Morgunblaðið - 28.06.1985, Page 25
24
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 28. JÚNÍ 1985
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 28. JÚNf 1985
25
lltovgtiiiHfifeife
Útgefandi
Framkvæmdastjóri
Ritstjórar
Aðstoöarritstjóri
Fulltrúar ritstjóra
Fréttastjórar
Auglýsingastjóri
hf. Árvakur, Reykjavík.
Haraldur Sveinsson.
Matthías Johannessen,
Styrmir Gunnarsson.
Björn Bjarnason.
Þorbjörn Guömundsson,
Björn Jóhannsson,
Árni Jörgensen.
Freysteinn Jóhannsson,
Magnús Finnsson,
Sigtryggur Sigtryggsson,
Ágúst Ingi Jónsson.
Baldvin Jónsson.
Ritstjórn og skrifstofur: Aöalstræti 6, sími 10100. Auglýsingar: Aö-
alstræti 6, sími 22480. Afgreiösla: Kringlan 1, sími 83033. Áskrift-
argjald 360 kr. á mánuöi innanlands. í lausasölu 30 kr. eintakiö.
Merkilegt framtak
í skólamálum
ær María Solveig Héðins-
dóttir og Margrét Theó-
dórsdóttir, sem hafa ákveðið
að reka Tjarnarskólann í
Reykjavík, einkaskóla á
grunnskólastigi, sýna mikið
hugrekki með merkilegu
framtaki sínu. Vegna reynslu
sinnar sem kennarar vilja
þær reyna nýjar leiðir í
skólamálum. Hugmyndin um
einkaskólann varð til í kenn-
araverkfallinu síðastliðið
haust. Því ber að fagna, að
opinberir aðilar eins og
menntamálaráðuneyti og
borgaryfirvöld hafa ekki lagt
stein í götu þessa nýmælis.
Ekki þarf að efast um að al-
menningur á eftir að sýna því
áhuga. Takist tilraunin á hún
eftir að marka þáttaskil í ís-
lenskum skólamálum.
Fyllsta ástæða er til að
nota orðið hugrekki, þegar
rætt er um framtak þeirra
Maríu Solveigar Héðinsdótt-
ur og Margrétar Theódórs-
dóttur. Strax daginn eftir að
þær kynntu stofnun einka-
skólans á fundi með blaða-
mönnum birtast árásargrein-
ar á framtakið í þeim dag-
blöðum, sem ávallt snúast
hatrammlega gegn öllu, er
getur hróflað við hinu opin-
þera kerfi og einkarétti ríkis-
ins: Alþýðublaðinu, NT og
Þjóðviljanum. Tónninn er sá
sami í öllum blöðunum. Orð-
bragðið er ljótt, ýtt er undir
öfund, höfðað er til minni-
máttarkenndar og alið er á
vansæld þeirra, sem sagt er
að ekki hafi efni á að senda
börn sín í hinn nýja einka-
skóla.
Viðbrögð vinstrisinna við
framtaki einstaklinga á þeim
sviðum þjóðlífsins, þar sem
þeir vilja að sviplaus ásýnd
hins opinbera valds ráði lög-
um og lofum, eru alltaf eins. 1
fyrsta lagi er látið eins og
heimsendir sé í nánd. f öðru
lagi er það viðurkennt með
bægslaganginum, að í raun
geti einstaklingar líklega
gert betur en sjálft ríkið. Og í
þriðja lagi er tekið til við að
skæla yfir því, að málum
verði þannig háttað að allir
geti ekki notið þess sem
einkaaðilarnir bjóða.
Nú er það svo, að í Tjarn-
arskólanum á aðeins að verða
rými fyrir 100 nemendur
næsta vetur. Það verða því
ekki fjárráð foreldra heldur
plássleysi sem valda þeim
ójöfnuði sem vinstrisinnar
telja leiða af skólanum. En
hvers vegna hrópa þeir svo
hátt yfir þessum skóla? Hvað
um auka- eða sértíma-
kennslu, sem einstakir nem-
endur í ríkisskólum kaupa til
að flýta fyrir sér í námi eða
bæta upp skólakennsluna?
