Morgunblaðið - 14.08.1985, Síða 38
38
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 14. ÁGÚST 1985
• *
Jón Þ. Árnason:
Spurningin er: Hvers má vænta af forystuliði, sem
er um megn aö gera sér grein fyrir mætti margfóld-
unartöflunnar?
Lífríki og lífshættir CIV.
Að ríkjandi skoðun efnis- og
mannhyggjufólks er manneskj-
an því sem næst fullkomin. Bæði
til sálar og líkama. Þetta viðhorf
styðst ekki af skornum skammti
við boðskap Biblíunnar. Hún
hefir lýst hana afdráttarlaust
æðstu og frábærustu lífveru
jarðar með því að „maðurinn er
skapaður í mynd Guðs“.
Nú sýna heimur og saga hins
vegar, að hæfni og baráttusvig-
rúm manna er allmiklu tak-
markaðra en máttur og megin
frumgerðarinnar — það veit
Guð. En bersýnilega bara hann
einn. Manneskjan sjálf segist
bara vera „kóróna sköpunar-
verksins", reyndar ekki alveg al-
máttug, en hún telur sér þó fátt
ómáttugt. Hinu guðdómlega al-
ræði á hún að þakka að þannig
er þessu f stórum dráttum ekki
farið. Sem betur fer.
Vélknúin trúarbrögð
„Vilji er allt, sem þarf!“ segir f
gamalli herhvöt, er börn lærðu
ung í skóla, og hafði sitt gildi
sem slík. Síðar var þeim kennt,
að stöðugar framfarir, reistar á
bjargi mannlegrar skynsemi,
hefðu í sífellu bætt heiminn og
fegrað, og loks, að i skjóli þess-
arar skynsemi, væri allt fram-
kvæmanlegt. Vélvædd tæknitrú
gleypti sálir mannanna — og
pyngjuhyggjan líkamina.
Sprengjan og sprengjurnar eru
álitlegir vitnisburðir um sigur
þessarar skynsemi, enda gefur
ásýnd heimsins helzt til kynna,
að hann hafi misst vitið af ein-
tómri skynsemi. Með þeim
árangri, að við öslum áfram í
veröld vinnuæðis, og því afsiðun-
ar, þar sem fjöldinn er svo
neyzlufrekur, að meltingarfærin
hafa ekki undan, öll fyrirhyggja
dæmist tímasóun — og undrast
samt, að alltaf fjölgar „rottun-
um/ með löngu skottunum/ sem
naga og naga“, eins og Davíð
kvað.
1 svokölluðum velferðarríkjum
Vesturlanda er vaxandi eyðslu-
máttur þegnanna (á peninga-
máli: hagvöxtur) óaðskiljanlega
háður framþróun tækninnar og
endurbótum framleiðslutækja.
Einstaklingar, fyrirtæki og
stofnanir hvers konar hafa látið
dáleiðast af undrum og stór-
merkjum nútímatækni, sem —
eins og ævinlega — sækir mátt í
afrek ofurmenna, látinna og lif-
andi, langflestum öldungis
óskiljanleg. Af leiftrum þessara
afreka hefir fjöldinn fengið
ofbirtu í augun og hneigzt til
þeirrar trúar, að ekkert við-
fangsefni væri svo mikið um sig,
að ekki yrði leyst á farsælan
hátt eftir leiðum tækninnar og
með göldrum hennar. Einu gild-
ir, hvort heldur verkefnið er af
rótum stjórnmála eða lífríkis,
einatt verða fyrstu viðbrögð, ná-
lega ósjálfrátt, að leysa vandann
með að finna upp nýjar tækni-
brellur.
Uppljómun
fáránleikans
Gegndarlausu orkubruðli er
mætt með nýjum kjarnorkuver-
um. Úrræðaleysi í stjórnmálum
er bætt upp með að smíða enn
fleiri og áhrifameiri sprengjur
og flugskeyti og eldvörpur. Eitr-
ur. og spillingu hins náttúrulega
umhverfis er svarað með sér-
smíðuðum tækjum og vélum, er
með sínum hætti hafa venjulega
þau áhrif á náttúruríkið, sem
enn er alls óvíst um, hverjar af-
leiðingar kunna að hafa í för
með sér. Með tilraunum til að
finna tæknilegar lausnir allra
vandamála, er þeim oftast ýtt
yfir lífríkið fram og aftur, og
mjög oft eru afleiðingarnar af
„lausnunum" skaðlegri en
meinsemdin, sem í upphafi var
ætlunin að nema burt.
