Morgunblaðið - 28.06.1985, Blaðsíða 21
MORGUÍÍBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 28. JÚNÍ 1985
21
Leiðtogar Evrópubandalagsins á fundi:
Meiri
eitt
eirnng
af meginmálunum
Mílanó, 27. júní. AP.
FRAKKAR OG Vestur-Þjóðverjar
tilkynntu í dag að þeir stluðu að
leggja fram nýjar tillögur um póli-
tíska einingu innan Evrópubanda-
lagsins, stofnun nokkurs konar
Bandaríkja Evrópu. Var greint frá
þessu í dag en á morgun hefst í
Mílanó á Ítalíu leiðtogafundur Evr-
ópubandalagsins. Helstu umræðu-
efnin verða nýjar leiðir í baráttunni
við alþjóðalega hermdarverkastarf-
semi, vaxandi verndarstefnu á
Bandaríkjamarkaði og áætlanir um
aukna stjórnmálalega einingu með-
al aðildarríkjanna.
Bettino Craxi, sem þetta miss-
erið er forseti Evrópubandalags-
ins, hefur beitt sér fyrir því síð-
ÍÍI
D
( X
Sirhan Bihara Sirhan tekur sér stöðu við upphaf réttarhaldsins og lyftir hendi
til þess að vinna eið.
Morðingi Kennedys
fær sig ekki lausan
Soledad, Kilirornia, 27. júni. AP.
SIRHAN B. Sirhan, sem dæmdur
var fyrir morðið á Robert F.
Kennedy öldungadeildarþing-
manni, reyndi í gær að fá sig laus-
an úr fangelsi, en var synjað um
reynslulausn gegn loforði úm góða
hegðun.
Nefnd, sem fjallar um beiðnir
af þessu tagi, ákvað að bíða með
dagsetningu reynslulausnar
fyrir Sirhan. Sagði nefndin að
morðið á Robert F. Kennedy
1968 hefði verið tilræði við lýð-
ræðið.
Rudolph Castro, formaður
þriggja manna nefndar sem
fjallaði um beiðni Sirhans, sagði
tilgang morðingjans að þagga
niður í fórnarlambinu, sem var
fulltrúi bandarísku þjóðarinnar
og verðmætamats hennar. Hann
sagði Sirhan enn ekki hafa geng-
ist fyllilega við verknaðinum og
héldi enn fram að Kennedy
verðskuldaði þau örlög, sem
hann hlaut.
Sirhan hefur jafnan neitað að
taka þá í betrunarstarfi í fang-
elsi. Hann hefur nú verið fluttur
úr einangrun og færður í fang-
elsi, þar sem hann fær að blanda
geði við aðra fanga.
Sudur-Afríka:
Jóhnnnennrborg, Suóur Afrfku, 27. júní. AH.
SJÖ svartir menn, sem særðust í
fyrrinótt af völdum hand-
sprengja eru nú í vörslu lög-
reglunnar í Suður-Afríku, en
talsmenn halda því fram, að
mennirnir hafi ætlað að vinna
hryðjuverk með sprengjunum en
þær sprungið fyrir slysni. Átta
svartir menn létust í sprenging-
unum.
Kirkjuráðið í Suður-Afríku
vill ekki leggja trúnað á yfirlýs-
ingar lögreglunnar og telur, að
yfirvöldunum sé um að kenna
ofbeldið og óeirðirnar, sem urðu
í hverfum svartra manna í fyrri-
nótt. Að sögn lögreglunnar
sprungu sprengjurnar þegar
mennirnir, sem létust og slösuð-
ust, ætluðu að ráðast með
sprengjukasti á heimili svarts
iögregluþjóns auk þess sem einn
maður hefði látist þegar
sprengja, sem hann ætlaði að
koma fyrir við orkuver, hefði
sprungið í höndum hans.
Svartir menn benda á, að
mennirnir, sem létust, hafi allir
verið framarlega í réttindabar-
áttu svertingja og enginn þeirra
komið nærri skæruhernaði.
ERLENT
ustu daga, að EB-ríkin samræmi
afstöðu sína til málefna í Miðaust-
urlöndum og átti m.a. í því skyni í
gærkvöldi viðræður við sendi-
nefnd Jórdaníumanna og Palest-
ínumanna. Vill sendinefndin fá
stuðning Evrópuríkjanna við
áætlun um friðarsamninga við
fsraela gegn því, að ísrael láti af
hendi allt land sem þeir hafa tekið
síðan 1%7, og viðurkenni stofnun
palestínsks ríkis í tengslum við
Jórdaníu. Sagði Craxi, að hér væri
um að ræða „vænlega tillögu" en
vildi ekki tá sig frekar.