Hvað um Tómstundaskól-
ann? Og tölvuskólana alla?
Af hverju er ekki býsnast yfir
þessu framtaki einstaklinga?
Af hverju hneykslast vinstri-
sinnar ekki á því fólki á
vinnufærum aldri sem kýs
frekar að sitja á skólabekk en
afla sér tekna?
Leiði stofnun Tjarnarskól-
ans til stjórnmálaátaka
vegna þeirrar áráttu vinstri-
sinna að sjá alla hluti í gegn-
um pólitísk gleraugu og meta
frelsi manna og þjóðfélags-
stöðu í krónum og aurum, er
Morgunblaðið ekki í neinum
vafa um að þeir stjórnmála-
menn, sem hagnast á átökun-
um, verða þau Ragnhildur
Helgadóttir, menntamálaráð-
herra, og Davíð Oddsson,
borgarstjóri. Þeim verður
þakkað að hefta ekki merki-
legt frumkvæði einstaklinga í
skólamálum.
Laun skóla-
tannlækna
Frumlegri tilraun skóla-
tannlækna til að hækka
laun sín með því að beita
fyrir útreikningum Hagvangs
og áliti tveggja lögfræðinga
er lokið. Davíð Oddsson,
borgarstjóri, sagði eftir fund
með fulltrúum tannlækn-
anna, að þeir hefðu áttað sig
á því að aðferðin, sem þeir
beittu í launamálum, væri á
misskilningi byggð. Málinu
hefur verið skotið til Hag-
stofunnar.
Það er Tryggingastofnun
ríkisins sem á að semja um
laun skólatannlækna. Nú hef-
ur hins vegar verið upplýst í
Morgunblaðinu, að af hálfu
Tryggingastofnunar hafa
launamál tannlækna verið
látin dankast í vetur og vor.
Það var í raun frekar í verka-
hring Tryggingastofnunar að
binda enda á hina háu gjald-
töku skólatannlækna en Dav-
íðs Oddssonar, borgarstjóra.
í raun er sama hvaðan gott
kemur, en vonandi fylgist
Tryggingastofnun ríkisins
betur með fjárstreymi úr
gildum sjóðum sínum heldur
en þetta dæmi sýnir.
Bréf EFTA til EB:
Saltfisktollar breyta
forsendum fríverzlun-
arsamnings Islands
Ljósm. Þorkell
Halldór Pálsson leiðbeinir starfsmönnum Sundhallar Reykjavíkur, Stef-
áni Jóhannessyni og Irmý Toft. Brúðan er notuð við kennslu í blástursað-
ferð og hjartahnoði.
Skyndihjálpar;
námskeið RKÍ
ÁKVÖRÐUN Evrópubandalagsins
um að leggja toll á saltfisk og
skreið, sem EB-löndin flytja inn
umfram árlegan 25 þúsund tonna
kvóta, „er augljóslega andstæð
þeirri almennu mjög jákvæðu
þróun í átt að auknu viðskiptafr-
elsi milli EFTA-ríkjanna og EB,
sem nýlega var áréttuð með yfir-
lýsingu Lúxemborgarfundarins,"
segir m.a. í bréfi, sem Norbert
Steger, viðskiptaráðherra Austur-
ríkis og formaður ráðherraráðs
Fríverslunarsamtaka Evrópu
(EFTA), hefur skrifað Jacques
Delors, formanni framkvæmda-
stjórnar EB.
Segir í bréfinu að tollarnir muni
sérstaklega „valda tslandi miklum
„Þetta var mjög gagnlegur
fundur. Við fengum þarna tæki-
færi til að koma sjónarmiðum
okkar á framfæri og fundum að
þau njóta mikils stuðnings," sagði
Kjartan Jóhannsson alþingismað-
ur um fund þingmannanefndar
Fríverslunarbandalags Evrópu
(EFTA), sem var haldinn í
Reykjavík fyrir skömmu, en á
fundinum var Kjartan kosinn
formaður nefndarinnar.
