Morgunblaðið - 08.08.1985, Blaðsíða 30

Morgunblaðið - 08.08.1985, Blaðsíða 30
30 MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 8. ÁGÚST 1985 Frá fundi sjávarútvegsráðherra og fulltrúa náttúruverndarsamtakanna Greenpeaee í gærmorgun. Fundur sjávarútvegsráðherra og fulltróa Greenpeace: Jákvæðar viðræður ÞEIR SÁTU bér í rúma klukkustund hjá mér. Þetta var vinsamlegur fundur. Þeir viðurkenndu mikilvKgi rannsókna á hvalastofninum, en töldu hægt að stunda þær án veiða,“ sagði Halldór Ásgrímsson sjávarútvegsráðherra er hann var inntur eftir gangi mála á fundi hans og fulltrúa Greenpeace í gærmorgun, þar sem Greenpeace kynnti sjávarútvegsráðherra málstað sinn og hvað þeir hafa að athuga við fyrirhugaðar hvalveiðar íslendinga í þágu vísinda, meðan bann alþjóðahvalveiðiráðsins við hvalveiðum er í gildi. Bjóriimflutningur til landsins: Get vel trúað að reglu- gerðin brjóti í bága við lög — segir Albert Gudmundsson fjármálaráðherra „Ég benti þeim á umsagnir vís- indamanna okkar, sem telja að takmarkaðar veiðar verði að eiga sér stað, eigi að vera hægt að framkvæma þær rannsóknir sem fyrirhugaðar eru. Hins vegar er verið að fara yfir alla rannsókn- aráætlunina núna með tilliti til þeirra ábendinga sem hafa komið fram frá erlendum vísinda- mönnum og öðrum og það er ekki ljóst hvenær þeirri endurskoðun lýkur. Það verða örugglega ein- hverjar breytingar gerðar á áætl- uninni, en þær munu líklega aöal- lega ganga út á það, að bæta ýmsu við það sem rannsaka ætti, frekar en það að hvalveiðikvótinn verði minnkaður, þó ég geti ekkert full- yrt um það að svo stöddu," sagði Halldór ennfremur. Halldór sagði að hér á landi lögsögu. Halldór sagði að unnið hefði verið að því að koma á samstarfi milli íslendinga og Grænlend- inga um þessi mál, en stutt væri síðan Grænlendingar hefðu yfir- tekið þennan málaflokk frá Dönum. Meðal annars hefðu átt hefði verið starfrækt hvalarann- sóknastofnun með samþykki Alþjóðahvalveiðiráðsins siðan 1980 og margir erlendir vísinda- menn hefðu verið hér þess vegna. Krafa grænfriðunga um stöðvun hvalveiða þýddi í raun og veru það, að þessi rannsóknastarfsemi yrði aflögð og það væri alvarlegt mál. Fulltrúar Greenpeace tóku í sama streng og kváðu viðræður hafa verið jákvæðar hjá sjávarút- vegsráðherra. Fleiri fundir hafa ekki verið ákveðnir, en á morgun eða laugardag kemur Síríus, skip Greenpeace, til landsins. Þá hefur Greenpeace ákveðið að halda al- mennan kynningarfund á málefn- um samtakanna á Hótel Loftleiö- um á mánudagskvöld. sér stað viðræður í nýlegri heimsókn hans til Grænlands og búist væri við framhaldi á þeim viðræðum í væntanlegri heim- sókn grænlenska sjávarútvegs- ráðherrans hingað til lands. Viðræður áttu sér stað við Evr- „Ég get vel trúað því að þessi reglu- gerð brjóti í bága við lög. Ég skal þó ekki um það dæma að svo stöddu. Tollgæsla á Keflavíkurflugvelli heyrir undir utanríkisráðherra samkvæmt reglugerð, þó þessi málaflokkur eigi að heyra undir fjámálaráðuneytið," sagði Albert Guðmundsson, fjármála- ráðherra, er Morgunblaðið bar undir Frumrannsókn málsins er lokið og verður það sent ríkissaksóknara til nánari umfjöllunar, en hann ákveður hvort ákæra verður gefin út í málinu. Ef það verður gert, kemur til kasta dómstólanna að skera úr um lögmæti reglugerðarinnar. Þorgeir sagði að Kristján Pét- ursson, deildarstjóri á Keflavíkur- flugvelli, sem stóð fyrir því að hald var lagt á