Morgunblaðið - 28.06.1985, Side 33
33
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 28. JÚNÍ 1985
Minning:
Sigurpáll Stein-
þórsson sjómaður
Fæddur 20. september 1903
Dáinn 19. júní 1985
í dag, 28. júní, kl. 13.30 verður
jarðsunginn frá Dómkirkjunni í
Reykjavík, Sigurpáll Steinþórs-
son, fyrrum sjómaður, sem lést 19.
þessa mánaðar á Landakotsspít-
ala. Sigurpáll fæddist á Þverá í
Ólafsfirði 20. september 1903, son-
ur hjónanna Steinþórs Þorsteins-
sonar, sjómanns og bónda, og
Kristjönu Jónsdóttur. Þau hjónin
eignuðust 5 börn og var Sigurpáll
þriðji í röðinni og eini sonurinn.
Þegar Sigurpáll var þriggja ára
fluttust foreldrar hans með börn-
in, sem þá voru orðin fjögur, að
Vík í Héðinsfirði og þar ólst Sig-
urpáll upp. Þegar hann var á ní-
unda árinu lést móðir hans. Það
var mikill missir fyrir heimilið, en
með dugnaði sínum og lagni tókst
föður hans, með aðstoð Kristjönu,
elstu systurinnar, sem þá var að-
eins 11 ára, að halda saman heim-
ilinu. Nokkrum árum síðar gekk
faðir hans að eiga Ólöfu Sigurð-
ardóttur frá Siglunesi.
Sigurpáll var ekki hár í lofti
þegar hann fór sína fyrstu sjóferð
með föður sínum, á skekktunni
hans. í þeirri veiðiferð setti hann í
væna lúðu og áttu þær eftir að
verða fleiri lúðurnar sem hann
innbyrti á sinni löngu sjómanns-
ævi.
Sigurpáll var tvo vetur í barna-
skólanum á Ólafsfirði. Seinna á
ævinni sótti hann námskeið í skip-
stjóra- og mótorfræðum. Vorið
1919 hefst sjómennskuferill Sigur-
páls sem stóð svo til óslitið í rúm
50 ár eða til ársins 1974. Á þessari
löngu sjómannsævi sinni stundaði
Sigurpáll margar tegundir fisk-
veiða og ber þar hæst hákarlaveið-
arnar sem sóttar voru af kappi á
djúpmiðum fyrir Norðurlandi þar
sem veður geta orðið válind á ör-
skammri stundu og komust Sigur-
páll og félagar hans oft i hann
krappann á þessum veiðum.
Þeim öldnu kempum er nú farið
að fækka sem hákarlaveiðar
stunduðu og það var því mikill
fengur þegar ævisaga Sigurpáls,
skrifuð af Sigurjóni Sigtryggs-
syni, kom út. í henni er verkhátt-
um og veiðarfærum við hákarla-
veiðar, og fleiri fiskveiðar, vel og
skilmerkilega lýst.
Árið 1959 vendir Sigurpáll sínu
kvæði í kross og ræður sig sem
háseta á varðskipið Albert. Hjá
Landhelgisgæzlunni er Sigurpáll
síðan óslitið, að undanteknum 3
árum sem hann var bóndi á Bú-
stöðum í Austurdal í Skagafirði.
Árið 1974 axlar Sigurpáll sjóferð-
arpokann og gerist starfsmaður
hjá Flugdeild Landhelgisgæzlunn-
ar. Þar vann hann fullan vinnudag
til 75 ára aldurs en eftir það vann
hann hálfan daginn fram undir
áttræðis aldur er hann hætti
störfum.
Sigurpáll Steinþórsson var
ljúfmenni í allri umgengni, góður
verkmaður og lét aldrei verk úr
hendi falla. Eg sem þessar línur
rita kynntist Sigurpáli þegar hann
réðst til Landhelgisgæzlunnar á
varðskipið Albert 1959. Við sigld-
um lengi saman á varðskipunum
og störfuðum saman hjá Flug-
deildinni. Það var mikinn fróðleik
hægt að sækja til Sigurpáls bæði í
ættfræði og þeim vinnubrögðum
sem viðhöfð voru við hinar ýmsu
fiskveiðar sem hann stundaði á
sínum yngri árum. Hagleikssmið-
ur var hann á tré en hann smíðaði,
í smækkaðri mynd, „módel" af öll-
um hákarlaveiðarfærum og áhöld-
um tengdum hákarlaveiðum auk
ýmissra annarra áhalda tengdum
sveitabúskapnum og þessa hluti
hafði hann gaman af að gefa vin-
um sínum. Þessir hlutir eru það
haganlega gerðir að ósjálfrátt
dettur manni í hug að einhvers-
staðar hafi listamaðurinn blundað
í sálu Sigurpáls. Aldrei sá ég Sig-
urpál glaðari en eftir að hann
hafði heimsótt æskustöðvar sínar
Ólafsfjörð og Héðinsfjörð, en þar
taldi hann sig hafa lifað sín bestu
æviár.
Margs er að minnast þegar þessi
aldna kempa er horfin sjónum. Ég
er þakklátur fyrir að hafa átt því
láni að fagna að hafa kynnst þess-
um góða dreng og fengið að njóta
fræðslu hans og vináttu.