Aðalmál fundarins var að ræða
framkvæmd á hinni svonefndu
Lúxemborgaryfirlýsingu frá 9.
apríl 1984, en hún fjallar um aukið
samstarf EFTA-ríkjanna við Evr-
ópubandalagið. t þessu sambandi
mótmæltu íslensku fulltrúarnir
harðlega tollum Evrópubanda-
lagsins á saltfisk og skreið, sem
koma munu illa við hagsmuni ís-
lendinga eftir inngöngu Spánar og
Portúgals um næstu áramót.
Lagði Matthias Á. Mathiesen við-
skiptaráðherra þunga áherslu á
þetta í ræðu sinni á fundinum. Að
sögn Kjartans Jóhannssonar tóku
Norðmenn mjög í sama streng og
tslendingar í þessu máli og full-
trúar annarra ríkja á fundinum
lýstu skilningi á málinu. Sagði
Kjartan það von sína að EFTA
veiti okkur öflugan stuðning í við-
ræðum okkar við Evrópubanda-
lagið um þessi mál.
António Rebelo de Sousa, einn
fulltrúa Portúgals á fundinum,
sagði að innganga Portúgals i
Evrópubandalagið,, þyrfti síður en
svo að hafa í för með sér minni
viðskipti milli Portúgals og þeirra
ríkja, sem eftir verða í Fríverslun-
arbandalaginu. Hann sagði að
Portúgalir myndu, sem fyrrver-
andi meðlimir EFTA, skilja betur
sjónarmið EFTA-landanna en
önnur ríki Evrópubandalagsins og
erfiðleikum, en útflutningur á um-
ræddum afurðum til Evrópu-
bandalagsríkjanna tólf hefur á
undanförnum árum numið um
þriðjungi heildarútflutnings ís-
lands til þessara markaða. Að-
gerðir af þessu tagi munu hafa
slæm áhrif á efnahagslíf tslands
og breyta mjög verulega þeim for-
sendum, sem fríverslunarsamn-
ingur tslands hvílir á.
Með hliðsjón af því hve mikla
áherslu EFTA-ríkin sex leggja á
að samskipti þeirra við Evrópu-
bandalagiö haldi áfram að þróast
á svo hagstæðan hátt sem unnt er,
telja þau mjög mikilvægt að þetta
vandamál fái viðunandi lausn.“
myndu þeir til dæmis beita áhrif-
um sinum innan bandalagsins til
að fá saltfisktollana margnefndu
fellda niður.
Mörg fleiri mál voru rædd á
fundinum. Má þar nefna að mikið
var rætt um hvernig auka megi
viðskipti EFTA-landanna við
þróunarlöndin. Ákveðið var að
gera úttekt á þeim málum í hverju
ríki fyrir sig á næstu mánuðum
með það fyrir augum að móta
heildarstefnu um hvernig þessum
viðskiptum skuli hagað í framtíð-
inni. Fram kom að öll EFTA-ríkin,
nema ísland, veita nú þegar
þróunarríkjum ýmiskonar tolla-
íviinanir, til þess að auka mögu-
leika hinna síðarnefndu á að flytja
út framleiðslu sína.
Rætt var hvernig einfalda megi
viðskipti milli landa með því að
minnka skriffinnsku, samræma
staðla o.s.frv. Þá var rætt um
samhæfingu a störfum EFTA-
landanna innan annarra alþjóða-
samtaka, einkum í alþjóðatolla-
bandalaginu GATT. Loks var
fjallað um hvernig auka megi
kynningu á starfi samtakanna í
aðildarríkjunum. Lagði fundurinn
til að skrifstofa samtakanna sendi
skýrslur og fréttatilkynningar til
helstu nefnda þjóðþinganna og að
áhersla verði lögð á tíðar gagn-
kvæmar heimsóknir þingmanna.
Ennfremur var lagt til að frétta-
mönnum verði í framfiðinni boðið
að hlýða á hluta umræðna á fund-
um nefndarinnar.