Ein allranýjasta hugljómunin
af ofsatrúnni á að unnt sé að
leysa sérhvern vanda með há-
tæknimeðulum er hin útbreidda
bábilja um að lausn offjölgunar
jarðarbarna sé fólgin í að hanna,
. smíða og reisa íbúðaborgir í
geimhafinu.
óvizka væri auðvitað að neita,
að fræðilegir möguleikar reynd-
eina lífsvon, að það læri að
hugsa frá grunni allt öðruvísi en
hingað til,“ segir Fritjof Capra,
hinn heimskunni eðlisfræðingur
og Heisenberglærisveinn (í bók
sinni „The Turning Point“).
Capra virðist því vera sæmi-
lega bjartsýnn. Gallinn er eink-
um sá, að „mannkynið" hefir
aldrei lært að hugsa — en það
hefir hent að tekizt hafi að
þvinga það til að þræða vegi,
sem lífríkið hefir lagt.
Enda þótt hugmyndin um að
stofna geimnýlendur handa um-
frambörnum jarðar, eigi fremur
heima í óraskáldskap en veru-
leika, hefir hún sér þó til ágætis
að undirstrika vandamál, sem
orðið er geigvænlegt, enda mun
hún að mestu eiga rætur til þess
að rekja.
Hér á ég við stígandi offjölgun
farþega um borð í geimfarinu
Jörð.
eða 9000 á klukkustund, 216.000
á sólarhring. í lok ársins 1985
verða jarðarbúar, ef ekkert stór-
slys á heimsmælikvarða ber að
höndum, 78.840.000 fleiri en í
ársbyrjun.
í lok síðari heimsstyrjaldar-
innar, hroðalegasta blóðbaðs
allra alda, lifðu og skrimtu fleiri
manneskjur á jörðinni en í upp-
hafi hennar. Jafnvel þyrstustu
blóðseppar sögunnar, Stalín og
Mao, gátu ekki hamið tímgun-
arkraft þegna sinna, en undir
drottinvaldi þeirra létu yfir
100.000.000 manna lífið, að því er
Jacobi fullyrðir (í blaði sínu
„Welt am Sonntag", nr. 20/19.
maí 1985).
Og enn færist vöxtur í synda-
flóð mannlegra líkama. Nú iða
rúmlega 4.800.000.000 „kórónur
sköpunarverksins", væntanlega
allar „í Guðs mynd“, á reiki-
stjörnunni Jörð. Engin spen-
HÉR VANTAR SÍZT JAFNRÉTTI
eitra og þekja yfirborð, jarðvatn
og uppsprettulindir án afláts.
Gegn betri vitund magnar
múgkynið níðingsskap sinn gegn
lífríkinu. Óskammfeilnir hags-
munajálkar ganga jafnvel svo
langt að réttlæta ósvinnuna með
þeim „rökum", að ekki megi
stofna atvinnuöryggi verka-
lýðsins í hættu eða skerða mögu-
leika til fjárfestinga.
Þá varðar aðeins um eitt.
Stundarhag sjálfra sín og sinna.
Að þeirra áliti eru arftakarnir
ekkert of fallegir til að erja
hraunið.
Hagvaxtartíðindi
Og það verður sannarlega ekk-
ert hjáverk. Jafnvel þó að
eyðslumáttur ykist ekki hót.
Flestum hlýtur að ofbjóða sú
hryllisýn, að fjölda bíla, verk-
smiðja, borga og bæja, hrað-
brauta, vega og kjarnorkuvera
tvöfaldist, að „herra náttúrulög-
málanna" klóri tvöfalt meira af
jarðolíu, kolum og málmgrýti úr
iðrum jarðar, að hann dreifi tvö-
falt meira af ónáttúrulegum
verksmiðjuafurðum yfir akra,
tún og engi, að hann spúi tvöfalt
meiri eitursvælu til himins, veiti
tvöfalt meira skolpi og leðju í
inn- og úthöfin árlega að 41 ári
liðnu heldur en hann gerir nú.
