Morgunblaðið - 08.08.1985, Side 18
18
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 8. ÁGÚST 1985
Barnagæsla
Óskum eftir konu til aö gæta tveggja bama frá 1.
sept. Börnin eru tveggja ára og búa í Vesturbæn-
um. Vinnutími og laun eru samkomulagsatriði.
Þær sem hafa áhuga leggi inn nafn og persónu-
upplýsingar á augld. Mbl. fyrir 14. ágúst merkt: „B
— 8131“.
BETRI
ÁRANGUR MEÐ
ATLAS COPCO
öruggur búnaður fyrir:
1. Mannvirkjagerð
2. Verktakastarfsemi
3. Þungaðiðnað
4. Léttan iðnað
DIESELDRIFNAR LOFTPRESSUR
Afkóst 30-565 l/s Vinnuþrýsfingur 6-20 bar
ATLAS COPCO er stærsti framleiðandi í heimi á loftþjöppum
og tækjabúnaði fyrir þrýstiloft. Fyrirtækið þekkir hvernig
minnka má framleiðslukostnað með notkun á loft- og gas-
þjöppum, þurrkurum, síum, kælum, iðnaðarverkfærum og
tækjum til yfirborðsmeðhöndlunar.
■■■■^■H Fyrirtæki með framleiðslu er ■■■■■■
JUUasCopco tryS9'r Þér bætta arösemi og JUlasCopcc
góða þjónustu.
Allar nánari upplýsingar gefur
LANDSSMfÐJAN HF.
SOlVHÖLSGOTU <3 - '01 REYKJAVIK
SIMI 191) 20S60 TELEX 2207 GWORKS
#
MorgunblaiiA/Helgi Bjarnason
Stefán ásamt tveimur starfsmönnum við hluta af Uekjunum sem notuð eru við hráefnisöflun í framleiðsluna.
Fóður- og fræframleiðslan í Gunnarshold:
„ Verðið var sett of hátt
miðað við markaðinn"
— segir Stefán H. Sigfússon framkvæmdastjóri um
ástæður sölutregðu á graskögglum í vetur
Fóður- og fræframleiðslan í Gunn-
arsholti mun framleiða um 2.500
tonn af graskögglum í sumar, um
500 tonnum minna en verið hefur
undanfarin ár. Verksmiðjan er i
gangi allan sólarhringinn frá þvf síð-
ari hluta júní og fram í miðjan sept-
ember og framleiðir 30 til 40 tonn á
dag.
Rekin meÖ fullum
afköstum þrátt
fyrir sölutregðu
Fóður- og fræframleiðslan er
ríkisfyrirtæki með sérstaka
stjórn. Hún er ein af þremur eistu
graskögglaverksmiðjunum, stofn-
uð 1963. Við fyrirtækið starfa 5
menn allt árið, en alls 15 yfir
sumartímann. Sölutregða var á
framieiðslu graskögglaverksmiðj-
anna í vetur, og tókst Fóður- og
fræframleiðslunni aðeins að selja
um 'á af framleiðslu sinni og á því
í birgðum rúm 2.000 tonn af gras-
kögglum frá fyrra ári. Er þetta í
fyrsta skipti í rúmlega tveggja
áratuga sögu fyrirtækisins sem
ekki tekst að selja alla fram-
leiðsluna. Um helmingur fram-
leiðslunnar er af túnum (400 ha)
og helmingur af grænfóðurökrum
sem sáð er í árlega (hafrar, bygg
og rýgresi) en grænfóðrið er slegið
grænt.
Rætt hefur verið um að gras-
kögglaverksmiðjurnar yrðu rekn-
ar á hálfum afköstum í sumar.
„Jú, það er rétt, en það var ekki að
okkar skapi að stefna fyrirtækinu
beint inn í taprekstur með því
móti og ákvað stjórnin að reka
verksmiðjuna með fullum afköst-
um í sumar, nema hvað við dróg-
um grænfóðurræktina saman um
100 hektara og hættum því hálfum
mánuði fyrr í haust en vant er. í
staðinn ætlum við að gera allt sem
við getum til að selja alla fram-
leiðsluna í vetur, m.a. með sér-
stöku söluátaki í haust," sagði
Stefán H. Sigfússon, fulltrúi land-
græðslustjóra, en hann er fram-
kvæmdastjóri fyrirtækisins.
„Verðið var sett
of hátt í fyrra“
Stefán er með mjög ákveðnar
skoðanir á ástæðum sölutregðunn-
linnið við sekkjun i verksmiðjunni.
ar: „Að mínu mati eru ástæðurnar
einkum tvær. Ég tel að verð á
graskögglum hafi verið sett of
hátt í fyrra miðað við markaðinn.
Betra hefði verið að selja kögglana
á lægra verði, þó ekki hefðu feng-
ist fullar afskriftir af verksmiðj-
unum eitt árið. Verðið er ákveðið
sameiginlega af forsvarsmönnum
allra verksmiðjanna, þar sem
meirihlutinn ræður, og sú
ákvörðun er síðan staðfest af
landbúnaðarráðherra. Við verð-
ákvörðun er ekkert tillit tekið til
gæða kögglanna sem eru afar mis-
munandi. Við höfum til dæmis
verið að gera tilraunir með að
blanda kögglana, aðallega með
meltuþykkni. Fóðurtilraunir með
þessum kögglum hafa komið mjög
vel út, en þetta er dýrt og síðan er
allt selt á sama verði. Auðvitað
verður að verðleggja kögglana eft-
ir gæðum.
Hin ástæðan fyrir sölutregð-
unni er sú að bændur áttu mikil
hey eftir sumarið í fyrra, þó ekki
hafi þau verið góð. Þessu reyndu
þeir að koma í lóg, enda hefur
mjög þrengt að bændum á undan-
förnum árum og þeir því reynt að
spara fóðurbætiskaup sem mest."
Tilraunir með íblöndun
meltuþykknis
— Geta graskögglarnir komið
alveg í staðinn fyrir fóðurbætinn?
„Með því að blanda í þá öðrum
innlendum efnum, til dæmis
meltuþykkni, er hægt að fram-
leiða úr grasinu kjarnfóður sem
jafnast á við innflutt kjarnfóður.
En það er verðið sem þarna setur
strik i reikninginn því innflutta
kjamfóðrið er niðurgreitt. Ég
leyfi mér að efast um að það sé
rétt að flytja kjarnfóðrið inn, þó