Morgunblaðið - 08.08.1985, Page 19
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 8. ÁGÚST 1985
19
það sé ódýrt í augnablikinu. Um
leið og þessar þjóðir sjá sér fært
hætta þær niðurgreiðslunum, og
hvar erum við þá? Með kjarnfóð-
urgjaldinu sem sett hefur verið á
ætti samkeppnisaðstaða okkar að
stórbatna.
Innlendu fóðurblöndunarstöðv-
arnar hafa verið að nota gras-
kögglana í auknum mæli í blöndur
sínar, en meðan þær geta fengið
sambærilega vöru á lægra verði
erlendis frá verður það aldrei í
mjög stórum stíl.“
Hagnaóur í
flestum árum
— Nú má segja á móti að gras-
kögglarnir séu ekki nema að litl-
um hluta innlend framleiðsla, þar
sem þeir eru framleiddir með inn-
fluttri olíu.
„Jú, olían er vissulega stór hluti
kostnaðarins við framleiðsluna,
eða 17—20% af rekstrarkostnaði
verksmiðjunnar. En þetta er ein-
faldlega spurningin um það hvort
við ætlum að lifa í þessu landi og
framleiða sem mest sjálfir, eða þá
að flytja allt inn, því ekkert er
hægt að framleiða hér nema flytja
eitthvað inn.“
— Hvernig hefur reksturinn
gengið?
„Hann hefur gengið mjög vel
undanfarin ár og hefur verksmiðj-
an skilað hagnaði í flestum árum.
Svo lengi sem ég þekki hér til hef-
ur tapið aldrei orðið svo mikið að
ekki hafi hafst verulega upp f af-
skriftir og ríkið hefur aldrei þurft
að borga með verksmiðjunni. Föst
lán á verksmiðjunni og tækjum
eru í dag innan við tvær milljónir
kr. En vegna sölutregðunnar í vet-
ur erum við með 6—7 milljónir
bundnar í birgðunum, fyrir utan
afurðalánin, sem gerir það að
verkum að við erum komnir í
verulegar rekstrarskuldir og erfið-
leika sem þvf nemur.“
„Erum til í
verðsamkeppni“
— Hefur þú trú á framtíð gras-
kögglaverksmiðjanna?
„Já, ég er bjartsýnn á framtíð-
ina; held að erfiðleikarnir séu
tímabundnir og úr þeim rætist á
þessu ári. Að mfnu mati þarf
meiri heildarstjórnun á fram-
leiðsluna, sérstaklega varðandi
gæðin, því það bitnar á öllum
verksmiðjunum ef einhver selur
lélega köggla. Með þessu er ég ekki
að segja að við séum alfullkomnir,
það hefur því miður komið fyrir
okkur líka að selja lélega vöru.“
— Nú framleiðir hver verk-
smiðja undir eigin merki. Myndi
það ekki skapa meira aðhald að
gefa verðlagninguna frjálsa,
þannig að meiri samkeppni yrði á
milli fyrirtækjanna?
„Alveg værum við til í slaginn.
Þá myndi hver verksmiðja njóta
þess sem þar er gert vel til dæmis
í vöruþróun, en gjalda hins.“
— HBj.
UPPTOKUVELIN
í SUMARFRÍIÐ
Utborgun 15.000
Eftirstöðvar á 8 mán.
í stuttu máli er vídeó-movie myndatökuvélin frá Nordmende
vídeómyndavél, upptöku- og afspilunartæki sem gengur fyrir
hleöslurafhlööu. Þú getur tekiö kvikmyndir hvar sem er milli
fjalls og fjöru.
Auk þess er upplagt aö taka feröamyndir, myndir af afmælum,
giftingum og öörum stórviöburöum. Myndavélinni fylgir hand-
hæg taska og fl. Þetta er tækiö sem allir hafa beöið eftir.
SKIPHOLTI 19 SIMI 29800
Viö tökum vel a moti þer
■ þú stígurgæfusporá
neuga
Hugmyndin að HEUGA gólfteppum
í formi 50 x 50 cm flísa hefur marga kosti:
★ ENDINGIN MARGFÖLDUÐ, slitblettir óþarfir, flísarnar fluttar til innbyrðis.
★ Laghentir leggja þær sjálfir og færa húsgögnin til eftir hendinni.
★ Engar áhyggjur af blettum: flísin er tekin upp, færð til eða endurnýjuð.
★ Auðvelt að breyta og/eða bæta. -*• Fastlíming er óþörf.
T.d. þessir völdu HEUGA:
I.B.M., SKÝRR, Gjaldheimtan, Húsgagnahöllin.
HEUGA hentar þér,
eins og milljónum annarra um víða veröld.
/Fonix
HATUNI 6A SIMI (91)24420