Morgunblaðið - 08.08.1985, Blaðsíða 5
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 8. ÁGÚST 1985
5
Hnífsstungumálið á Hlemmi í von
19 ára piltur ákærður
fyrir manndrápstilraun
NÍTJÁN ára gamall reykvískur piltur hefur verió ákaeröur fyrir tilraun til
manndráps en til vara fyrir stórfellda líkamsárás. Málið var þingfest í
Sakadómi Reykjavíkur sl. föstudag. Piltur þessi vatt sér að öðrum 17 ára við
Hlemmtorg í Reykjavík aðfaranótt 13. aprfl sl. og stakk hann á hol með
fjaðrahníf án nokkurs tilefnis. Yngri pilturinn var færður mikið slasaður í
sjúkrahús og tókst læknum þar að bjarga lífi hans.
Árásarmaðurinn, sem var ofur-
ölvi, var handtekinn skammt frá
Hlemmi sömu nótt en látinn laus
sólarhring síðar eftir að sakadóm-
ur hafði synjað kröfu Rannsókn-
arlögreglu ríkisins um að hann
yrði látinn sæta gæsluvarðhaldi.
Ríkissaksóknari kærði úrskurðinn
til Hæstaréttar, sem dæmdi að
árásarmaðurinn skyldi sæta
gæsluvarðhaldi. Það var síðar
framlengt allt til 1. október
næstkomandi.
Pétur Guðgeirsson sakadómari
sagði í gær að dómsrannsókn í
málinu myndi hefjast síðar í þess-
um mánuði.
Lögbrot að skilja eftir
póstsendingu án þess
að viðtakandi sé vís
„ÞAÐ ER ólöglegt að skilja póstsendingu eftir í húsi sem ekki er víst að
viötakandi búi í, það er ekki hægt að komast að annarri niðurstöðu" sagði
Björn Björnsson póstmeistari þegar Morgunblaðið bar þetta undir hann.
Sem kunnugt er kom upp það
mál í sumar að umslög með eitur-
lyfjum voru send hingað frá út-
löndum með nöfnum og heimilis-
föngum fólks sem ekki er til. Bréf-
in voru borin út og þegar bréfber-
arnir fundu ekki neina viðtakend-
ur skildu þeir þau eftir f húsunum
við póstkassasamstæður. Það var
svo léttur leikur fyrir þá sem bréf-
in voru ætluð að sækja þau í húsin.
Að sögn Björns hefur verið farið
eftir þeirri reglu hingað til að ef
enginn viðtakandi finnst að póst-
sendingu í því húsi sem hún er
merkt, eða ef póstkassi viðkom-
andi er of lítill fyrir sendinguna, er
hún skilin eftir og sótt aftur næsta
dag hafi enginn tekið hana í milli-
tíðinni. „Það er greinilegt að við
verðum að endurskoða allan okkar
póstútburð með hliðsjón af þessu,
líklega þurfum við að líta á allan
póst sem vanskilapóst sé nafn við-
takanda ekki merkt skýrum stöf-
um á þeim stað sem bréfin eiga að
fara.“
Björn sagði sérstaklega mikið
bera á því á sumrin að bréf lentu á
hrakningi því þá sæi sumaraf-
leysingafólk oft um útburðinn og
það vissi sjaldnast nokkur deili á
íbúunum í sínu hverfi. Vanur póst-
ur hins vegar vissi oftast hvar
hvern og einn væri að finna og
meiri líkur væru á að hann myndi
átta sig á því ef sendingar væru
merktar fólki sem alls ekki byggi í
hverfinu.
Björn vildi að lokum taka fram
að allur póstur sem berst frá út-
löndum fer núorðið gegnum nýja
pósthúsið við Ármúla og er toll-
skoðaður. Allt að níu tollverðir
starfi við það að tollskoða póstinn
og taki þeir allt frá sem þeim þyki
grunsamlegt. Það væri og greini-
legt að þótt pósturinn hefði hert
starfsreglur sínar nokkuð væri alls
ekki nóg að gert. Best væri að hætt
yrði að bera út allar stærri sendi-
ngar en viðtakendum sendur til-
kynningarseðill og þeir látnir
sækja póstinn sjálfir á Pósthúsið.
Yfir 1000
skammtar af
LSD komust
í umferð
ÞRJU af þeim fjórum, sem handtekin
voru og úrskurðuð í gæsluvarðhald í
tengslum við umfangsmikið smygl á
LSD og hassi í lok síðasta mánaðar,
hafa nú verið látin laus. Gæsluvarð-
haldsúrskurður hins fjórða, þess er
fyrstur var handtekinn, rennur út á
morgun.
Rannsókn málanna, sem tengjast
lauslega, miðar nokkuð áfram, að
sögn Arnars Jenssonar fulltrúa í
fíkniefnadeild Reykjavíkurlögregl-
unnar. Uppvíst varð um smygl á
nærri 3.300 skömmtum af LSD og
liðlega 1.100 grömmum af hassi,
samtals að verðmæti um 2,7 millj-
ónir króna á svörtum markaði.
Lagt var hald á allt hassið og um
2.000 skammta af LSD. Talið er að
rúmlega eitt þúsund skammtar af
LSD hafi komist f umferð. Beðið er
niðurstöðu styrkleikaprófunar á
efnunum.
Morgunbladið/Svavar B. Magnússon
Jarögöng um Ólafsfjarðarmúla
fMafaTirói, I. ágúst
BYRJAÐ er að ryðja jarðvegi frá jarðgangnaopi á væntanlegum jarð-
göngum í Ólafsfjarðarmúla. Er þetta liður í þeim rannsóknum sem gera
þarf áður en fullnaðarhönnun er lokið, en áætlað er að framkvæmdir
hefjist árið 1987.
Olafsfirðingar eru bjartsýnir á að stjórnvöld sýni þessu stórmáli
fyrir kaupstaðinn og aðrar byggðir vestan Eyjafjarðar fullan skiln-
ing og lofar málflutningur Matthíasar Bjarnasonar samgönguráð-
herra á fundi hans hér í vor góðu um áframhaldið.
— Jakob.
er hver
aö veröa
síöastur
Ennþá er hægt að
gera mjög góð kaup
40—60%
AFSLÁTTUR
10%
AFSLÁTTUR
AF VÖRUM SEM
EKKI
ERU Á ÚTSÖLUNNI.
Allt nýjar
og
nýlegar
vörur.