Morgunblaðið - 28.06.1985, Qupperneq 30
30
MORGUNBLADIÐ, FÖSTUDAGÚR 28. JÚNÍ 1985
t
Móöir okkar,
MAGNFRÍÐUR ÞÓRA BENEDIKTSDÓTTIR,
Bakkageröi 10,
lést í Landspítalanum 22. júní.
Guórún Guðmundsdóttir,
Siguröur Guðmundison,
Erla Guömundsdóttir,
Hreióar Guómundsson,
Marinó Guömundsson.
t
Dóttir mín og móöir okkar,
ÞORBJÖRG VALDIMARSDÓTTIR,
Þorgrímsstööum,
andaöist í Sjúkrahúsinu Hvammstanga 25. júni.
Jaröarförin veröur auglýst síöar.
Jónína Ólafsdóttir og
börn hinnar látnu.
t
Móöir mín, tengdamóöir og amma,
ANNA EINARSDÓTTIR,
andaöist á Elli- og hjúkrunarheimilinu Grund 26. júni.
Jaröarförin veröur auglýst siöar.
Einar B. Sigurösson,
Sigríöur M. Sigurðardóttir,
og synir.
t
Dóttir mín,
ÞÓRHILDUR SIGRÚN FRIOFINNSDÓTTIR,
Tómasarhaga 57,
Reykjavfk,
andaöist í Landspítalanum aö kvöldi 26. júni.
Fyrir hönd barna hinnar látnu og annarra aöstandenda.
Guörún Siguröardóttir.
t
Útför móöur okkar,
STEINUNNAR TÓMASDÓTTUR,
trá Djúpavogi,
fer fram frá Fossvogskirkju mánudaginn 1. júli kl. 15.00.
Margrát Ingimundardóttir,
Svava Ingimundardóttir,
María Ingimundardóttir,
Steingrímur Ingimundarson,
Eggert Ingimundarson,
Valgeir T. Ingimundarson,
Jens Ingimundarson.
Birna Björns-
dóttir - Minning
Fædd 2. febrúar 1936
Dáin 15. júní 1985
Birna er dáin. Það var það
fyrsta sem ég frétti, er ég og fjöl-
skylda mín komu heim eftir
þriggja vikna dvöl erlendis.
Þegar við skólasystkinin úr
handavinnudeild Kennaraskóla
tslands, héldum upp á 25 ára af-
mæli kennaraprófs okkar á síðast-
liðnu vori, hvarflaði ekki að okkur
að svo fljótlega yrði höggvið í hóp-
inn. Það var glaður hópur ásamt
mökum sínum sem hélt að Munað-
arnesi í Borgarfirði, til þess að
eiga saman eina helgi og minnast
Þátttakendur í ömmukeppni í golfi sem fram fór kvennadaginn, 19. júní
á Grafarholtsvelli.
Ömmukeppni í golfi
ÖMMUKEPPNI í golfi var haldin í þriðja skipti á Grafarholtsvelli,
kvennadaginn 19. júní. Þátt tóku konur úr GR og Golfklúbbi Ness.
Fóru leikar þannig aö í flokki kvenna án forgjafar sigraói Guórún
Eiríksdóttir. I öóru sæti var Hanna AAalsteinsdóttir og Kristín Eide
hafnaAi í þriAja. í flokki amma meA forgjöf sigraði Elín Árnadóttir, í
öðru sæti var Margrét Árnadóttir og Guðrún Eiríksdóttir var þriðja.
(FrftUlilkynnÍBK)
Suðurlandsbraut — Skeiðarvogur:
Ný umferdarljós
tekin í notkun
Ný umferöarljós verða tekin í
notkun á mótum Suðurlandsbrautar
og Skeiðarvogs í dag, föstudag, og
verður kveikt á þeim klukkan 14.00.
Ljós þessi eru tveggja fasa og
tímastýrð og koma í stað stöðvun-
arskyldu, sem áður var gagnvart
Suðurlandsbraut. Blikk verður á
ljósunum frá kl. 01.00—07.00.
Nokkrar breytingar hafa verið
gerðar á gatnamótunum og þá
helst að sunnanverðu, þar sem
hægri beygjuakreinar hafa verið
gerðar jafnframt því, sem miðeyja
hefir verið lagfærð. Gangbrautir
eru staðsettar að austan og norð-
anverðu og ljósker fótgangendur
eru því í tengslum við þær.
Ökumenn og fótgangendur eru
beðnir að sýna sérstaka aðgæslu
vegna ofangreindra breytinga á
umferð og umferðarrétti á þessum
viðsjálu gatnamótum.
(0r rréttntilkynninKU.)
t
Minningarathöfn um eiginmann minn, fósturfööur, son okkar og
br’oöur,
STEFÁN ÞÓR HAFSTEINSSON,
er lést af slysförum 26. mai sl. fer fram frá Garöakirkju laugardaginn
29. júní kl. 14.00.
Sigríöur Júlía Bjarnadóttir, Guórún Hildur Hafsteinsdóttir,
Bjarni Einarsson, Magnús Hafsteinsson,
Jóhanna Stefánsdóttir, Hafsteinn Hugi Hafsteinsson,
Hafsteinn Magnússon,
t
Þökkum hjartanlega samúö, vináttu og hlýju viö andlát og útför
BIRNU BJÓRNSDÓTTUR.
Innilegar þakkir eru fluttar hjúkrunarfólki Borgarspítala og Land-
spítala fyrir alúö og hlýja umönnun í veikindum hennar.