Eitt af meginmálunum á fund-
inum verður að finna nýjar leiðir
hvað varðar ákvarðanatöku en nú-
verandi regla, sem krefst þess að
allir séu á einu máli, hefur verið
bandalaginu mikill fjötur um fót.
Nefnd, sem hefur um þetta fjallað,
leggur til að meirihlutinn ráði í
flestum málum en samþykki allra
þjóðanna þurfi til í þeim mikil-
vægustu.
Þótt hryðjuverkastarfsemi sé
ekki formlega á dagskrá þykir víst
að hún muni verða nokkuð fyrir-
ferðarmikil í umræðum manna á
fundinum vegna flugránsins í
Beirút og annarra hermdarverka
að undanförnu. Einnig verður
rætt um aukna verndarstefnu í
Bandaríkjunum, atvinnuleysið i
Evrópu og Eureka-áætlunina, sem
er svar Evrópumanna, einkum
Frakka, við geimvarnaáætlunum
Bandaríkjamma.
Michel Vauzelle, talsmaður
frönsku stjórnarinnar, sagði í dag,
að með tillögu Frakka og Vestur-
Þjóðverja væri stefnt að því að
auka pólitíska einingu innan
bandalagsins og að stjórnir ríkj-
anna hefðu ráðfært sig við Craxi,
forsætisráðherra Italíu, og hefði
hann fallist á hana.
Ali Agca. Mynd þessi var tekin í réttarhöldunum nú í vikunni.
Ali Agca neitar að bera vitni
Kóm, 28. júní. AP.
í DAG neitaði Mehmet Ali Agca, tilræðismaðurinn er skaut á Jóhannes
Pál páfa II, að bera vitni fyrir réttinum í Róm í máli sjömenninganna,
sem hann hefur sakað um að hafa undirbúið banatilræðið.
Agca kom ekki fyrir réttinn,
en sendi skriflega orðsendingu
úr fangelsinu, þar sem hann
kvaðst ætla að „hugleiða", hvort
hann ætti að halda áfram að
bera vitni.
Á þeim 12 dögum, sem Agca
hefur verið kvaddur í vitna-
stúku, hefur framburður hans
verið bæði laus í rásinni og mót-
sagnakenndur.
Ákæra saksóknarans á hendur
Búlgörunum þremur og Tyrkj-
unum fjórum, sem sakaðir eru
um að hafa átt þátt í tilræðinu
við páfa, er í meginatriðum
byggð á framburði Agcas.
En þótt Agca sé aðalvitni
saksóknarans í máli sjömenn-
inganna er hann einnig einn af
sakborningunum. Er sakarefnið
á hendur honum það, að hann
hafi á ólöglegan hátt flútt inn
skotvopnið, sem hann notaði við
tilræðið.
Antonio Marini saksóknari
sagði, að hann væri hvorki undr-
andi né áhyggjufullur vegna
framferðis vitnisins. „Hann hef-
ur tvisvar áður neitað að bera
vitni og þetta verður örugglega
ekki síðasta skiptið," sagði Mar-
ini við fréttamenn. „En réttar-
höldin snúast ekki eingöngu um
Agca.“
Deilt um dauða
átta svertingja
TOYOTA. .
24. - 30. júní
FÖSTUDAGUR 28.
BLÖNDUÓS
Sýningartími: 15:00-18:00
Sýningarstaður: Við Bílaþjónustu Blönduóss
LAUGARDAGUR 29.
HVAMMSTANGI
Sýningartími: 10:00-11.30
Sýningarstaður: Við Vélamiðstöðina
BÚÐARDALUR
Sýningartími: 13:00-14:30
Sýningarstaður: Við Dalverk sf.
STYKKISHÓLMUR
Sýningartími: 16:30-18:30
Sýningarstaður: Við Nýja Bílaver hf.
SUNNUDAGUR 30.
BORGARNES
Sýningartími: 10:00-14:00
Sýningarstaður: Við Bifreiða- og trésmiðju
Borgarness
AKRANES
Sýningartími: 14:30-17:00
Sýningarstaður: Við Bílasöluna Bílás
TOYOTA
ÞJONUSTA