Morgunblaðið - 14.08.1985, Page 26
26
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 14. ÁGOST 1985
AF ERLENDUM VETTVANGI
éftir ARLEN J. LARGE
Innflytjendur halda oft stíft í gamlar hefðir. Hér dansa nokkrir mexíkanskir innflytjendur í Arizona hefðbundinn
hátíðardans.
Spænska að ná yfirhönd
inni í Bandaríkjunum?
Samtök stofnuð til að standa vörð um ensku
BANDARÍKIN hafa í gegnum tíðina skotið skjólshúsi yfir innflytjendur
frá öllum heimshornum og hafa þeir flestir aðlagast bandarísku þjóðlífi
á skömmum tíma. Margic viðhalda þó gömlum hefðum og tungu þess
lands sem þeir komu frá og miðla jafnvel til næstu kynslóða.
Mikið ber á fólki af spænsk-
um uppruna í Bandaríkj-
unum og kemur það flest frá
Mexíkó, Puerto Rico, Kúbu og öðr-
um ríkjum Suð.ur-Ameríku. Hefur
innflutningur þess verið í svo
miklum mæli að mörgum ensku-
mælandi sem fyrir voru í þeim
landshlutum sem spænskumæl-
andi fólkið settist að, finnst nóg
úm. Þar má sjá. leiðbeiningar,
fyrirmæli, verslanaheiti og stað-
arnöfn þýdd á spænsku og sums
staðar í Suðurríkjunum heyrist
spænska töluð oftar en enska.
Hafa enskumælandi menn í sum-
um þessum ríkjum myndað með
sér samtök til að berjast gegn því
að spænskan nái yfirhöndinni,
eða standi jafnfMis ensku í þess-
um ríkjum.
Samtökin berjast nú fyrir því
að bætt verði við stjórnarskrána
ákvæði, þar sem stendur að ensk-
an ein sé hið opinbera tungumál
Bandaríkjanna.
Aðalmarkmið samtakanna er
að koma í veg fyrir að spænska
verði viðurkennd sem önnur þjóð-
tunga landsins, líkt og franska er
viðurkennd til jafns við ensku í
Kanada. Fremstur í flokki
baráttumanna er öldungadeildar-
þingmaðurinn fyrrverandi frá
Kaliforníu, Samuel I. Hayakawa.
Hann fæddist í Kanada, sonur
japanskra innflytjenda, og segir
hann að stjórnarskrárákvæðið
mundi hvetja alla nýja innflytj-
endur til að læra ensku; „eins og
foreldrar mínir þurftu að gera“.
Rúmlega 26 milljónir Banda-
ríkjamanna tala annað tungumál
en ensku heima hjá sér og er það
11% af íbúatölu landsins. Helstu
erlendu tungumálin eru þýska,
franska og ítalska og tala um 1,6
milljónir íbúa hvert þeirra.
Spænskan á samt metið. Hana
tala um 12,6 milljónir Banda-
ríkjamanna heima hjá sér og
samkvæmt tölfræðiíegum út-
reikningum eru Bandaríkin því*
sjöunda stærsta spænskumælandi
þjóð í heiminum. Efst á listanum
er Mexíkó, því næst Spánn og eru
Bandaríkin á eftir Venezúela, en á
undan Chile og Kúbu í röðinni.
Yfir 140 útvarpsstöðvar í Banda-
ríkjunum útvarpa á spænsku og
hundruð annarra útvarps- og
sjónvarpsstöðva bjóða upp á
nokkurra klukkustunda dagskrá á
spænsku í hverri viku.
Frelsisstyttan. Verður hún og allir
íbúar Bandaríkjanna altalandi á
bæði ensku og spænsku eftir nokk-
ur ár?
Stjórnarskrárfumvarpið hefur
hlotið dræmt fylgi innan Banda-
ríkjaþings enn sem komið er, en
þó hafa sum ríki sett sérstök lög
þar ðem enskan er ein viðurkennd.
