Morgunblaðið - 28.06.1985, Page 42
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 28. JÚNÍ 1985
42
HÖGNI HREKKVlSI
Myndin sýnir hræin og tók annar sona bréfritara hana.
Ljót sjón og til lítils sóma
Arnór A. Guðlaugsson skrifar:
Það er víst ekki í frásögur fær-
andi þó fólk úr þéttbýlinu bregði
sér út á land um helgar ef ástæður
eru til. Hitt hefur oft verið á orði
haft að við héðan af höfuðborg-
arsvæðinu gengjum miður vel um
úti á landsbyggðinni þar sem við
hefðum viðdvöl um lengri eða
skemmri tíma og vissulega hafa
þær aðfinnslur oft átt við rök að
styðjast.
En stundum kann svo til að bera
að ferðafólkið sjái líka eitt og ann-
að ljótt og furðulegt á leið sinni,
sem tilheyrir viðkomandi héraði
sem farið er um.
Sunnudagsmorguninn 16. júní
sl. tókum við hjónin okkur upp
ásamt báðum sonum okkar full-
tíða mönnum. Ferðinni var heitið
vestur í Geiradal í Austur-Barða-
strandarsýslu. Veðrið var svo gott
sem hugsast gat, blæjalogn og sól-
skin. Ferðin sóttist vel, vegir góðir
og allt í besta lagi. Við fórum
kringum Hvalfjörð, um Borgar-
fjarðarbrú, og sem leið liggur að
vegamótum við Dalsmynni. Þá
tekur við Bjarnadalurinn. Við
ókum yfir gömlu brúna á Bjarna-
dalsá. Vestan við brúna er lítill
skúr, sem mér er ókunnugt um til
hverra nota er enda kemur það
þessu máli ekki við.
Þarna er áð, nestið tekið upp,
sest á þúfurnar ofan við skúrinn,
veðrið er dásamlegt, sólskin og
hiti. Annar sona minna gengur
fram á gljúfurbarminn. Milli
skúrsins og gljúfursins er lítil
graslaut. Sonur minn kallar til
mín, „Pabbi, viltu koma og sjá
hvað hér er“. Þegar ég kom á laut-
arbarminn blasti við heldur öm-
urleg sjón. Þar lágu ræflar af
þremur kindum. Eitt var fullorð-
inn hrútur. Hinar kindurnar voru
ær eða dilkar. Það var ekki hægt
að greina.
Við gengum fram á gilbarminn.
Niðri í skriðunni var fjórði ræfill-
inn. Eftir útliti á þessu hafa þess-
ar kindur verið þarna frá því á sl.
hausti. Ég hef verið að velta því
fyrir mér hvað þarna hafi skeð.
Ekki held ég að kindurnar hafi
getað fennt þarna. Slíkt er óhugs-
andi. Hitt þætti mér ekki trú-
legast að þarna hefði orðið óhapp í
fjárflutningum. Þá kemur það til
að ég veit ekki betur en það sé
löngu búið að banna umferð
stærri bíla yfir brúna á Bjarna-
dalsá. Merkilegt er ef ekkert
ferðafólk annað en við hefur séð
ófögnuð þennan. Trassarnir sem
hentu þessu þarna hafa ekki verið
sómakærir. Auðvitað átti að grafa
þetta samstundis.
Nú vil ég beina orðum mínum til
yfirvalda á þessum slóðum, sýslu-
manns, hreppstjóra eða oddvita að
láta grafa þetta án tafar. Þetta er,
held ég, búið að vera nógu lengi til
lítils sóma ykkar og ekki til
augnayndis fyrir vegfarendur.
Hjóla-
stuldur
N.N.skrifar:
Ég vil biðja fóik að hafa auga
með því hvort sést hafi í nágrenn-
inu hjól sem enginn kannast við.
Ég varð fyrir því að stolið var frá
mér hjóli fyrir framan Laugaveg
116 í síðustu viku.
Hjólið er Raleigh kvenhjól 10
gíra með snúnu stýri, ljósbrún-
sanserað. Helstu einkenni á hjól-
inu eru þau að það vantar aftur-
Ijósið. Sætið er götótt og bandið,
sem vafið er um vinstra megin er
laust. Þeir, sem hafa rekist á hjól-
ið, eru vinsamlega beðnir um að
hafa samband við Auði í síma
38870 milli kl. 7.30 til 4.30 eða þá
komi til hennar skilaboðum á
kvöldin í síma 34160.
Skrifið eða
hringið til
Velvakanda
Biórinn bætir ekkert
Þórarinn Björnsson
Laugarnestanga 9b, hringdi:
Ég vil senda Halldóri Krist-
jánssyni á Kirkjubóli kveðju og
spyrja hann um það hvernig
hann getur dæmt um það sem
hann hefur aldrei komist í kynni
við, nema í gegnum blöðin.
Ég þekki drykkjuvandamáliö á
tslandi af eigin reynslu og þess
vegna get ég dæmt um það út frá
þeirri reynslu. Bjórinn verður
alls ekki til góðs.