Morgunblaðið - 08.08.1985, Side 1
80SÍÐUR B/C
STOFNAÐ 1913
174. tbl. 72. árg.
FIMMTUDAGUR 8. ÁGÚST 1985
Prentsmiðja Morgunblaðsins
Mótmæli útvarpsmanna í Bretlandi:
Engar fréttir fluttar
í heilan sólarhring
LoBdoo. AP.
VERKFALLI starfsmanna breska ríkisútvarpsins (BBC), sem lamaði alla
fréttaþjónustu þess síðastliðinn sólarhring, lauk á miðnætti. Til verkfallsins
var stofnað í mótmælaskyni við þá ákvörðun stjórnenda BBC, að banna
sýningu á sjónvarpsþætti þar sem m.a. var rætt við Martin McGuiness, sem
talinn er leiðtogi Irska lýðveldishersins.
Verkfallið náði til allra rása
BBC, bæði hljóðvarps og sjón-
varps, þ.á m. til heimsþjónustunn-
ar, sem sendir út efni á 37 tungu-
málum til hlustenda um heim all-
an. Hefur starfsemi hennar aldrei
fyrr lamast frá því hún var sett á
stofn árið 1935. Þá lagði starfsfólk
Ónæmistæring:
Hótaði að
bíta og slapp
við blóð-
sýnistöku
Stokkhólmi, 7. ígúst. AP.
MAÐUR nokkur, sem lögreglan
í Stokkhólmi handtók í gær-
kvöldi fyrir meinta ölvun við
akstur fyrir utan borgina, komst
undan því að láta taka úr sér
blóðsýni með því að veifa skír-
teini um það að hann væri hald-
inn ónæmistæringu (AIDS) og
myndi bíta hvern þann sem
nálgaðist.
Stig Westmann, yfirlög-
regluþjónn í Stokkhólmi,
sagði að atvik af þessu tagi
hefði ekki gerst áður og koma
yrði í veg fyrir að það endur-
tæki sig. Hann sagði, að lög-
reglumenn, hjúkrunarfólk og
læknar á slysavarðstofum og
sjúkrahúsum, sem maðurinn
var fluttur á, hefðu ekki treyst
sér til að lenda í átökum við
manninn af ótta við að smit-
ast af ónæmistæringu, sem er
banvænn sjúkdómur.
Lögreglan gafst að lokum
upp og leyfði manninum að
fara á brott. Hann á hins veg-
ar yfir höfði sér kæru fyrir
ölvun við akstur, sem tókst að
sanna á hann í síðasta mán-
uði.
annarra hljóðvarps- og sjó-
nvarpsstöðva á Bretlandi einnig
niður vinnu að mestu leyti í gær í
samúðarskyni við starfsmenn
BBC og engar fréttir voru fluttar
þar. í BBC og öðrum útvarpsstöðv-
um voru hins vegar lesnar reglu-
lega yfirlýsingar þar sem sagði, að
starfsmönnunum þætti leitt að
dagskráin færi úr skorðum, en
verið væri að mótmæla sýningar-
banninu, sem útvarpsráð hefði
tekið ákvörðun um að kröfu Leons
Brittan, innanríkisráðherra.
Starfsmenn BBC telja að bannið
sé álitshnekkir fyrir stofnunina og
verði til þess að vekja efasemdir
um sjálfstæði hennar og óháðan
fréttaflutning. Stjórnendur ríkis-
útvarpsins eru hins vegar þeirrar
skoðunar, að það eigi ekki „að vera
vettvangur áróðurs fyrir morð-
ingja og hermdarverkamenn,"
eins og Leon Brittan, innanríkis-
ráðherra, sem fer með málefni út-
varpsins, komst að orði á þriðju-
dag.
AP/Símamynd
Margir starfsmenn breska ríkisútvarpsins söfnuðust f gær saman fyrir framan höfuðstöðvar sjónvarpsins í London til
að mótmæla banni við sýningu á þætti um sjónarmið öfgamanna á Norður-írlandi. Mótmælin náðu til flestra
starfsmanna hljóðvarps og sjónvarps á Bretlandi og leiddu til þess, að þar voru engar fréttir fluttar í gær.
Neyðarlögin í Suður-Afríku:
Meíra en þriðjungur
handtekinna frjáls
JóhanncHJtrborg, 7. ágúst AP.
YFIRVÖLD í Suður-Afríku skýrðu frá því í dag, að meira en þriðjungur
þeirra tæplega 1.500 manna, sem undanfarna daga hafa verið handtekn-
ir án ákæru á grundvelli neyðarlaga, hafi nú verið látinn laus.
Að sögn lögreglu í Pretoriu, höf-
uðborg landsins, hafa 342 meintir
óeirðaseggir fengið að fara frjálsir
ferða sinna frá því á þriðjudag og
á sama tíma hafa 22 verið teknir
höndum. Samtals sitja nú 862 inni
Pólland:
Níu Samstöðumenn
í mótmælasvelti
VmrHjá, 7. ágúmt AP.