Þeir sem helst berjast fyrir slík-
um lögum í Flórída safna nú und-
irskriftum til stuðnings frum-
varpi um að öllum beri að tala
ensku þar og vilja þeir að gengið
verði til atkvæða um frumvarpið í
næstu kosningum.
Mikið er um spænskumælandi
fólk í Flórída og flest er það mjög
hreykið af uppruna sínum. Er þvi
Flórída talinn erfiðasti hjallinn
fyrir baráttumenn enskufrum-
varpsins og sagði Steve Workings,
helsti talsmaður samtakanna, að
tækist þelm að buga spænsku-
áhrif á Flórída, væri það hægt
alls staðar annars SUtðar í land-
inu.
Það sem helst angrar ensku-
mælandi fólk í Bandaríkjunum er
að þeim finnst innflytjendurnir,
líkt og Frakkarnir í Kanada, ekki
hafa nokkurn vilja né áhuga á að
aðlagast bandarísku, enskumæl-
andi þjóðlífi. Þó eru aðrir sem
vilja meina að fólk af spænskum
uppruna samlagist þjóðlffinu al-
veg jafn hratt og aðrir innflytj-
endur, en erfitt sé að koma auga á
það, þar sem nýir innflytjendur
komi stöðugt í stað þeirra sem að-
lagast hafa bandarísku þjóðlífi.
Einnig fer samlögunarhæfnin
mikið eftir búsetu innflytjend-
anna; þeir sem búa í samfélagi
þar sem lítið er um aðra spænsku-
mælandi innflytjendur, neyðast
yfirleitt til að læra ensku sem
fyrst, en þeir sem búa í hverfum
spænskumælandi manna, geta
oftast komist leiðar sinnar án
þess að kunna orð í ensku.
Bandaríkin eru ekki ein um
þetta vandamál. í Kína efu taiað-
ar margar mállýskur, sem og í
Sovétríkjunum, Sviss og í fyrrum
nýlendum Evrópuþjóðanna í Afr-
íku. Á Indlandi, í Kanada og
Belgíu hafa verið framin morð
vegna þess eins að fórnarlambið
talaði annað tungumál en morð-
inginn.'
Enskan ræður þó enn ríkjum í
Bandaríkjimum og ekki kemur oft
til þess að menn reiðist svo mikið
við þá spm mæla á erlenda tungu,
að morð hafi verið framin. Sam-
kvæmí íbúatalningu frá 1980
sagðist rúmlega þriðjungur íbú-
anna tala ensku annað hvort
„mjög vel“ eða „vel“.
Sagan hefur sýnt að í fiestum
tilfellum hefur innflytjendum
verið nauðsynlegt að læra ensku,
þó ekki sé nema til að komast af
fjárhagslega. Stjórnmálamaður
einn, sem er af spænsku bergi
brotinn, heldur því fram að slíkt
gerist enn, jafnvel í borgum sem
Litlu-Havana á Miami, þar sem
meirihluti íbúanna er spænsku-
mælandi. Hann heldur þvi fram
ao börn innflytjendanna tali flest
ensku og samlagist þjóðfélaginu
vel. Terry Robbins, sem býr í út-
hverfi Litlu-Havana, er á önd-
verðum meiði. „Þegar fyrstu inn-
flytjonduyiir komu hingað, sögðu
þeir að ailir mundu aðlagast. Það
hefur ekki gerst. Hér er nauðsyn-
legt að tala spænsku, en enskan er
aðeins aukageta. Að mínu áliti
ætti hið gagnstæða að gilda."
Robert Melby, augnlæknir í St.
Petersburg á Flórída, skipuleggur
nú mikla undirskriftasöfnun í rík-
inu og vonast hann til að ná um
500.000 undirskriftum til stuðn-
ings enskufrumvarpinu. Hann tel-
ur að um öll Bandaríkin sé fólk
smátt og smátt að sætta sig við
jafnt vægi spænsku og ensku, eins
og t.d. að fólki sé leyft að taka
skriflegt bílpróf á spænsku og at-
kvæðaseðlar séu þýddir á
spænsku. Einnig berst hann gegn
styrkjum hins opinbera til
kennslu í grunnskólum á
spænsku.
