Morgunblaðið - 08.08.1985, Blaðsíða 50
50
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 8. ÁGÚST 1985
«œ/wtn
Ást er...
v v
... eins og að fá
rafstraum.
HÖGNI HREKKVÍSI
Flóðlýsið
Gullfoss
Kinar skrifar:
Ég var á ferð nýlega í Banda-
ríkjunum og ferðaðist víða, t.d. til
Niagara-fossanna stórkostlegu.
Það vakti athygli mína og aðdáun
að þeir voru flóðlýstir að kvöldlagi
og á næturnar. Það væri ekki svo
vitlaus hugmynd að gera eitthvað
svipað við Gullfoss. Vissulega er
fossinn fagur nú þegar, en ég efast
ekki um að baðaður bleiku, grænu
og b!áu ljósi nyti hann sín helm-
ingi betur. Einnig myndi það falla
ferðamönnum vel í geð er gera sér
ferð hingað á ári hverju til að
skoða fossinn.
Frábær
þjónusta
Gestur Pálsson skrifar:
Fyrir nokkru þegar ég var á leið
í sumarbústað í Brekkuskógi með
fjölskylduna, varð ég fyrir því
óhappi að stórt gat kom á bensín-
tankinn, þannig að með naumind-
um varð komist á Laugarvatn og
ógerningur að halda lengra. Þetta
gerðist að kveldi föstudags, engan
bíl að fá leigðan og virtust öll sund
lokuð. Eina vonin var að leita að-
stoðar bifvélavirkjans á staðnum,
Gunnars Vilmundarsonar sem
kom von bráðar á jeppanum sín-
um. Hann dró okkur í Brekkuskóg,
þannig að lykillinn að bústaðnum
náðist fyrir lokun, gerði síðan við
bílinn á verkstæði sinu og skilaði
okkur um nóttina. Greiðslan fyrir
ómakið var mun minni en ég átti
von á, enda sýnist mér ánægjan
yfir að hafa getað bjargað fríinu
aðalatriðið.
Þar sem slík greiðvikni er fátíð
er hún gerð að umtalsefni hér.
Fjölskyldan sendir Gunnari kærar
kveðjur.
Biðjið fyrir
bágstöddum
Yasmín B.N. Björnsdóttir, Bakka-
koti, Blesugróf, skrifar:
1 stað þess að standa aðgerðar-
laus, glápa eða hlaupa á brott þeg-
ar slys eða óhapp á sér stað, ættu
allir sem trúa á Guð að biðja á
staðnum fyrir hinum slasaða
og/eða þeim sem verður fyrir því
óláni að valda slysinu. Einnig ætti
að biðja fyrir ættfólki þess þegar
um dauðaslys er að ræða. Svo
finnst mér líka að þulurinn í sjón-
varpinu ætti ekki að lesa þess kon-
ar fréttir eins og hvert annað
fréttaefni. Sjónvarpið ætti að
biðja trúað fólk í landinu (11%)
um stutta bænastund, og sýna
gott fordæmi með því að hafa 1—3
mínútna þögn.
Það hafa oft verið hræðileg slys
á sjó, en aldrei hefur verið beðið
um bænastund eins og gert er hjá
öðrum þjóðum. Eru Islendingar
ekki alltaf að monta sig yfir því að
vera trúhneigð þjóð?
Þessir hringdu . . .
Björgvin
fái Fálka-
orðuna
Strákar hringdu:
Okkur finnst að Björgvin
Halldórsson eigi að fá fálkaorð-
una fyrir að reyna að koma sam-
an öllum tónlistarmönnum
landsins að halda tónleika fyrir
bágstadda og matarþurfi í Afr-
íku.
Síðbúnar
þakkir
Húsmóóir við Blöndubakka
hringdi:
Mig langar til að koma á
framfæri þakklæti til verslunar-
stjóra kjötvörudeildar Víðis í
Mjóddinni. Vegna mistaka við
afgreiðslu þurfti ég að hafa tal
af honum. Hann brást vel við
bón minni og var framkoma
hans til fyrirmyndar. Svona eiga
verslunarmenn að vera.
Það er fundið að svo mörgu en
hið góða sjaldan þakkað. Kærar
þakkir Víðismenn.
Hvar er
vinninga-
skráin?
Kona úr Mosfellssveit hringdi:
Sumargleðin var hér á ferð í
Mosfellssveitinni í fyrra. Þeir
seldu happdrættismiða og sögðu
að dregið yfði þegar ferð þeirra
um landið lyki. Ég hef hvergi séð
neina vinningaskrá birta. Var
ekki dregið í fyrra og ef svo er,
hvar getur maður fengið vinn-
ingaskrána?
Rikshaw
frábærir
Heba Ingvarsdóttir úr Keflavík
hringdi:
Ég brá mér í Hollywood um
helgina og hlustaði á piltana í
Rikshaw. Þeir voru öldungis
frábærir, svo mig langar til að
þakka þeim fyrir góða skemmt-
un.
Rikshaw