Á fundinum hélt Steingrímur
Hermannsson forsætisráðherra
ræðu um efnahagsmál á íslandi og
svaraði fyrirspurnum.
Kjartan Jóhannsson alþingis-
maður var á fundinum kjörinn
formaður þingmannanefndar
Bréfið er skrifað fyrir hönd
þeirra ríkja EFTA, sem eftir
verða í samtökunum þegar Portú-
gal hefur gengið í Evrópubanda-
lagið.í fréttatilkynningu frá við-
skiptaráðuneytinu segir að eftir
viðræður Matthíasar Á. Mathie-
sen viðskiptaráðherra við EB í
Brussel 24. maí sl. hafi ráðherrann
falið Hannesi Hafstein sendiherra
að athuga á hvern hátt EFTA
gæti stutt málstað íslands gagn-
vart Evrópubandalaginu vegna
álagningar á saltfisktolla frá 1.
júlí næstkomandi. Segir að full-
trúar EFTA-landanna hafi tekið
þessari málaleitan vel og ákveðið
að skrifa Jacques Delors áður-
greint bréf.
EFTA sem fyrr segir og Lennart
Petterson frá Svíþjóð varaformað-
ur. Næsti reglulegi fundur nefnd-
arinnar verður í Stokkhólmi í júní
á næsta ári.
RAUÐI KROSS íslands hefur frá
stofnun félagsins gengist fyrir
námskeiðum í skyndihjálp fyrir
almenning. Á síðasta vetri var sú
nýjung tekin upp í starfi Reykja-
víkurdeildar að fyrirtækjum og
stofnunum var boðið að senda
starfsmenn á námskeiðin. Að sögn
Halldórs Pálssonar, kennara í
skyndihjálp, mæltist það vel fyrir.
„Námskeiðin reynum við að
sníða eftir þörfum viðkomandi
fyrirtækja og því hefur ýmist ver-
ið kennt á daginn eða kvöldin.
Venjuleg námskeiö standa yfir í
12 tima og lýkur með prófi. Þeir,
sem standast þær kröfur fá próf-
skírteini. Þess má einnig geta, að
námskeið eru talin nemendum
fjölbrautaskóla til tekna í námi.“
f húsakynnum Rauða krossins
er salur sem nýttur er fyrir
kennsluna. Þar rúmast 25 nem-
endur, en reynt hefur verið að
takmarka hámarksfjölda þátttak-
enda á hverju námskeiði við 18.
Við kennsluna eru notuð ýmiss
konar kennslugögn, t.a.m. mynd-
bönd og brúður. „Myndbönd þessi
eru flest mjög vel úr garði gerð,
með íslenskum texta eða tali.
Brúðurnar eru einnig þær full-
komnustu sem völ er á. Þær eru
norskar og eru mjög gagnlegar við
kennslu í hjartahnoði og blásturs-
aðferð," sagði Halldór. fslenskt
kennsluefni er einnig til á þessu
sviði. f vetur sem leið voru sýndar
6 stuttar fræðslumyndir í sjón-
varpinu þar sem Halldór og ómar
Friðþjófsson sýndu hjálp í viðlög-
um. .Halldór sagði að þeir þættir
hefðu hlotið mjög góðar viðtökur
og væri fyllsta ástæða til að
endursýna slíkt efni reglulega.
Nám í skyndihjálp er bæði verk-
legt og bóklegt.
„íslendingar eru á eftir öðrum
þjóðum á þessu sviði ef eitthvað
er. Ég hef heyrt að í Þýskalandi
séu ýmsir starfshópar í fyrirtækj-
um skyldaðir til að nema þessi
fræði. Annars hefur aðsókn á
þessi fyrirtækjanámskeið verið
mjög góð. Mæting hefur þó verið
betri 1 þeim tilfellum þar sem
starfsmenn sækja kennslustundir
í vinnutíma," sagði Halldór. í
bígerð er að Reykjavíkurdeildin
standi fyrir svipuðum námskeið-
um í dreifbýli og í fullu samráði
við deildir Rauða krossins á hverj-
um stað. Farið verður á norðaust-
urhorn landsins í júlí.