„Það sem við erum að reyna að
gera er að senda ríkisstjórninni
skilaboð,“ segir Melby. Skilaboð-
in: að gera ensku að þjóðtungu
Bandaríkjanna.
Þýtl úr The Wall Street Journal
Gaslekinn í Vestur-Virginíu:
Býðst til að greiða
allan lækniskostnað
Vestnr-Virginíu, Bandarikjunum, 13. áfrúst. AP.
UNION Carbide hefur boðist til að greiða lækniskostnað þeirra 135 manna,
sem urðu fyrir eiturverkunum af völdum gasleka í verksmiðju fyrirtækisins í
Institute í Vestur-Virginíu, en vísað á bug fullyrðingum um að gasið, sem
þarna var um að ræða, sé eins hættulegt og gasið, sem varð 2.000 manns að
bana í Bopal á Indlandi.
Stjórnendur fyrirtækisins við-
urkenndu í gær, mánudag, að
starfsmenn verksmiðjunnar hefðu
í fyrstu talið, að um óverulegan
leka væri að ræða, og af þeim sök-
um látið undir höfuð leggjast að
gera stjórnvöldum viðvart strax.
Sex starfsmenn urðu fyrir eitr-
un og 125 manns úr nágrenni
verksmiðjunnar þurftu á lækn-
ismeðferð að halda. Þúsundir
manna urðu að hafast við innan-
dyra í húsum sínum. eftir að eitur-
gasið slapp út á sunnudag.
í dag mun nefnd háttsettra eft-
irlitsmanna ríkisins rannsaka.
verksmiðjuna.
Danskir sjómenn í verk-
falli vegna síldarkvóta
Kaupnunnahofn, 11. ágúst. AP.
SJÓMENN í fjórum helstu veiðibæj-
um Danmerkur fóru í verkfall á laug-
ardag og sögðu á sunnudag að þeir
héldu ekki aftur til veiða fyrr en
danska ríkisstjórnin yki síldarkvót-
ann.
Eftir deilur sem upp komu í síð-
ustu viku milli fiskeftirlitsmanna
og -sjómanna þar sem fiskeftirlits-
mönnum var meinaður með valdi
aðgangur að höfnum ákváðu sjó-
menn í fjórum hafnarborgum á
Jótlandi; Fredrikshavn, Hirtshals,
Strandby og Skagen, að hætta öll-
um veiðum.
„Það er næg síld í sjónum. Ef við
megum ekki veiða hana, þá hættum
við veiðunum,“ segir Knud Dam-
baard, formaður stéttarsambands
sjómamna í Hirtshals.
Hann sagði í viðtali við AP að
reglur og kvótar Evrópubandalags-
ins samræmdust ekki ástandi fisk-
stofna í hafinu.
Samkvæmt reglum Evrópu-
bandalagsins má síldarhluti í afla
ætluðum í fiskmjöl ékki fara yfir
tíu prósent. .
Að sögn sjómanna er síld það
mikil í Norðursjó að þeir eiga í erf-
iðleikum með að halda mg innan tíu
prósent markanna.
Undanfarnar vikur hafa fiskéft-
irlitsmenn rekist á allt að 90 pró-
sent síldarhlut í afla og hafa sjó-
menn verið sektaðir eða afli þeirra
gerður upptækur.
Talsmenn sjómanna eiga fund
með Henning Grove, sjávarútvegs-
ráðherra Danmerkur, í dag, þHðju-
dag, þar sem lausna verður leitað á
málinu.
. Hefur Grove lýst yfir undrun
sinni á aðgerðum sjómanna vegna
þess að núverandi regla um að síld
megi ekki nema meiru en tíu pró-
sentupi afla ætluðum í fiskmjöl sé
sýnu hagstæðari en undanfarin ár.
