Morgunblaðið - 28.06.1985, Síða 15

Morgunblaðið - 28.06.1985, Síða 15
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 28. JÚNÍ 1985 15 mikill kraftur í myndgerð henn- ar og hún hefur næma tilfinn- ingu fyrir litnum; hvergi hráir tónar, sem fara í fínu taugarnar en þess í stað hrynjandi, sem gerir litinn að aðalefni verksins, en formið hefur minna að segja. Það má þekkja svolítið hollenzkt við þessi verk, og þau sverja sig í þá hefð sem gert hefur hollenzkt málverk að því, sem það er. Það er hér til staðar og er undirtónn- inn í því sem Nini Tang gerir í myndlist sinni í dag. Hún notar nútíma aðferðir en enginn sem þekkir til hollenzkra málara, get- ur efast um uppruna þessara verka. Það var mjög skemmtilegt að sjá þessi verk, og ég fagna sýningum hjá ungu fólki, þegar alvara og hæfni spila þannig saman, að úr verður verk, sem endurnýja og rumska við göml- um fauskum eins og þeim sem þetta ritar. Þarna komu mér á óvart hæfi- leikar, sem ég er viss um að eiga eftir að þróast og þroskast, ef vel er unnið og rétt á haldið. Hafi Nini Tang þökk fyrir komuna, og vonandi á hún eftir að koma enn einu sinni. Sýning Myndlist Valtýr Pótursson Það sýningaflóð, sem átt hefur sér stað á undanförnum árum hér í borg, fæðir af sér margar og ein- kennilegar spurningar. Þar á meðal er maður farinn að spyrja í hvert sinn, sem boðskort berast inn úr dyrum, er þetta alvörumálari eða gervilistamaður? Elías B. Halldórsson er alvöru- málari og það sannar sú sýning sem hann nú heldur á Kjarvalsstöðum. Hann er í kaupstað, ef svo mætti til orða taka, því að hann er búsettur norður á Sauðárkróki og er því einn af fáum málurum, sem ekki er bú- settur á höfuðborgarsvæðinu. Elías hefur haft gott næði, og margt bendir til þess að einangrun hans hafi verið honum um margt til góðs, þó er ég hræddur um, að hann sakni ýmissa hluta þarna norður á Króknum, en ekki meir um það. Sýning Elíasar er veigamikil og gefur góða hugmynd um Elías sem málara. Hann er vel sjóaður í fræð- unum og hefur haldið margar einkasýningar bæði hér og annars staðar. Hann sýnir í þessum verk- um, að hann er enginn byrjandi, allt er þrauthugsað og hnitmiðað; ef til vill um of á stundum. Yfirleitt eru það nokkuð stór léreft sem hann sýnir, en einnig er þarna að finna litlar olíumyndir, gerðar á pappír og sumar þeirra eru að mínu mati fremri sumum stóru verkun- Elíasar um. Þarna er einnig eitt stærsta málverk, sem ég man eftir að hafa séð hér á landi. Það er hið mikla verk „Blóðnætur" No. 79 á sýningu Elíasar. Hér er um stórvirki að ræða, sem ætti skilið að skreyta opinbera byggingu, en það er nokk- uð einhæft í myndbyggingu og lit- ameðferð; rautt ræður þar ríkjum og myndbygging er meitluð í sam- ræmi við eðli litarins. Ég virði þetta verk, en ég er ekki viss um, að það sé bezta myndlistin á þessari sýn- ingu. Verk eins og No 6, 9, 51, 58, 60, 75 og 43 finnst mér vera þunga- miðja þess tímabils hjá Elíasi, sem hann sýnir að sinni. Hann á það til að vera nokkuð þungur í myndbygg- ingu sinni og litameðferð, en hann á það líka til að spretta úr spori og þá lifnar yfir hlutunum. Flest eru þessi verk abstraktionir, sem eru í nánu sambandi við umhverfið og tilveruna; jafnvel væri hægt að kalla