Nokkur grundvallaratriði ber
ávallt að hafa í huga þegar komið
er að slösuðum manni. Þau eru:
1) Komið í veg fyrir að slysið
verði meira en orðið er. Reynið að
átta ykkur á, hvað gerst hefur. 2)
Veitið neyðarhjálp. 3) Kveðjið til
hjálp. 4) Veitið almenna skyndi-
hjálp.
„Það er einnig ákaflega mikil-
vægt að láta meðvitundarlaust
fólk aldrei liggja á bakinu. fslend-
ingar eru töluvert á eftir að því er
varðar það að kveðja til hjálp. Hér
á landi skortir enn töluvert á, að
neyðarsímanúmer séu samræmd,
eins og t.d. í Danmörku. Þar er
aðeins eitt neyðarnúmer, 000, sem
gildir fyrir allt landið en hér eru
þau mörg enn sem komið er,“
sagði Halldór að síðustu.
Kjarasamningarnir:
Lægstu laun hækka
LAUN iðnverkakonu í neðsta
launaflokki hækka um rúmar
4.700 krónur á tímabilinu fram til
1. september, vegna samninga ASÍ
og VSÍ 15. júní síðastliðinn. Hefði
ekki verið samið, hefðu laun átt að
hækka næst 1. september, en
vegna samningana kom 7,5%
launahækkun á 15.—24. launa-
flokk frá 15. júní og 5% hækkun á
25.-35. launaflokk. Þá hækka
einnig öll laun 1. ágúst um 2,4%
og 1. október um 4,5%.
Meðfylgjandi tafla sýnir hækk-
unina vegna samningana á mán-
uði á nokkra algengustu launa-
taxta. Efri línan sýnir dagvinnu-
laun á mánuði, og sú neðri laun
með meðaltalsyfirvinnu og bónus
þar sem það á við. Yfirvinnan er í
samræmi við tölur Kjararann-
sóknarnefndar 1984 og bónus hjá
iðnverkafólki í samræmi við könn-
un ASÍ og FÍI einnig frá 1984.
Meðaltalsbónus fiskvinnslufólks
er fundinn samkvæmt heimildum
VSÍ. Fæðis- og flutningagjald er
meðtalið í launum málmiðnað-
armanna.
f fyrsta dálki eru launin eins og
þau voru fyrir 15. júní og í öðrum
dálki launin eftir hækkunina þá. í
þriðja dálki eru launin eins og þau
verða eftir hækkunina sem kemur
1. október og í fjórða dálki er
ávinningur samningana í krónum
talið miðað við það að ekki hefði
verið samið og laun verið óbreytt
til 1. september. f fimmta og síð-
asta dálki er ávinningur samning-
ana þegar öll hækkunarákvæði
hans eru komin fram í krónum
talið, framreiknuð í eitt ár eða 12
mánuði.
Eftir Kftir
15. júni '85 1. okt. '85 Ávinnin|{ur Ávinningur
Mánnter- MánnAar- llækkun MánnAnr- Hækkun vegnn nmn- vegnn snmn-
Inun fjrir Inun f % Inun f % ingBÍns 15. júnf ingsins eftir
15.júnf frá mnf '85 frá mnf '85 —31. ág. Byggt októberhækkun
á mán.l. snmL vfír 12 mán.