Ráðherrann sagðist vona að
lausn fyndist á deilunni svo aú»sjó-
menn gætu hafið veiðar á nýjan
leik.
Sri Lanka:
Stjóínvöld
hafna meg-
inkröfum
Tamila
-Nýju Delhí, Indlandi, 13. ágúst. Al*.
YFIRVÖLD á Sri Lanka hafa sett þau
skilyrði fyrir áframhaldanjjj samn-
ingaviðræðum. við aðskilnaðarhreyf-
ingu Tamila, að skæruliðasveitirnar
leggi niður vópn og loki þjálfunarbúð-
um sínum.
Samningaviðræðurnar hafa farið
•fram í Bhútan með tilsjón Indverja,
og sagði Hector W. Jayewardene,
aðalsamningamaður Sri Lanka-
stjórnar, á mánudag, að skærulið-
um yrði tryggð sakarup’pgjöf, er
fyrrnefndum skilyrðum hefði verið
fullnægt.
Enn fremur hafnaði Jayewardene
fjorum meginkröfum Tamila og
sagði að þær jafngiltu kröfum um
stofnun sérstaks ríkis, og slíkt
kæmi aldrei til mála af hálfu
’stjórnvalda.
Búist var við að Jayewardene
legði í dag, þriðjudag, fram tillögur
um aukið sjálfstæði og heimastjórn
Tamila. *
Kína:
Uppvíst um stórfellda
fjárglæfrastarfsemi
Peking, 12. faúst AP.
BARNASKOLAR, bankar, dagblöð og bændur voru meðal þeirra 960
aðila, sem rökuðu til sín andvirði um 720 þúsunda dollara (um 29.520.000
ísl. kr.) í mesta fjármálahneyksli, sem um gctur í Kína, að því er fréttir frá
hinu opinbera hermdu í dag, mánudag.
Hneykslið, sem uppvist varð um um dollara til að kaupa varning-
31. júlí sl., varðar vöruinnflutning inn fyrir í Hong Kong og víðar.
til eyjarinnar Hainan á Suður- Loks voru vörurnar seldar hvar
Kínahafi og fjársvikastarfsemi í seæ kaupandi fannst í Kína.
tengslum við hann. Vörur sem Bankarnir á Hainan fengu
fluttar voru tollfrjálsar til eyjar- „ómakslaun", bíla á afsláttarverði
innar voru seldar á tvöföldu og *eða litasjónvarpstæki, fyrir að
lána til innflutningsstarfseminn-
ar, að sögn vikuritsins Peking
Review.
Alls hafa um 143 mál, er varða
fjársvik, mútuþægni og aðra fjár-
glæfrastarfsemi, verið rannsökuð
í sambandi við Hainan-hneykslið,
og hafa fjórir menn verið kærðir
fyrir að hafa stungið sem svarar
300 þúsund dollurum eða meira í
eigin vasa sem ágóða af viðskipt-
unum.
Æðsti embættismaður stjórri-
arinnar á Hainan, Lei Yu, og að-
stoðarmaður hans hafa ásamt
fleiri embættismönnum fengið
harða áminningu fyrir að hafa
látið sem þeir vissu ekki af ósóm-
anuip.
þreföldu verði frá 1. janúar 1984
til 5. mars 1985.
Árið 1980 var leyfður frjáls inn-
flutningur á bílum og 16 neyslu-
vörutegundum á Hanian í því
skyni að örva vanþróað atvinnulíf
eyjarinnar. Var leyfið bpndið við,
að sala og neysla varanna ættu
sér einungis stað á Hainan.
Fjölmargir aðilar, allt frá skól-
um og barnaheimilum til stjórn-
arskrifstofa, hófu þá að stunda
innflutningsverslun og nutu til
þess þegjandi samþykkis embætt-
ismanna á eyjunni. Lögðu við-
komandi fram beiðnir um að
mega kaupa bifreiðir eða aðra
hluti, tóku bankalán í kínverskum
peningum og urðu sér því næst úti