Systrum hans og öðrum ástvin-
um sendi ég mína dýpstu samúð.
Blessuð veri minning Sigurpáls
Steinþórssonar.
Helgi Hallvarðsson
í dag er til moldar borinn
Ólafsfirðingurinn og Héðinsfirð-
ingurinn Sigurpáll Steinþórsson.
Það er ekki óeðlilegt að kenna
hann við þessa tvo firði, sem sker-
ast inn í norðanverðan Trölla-
skaga, vegna þess að í Ólafsfirði
fæddist hann, i Héðinsfirði ólst
hann upp og í Ólafsfirði starfaði
hann mestan hluta ævi sinnar.
Sjálfur lét hann svo um mælt á
efri árum að hugurinn leitaði oft-
ast aftur til uppvaxtaráranna að
Vík í Héðinsfirði og til áranna
þegar hann var skipstjóri á bátum
frá Ólafsfirði og eltist við þorsk og
síld. Frá þeim tíma var margs að
minnast.
Þeim fækkar nú óðum körlunum
og konunum, sem voru að hefja
starfsferil sinn á árunum milli
1915 og 1920, fólkinu sem dró fisk
úr sjó og saltaði til útflutnings og
breytti með miklu og aðdáunar-
verður starfi sínu húsaþyrping-
unni í Ólafsfjarðarhorni í fallegan
bæ — Ólafsfjarðarkaupstað. Sig-
urpáll Steinþórsson var í þessum
hópi og svo vill til að fyrstu störf
sín við sjávarsíðuna vann hann við
hlið þeirrar konu, sem fyrst hafði
orðið til að byggja sér samastað í
Horninu. Gamla konan var Guð-
rún Jónsdóttir, kona Ólafs Gísla-
sonar tómthúsmanns, en þau
höfðu þá rúmlega 30 árum fyrr
reist sér þurrabúð og kallað
Sandhól.
Það gefur því auga leið að mér
var það ómetanlegt að eiga þess
kost að ræða við Sigurpál um lið-
inn tíma þegar ég var að vinna
fyrra bindi sögu Ólafsfjarðar,
Hundrað ár í Horninu. Hann hafði
frá mörgu að segja og ég held
raunar að hann hafi haft gaman
af að upplýsa og svara spurning-
um mínum, enda sjálfur töluvert í
sögugrúski eins og hann kallaði
það. Ferðirnar urðu því margar til
hans á Framnesveginn í Reykja-
vík, þar sem hann bjó eftir að
hann fluttist suður, og til stóð að
þær yrðu miklu fleiri.
Árið 1919 hófst sjómannsferill
Sigurpáls Steinþórssonar. Fram
til 1931 var hann ýmist háseti eða
vélstjóri en það ár varð hann
formaður á Agli EA 416. Sumarið
eftir tók hann þátt í fyrstu til-
rauninni sem gerð var með tví-
lembingaútgerð, er síld var veidd í
snurpunót á tveimur tiltölulega
litlum bátum. Tilraunin heppnað-
ist og næstu árin nýttust minni
vélbátarnir mun betur en áður til
síldveiða.
Á fimmta áratugnum gerði Sig-
urpáll út vélbátinn Gulltopp ÓF 33
í samvinnu við Jón Björnsson út-
gerðarmann. Útgerðin gekk ekki
nægilega vel og því var henni hætt
um 1950.
Árið 1953 keypti Sigurpáll jörð-
ina Bústaði i Skagafirði og um
tíma fékkst hann við búskap án
þess þó að geta sagt skilið við sjó-
inn. Sjómaðurinn og bóndinn hafa
þar togast á i honum, sem auðvelt
er að skilja þegar þess er gætt að á
þeim árum þegar hann var að al-
ast upp lifðu allir bændur í Héð-
insfirði og stór hluti bænda í
Ólafsfirði jöfnum höndum af
landbúnaði og sjósókn. Lífið og til-
veran snerist um landið, gögn þess
og gæði, og hafið.
Um mitt ár 1968 fluttist Sigur-
páll til Reykjavíkur og réðst til
starfa hjá Landhelgisgæslu Is-
lands en hann hafði áður unnið
um tíma hjá þeirri stofnun. Til
1974 var hann á varðskipunum en
það ár hóf hann vinnu í landi, þá
nýlega orðinn sjötugur. Hafði Sig-
urpáll þá verið sjómaður í hálfa
öld og raunar fimm árum betur.
Árið 1981 kom út ævisaga Sig-
urpáls Steinþórssonar, skráð af
Sigurjóni Sigtryggssyni fræði-
manni frá Siglufirði. Sigurjón
þekkir sögusviðið af eigin raun því
um tíma stundaði hann sjó-
mennsku frá Ólafsfirði. Er
skemmst frá því að segja að þeim
félögum tekst einkar vel upp í
bókinni og hún er þeim báðum til
sóma.
Ég er þakklátur fyrir að hafa
kynnst Sigurpáli Steinþórssyni.
Hann var vingjarnlegur og góður
maður. Guð blessi minningu hans.