Iðnverkakonaá Fyrir dagv. 14.075 15.360 9,1% 16.436 16,8% 28.332
1. ári í matvælai. Samt. á mán. 16.806 18.516 10,2% 19.814 17,9% 4.719 kr. 36.096
Iðnverkakona eftir Fyrir dagv. 20.412 21.977 7,7% 23.475 15,0% 36.756
7 ár og í bónus Samt. á mán. 21.993 23.678 7,7% 25,295 15,0% 4.781 kr. 39.624
Verkak. í fiskv. á Fyrir dagv. 20.984 23.679 12,8% 25,276 20,5% 51.504
1. ári og í bónus Samt. á mán 25.350 28,725 13,3% 30.675 21,0% 9.127 kr. 63.900
Verkak. í fiskv. e. Fyrir dagv. 22.977 24.750 7,7% 26.421 15,0% 41.328
7 ár og í bónus Samt. á mán. 27.995 30.148 7,7% 32,197 15% 6.101 kr. 50.400
Verkam. í bygg.v. Fyrir dagv. 16.458 17.697 7,5% 18.637 15,1% 29.748
eftir 5 ár Samt. á mán. 23.995 25.802 7,5% 27.610 15,1% 5.137 kr. 43.380
Málm.iðn.m. e. 7 ár Fyrir dagv. 25.764 27.052 5% 28.960 12.4% 38.352
hæsti fl. málm.im. Samt. á mán. 37.567 39.445 5% 42.222 12,4% 5.642 kr. 55.860
Frá blaðamannafundi sem efnt var til í lok þingmannafundar EFTA í Reykjavík. Frá vinstri: Norbert Faustenhamm-
er, aðstoöarframkvæmdastjóri EFTA, Per Kleppe, aöalframkvæmdastjóri, Kjartan Jóhannsson, nýkjörinn formaður
þingmannanefndarinnar, Lennart Petterson, varaformaður, Markus Aaltonen frá Finnlandi, António Rebeio de
Sousa frá Portúgal og Kaci Kullmann Five frá Noregi.
Kjartan Jóhannsson
kosinn formaður þing-
mannanefndar EFTA
AF ERLENDUM VETTVANGI
eftir JÓHÖNNU KRISTJÓNSDÓTTUR
Chun Doo Hwan Kim Dae Jung Lee Min Woo
SuÖur-Kórea:
Stjórnarandstaðan lætur að
sér kveða á nýkjörnu þingi
Um þessar mundir er liðinn
rúmur mánuður frá því nýkjörið
þing Suður-Kóreu kom saman,
eftir kosningarnar í febrúar.
Margir þeir sem hafa gagnrýnt
stjórnvöld í landinu fyrir að
leyfa ekki stjórnarandstöðunni
að starfa með sæmilega eðli-
legum hætti telja sig sjá merki
um að betri tíð sé í vændum. Á
þessum tíma sem er liðinn frá
þingsetningu hafa verið umræð-
ur um mál sem áður hefði verið
óhugsandi að ræða um. Stjórn-
arandstöðuþingmenn hafa gert.
harða hríð að Chun og stjórn
hans og gengið svo langt að
draga í efa forystuhæfileika for-
setans, gagnrýnt öll mál milli
himins og jarðar — allt frá efna-
hagsmálum til félagslegs órétt-
lætis og mannréttindabrota.
Rifjað hefur verið upp viðkvæmt
mál um hin blóðugu átök í bæn-
um Kwangju fyrir fimm árum;
fjöldi manns greip til v&pna og
krafðist umbóta í ótal málum.
Stjórnarhermenn voru látnir
ráðast gegn vopnlausum
óbreyttum borgurum og sýndu
mikla hörku. Opinberar tölur um
látna voru sagðar um tvö hundr-
uð. tbúar í Kwangju hafa alltaf
staðhæft að langtum fleiri hafi
látið lífið.
Chun forseti flutti þingsetn-
ingarræðu eins og venja er en
hann hafði vart lokið máli sínu,
þegar Lee Min Woo, formaður
stærsta stjórnarandstöðuflokks-
ins Nýja lýðræðisflokksins
NKDP, gagnrýndi málflutning
forsetans, sakaði hann um
ábyrgðarleysi og valdagræðgi og
krafðist þess að Chun léti af
formennsku í einhverjum þeirra
þrettán þingnefnda sem hann
situr í. Lee sagði að eðlilegt væri
að stjórnarandstaðan fengi
meiri ítök í þingnefndum, eftir
að „afhroð sem stjórnarflokkur-
inn, Lýðræðislegi réttlætisflokk-
urinn, DJP, beið í febrúarkosn-
ingunum.“
I hópi þeirra sem hafa verið
hvað skeleggastir úr stjórnar-
andstöðunni er Pak Shil. Hann
var blaðamaður en missti at-
vinnu sína í hreinsunarherferð
stjórnvalda skömmu eftir að
Chun varð forseti. Hann var kos-
inn á þing fyrir Seoul nú i febrú-
ar. Hann hefur sagt að stjórnar-
andstaðan myndi halda uppi
málefnalegri en stöðugri gagn-
rýni á gjörðir stjórnarinnar og
væri ekki vanþörf á. Pak Shil
hefur meðal annars látið nýskip-
aðan mennta- og upplýsinga-
málaráðherra landsins, Lee Won
Hor.g, fá það óþvegið vegna þess
að ekki hefur verið dregið úr rit-
skoðun, svo að orð sé á gerandi.