bjórinn, hefði áður kært sig og yfirmann Fríhafnarinnar á Keflavíkurflugvelli fyrir að leyfa innflutning og sölu á áfengu öli. Ríkissaksóknari hefði, eftir að hafa ráðgast við fjármála- og utanrikis- ráðuneytið, ekki séð ástæðu til málshöfðunar. Málið kæmi nú inn á „Þetta eru nýjar greinar sem við erum að reyna að styðja við bakið á,“ sagði Albert Guðmundsson, fjár- málaráðherra, í samtali við Morgun- blaðið. „Það bendir allt til þess að ópubandalagið á sínum tíma um nýtingu þessara sameiginlegu stofna, en samkomulag náðist aldrei. Halldór sagði að þessi viðbót, sem veiðar Japana þýða, hlyti að vekja óánægju innan Evrópubandalagsins, þar sem ríki innan þess hefðu verið búin að fá úthlutað kvóta, sem þau væru búin að greiða fyrir, en hefðu átt í erfiðleikum með að fylla hann. Halldór sagði þarna um mik- ilvæg sameiginleg hagsmuna- mál að ræða, sem nauðsynlegt væri að ná samkomulagi um, en auk karfans, grálúðunnar og hann atburöinn á Kenavíkurflugvelli er farþegi á leið til landsins var stöðv- aður og af honum tekinn leyfilegur innflutningur hans á bjór, samkvæmt reglugerð sem útgefín er af fjármála- ráðuneytinu. „Ég held að lögin séu skýr, þó undanþága hafi verið veitt frá þeim er farmönnum var leyft að taka hans borð á nýjan leik. Aðspurður um hvort þetta mál gæti endurtekið sig einu sinni enn, ef niðurstaða ríkissaksóknara yrði sú sama, að ekki væri ástæöa til málshöfðunar, sagði Þorgeir það hugsanlegt. Þá kæmi hins vegar til álita hlýðniskylda opinberra emb- ættismanna og vísaði hann i þvi sambandi til 60. greinar stjórn- arskrárinnar. Hann benti á aö sjó- mönnum hefði verið heimilt að flytja inn áfengt öl í 40 ár og flug- liðum í 20 ár, en fáein ár væru síðan ferðamenn hefðu fengið leyfi til þess arna. Sagði hann spurningu hvort ekki væri komin hefð á þennan inn- flutning. þessi atvinnurekstur eigi framtíðina fyrir sér og geti skapað þjóðinni mikil útflutningsverðmæti þegar tímar líða og ef rétt er á málum haldið," sagði Albert ennfremur. loðnunnar er talið að þorskur gangi einnig milli íslands- og Grænlandsmiða. „Eftir heim- sóknina til Grænlands varð okkur mjög vel ljóst hversu al- varlegt ástandið er í græn- lenskum sjávarútvegi, þar sem þorskaflinn hefur brugðist svo gjörsamlega. Við viljum gjarnan eftir því sem við getum aðstoða Grænlendinga í þessum málum. Mér sýnist hins vegar að það sé þeim mikilvægast, að finna nægileg verkefni fyrir sinn eig- inn fiskiskipaflota og byggja upp atvinnustarfsemi í landi, heldur en selja afla sinn úr landi. En þetta verða þeir nátt- úrlega að meta sjálfir," sagði Halldór Ásgrímsson ennfremur. með sér nokkuð magn af bjór og hún síðan víkkuð út þannig að hún náði einnig til almennra ferða- manna. Þessi reglugerð var sett fyrst á tímum Magnúsar Jónssonar í fjármálaráðuneytinu og breytt síðan í tíð Sighvatar Björgvinsson- ar að ég held, til að hún næði einnig til ferðamanna á leið til landsins. Ég hef einungis leyft sölu á íslenska bjórnum í Fríhöfnini, enda fannst mér úr því þessi innflutningur var f gangi að hann ætti að sitja við sama borð og erlenda ölið. Hins vegar má vænta breytinga á þess- um málum nú, ef dómstólar koma til með að skerast í leikinn. Enda er það ekki vansalaust að Alþingi skuli ekki manna sig upp í það, að taka ákvörðun um það hvort leyfa á bjórinn eða ekki. Annað hvort á að leyfa áfengt öl eða það á að banna það, svo eitt geti gengið yfir alla,“ sagði Albert