Morgunblaðið - 08.08.1985, Blaðsíða 51

Morgunblaðið - 08.08.1985, Blaðsíða 51
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 8. ÁGÚST 1985 51 VELVAKANDI SVARAR í SÍMA 10100 KL. 14—15 FRÁ MÁNUDEGI TIL FÖSTUDAGS Enn um llólmfríður Vala Svavarsdóttir, 11 ára fri Ólafsfirði, skrifar: Kæri Velvakandi. Ég las Morgunblaðið þann 27. júlí og þar var beðið um þulu. Ég kannaðist strax við hana því afi Magnús kenndi mér hana og er hún svona: Sat ég undir fiskihlaða föður míns, átti ég að gæta bús og bama, svíns og sauða. Menn komu að mér, ráku staf í hnakka mér. Gerðu mér svo mikinn skaða, lögðu eld í bóndans hlaða. Hlaðinn tók að brenna og ég að renna allt upp i lönd, allt upp í biskups lönd. Bóndi átti valið bú, gaf mér bæði uxa og kú. Uxinn tók að vaxa, kýrin að mjólka. Sankti María gaf mér sauð, síðan lá hún steindauð. Annan gaf mér Freyja. Hún kunni ekki að deyja. Gott þótti mér út að líta úr skinninu hvíta og skikkjunni grænu. þulur Konan mín í kofanum, hún bauð mér til stofu að gá, ég vil ei til stofu gá. Heldur upp að Hólum að hitta konu bónda. Kona bónda gekk til grunns og vagaöi og kjagaði. Lét hún ganga hettuna og smettuna. Sigga litla dimmadó. Nú er dauður Ægill og Skægill í skógi. Eyþór Þórðarson Neskaupstað skrifar: Ágæti Velvakandi. Ég tel mig kunna fyrri þuluna (gáta er það ekki) sem Þuríður Guðmundsdóttir spurðist fyrir um í blaðinu 27. þ.m. Þuluna lærði ég fyrir nærfellt 80 árum í hinu ágæta Stafrófs- kveri Jóns ólafssonar. Þótt svo langt sé nú um liðið ætla ég þó að hún hafi ekki mikið brenglast í minni mínu. Það gleymist seint sem vel er lært í æsku. Þulan, eins og ég kann hana, er þannig: Sat ég undir fiskihlaða föður míns. Átti ég að gæta bús og barna, svíns og sauða. Menn komu að mér, ráku staf í hnakka mér. Gerðu mér svo mikinn skaða, lögðu eld í bóndans hlaða. Hlaðinn tók að brenna, ég tók að renna, allt út undir lönd, allt út undir biskups lönd. Biskup átti valið bú. Hann gaf mér bæði uxa og kú. Uxinn tók að vaxa, kýrin að mjólka. Sankti María gaf mér sauð. Síðan lá hún steindauð. Annan gaf mér Freyja. Sú kunni ekki að deyja. Gott þótti mér út að líta, í skinninu hvita og skikkjunni grænni. Konan mín í kofanum bíður mér til stofu gá. Ég vil ei til stofu gá, heldur upp til Hóla að hitta konu bónda. Kona bónda gekk til brunns, vagaði, kjagaði. Lét hún ganga hettuna, smettuna. Dinga litla dimmadó. Nú er dauður Egill og kegill í skógi. Suðurnesjakonur athugið Líkamsþjálfun — leikfimi 4ra vikna sumarnámskeiö hefst þriðjudaginn 13. ágúst í íþróttahúsi Njarðvikur. Liökandi og styrkjandi æfingar fyrir dömur á öllum aldri. og framhaldshópar. Upplýsingar og innritun í síma 6062. Birna Magnúsdóttir. Compi Camp Tjaldvagnar á haustverði Málsvörn kartöfluætu Kartöfluæta skrifar: Heiðraöi Velvakandi. Halldór Kristjánsson sér ástæðu til að svara bréfi mínu sem birtist í þætti þínum fimmtudag- inn 25. júlí undir fyrirsögninni „Hættum kartöflurækt". Málsvari Skrifið eða hringið til Velvakanda Velvakandi hvetur lesendur til að skrifa þættinum um hvaðeina, sem hugur þeirra stendur til — eða hringja milli kl. 14 og 15, mánudaga til fostudaga, ef þeir koma því ekki við að skrifa. Meðal