Morgunblaðið - 08.08.1985, Síða 27
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 8. ÁGÚST 1985
27
'áfi í 12 daga för
il sjö Afríkulanda
rdæmdi aðskilnaðarstefnu S-Afríku
•ði, 7. ágúst. AP.
Páfagarði, 7. ágúst. AP.
JÓHANNES PÁLL II páfí fór í dag hörðum orðum um kyn-
þáttaaðskilnaðarstefnu stjórnvalda í Suður-Afríku, en á
morgun heldur hann í þriðju för sína til Afríku.
Páfinn ávarpaði um 10 þús-
und manns á Péturstorginu og
sagði, að ofbeldi það, sem átt
hefði sér stað í Suður-Afríku
undanfarið, hefði afhjúpað
eðli hinnar „svokölluðu að-
skilnaðarstefnu".
„Við vísum hvers kyns kyn-
þáttamisrétti á bug og lýsum
yfir hluttekningu og stuðningi
okkar við þá, sem verða að
þola slíka áþján," sagði páfi.
Páfi kvaðst hugsa til íbúa
Afríku, einkum þeirra millj-
óna manna, sem þjáðust af
hungri eða vegna styrjalda eða
ofbeldis í einni eða annarri
mynd.
Páfinn leggur af stað á
fimmtudag í 12 datra ferft til
sjö Afríkulanda, Zaire, Togo,
Cameroon, Mið-Afríku-lýð-
veldisins, Kenya, Fílabeins-
strandarinnar og Marokkó.
ERLENT
Skattamál Palme
í sviðsljósinu
Utan skóla vegna
ónæmistæringar
Ryan White, 13 ára unglingur í Indiana-ríki í Bandaríkjunum, sést hér
á reiðhjóli sínu fyrir utan heimili sitt í Kokomo, en Ryan hefur verið
meinað að sækja skóla í borginni þar sem hann þjáist af ónæmistær-
ingu. Ryan fékk hinn ólæknandi sjúkdóm er hann var í meðferð
vegna blóðsjúkdóms sem hann er haldinn.
Olof Palme
ið að stunda nám við Harvard árið
1982, eða einu ári áður en hann
var beðinn um að halda fyrirlest-
urinn við skólann.
Hins vegar hélt prófessor við
Harvard, Steve Kellman, því fram
í fyrstu að forsætisráðherrann eða
einhver í starfsliði hans hefði gert
samkomulag við skólann um að
Palme fengi námsstyrkinn handa
syni sínum í laun fyrir fyrirlestur-
inn.
Prófessorinn hefur nú dregið
ummæli sín til baka, og skýlt sér á
bak við fréttatilkynningu Har-
vard-háskóla um þetta mál.
Það sem þó hefur gert þetta enn
flóknara er að Palme gaf út við-
bótaryfirlýsingu við skattframtal
sitt eftir að málið komst í hámæli,
þar sem hann segist ekki hafa
þegið þóknun fyrir fyrirlesturinn.
Blaðamaður Berlingske Ti-
dende, Margit Silberstein, veltir
þessu fyrir sér sl. sunnudag, og
staðhæfir að yfirlýsingin hafi ein-
ungis flækt málið. Hún spyr síðan
af hverju Palme hafi gefið út við-
bótaryfirlýsingu við skattframtal
sitt um tekjur sem hann hafi i
raun aldrei þegið. Loks varpar
hún þeirri spurningu fram hvort
Palme hafi það fyrir sið að fá
þóknun fyrir eitthvað sem hann
segist ekki hafa þegið samkvæmt
skattaframtali sínu.
Nú hefur verið upplýst að Palme
gerði samkomulag við Harvard
um að skólinn greiddi uppihald og
ferðakostnað forsætisráðherrans,
en ekki sænska ríkið. Hins vegar
hefur komið upp úr kafinu að há-
skólinn hefur ekki enn fengið
reikninginn, sem er upp á rúmlega
hundrað þúsund íslenskar krónur.
Er reikningurinn að sögn í hönd-
um sænska utanríkisráðuneytis-
ins. Talsmaður Harvard staðfesti í
síðustu viku að skólinn mundi
greiða umræddan reikning þegar
hann bærist.
Hvað sem því líður er ljóst að
Palme hefur orðið fyrir álitshnekk
vegna þessa máls, enda hafa
margir krafið hann um skýringar
á því, þar á meðal Aftenposten,
sem er hliðhollt stjórn Jafnað-
armanna. Því gæti þetta mál kom-
ið forsætisráðherranum illa í
kosningunum 15. september
(Heimildir AP n—i-—TU.~I,|
MIKLAR deilur hafa risið í Svíþjóð
vegna skattaframtals Olofs Palme
forsætisráðherra, en nú er rúmlega
einn mánuður þangað til kosningar
fara fram í landinu.
