Morgunblaðið - 08.08.1985, Blaðsíða 54

Morgunblaðið - 08.08.1985, Blaðsíða 54
 54 MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 8. ÁGÚST 1985 t* BLEIKU NÁTTFÖTIN (SHE'LL BE WEARING PINK PYJAMAS) ■v* í Brádfyndin, ný gamanmynd með Julie Walters, Anthony Higgins og Janet Henfrey í aöalhlutverkum. Handrit: Eva Hardy. — Framleiðendur: Tara Prem og Adrlan Hughes. — Leikstjóri: — John Goldschmidt. islenskum kvikmyndahúsagestum er Julie Walters í fersku minni í hlutverki Ritu í „Educating Rita“, sem sýnd var vió metaðsókn bæöi hér á landí og annars staðar. Fyrir túlkun sína var Julie útnefnd til Óskarsverölauna og í heimalandinu fékk hún British Academy-verölaunin (BAFTA). I „Bleiku náttfötunum" leikur hún Fran, hressa og káta konu um þrítugt. Fran er kjaftfor með afbrigöum og segir vafasama brandara, sem fá suma til aö hlaeja, aöra tll aö hneykslast. Kimnigáfa Julie kom berlega í Ijós viö kvikmyndatökuna á „Bleiku náttfötunum". I einu atriöi myndarinnar á hún aö standa nakin undir sturtu. Julie tilkynnti tækniliöi og leikstjóra aö samkvæmt nýjum reglum breska leikarasambandsins, yröu allir, sem viöstaddir væru töku nektaratriöis, aö afklæöast. Þessu til staöfestingar baö hún leikstjórann aö hringja til leikarasambandsins, þar sem þessar nýju reglur voru staöfestar. Julie stóö því nakin undir vatnsbununni, kvikmyndatökumaöurinn fór úr hverri spjör, tregur þó, og aörir í tökuliöi stóöu á nærbrókinni einni. Aö töku lokinni sprakk Julie úr hlátri, og tilkynnti viöstöddum aö þessar reglur væru hennar eigin heilaspuni og hún heföi fengiö kunningja sinn hjá leikara- sambandinu í liö meö sér. Sýnd í A-sal kl. 5, 7,9 og 11. Golflandsllðiö valið — Keppir á Noröurlandamótinu Landsliösstjórnandinn í golfi, Guómundur S. Guömundsson, hefur valið karla- og kvenna- landslió íslands til þátttöku I Noröurlandamótinu í golfi sem fram fer í Abo í Finnlandi 24. og 25. égúat. Karlaliöió er þannig skipaö: Siguröur Pétursson, GR, Úlfar Jónsson, GK, Hannes Eyvindsson, GR, Ragnar Ólafsson, GR, Gylfi Kristinsson, GS og Óskar Sæ- mundsson, GR. Kvennaliöið er skipaö þeim Ragnhlldi Siguröardóttur, Stein- unni Sæmundsdóttur, Ásgeröi Sverrisdóttur, öllum úr GR og Þórdísi Geirsdóttur úr GK. Auk keppenda halda utan for- seti GSÍ, Konráö Bjarnason, Georg Tryggvason og Guömundur S. Guömundsson. Þeir Konráö og Georg munu sitja þing Golfsam- banda Noröurlanda sem fram fer á sama tíma. Guömundur S. Guömundsson sagöi í samtali viö Morgunblaöiö í gær aö þaö væri alltaf mikill vandi aö velja landsliöiö, en eftir aö nýja forgjafarkerfið heföi veriö tekiö upp þá sæist mun betur en áöur hvernig menn lóku frá einum tíma til annars. Hann sagöi einnig aö hann heföi notiö mikillar aöstoöar Kristínar Pálsdóttur viö valiö á kvennalandsiiöinu, en hann heföi ekki nægan tíma til aö fylgjast eins vel meö þeim og hann þyrfti til aö velja liðið einn. „Þeir sex kylfingar sem eru nú valdir í karlalandsliöiö eru þeir menn sem