Morgunblaðið - 08.08.1985, Síða 17
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 8. ÁGÚST 1985
17
Einar Hjartarson í nýju versluninni.
Morgunblaöið/ÓB
Árni Jóhannsson kaupfélagsstjóri
þakkar vel unnin störf.
Skagaströnd:
Úrbætur í mál-
um verslunar
Skacaströod, 31. jólf.
NÚ nýverið var tekin i notkun
viðbygging við verslun Kaupfélags
Húnvetninga á Skagaströnd.
Viðbyggingin, sem er næstum
eins stór og sú sem fyrir er, mun
gjörbreyta allri aðstöðu Kaupfé-
lagsins og gera því kleift að bæta
þjónustuna frá því sem áður var. í
viðbyggingunni er vörulager, að-
staða fyrir starfsfólk, frystir og
fleira. Gamla lagernum var breytt
í vefnaðarvöru- og ritfangadeild.
{ tilefni af þessum tímamótum
hjá Kaupfélaginu hafði það boð
inni fyrir starfsfólk sitt, stjórn og
þá aðila sem að framkvæmdum
við nýbygginguna stóðu. Þar
þakkaði kaupfélagsstjórinn, Árni
Jóhannsson, öllum þessum aðilum
vel unnin störf og bauð jafnframt
velkominn til starfa nýjan versl-
unarstjóra, Einar Hjartarson,
sem nýlega hefur tekið við því
starfi af Maríu Magnúsdóttur sem
verið hefur verslunarstjóri um
mörg undanfarin ár.
Þá afhenti Björn Magnússon
stjórnarformaður félagsins ólafi
Magnússyni bónda á Sveinsstöð-
um, fyrrverandi stjórnarfor-
manni, skjal til staðfestingar á þvf
að hann var kjörinn heiðursfélagi
i Kaupfélaginu á síðasta aðalfundi
þess.
Sveitarstjórinn, Sigfús Jónsson,
óskaði Kaupfélaginu til hamingju
með þennan áfanga sem hann
kvaðst fagna. Aðrir Skagstrend-
ingar hljóta að gera það einnig,
þar sem þörf á úrbótum í verslun-
armálum var orðin mjög brýn.
— ÓB
Ráðstefna um beit-
arrannsóknir á
norðlægum slóðum
DAGANA 5.-8. ágúst nk. verður haldin á Hvanneyri í Borgarfirði ráð-
stefna um beitarrannsóknir f norðlsgum löndum, og er þetta fyrsta
ráðstefnan sem haldin hefur verið um þetta efni. Að ráðstefnunni standa
Kannsóknarstofnun landbúnaðarins, landbúnaðarráðuneytið, Búnaðarfé-
lag íslands, Landgrsðsla ríkisins og Bsndaskólinn á Hvanneyri.
Ráðstefnuna munu sitja beit-
arsérfræðingar frá Norður-
Ameríku og Norður-Evrópu,
þ.e.a.s. frá Alaska og nokkrum
öðrum norðlægum ríkjum
Bandaríkjanna, Kanada, Græn-
landi, Noregi, Svíþjóð, Sovétríkj-
unum, Skotlandi, Englandi og
írlandi, samtals rúmlega 30
manns, auk um 20 {slendinga.
Enska verður tungumál ráð-
stefnunnar, og þau 32 erindi sem
þar verða flutt, verða öll gefin út
í sérstakri bók síðar á árinu á
vegum PLENUM-útgáfufyrir-
tækisins í New York. Kostnaður
vegna komu hinna erlendu
fræðimanna er að mestu greidd-
ur með styrk sem Vísindasjóður
NATO veitir til ráðstefnuhalds-
ins, en auk þess hafa ýmsar
stofnanir og fyrirtæki tengd
landbúnaði veitt stuðning með
beinum fjárframlögum eða ann-
arri fyrirgreiðslu.
Þar sem takmörkuðum fjölda
fræðimanna er boðið til ráð-
stefnunnar er fyrst og fremst
litið á hana sem vinnufund. Auk
kynningar á rannsóknarverkefn-
um og niðurstöðum rannsókna
og athugana frá hinum ýmsu
löndum, verður rúmur tími ætl-
aður til umræðu um eiginleika
og nýtingu náttúrulegra gróður-
lenda á norðurhveli jarðar,
þ.e.a.s. úthagabeit fyrir sauðfé,
geitfé, nautgripi, sauðnaut,
hreindýr og hross. Þótt gróð-
urskilyrði séu breytileg í þessum
norðlægu löndum eiga þau
margt sameiginlegt. í flestum
tilvikum er um viðkvæm gróður-
lendi að ræða, sem þó eru verð-
mætar auðlindir sé nýtingin
hófleg. Spretta takmarkast mjög
af tiltölulega stuttum vaxtar-
tíma, lágum sumarhita, nær-
ingarsnauðum jarðvegi og of lít-
illi úrkomu á sumum svæðanna.
Margvíslegar gróður- og beitar-
rannsóknir hafa verið gerðar í
norðlægum löndum, en með
þessu ráðstefnuhaldi er í fyrsta
skipti komið á sameiginlegri
kynningu og virkum samskipt-
um á milli þjóðanna um þessi
efni. Slíkt getur haft bæði fræði-
legt og hagnýtt gildi í framtíð-
inni, ekki aðeins vegna landbún-
aðar heldur einnig með tilliti til
náttúruverndar á norðurhveli.
Þess ber að geta að þátttak-
endur munu fara í kynnisferðir
um Suður-, Vestur- og Norður-
land, bæði fyrir og eftir fundina
á Hvanneyri. Áhersla verður
lögð á tveggja daga ferð norður í
Austur-Húnavatnssýslu og suð-
ur Kjöl, og verða m.a. tvö
bændabýli heimsótt, á Auðkúlu-
heiði verða skoðaðar beitar- og
uppgræðslutilraunir og komið
verður við hjá Skógrækt ríkisins
í Haukadal.
Umsjón með undirbúningi og
framkvæmd beitarráðstefnunn-
ar hafa þeir dr. ólafur Guð-
mundsson Rannsóknarstofnun
landbúnaðarins (formaður), dr.
Andrés Arnalds Landgræðslu
ríkisins, dr. Bjarni Guðmunds-
son Landbúnaðarráðuneytinu,
dr. Ólafur R. Dýrmundsson Bún-
aðarfélagi Íslands og dr. Ríkharð
Brynjólfsson Bændaskólanum á
Hvanneyri.
(FrétUtilkynning)
^BÚ
l W HJALLAHRi
-----------,
___________i ■■■•
HJALLAHRAUNI 2 SIMI 53755 - POSTHOLF 23* • 220 HAFNARFIROI
PB snjóbræðslurörin
kaupir þú í eitt skipti fýrir öll.
Yíir vetrarmánuðina hér á landi er allra veðra von, stórhríð með frosthörkum
og sumarblíðviðri geta nánast komið á sama degi. Því er nauðsynlegt að það
sem liggja á í jörðu sé sterkt og geíi vel eftir.
PB-snjóbrœðslurörin eru gerð úr Polybutylene-plasteíni, - grimmsterku efni sem
býr ylir ótrúlegu frost- og hitaþoli. Þau þola meiri hitasveiflu en nokkur önnur
rör á markaðinum eða frá -50°C til 95°C án þess að bresta. PB-snjóbrœðslurörin
þola þvi að vatn írjósi í þeim eða renni í þeim að staðaldri allt að 95°C heitt.
PB-snjóbrœðslukeríi er einíöld og varanleg lausn.