efnis, sem vel er þegið, eru ábendingar og orðaskipti, fyrirspurnir og frásagnir, auk pistla og stuttra greina. Bréf þurfa ekki að vera vélrituð, en nöfn, nafnnúmer og heimilisfíjng verða að fylgja öllu efni til þátt- arins, þó að höfundar óski nafn- leyndar. Sérstaklega þykir ástæða til að beina því til lesenda blaðsins utan höfuðborgarsvæðisins, að þeir láti sinn hlut ekki eftir liggja hér í dálkunum. kartöflubænda sér ástæðu til að rifja upp rök mín í málinu og tekst það heldur óhönduglega. Hann segin „í stuttu máli er tillaga hennar sú að hætt verði að rækta kartöflur hér á landi vegna þess að spretta er óviss og getur brugð- ist.“ Greinilegt er að maðurinn hefur annaðhvort verið sofandi þegar hann las pistil minn eða þegar hann skrifaði grein sín, nema hvort tveggja sé. Rök fyrir máli mínu voru þau, að það er sama hvernig viðrar, það er sama hvort uppskeran er góð eða slæm: Bændur berja lóminn eftir sem áður, styrkir og hagstæð lán frá því opinbera eru það eina sem get- ur bjargað þeim frá gjaldþroti. Ég legg engan dóm á tíðarfar og sprettu, en ég sé að það er ekkert vit í að halda áfram á þessari braut, og það er það sem máli skiptir. Allir viðurkenna að erfitt er að stunda kartöflurækt á ís- landi, og alls ekki hagkvæmt. Það þótti ekki góð latína i mínu ung- dæmi að standa í rekstri sem ekki borgaði sig. Ég vona að svo sé enn — eða er Halldór mér ekki sam- mála? ÞESS VEGNA geri ég það að tillögu minni að mennirnir leiti sér að arðbærari atvinnu. Er eitt- hvað óeðlilegt við það? Þá segir Halldór að ég vísi ekki á hvað þeir geti tekið sér fyrir hendur(!) „og er það ærin vöntun". Ber mér að skilja orð hans þannig, að bendi ég á ný störf muni bændur og búalið stökkva upp til handa og fóta, henda frá sér amboðum, hætta bú- skap í hvelli og fást við það sem ég hef bent þeim á? Daglega er í Morgunblaðinu gnægð atvinnutilboða, t.d. á sunnudaginn voru heilar þrjár sfð- ur í blaðinu undir þess konar aug- lýsingar. Hvers óskar herrann frekar? Að lokum þetta: Hvað gera menn sem annast eigin rekstur þegar illa árar og fyrirtæki standa ekki undir sér? Þeir fá sfn tæki- færi cins og aðrir og njóta hagn- aðarins, vegni þeim vel. Mér er kunnugt um marga bændur sem reka bú sín með sóma. Þeir njóta ávaxta vinnu sinnar. Þeir eiga samt sem áður enga heimtingu á að seilst sé í vasa skattborgar- anna, almenningur látinn borga hallarekstur, fari ekki allt á þann veg sem óskað er eftir. Það er sið- leysi og virðingarleysi gagnvart skattborgurum þessa lands að reyta af þeim fjármuni til þess eins að ausa í óarðbæran rekstur, og á það við um allan rekstur að sjálfsögðu. Áður en ég læt bréfa- skriftum mínum um þetta mál lokið vil ég benda á að það flokk- ast undir óheilbrigða viðskipta- hætti að reka óarðbært fyrirtæki og bera ekki sjálfur ábyrgð á mis- tökum sínum. Slíkt kann ekki góðri lukku að stýra. Bjóðum nú okkar vinsæla haust- verd á tjaldvögnum. Einnig góöan haustafslátt á öllum fylgihlutum. Bolholti 4, Reykjavík m S sími 91-21945/84077 Legubekkurinn meö svarta leörinu kominn. Verö aðeins kr. 28.440 stgr. EID nwi Bláskógar Ármúla 8, sími 686080.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.