ennfremur. Misbeiting verkfalls- réttarins — segir VSÍ um verkfallsboðunina í Áburðarverksmiðjunni MORGUNBLAÐINU hefur borist eftirfarandi ályktun frá samninga- ráði Vinnuveitendasambandi Is- lands í tilefni af verkfallsboóun í Áburðarverksmiðjunni: Enn einu sinni blasa við alvar- legar brotalamir í vinnulöggjöf, þar sem verkfallsréttinum er mis- beitt svo að til fádæma má telja. Án þess svo mikið sem að kynna kröfur um breytingu á kjarasamn- ingi, hafa nokkur félög iðnaðar- manna boðað verkfall gagnvart Áburðarverksmiðjunni, sem hefj- ast á 10. ágúst nk. Þessi framkoma ber vott um ábyrgðarleysi og und- irstrikar brýna nauðsyn þess að endurskoða þegar nálega 50 ára gamla löggjöf um málefni stéttar- félaganna. f samningaráði VSÍ eiga sæti: Gunnar J. Friðriksson, Ólafur B. Ólafsson, Hörður Sigurgestsson, Viglundur Þorsteinsson og Magn- ús Gunnarsson. Ein milljón dollara ekki rétt upphæð — segir Arne Aspen forstjóri Frionor MICHÁEL Nielsen, sem hingað er kominn á vegum Green- peace-samtakanna til viðræðna við Halldór Ásgrímsson sjávar- útvegsráðherra, segir í samtali í Morgunblaðinu í gær að sam- tökin hefðu á árinu 1983 staðið fyrir aðgerðum gegn norska fyrirtækinu Frionor á Banda- ríkjamarkaði og að þær aðgerðir hefðu orðið þess valdandi að Frionor tapaði einni milljón dollara. Morgunblaðið hafði sam- band við Arne Aspen for- stjóra Frionor í Osló og spurði hann hvort þessar fullyrð- ingar Michaels Nielsen væru á rökum reistar. Hann sagðist ekki vilja tjá sig um málið að öðru leyti en því að hann gæti fullyrt að þessi upphæð sem nefnd er, ein milljón dollara, væri ekki rétt. Hins vegar sagði Arne Aspen að það væri rétt hjá Michale Nielsen að Frionor muni hætta útflutn- ingi á hvalkjöti. Erum afar andvígir veiðum erlendra þjóða — segir Halldór Ásgrímsson um veiðar Japana í grænlenskri lög- sögu á sameiginlegum fiskstofnum Grænlendinga og íslendinga „Það hefur ekki náðst samkomulag um veiðar úr þessum sameiginlegu stofnum og við erum því afar andvígir að er- lendar þjóðir fái heimild til að veiða úr þeim,“ sagði Halldór Ásgrímsson, sjávarútvegsráðherra, er hann var inntur eftir því hvaða augum íslendingar litu það að Grænlendingar hafa gefið Japönum heimild til þess aö veiöa 10 þúsund tonn af karfa og 20 þúsund tonn af grálúðu í grænlenskri fiskveiði- Frumrannsókn bjórmálsins á Keflavíkurflugvelli lokið: Málið sent ríkissak- sóknara til ákvörðunar EINAR INGIMUNDARSON, farþeginn sem stöðvaður var í gær á Kefíavíkur- fíugvelli og af honum tekinn sá bjór sem leyfilegt er að fíytja inn til landsins samkvæmt reglugerð fjármálaráðuneytisins, fær bjór sinn afhentan aftur eftir helgina. Þorgeir Þorsteinsson, lögreglustjóri á Keflavíkurfíugvelli, sagðist ekki sjá ástæðu til þess að viðkomandi farþegi fengi ekki sinn bjór, þegar hundruð annarra kæmu með bjór til landsins á hverjum degi. Loðdýrarækt og fiskeldi: Innflutningsgjöld og söluskattur voru gefín eftir FJÁRMÁLAKÁÐHEKRA hefur ákveðið að gefa eftir innflutningsgjöld og sölu- skatt á vörur til fiskeldis og loðdýraræktar. Heimild Alþingis til þessarar eftirgjaf- ar á gjöld á innflutning tii loðdýraræktar liggur fyrir, en í haust, strax og þing kemur saman, verður leitað eftir sams konar heimild vegna fískeldisins. Þangað til sú heimild fæst hefur fjármálaráðherra leyft að viðkomandi gjöld verð greidd með skuldaviðurkenningum.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.