Friðrik G. Olgeirsson
Margrét Vilborg
Sigurðardóttir — Minning
Fædd 4. október 1897
Dáin 22. júní 1985
Þann 22. júní sl. lést á Hrafn-
istu í Reykjavík föðuramma mín,
Margrét Vilborg Sigurðardóttir.
Hún var fædd á lsafirði 4. október
1897 og var yngsta barn hjónanna
Sigurðar Guðmundssonar, kaup-
manns, frá Ingjaldssandi í V-ísa-
fjarðarsýslu og Guðbjargar
Ólafsdóttur frá Sauðafelli í Döl-
um. Hin börn þeirra voru Ásthild-
ur, Ólafur og Sigurður.
Ömmur mínar, Margrét Sigurð-
ardóttir og Bergþóra Árnadóttir,
ólust báðar upp á ísafirði og voru
æskuvinkonur. Ég fékk því að
heyra frá þeim báðum sögur um
æsku þeirra og uppvöxt. Þær áttu
báðar góða æsku á ísafirði og á
unglingsárum iðkuðu þær fim-
leika og voru leikmenn í knatt-
spyrnuliði kvenna sem þá var á
ísafirði. 19 ára hleypti Margrét
heimdraganum og fór á hús-
mæðraskóla í Danmörku, einnig
lærði hún þar á píanó.
19. júní 1920 giftist hún afa
mínum, Guðmundi Jóhannssyni,
skipstjóra, frá Ytri-Njarðvíkum,
en hann lést 11. september 1974.
Þau eignuöust fimm börn: Jóhann,
kvæntur Guðríði Matthíasdóttur,
Baldur, kvæntur Ástu Sigurðar-
dóttur, sem nú er látin, Gísli,
ókvæntur, Guðbjörg Ásthildur,
gift Karli Torfasyni og Sigurður,
kvæntur Maríu Víglundsdóttur.
Barnabörnin eru 17 og barna-
barnabörn 32. Þau bjuggu alla s-
ína búskapartíð í Reykjavík utan
eitt ár, sem þau bjuggu í Englandi,
en þar var afi skipstjóri á enskum
togurum.
Amma var mjög trúuð kona og
sótti oft samkomur hjá Guðrúnu
Jónsdóttur í Hörgshlíð 12. Hún
mat þær mikils Guðrúnu, Vil-
borgu og Salbjörgu og vil ég færa
þeim sérstakar þakkir frá mér og
minni fjölskyldu fyrir fyrirbænir
þeirra. Það var nefnilega alltaf
leitað til Guðrúnar ef alvarleg
veikindi voru í fjölskyldunni.
Amma var mikil hannyrðakona
og bera útsaumuðu dúkarnir
henni fagurt vitni og það eru ekki
nema fáein ár síðan hún hætti að ,
bródera. Einnig prjónaði hún mik-
ið.
Það var gaman að heimsækja
afa og ömmu. Þau höfðu frá
mörgu að segja og sérstaklega var
afi minnugur. Hann var hafsjór af
fróðleik og kunni svo mikið af
kvæðum og vísum. Svo hafði líka
margt á daga hans drifið, þegar
hann var togaraskipstjóri og
veittist honum létt að hrífa mann
með í frásögninni.
Amma var líka vel að sér og
■víðsýn og aldrei fannst mér hún
gömul eða kreddufull. Hún var
ung í anda til hinstu stundar.
Erna Jóhannsdóttir
Birting afmælis- og
minningargreina
ATHYGLI skal vakin á því, að afmælis- og minn-
ingargreinar verða að berast blaðinu með góðum
fyrirvara. Þannig verður grein, sem birtast á í mið-
vikudagsblaði, að berast í síðasta lagi fyrir hádegi á
mánudag og hliðstætt með greinar aðra daga. í minn-
ingargreinum skal hinn látni ekki ávarpaður. Þess
skal einnig getið, af marggefnu tilefni, að frumort
ljóð um hinn látna eru ekki birt á minningarorðasíð-
um Morgunblaðsins. Handrit þurfa að vera vélrituc
og með góðu línubili.
Leiðrétting
í minningargrein í blaðinu sl.
miðvikudag um Samúel Björnsson
féllu niður nöfn barna hans og
Theódóru Guðnadóttur konu hans.
Um leið og beðist er velvirðingar á
þessu skulu þau talin upp hér, en
þau eru: Kristrún, gift Ingimundi
Karlssyni í Keflavík. Jónas, ráðs-
maður í Tilraunastöðinni á
Reykhólum, kvæntur Bergljótu
Bjamadóttur. Þorgeir, starfsmað-
ur hjá Þörungavinnslunni, kvænt-
ur Vöku Ólafsdóttur, og Ingvar,
bifreiðastjóri hjá Þörungavinnsl-
unni, og Björn, sem er nemi.
Fyrirliggjandi í birgðastöð
KALDVALSAÐ
PJ
Stál SPO 10.03-12.03
Plötuþykktir
Plötustærðir
og
SINDRA
frá 0.8 - 2 mm
1000 x 2000 mm
1250 x 2500 mm
STALHF
Ðorgartúni 31 sími 27222