðsson, söngvari.
Upptöku stjórnaði Rúnar
Gunnarsson.
21.15 Ur ðskunni I eldinn
Bresk-bandarlsk heimildar-
mynd. I myndinni er rætt við
fjóra bandarlska fanga, sem
böröust I Vletnamstrlðinu. og
fjallað um áhrif strlðsins á
fyrrverandi hermenn en
margír þeirra blða aldrei
reynslu sinnar bætur. Þýð-
andi: Bogi Arnar Finnboga-
son.
22.05 Með Ijósa lokka
(Big Blonde) Bandarfsk sjón-
varpsmynd, gerö eftir kunnri
smásögu eftir Dorothy Park-
er. Leikstjóri Kirk Browling.
Aöalhlutverk: Sally Keller-
man, John Lithgow, George
Coe og Peg Murray. Sðgu-
hetjan er Ijóshærð fyrirsæta,
Imynd þeirra kvenna sem
eiga allt sitt undir þvl aö falla
karlmönnum I geð. A það
reynist þó valt að treysta
þegar á móti blæs.
Þýðandi Kristrún Þórðar-
dóttir.
23.25 Fréttir I dagskrárlok.
grosso ( ,G-dúr op. 6 nr. 1
eftir Hándel. b. „Poemi" fyrir
fiðlu og strengjasveit eftir
Hafliða Hallgrlmsson. —
Frumflutningur undir stjórn
tónskáldsins. c. Fiðlukonsert
i a-moll eftir Bach. d. Sin-
fónla I c-moll (nr. IX) eftir
Mendelssohn. — Kynnir:
Jón Múli Arnason.
00.50 Fréttir. Dagskrárlok.
10.00—12.00 Morgunþáttur
Stjórnendur: Páll Þorsteins-
son og Asgeir Tómasson.
14.00—16.00 Pósthólfið
Stjórnandi: Valdls Gunnars-
dóttir.
10.00—18.00 Léttir sprettir
Stjórnandi: Jón Ólafsson.
Þriggja mlnútna fréttir sagð-
ar klukkan 11:00, 15:00
16:00 og 17:00.
Hlé.
20.00—21:00 Lög og lausnir
Spurningaþáttur um tónlist.
Stjórnandi: Adolf H. Emils-
son.
21.00—22.00 Bræðingur
Stjórnandi: Arnar Hákonar-
son.
22.00—23.000 A svörtu nótun-
um
Stjórnandi: Pétur Steinn
Guðmundsson.
23.00—03.00 Næturvaktin
Stjórnendur: Vignir Sveins-
son og Þorgeir Astvaldsson.
Rásirnar samtengdar að lok-
inni dagskrá rásar 1.