Morgunblaðið - 08.08.1985, Qupperneq 31
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 8. ÁGUST1985
31
Öll fötin urðu eft-
ir á drifskaftinu
12 ára drengur axlar- og lær-
brotnaði í vinnuslysi í Olfusi
Selfoasi, 7. ágúst.
ÞAÐ SLYS varð á bænum Grænhól í Ölfusi að 12 ára
drengur lenti í drifskafti þar sem hann vann við það ásamt
öðrum piltum að dæla mykju úr haughúsi. Regnkápa sem
drengurinn var í festist í drifskaftinu sem tætti fötin utan
af honum, snéri honum einn hring og kastaði honum út úr
húsinu og út fyrir traktorinn.
Drengurinn, Kjartan Þórólfsson úr Kópavogi, lærbrotn-
aði og axlarbrotnaði og hlaut slæmar skrámur á baki eftir
drifskaftið. Hann var fluttur í Borgarspítalann og er líðan
hans eftir atvikum góð, en mikil mildi var að ekki fór verr.
Kjartan kastaðist út úr dyninum og út fyrir traktorinn.
Þegar Kjartan stóð upp eftir
byltuna var hann kviknakinn,
nema hvað hann var í stígvélun-
um og með vinnuhanskana á
höndunum. Öll fötin urðu eftir á
drifskaftinu.
Drifskaftið sem um ræðir var
fasttengt milli traktorsins og
mykjudælunnar og óvarið með
öllu. Til þess að komast að því
að stjórna dælunni, þurftu
drengirnir að fara mjög nærri
drifskaftinu og voru því í mikilli
hættu við vinnu sína.
Að sögn lögreglunnar á Sel-
„Það sem ég hugsa um núna er að mér batni fljótt." Kjartan Þórólfsson les
söguna um Gunnar og leynifélagið í rúmi sínu á Borgarspítalanum.
fossi er ekki mikið um slys í
sveitum núorðið, en þegar þau
verða eru þau alvarleg og verst
af völdum drifskafta og annars
fasttengds búnaðar sem ekki
stöðvast sjálfkrafa við fyrir-
stöðu.
Þeir lögreglumenn sem rætt
var við sögðu að aldrei væri of
varlega farið, en verst væri þeg-
ar um vanrækslusyndir væri að
ræða, þegar hiífar og öryggis-
búnaður væri fjarlægður af vél-
um til að vinna einhvern ótiltek-
inn tíma við vinnuna.
Dæmi eru um að unglingar
hafi verið látnir standa á bagga-
tínu og stýra böggunum þannig
að ekki yrði töf við hirðinguna.
Annað dæmi austan úr sveitum
er um vetrung sem lenti í drif-
skafti tengdu gnýblásara og
tættist upp. Þannig má nefna
fjölmörg dæmi til varnaðar, en
hvert slys sem verður hvort sem
er í sveitum eða annars staðar
er einu slysi of mikið.
SigJóns.
Fötin vöfóust utan um drifskaftið.
Handfangið Lh. er til að stjórna
mykjudælunni, hættulega nærri
hlífðarlausu drifskaftinu.
MUSUBISHI
MITSUBISHI
Framdrifinn smábíll með eitthvad fyrir alla:
M Unga fólkið velur COLT vegna þess hve hann er
kröftugur, snöggur og sportlegur.
M Foreldrarnir velja COLT af því hann er ódýr í rekstri og
endursöluverð er svo hátt.
'M Afi og amma velja COLT sökum þess hve gangviss
hann er, þýöur og þægilegur í snúningum.
M Öll eru þau sammála um aö krónunum sé vel varið í
MOTORS
Mitsubishi COLT