sum þessara verka stíliseruð afbrigði af sjálfri náttúrunni eða á að segja þau sprottin úr daglegum hugarheimi listamannsins? Hvern- ig svo sem orðalagið er eru þetta vönduð verk, sem sýna hver dugur er i þessum sérsinnaða utanborg- armanni og það gefur þessum verk- um sannarlega svip, og það er svip- ur Elíasar B. Halldórssonar og einskis annars. Það mætti sjálfsagt finna þessum verkum ýmislegt til foráttu, en þau er svo heiðarleg og vel unnin, að ekki verður annað sagt en að hér sé merkileg sýning á ferð. Leikbrúðutöfrar Kvikmyndlr Sæbjörn Valdimarsson Stjörnubíó: Leikbrúðutöfrar ☆☆'/2 Leikstjóri: Frank Oz. Framleið- andi: Jim Henson, David Lazer. Handrit: Oz, Tom Patchett, Jay Tarsess. Myndataka: Robert Pa- yntter. Klipping: Evan Lottman. Tónlist: Ralph Burns. Brúðu- stjórn: Jim Henson, Frank Oz, Dave Goelz, Steve Whimire, Rich- ard Hunt, Jerry Nelson. Leikin hlutverk: Juliana Donald, Lonny Price, Louis Zorich. Frumsýnd í júlí 1984. Fyrsta mynd hins nýja dreifingarfyrirtækis Tri Star. 94 mín. Þeim Oz og Henson hefur lík- lega ekki áður tekist betur upp sem galdrakarlar en í Prúðu- leikararnir slá í gegn. Söguþráð- urinn er að vísu nokkuð lang- dreginn og misgóður, en því betri tökum hafa kvikmynda- gerðarmennirnir náð á þessum dæmalausu brúðum. Nú ætla þeir Kermit og félag- ar að slá í gegn á Broadway, með frumsömdum dans- og söngvaleik. En einsog leikhús- fólk veit er leiðin þangað ekki auöhlaupin, heldur löng og ströng. Og eftir fjölmargar, misheppnaðar tilraunir við að koma verkinu á fjalirnar, lítur helst út fyrir að draumurinn sé að renna út í sandinn og hópur- inn heldur hver í sína áttina. Svo þegar allar vonir um stjörnuskinið á Broadway virð- ist fyrir bí kemur kornungur framleiðandi til skjalanna og áður en varir eru æfingar hafn- ar á nýjan leik. En nú kemur babb í bátinn, aðalmaðurinn, Kermit, er nefni- lega gufaður upp, svo loks er hann finnst, á frumsýningar- daginn, kemur í ljós að hann hefur tapað minninu! Hér er oft unaðslega fléttað saman raunveruleikanum og ævintýrinu. Það hefur heldur betur fjölgað í prúðuleikara- hópnum og munar þar mest um eldhressar rottur sem hafa ofan af fyrir sér með því að þjóna til borðs á lítilli matstofu á Man- hattan! Stofan sú verður aðal- aðsetur Prúðuleikarahópsins. Sem fyrr er textinn meinfynd- inn, hlýr og kærleiksríkur og myndin í heild hin ágætasta fj ölsky lduskemmtun. Einsog fram hefur komið, er mikið sungið og dansað í Prúðu- lcikurunum ..., og geri aðrir betur! Áður hefur verið vikið að glæsilegri frammistöðu stjórn- enda brúðanna, þeir leikarar sem eru af holdi og blóði standa sig með sóma, ekki síst Lois Zorich og Juliana Donald sem eigandi matsölustaðarins og dóttir hans. Að venju bregður fyrir mörgum, þekktum andlit- um, m.a. Dobney Coleman, Gregory Hines, Árt Carney, Lizu Minelli, Elliott Gould og Brooke Shields. En senuþjóf- arnir eru auðvitað Kermit og Svínka, og nú tekst henni loks- ins að koma eftirlætisfroskin- um sínum í hnapphelduna ... Askriftcirsíminn er 83033 r. 599 Kr. 549 Sumaríœtur þuría létta og lipra strigasko á góðu verði Póstverslun: Sími (91) 30980 HAGKAUP Reykjavík • Akureyri • Njarðvík

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.