Morgunblaðið - 08.08.1985, Qupperneq 45
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 8. ÁGÚST 1985
45
Vinnuskóli
Reykjavíkurborgar
Vinnuskóli Reykjavíkur heim-
sótti Búrfellsvirkjun fyrir
skömmu og fór í skoðunarferð um
Þjórsárdalinn. Nálægt 600 krakkar
á aldrinum 14—15 ára tóku þátt f
þessum vinnulokum. Eftir heim-
sóknina var tala gesta í afmælis-
heimsókn til Búrfellsvirkjunar
komin í 4.500.
Það var bjart yfir Þjórsárdaln-
um og náttúrufegurð mikil. Sólin
skein í heiði og allar aðstæður hin-
ar ákjósanlegustu til skoðunar-
ferðar.
Við Búrfellsvirkjun tóku
starfsmenn á móti hópnum og
krakkarnir fengu fræðslu um upp-
byggingu stöðvarinnar og undir
fræðslunni var smákökum Lands-
virkjunar skolað niður með
ávaxtasafa.
Vegna stærðar hópsins var hon-
um skipt á skoðunarstaðina og
langferðabílarnir 9 sem fluttu hóp-
inn voru á stöðugri hringferð frá
Búrfelli í Isakot, þaðan að söguald-
arbænum, þar sem fenginn var for-
smekkur af búskaparháttum forn-
manna, og loks að Hjálparfossi.
Að hringferðinni lokinni hélt
allur hópurinn að sundlauginni í
Þjórsárdal. Þar brugðu margir sér
í laugina, aðrir fóru í sólbað á
bakkanum eða í gönguferð um
nágrennið. Mikil grillveisla var
siðan haldin og loks var brugðið á
leik eftir því sem hverjum þóknað-
ist.
Starfsmenn Búrfellsvirkjunar
lýstu sérstakri ánægju með hópinn
og einn þeirra lét þau orð falla að
svona ættu unglingar að vera.
Háttvisi og yfirvegun einkenndi
allt fas unglinganna og þessi sól-
bjarta dagstund í Þjórsárdal með
blóma Reykjavíkurborgar varð eft-
irminnileg.
SigJóns./Selfossi
Endurmenntunarnámskeið
fyrir
framhaldsskólakennara
Hlutverk umsjónarkennara
19.—22. ágúst að Varmalandi, Borgarfirði
Friðarfræðsla á kjarnorkuöld??
29. og 30. ágúst.
Námstefna um ensku- og dönskukennslu
12.—14. september á Akureyri.
Notkun tölva í viðskiptagreinum — biðlisti.
Stærðfræðikennsla — biðlisti.
Kennsla fornbókmennta — biðlisti.
Vistfræði þurrlendis — biðlisti.
Skráning og nánari upplýsingar á skrifstofu
Háskólans, sími 25088.
Hið íslenska kennarafélag,
Háskóli íslands.
mm
JÚLi/jANÚAR 1985/86
Hb.MAGNÚSSON
Vandaður en ódýr
Pantiö nýja Kays-vetrarlistann á kr. 200
án buröargjalds. Nýjasta vetrarlínan,
búsáhöld, leikföng o.fl. o.fl._
B. M AGNÚSSON
HÓLSHRAUNI 2 ■ SÍMI 52866 - P.H. 410 • HAFNARFIRÐI
COSPER
CU5T0HS
20LL
DOUANE
T0LD
c pn
Maður hlýtur að mega hafa með sér borðlampa inn í landið.
Vörubílstjórar vita að það er mikilsvert að hafa góða
hjólbarða eins og Bridgestone undir bílnum, þvl að
með þeim fæst frábært veggrip, rásfesta og mikiö
slitþol.
Hjá okkur eru jafnan fyrirliggjandi BRIDGESTONE
raidal og diagonal hjólbaröar í öllum stærðum.
Sérlega hagstætt verð.
Sfl
3
Jlf
BÍLABORG HF
Smiðshöfða 23, Sími 81299
StmoGeswne
GERIR GÓÐAN BÍL BETRI!