Búast má við að þetta mál eigi
eftir að koma mjög við sögu í kosn-
ingabaráttunni, ekki síst fyrir þá sök
að stjórnarandstaðan beinir spjótum
sínum að hinni miklu skattheimtu i
Svíþjóð.
Dagblöð stjórnarandstöðunnar
hafa sakað Palme um að hafa
svikið undan skatti með því að
þiggja námsstyrk handa syni sín-
um, Jóakim, að launum fyrir fyrir-
lestur sem hann hélt við Har-
vard-háskóla.
Upphaf málsins má rekja til
ársins 1983, þegar Palme varð við
beiðni Harvard-skóla og hélt
fyrirlestur þar í apríl ári síðar.
Palme kvaðst ekki vilja fá þóknun
fyrir fyrirlesturinn, en forráða-
menn Harvard höfðu boðið honum
fimm þúsund dollara, eða sem
svarar um 205 þúsundum ís-
lenskra króna. Stuttu síðar fékk
sonur Palmes jafnháan styrk til
náms við lagadeild Harvard-
háskóla.
Liggur Palme undir þvi ámæli
að hafa í raun fengið námsstyrk
handa syni sínum í laun fyrir
fyrirlesturinn. Palme hafi með
öðrum orðum framið skattsvik,
þar sem hann hefði komist hjá því
að greiða skatt af fyrirlestrar-
laununum með þvi að fá náms-
styrkinn í staðinn. Samkvæmt
sænskum lögum eru námsstyrkir
skattfrjálsir.
í fréttatilkynningu, bæði frá
Harvard-háskóla og Palme, segir
að forsætisráðherrann hafi ekki
vitað um tengslin milli náms-
styrks sonar síns og fyrirlestrar-
launanna. Palme heldur þvi einnig
fram að syni sínum hafi verið boð-
í stuttu máli
Austurríki:
Dóná flæðir yfir
bakka sína
Vín, 7. ágúst. AP.
MIKLAR rigningar og hvassvidri
ollu víótækum skemmdum og
hleyptu af stað flóðum í þremur
héruðum í vesturhluta Austurrík-
is á mánudag og þriðjudag. Að
sögn lögreglunnar drukknuðu
sjö manns og tveggja er saknað.
Dóná flæddi yfir bakka sína og
þurfti að bjarga fólki af tjald-
stæðum og úr húsum á bökkum
árinnar. Flæddi yfir þorp og
sveitir meðfram ánni og stöðvuð-
ust samgöngur víða sakir aur-
skriða og flóða.
Kína:
Barnadauði tíður í
afskekktum héruðum
Peking, 7. ágúst. AP.
BARNADAUÐI í afskekktum
héruðum Kína er álíka tíður og
verst gerist í heiminum, að sögn
embættismanns kínverskra heil-
brigðisyfirvalda.
Embættismaðurinn sagði að í
Kína létust 34 af hverjum þús-
und fæddum kornabörnum, en í
Henan í Mongólíu létust 146 af
hverjum þúsund og I Yushu í
Tíbet 116.
í sumum ríkjum Afríku nær
barnadauði 250 af hverjum þús-
und fæddum börnum, en í Japan
látast sjö af þúsund og f Banda-
ríkjunum ellefu af þúsund.
Kína:
Mannskaði og tjón
eftir fellibyl
Peking, 7. ignsL AP.
FELLIBYLURINN sem skall á
Zehijang-héraði í austurhluta
Kína 30. júlí heimtaði 177
mannslíf. 1.400 manns slösuðust
í fellibylnum, 20.000 heimili eyði-
lögðust, 1.400 skip og bátar
sukku eða skemmdust og 30 þús-
und hektarar ræktaðs lands fóru
forgörðum, að þvi er segir í
skýrslu frá kínversku ríkisstjórn-
inni.
Þetta er sjötti fellibylurinn
sem skellur á austurströnd Kína
á þessu ári.
Alnæmissjúklingur
fær einkakennslu
Redondo Beach, Kalifornfu,
7. ágúst AP.
Fósturforeldrar þriggja ára
barns með alnæmi hafa sam-
þykkt að drengnum verði kennt í
heimahúsum frekar en að senda
hann 1 sérstakan forskóla, þar
sem aðrir foreldrar eru hræddir
um að hann smiti börn þeirra.
Drengurinn fékk alnæmi við
blóðgjöf og er einn sex barna í
Los Angeles-héraði sem eru með
þennan banvæna sjúkdom.
Víóhökum
hækkaó
vextina!
18mánaða
Sparireikningar
Búnaðarbankans
bera óumdeilanlega
hæstu vextina.
ÍÆ
BUNAÐARBANKINN
TRAUSTUR BANKI
TlMABÆR