Einnig er stjórnvöldum heimilt
að banna sölu á bókum, sem að
þeirra dómi eru of róttækar eða
eru á einn eða annan hátt
fjandsamlegar stjórninni.
Það er ekki ofmælt að segja að
hvass og einbeittur málflutning-
ur stjórnarandstöðuþingmanna
hafi komið fulltrúum Lýðræðis-
lega réttlætisflokksins í opna
skjöldu. Þeir brugðu síðan á það
ráð á fyrstu fundum að hafa
uppi hróp og köll í mótmæla-
skyni, börðu í borð og stöppuðu í
gólf. Talsmenn stjórnarandstöð-
unnar létu það ekki á sig fá og
sögðu að framkoma af þessu tagi
sýndi, svo að ekki væri um villzt
hvers konar flokkur DJP væri.
Mjög hefur verið þrýst á Chun
forseta að leyfa Kim Dae Jung,
sem er óopinber leiðtogi stjórn-
arandstöðunnar, að hefja þátt-
töku í stjórnmálum á ný. Chun
forseti hefur alfarið hafnað öll-
um slíkum áskorunum og sem
stendur er ekkert sem bendir til
þess að hann skipti um skoðun.
Umræður á þinginu í Seoul
hafa sem sagt verið á þann veg
síðasta mánuð, að stjórnmáia-
skýrendur segja óhugsandi að
þar hefðu menn getað talað I
þeim tón fyrir nokkrum mánuð-
um. Fréttaskýrendur segja líka
að hvað sem ailri gagnrýni líði á
Chun og stjórn hans hafi hann
altént staðið við orð sín um að
auka á lýðræði og málfrelsi í
landinu. Park, fyrirrennari
hans, hefði aldrei fengizt til að
sýna þann sveigjanleika sem
Chun hafi þrátt fyrir allt sýnt.
Park greip oft og einatt til held-
ur óþverralegra og ólýðræðis-
legra ráða ef að honum var ráð-
ist.
Chun forseti hefur sýnilega
gefið ráðherrum sínum fyrir-
mæli um að sýna stjórnarand-
stöðunni nokkurn samstarfs-
vilja. Sem dæmi má nefna
Kwangju-atburðina. Varnar-
málaráðherrann, Yoon Sung
Min, sagði á dögunum í þing-
ræðu, að hann væri til viðtals
um það sem gerðist í Kwangju
og væri ástæða til að taka málið
upp að nýju myndi hann gera
það og meira að segja leyfa full-
trúum NKDP að ræða við sig.
Lýðræðislegt stjórnarfar eins
og Vesturlandabúar skilgreina
það er vissulega langt undan í
Suður-Kóreu. Enda ekki þar með
sagt að vestrænt lýðræði verði
tekið á einu bretti og flutt til
landa Suðaustur-Asíu, þar sem
hugsunarháttur, hefðir og trú og
afstaða manna til stjórnmála er
gerólík því sem Vesturlanda-
búum þykir vera eftirsóknar-
verðast. En leiði þrýstingur frá
Vesturlöndum — og einkum
Bandarikjamönnum — til þess
að Suður-Kórea fái að búa við
það lýðræði sem hentar íbúum
hennar og laga það eftir sínum
þörfum, hefur áunnizt það sem
að er stefnt.
(Heimild: Far Eastern
Economic Review)
Frá Seoul