eru meö lægsta forgjöf hér á landi um þessar mundir og ég tel aö þetta séu okkar bestu kylfingar", sagöi Guömundur aö lokum. Stigamótunum lokið — Sigurður Pétursson er efstur LANDSMÓT kylfinga sem fram fór á Akureyri um helgina var fimmta og síóasta stigamótiö í sumar, en 16 stigahæstu menn sumarsins fá rótt til að keppa á stigameistaramótinu sem haldió er á hverju hausti. Áður fyrr gáfu þessi stigamót stig til landsliðs, en þannig er því ekki fariö núna þó svo tekið sé tillit til stiganna. Stigahæstu menn ( karlaflokki eftir fimm stigamót sumarsins eru (stig fyrir Landsmótið ( sviga): 1. Siguröur Pétursson, GR 2. Ulfar Jónsson, GK 3. Ragnar Ólafsson, GR 4. Hannes Eyvlndsson, GR 5. Siguröur Sigurösson. GS 6. Gytfi Kristinsson, GS 7. Ómar örn Ragnarsson, GL 8. Geír Svansson, GR 9. Magnús Jónsson, GS 10. Ivar Hauksson, GR 11. Krlstján Hjálmarsson, GH 12. Óskar Sæmundsson, GR 13. B|ðrgvln Þorstelnsson, GR 14. Þorstelnn Hallgrimsson, GV 15. Tryggvi Traustason, GK 100,35 (38) 95.95 (34) 86.50 (20) 64,82 (30) 49,65 ( 8) 40,70 (20) 31,05 (20) 28,85 28,75 (20) 22.95 17,20 ( 8) 16,00 ( 1) 14.50 9,20 6,40 • Siguröur Péturason, GR, er stigahæstur eftir sumarið (goffinu. Opna BP-Olís-mótið UM NÆSTU helgi fer fram í Graf- arholti Opna BP—Olís-mótið. Leiknar veröa 36 holur með og án forgjafar á laugardag og sunnu- dag. Bakhjarlar mótsins eru Olíu- verslun Íslands hf. og BP og gefa þeir ðll verðlaun til mótsins, sem eru hin veglegustu. Auk aöalverölauna veröa auka- verölaun á öllum par 3 brautum vallarins fyrir aö vera næstur holu í 1. teighöggi. Er þar um aö ræða vöruúttekt fyrir kr. 5.000 á hverri holu. Ræst veröur út frá kl. 8.00 á laugardag. Skráning fer fram í Golfskálanum í Grafarholti í símum 82815 og 84735. Öldungagolf öldungameistaramót Islands fer fram nú um helgina í Borgar- nesi og hefst keppnin strax á föstudag kl. 9 árdegis. Þá keppa þeir karlar sem keppa án forgjaf- ar, en þeir leika aö þessu sinni 54 Firmakeppni Hauka DAGANA 16.—18. ágúst 1985, gengst Knattspyrnufélagið Hauk- ar fyrir firma- og félagahópa- keppni í knattspyrnu á grasvell- inum á Hvaleyrarholti. Leikiö veröur þvert á venjulegan knattspyrnuvöll í 7 manna liöum. Leiktími er 2X15 mínútur. Þátttökutilkynningar skal til- kynna í sima 54368 (Loftur) og 651070 (Einar) i síöasta iagi 14. ágúst. Þátttökugjald er kr. 3.500,00. holur í stað 36 áöur. Á laugardaginn hefst síöan keppni þeirra sem keppa meö for- gjöf og hjá konunum. Rótt til þátt- töku hafa þeir karlmenn sem veröa 55 ára á árinu eöa eru eldri en þaö og konurnar veröa aö veröa fimmtugar á þessu ári til aö mega taka þátt, en mega aö sjálfsögöu vera eldri. Einherja- keppnin í dag Einherjakeppni Golfklúbbs Reykjavíkur fer fram ( dag, fimmtudag, og hefst kl. 17.00. Mótiö fer fram á svæöi Golfklúbbs Reykjavíkur í Grafar- holti. Einherjakeppnin er mót fyrir þá sem hafa fariö holu í höggi á keppnistímabilinu.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.