NÍU félagar í Samstöðu, óháðu verkalýðshreyfingunni í Póllandi, sem eru í
Leczyca-fangelsinu skammt frá Varsjá, hafa verið í hungurverkfalli frá því
um helgina. Þeir eru að mótmæla „þtúgandi aðbúnaði" í fangelsinu. í
hópnum er Wladyslaw Frasyniuk, einn helsti forystumaður Samstöðu.
Upplýsingar um þetta koma
fram í bréfi, sem föngunum tókst
að smygla út úr fangelsinu og
barst vestrænum fréttamönnum í
Varsjá í dag. f bréfinu kemur
fram, að sl. föstudag hafi nokkrir
pólitískir fangar mótmælt því að
fá ekki að ræða saman i fangels-
isgarðinum. Hafi fangaverðir tek-
ið það óstinnt upp og flutt sex
menn nauðuga í klefa sína. Einn
fangi, Mirowslaw Andrezejewski,
hafi sætt barsmíðum fangavarðar,
sem lamdi hann í bakið og spark-
aði í kynfæri hans.
Dómsmálaráðuneytið í Varsjá
hefur viðurkennt, að mennirnir
séu í mótmælasvelti, en segir að
málið sé í rannsókn.
en
á grundvelli neyðarlaganna,
voru 1.459 þegar flest var.
Stjórnvöld halda því fram, að
mjög hafi dregið úr óeirðum í
landinu frá því neyðarlögin voru
sett á nokkrum stöðum 20. júlí sl.,
en yfirlýst markmið þeirra er að
koma á röð og reglu eftir margra
mánaða ókyrrð.
Til mjög harðra átaka kom hins
vegar í dag milli hvítra lögreglu-
manna og svartra ungmenna I
borginni Durban i austurhluta
Suður-Afríku. Ungmennin kveiktu
í verslunum, híbýlum manna og
bifreiðum, og er vitað um fjóra
sem létu lífið.
Neyðarlögin gilda ekki í Durban
og þar hefur að mestu verið friður
á undanförnum mánuðum. Óeirð-
irnar þar í dag hófust eftir að hóp-
ur stúdenta dreifði flugriti þar
sem hvatt var til mánaðarverk-
falls í mótmælaskyni við morð á
kunnum leiðtoga blökkumanna,
sem talið er að dauðasveitir
hlynntar stjórnvöldum hafi staðið
á bak við.
Um tvo þúsund hvítir stúdentar
í háskólanum í Höfðaborg, þar
sem tólf þúsund manns eru við
nám, héldu með sér fund í dag og
kváðust ekki ætla að sækja
kennslu næstu þrjá daga til að
lýsa stuðningi við kröfur um af-
nám neyðarlaganna.
Arababandalagið:
AP/Sfmamynd
Abdullah Ibn Abdel Aziz, krónprins
Saudi-Arabíu (tv.), og Sidi Mo-
hammed. krónprins Marokkó, sem
tók á móti honum við komuna til
Casablanca í gær.
Leiðtogafundur
sýnir óeiningu
('anbUaca, Marokkó, 7. igúst. AP.
AÐEINS tæplega helmingur ráðamanna rfkja Arababandalagsins situr leið-
togafund þess, sem hófst í Casablanca í Marokkó í dag. Tilgangur fundarins
er, að ræða leiðir til að efla samstöðu araba og hugsanlegar friðarviðrteður
Jórdana og Palestínumanna við Bandaríkjamenn.
1 hópi þeirra, sem ekki sækja
fundinn eru leiðtogar Sýrlands,
Alsírs, Suður-Jemens og Líban-
ons, en frá þessum löndum er eng-
inn fulltrúi. Viðstaddir eru m.a.
Hússein Jórdaníukonungur og
Yasser Arafat, leiðtogi Frelsis-
samtaka Palestínumanna (PLO).
Fahd, kóngur Saudi-Arabíu, og
Saddam Hussein, forseti íraks,
sitja ekki fundinn, en senda hátt-
setta fulltrúa sína á hann.
Aðalfulltrúi Líbýu, Ahmed El-
Shahati, fór frá Casablanca áður
en fundurinn hófst, eftir að ljóst
var að ekki fengist samþykkt til-
laga þar sem írakar eru m.a. for-
dæmdir fyrir stríðið við írani og
Palestínumenn og Jórdanir fyrir
að hafa ljáð máls á friðarviðræð-
um við Israela.
Hassan Marokkókonungur, sem
er gestgjafi á fundinum, hafði
hvatt til þess að arabar sýndu þar
einingu, en fundurinn er hins veg-
ar hafður til marks um þann
mikla ágreining sem er meðal
þeirra um Palestínumálið og
styrjöld íraka og írana.