Heimir Hannesson, Björn Þórðarson,
Hannes Heímisson, Guörún Björnsdóttir,
Sigríður Heimisdóttir, Erla Björnsdóttir,
Magnús Heimisson
og aðrir vandamenn.
Lokaö
í dag vegna jaröarfarar GUÐMUNDAR JAKOBSSONAR,
bókaútgefanda.
Prentrún.
Laugavegi178.
Bubbi Morthens á hljóm-
leikaferð um Vestur-
land og Vestfirði
BUBBI Morthens lagði af stað í hljómleikaferö um landið þann 20. júní sl. og
heldur hann hljómleika á Vesturlandi og Vestfjörðum. Hann mun einnig
koma fram á nokkrum stöðum á Norðurlandi. Þetta er önnur hljómleikaferð
Bubba á þessu ári þar sem hann kynnir nýja plötu sína, Konu.
Bubbi Morthens mun leika á
eftirfarandi stöðum á hljómleika-
ferð sinni:
Fös. 28. júní Vogaland —
Króksfj arðarnesi
lau. 29. júní Félagsheimili Pat-
reksfjarðar — Patreksfirði
sun. 30. júni Dunhagi — Tálkna-
fjörður
mán. 1. júlí Félagsheimilið
Bíldudal — Bíldudalur
þri. 2. júlí Félagsheimili Þing-
eyrar — Þingeyri
mið. 3. júlí Félagsheimili Súg-
andafjarðar — Suðureyri
fim. 4. júlí Félagsheimili Flat-
eyrar — Flateyri
Lokað
í dag vegna útfarar GUÐMUNDAR JAKOBSSONAR
bókaútgefenda. Málflutningsskrifstofa, Jón Oddsson hæstaréttar-
lögmadur.
fös. 5. júlí Félagsheimili Bol-
ungarvíkur — Bolungarvík
lau. 6. júli Félagsheimili Súða-
víkur — Súðavík
sun. 7. júlí Uppsalir — ísafjörð-
ur
mið. 10. júlí Víkurröst — Dalvík
fim. 11. júlí Sjallinn — Akur-
eyri
fös. 12. júlí Félagsheimili Húsa-
víkur — Húsavík
sun. 14. júlí Eiðar — Egilsstaðir
þri. 16. júlí Fjarðarborg —
Borgarfirði eystra
(Ur fréttatilkynningu)
námsáranna. Birna og Heimir
voru þar á meðal, glöð og ánægð.
Við skólasystur vissum að Birna
hafði átt við vanheilsu að stríða
fyrir nokkrum árum en allir von-
uðu að það væri yfirstaðið. Það
var reiðarslag er okkur var tjáð í
byrjun vors, að sjúkdómurinn
væri að taka sig upp aftur og væri
á hættulegu stigi.
Ég minnist að í 26 ár höfum við
skólasystur hist að jafnaði á vetr-
um og nú síðari ár í 1—2 göngu-
ferðum á sumrum. Það sköpuðust
sterk vináttubönd sem aldrei rofn-
uðu, það var skrafað saman um
daginn og veginn og aldrei lét
Birna sig vanta ef hún gat því við
komið. Það er nú skarð í hópnum
sem ekki verður fyllt, en við minn-
umst góðrar vinkonu sem á sinn
Ijúfmannlega hátt bætti glaðværð
í hópinn og lét sér málefni okkar
hinna skipta. Það er ekki hægt að
lýsa með fátæklegum orðum þeim
tilfinningum sem hrærast í
brjóstum á svona stundum, en
minningarnar eru birta sem lýsa
og Ijóma í tímans rás.
Ég veit að ég tala fyrir munn
okkar allra skólasystkinanna er ég
minnist Birnu, hennar hlýju
elskulegu framkomu og léttrar
kímnigáfu. Góður vinur er horfinn
yfir móðuna miklu.
Heimir, börn, aldraður faðir,
systur og fjölskylda. Við kveðjum
Birnu með hlýhug og biðjum hann
sem öllu ræður um styrk og kraft
á þessum erfiðu tímamótum.
Blessuð sé minning hennar.
Katrín Ágústsdóttir
Kennarasamband íslands:
Sameiginleg
barátta að tryggja
mannsæmandi laun
STJÓRN Kennarasambands íslands
samþykkti eftirfarandi ályktun um
kjaramál á fundi sínum nýverið.
„Stjórn Kennarasambands ís-
lands lysir yfir eindregnum stuðn-
ingi við baráttu alls launafólks um
bætt kjör.
Kjarabaráttan næstu mánuði
hlýtur að mótast af því markmiði
að rísa gegn þeirri kaupskerð-
ingarstefnu sem viðgengist hefur
að undanförnu. Svo má ekki fara
að ísland verði gert að láglauna-
svæði um alla framtíð.
Það hlýtur að verða sameiginleg
barátta launafólks í landinu að
trygEja öllum landsmönnum
mannsæmandi laun, án vinnu-
þrælkunar.
Einnig skal standa vörð um vel-
ferðarþjóðfélag þar sem félags- og
heilbrigðisþjónusta og menntun
verði ekki forréttindi fárra út-
valdra.
Markmið launafólks í öllum
stéttarfélögum hljóta því að vera
að krefjast beinnar aukningar á
kaupmætti launafólks og vísitölu-
bindingar launa.
Kennarasamband íslands hvet-
ur allt launafólk til að standa
saman í kjarabaráttu næstu mán-
uði því án samstöðu næst ekkert í
þeirri baráttu."
(flr (réualilkyniiingii.)