Morgunblaðið - 08.08.1985, Qupperneq 41
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 8. ÁGÚST 1985
41
Morgunblaðið/Þorkell
Séð yfir srvæði Bílasölu Guðfinns við Miklatorg. Á myndinni eru Guð-
finnur Halldórsson og starfsmenn hans.
Bflasala Guðfínns
í nýju húsnæði
BÍLASALA Guðfinns heldur upp á
10 ára starfsafmæli sitt um þessar
mundir í nýju húsnæði við Mikla-
torg.
„Síðan sumarið 1983 hefur
bílasalan verið í húsnæðishraki.
Við höfum fengið lóðir vítt og
breitt um borgina en þær úthlut-
anir hafa ekki komist í gegn hjá
borgaryfirvöldum," sagði Guð-
finnur Halldórsson forstjóri
þegar blaðamaður innti hann
eftir nýju húsakynnunum.
„Síðasta 1 V4 árið hef ég haft
söluna heima hjá mér en hún
krefst góðrar aðstöðu og því hef-
ur verið heldur dauft í viðskipt-
unum. Ástandið var orðið þannig
að þegar nágrannarnir báðu mig
að selja bílana réttu þeir mér
jafnframt lyklana að bílskúrn-
um til að geta sýnt væntanlegum
kaupendum. Loks leystist hús-
næðisskorturinn á farsælan
hátt, þegar Vilhjálmur Vil-
hjálmsson hjá skipulagsnefnd
borgarinnar bauð okkur aðstöðu
á lóð Landspítalans við Miklu-
braut með samþykki forráða-
manna þar. Við settumn upp 55
fermetra bústað og á svæðinu
eru stæði fyrir 130 bifreiðir.
Fyrstu vikuna eftir að við opn-
uðum seldust um 70 bílar.“
SKIPHOLTI 31
ACME-FATASKÁPAR
sem milliveggur
Oft þarf að skipta stórum herbergjum í tvö
minni barnaherbergi og til að spara pláss
er hentugast að gera það með fataskáþ,
sem leysir um leið fataskáþavandamál
beggja herbergjanna.
ACME kerfið býður upp á fjölbreyttar lausn-
ir á fyrirkomulagi fataskápa.
Hafðu samband við okkur og fáðu tillögur
að fataskáp sniðnum eftir þínum þörfum.
Grensásvegi 8 (áöur Axminster)
slmi 84448
midas
Alþýðuflokkur ályktar:
„Afnema ber kjarnfóð-
urgjaldið þegar í stað“
MORGUNBLAÐINU hefur borist
eftirfarandi ályktun frá þingflokki
Alþýðuflokksins, en ályktunin var
samþykkt á þingflokksfundi Aiþýðu-
flokksins þ. 1. ágúst sl.
„í tilefni af stórfelldum verð-
hækkunum á eggjum, kjúklingum
og svfnakjöti í kjölfar hækkaðs
kjarnfóðurgjalds og mótmælum
samtaka bænda gegn nýjum fram-
leiðsluráðslögum vill þingflokkur
Alþýðuflokksins minna á, að
— þingmenn Alþýðuflokksins
lögðu til að framleiðsluráðs-
frumvarpinu yrði vísað frá,
— bentu á, að frumvarpið byggir
á úreltum stjórnsýsluhugmynd-
um frá 18. öld um ríkisforsjá,
einokunarverðmyndun og
þvinganir, sem ganga í ber-
högg við stjórnarskrárákvæði
um atvinnufrelsi,
— töldu lögin loka síðustu smug-
um, sem eftir voru fyrir frjálsa
menn við landbúnaðarstörf,
— töldu lögin útiloka samkcppni
framleiðenda um verð og gæði
og afnema alla hvatningu til að
halda tilkostnaði í skefjum og
lækka verð, en stuðla að rekstr-
arlegu ábyrgðarleysi og offjár-
festingu vinnslu- og dreifingar-
aðila.
— sögðu fyrir, að lögin fælu í sér
hófiausa skattlagningu á þær
búgreinar, sem framsóknar-
kerfinu eru vanþóknanlegar,
— sögðu lögin slá á frest löngu
tímabærum uppskurði á rán-
dýru og ranglátu ofstjórnar- og
milliliðakerfi í landbúnaði, sem
hefur neytendur jafnt sem
bændur að féþúfu.
Þingflokkur Alþýðuflokksins
telur
að afnema beri kjarnfóðurgjaldið
þegar í stað,
að verðmyndun i landbúnaði eigi að
byggjast á beinum samningum
vinnsluaðila og smásala,
að neytendur eigi að njóta sam-
keppni vinnsluaðila um lækkun
tilkostnaðar í formi lækkaðs
vöruverðs.
að afnema beri einokunaraðstöðu
og stuðla að frjálsri samkeppni
um útflutning landbúnaðaraf-
urða.“