Samt sem áður mun hann
koma öllu þessu í verk í smáu og
stóru eftir nákvæmlega 41 ár, ef
mannkynið á ekki að lifa við
ennþá aumkunarverðari skilyrði
en nokkru sinni fyrr, ef fleiri
milljónahundruð eiga ekki að
svelta, ef allur nýfrelsisheimur-
inn á ekki að verða ein endalaus
Saheleyðimörk.
Ástæðan er beinlínis sú, að
eftir 41 ár, árið 2026, mun tví-
fætlingum jarðarinnar hafa
fjölgað um 100% frá árinu 1985
að óbreyttum fjölgunarforsend-
um, eða í næstum 10.000.000.000
— tíu milljarða — . Og ef trúar-
leiðtogum eyðslumáttarins hefir
ekki tekizt að nýta þennan
gálgafrest til að tvöfalda afla og
uppskeru, tekjur og eignir, orku-
notkun og akbrautir atkvæða-
skara sinna, mun eymd og vol-
æði, sem fæstir nútímamenn
munu geta gert sér í hugarlund,
Lok „kjarabaráttu“
Skringileg Upp, upp og út * Ogurlegar
mynd í geiminn! víxlverkanir
ust fyrir að framkvæma slíkar
hugmyndir, og stofna nýlendur
af þessu tagi einhvern góðan
veðurdag. Að svo miklu leyti,
sem áform og áætlanir í þessu
skyni hafa hingað til verið
kynntar, en einkum þó vegna
hugarfarsins, er að baki býr,
sýnist þess sízt að vænta, að eft-
irsókn eftir varanlegri búsetu
þar yrði meiri en í slöku meðal-
lagi, nema ef vera skyldi af hálfu
vélmenna.
Helzti smíðagallinn á þessari
skrúfjárnahugsjón er þó að mínu
viti ekki fólginn í því, að hún sé
óframkvæmanleg af tæknilegum
ástæðum. Vísindin hafa þegar
lagt tækninni alla nauðsynlega
þekkingu í skaut. Meinlokan er
fyrst og síðast trúin á að unnt sé
að lækna stjórnmála- og menn-
ingarsjúkdóma helsærðrar plán-
etu með kínalífselixir geimtækn-
innar.
„Mannkynið á sér því aðeins
Stalín + Mao =
100.000.000 lík
Árið 1969 kom út bók (Die
menschliche Springflut") eftir
Claus Jacobi, nú annan tveggja
yfirritstjóra „Welt am Sonntag".
Síðan þá, á rúmum 15 árum, hef-
ir farþegum fjölgað um rösklega
1.200.000.000. f þéttri fylkingu,
maður á hælum manns, myndi
hún auðveldlega geta hlykkjað
sig 10 sinnum umhverfis jörðina
um miðbaug.
1.200.000.000 manns! Meira en
1.800 ár, tímaskeiðið frá fæðingu
Jesú til krýningar Napoleons,
þurfti mannkynið til að fjölga
sér um 1.000.000.000. Nú Ieikur
það sér að þessu á rúmum 12
árum, þrátt fyrir fjöldafóstur-
dráp af samkvæmisástæðum.
Á sérhverjum 2 sekúndum
fjölgar mannkyninu um 5
kroppa, þ.e. 150 á mínútu hverri,
dýrategund, að rottunni einni
undanskilinni, getur státað af
öðru eins fjöldafylgi.
Offjölgunin er komin á það
stig, að jafnvel sólkerfi Jarðar
býður ekki upp á nema stund-
arskjól þó að búferlaflutningar
gætu hafist strax. Ef hafizt yrði
handa á þessu andartaki og
geimfar, hlaðið liðlega 100 kon-
um og körlum, sent af stað
sérhverja mínútu til að létta á
ofurþunganum, myndu tunglið
og reikistjörnunnar Venus,
Merkúr, Mars, Júpíter og Sat-
úrnus verða jafn þéttbyggðar og
plánetan okkar er nú, á nálægt
50 árum.
Vegna óhemjandi eyðslulosta
mannkynsins, gengur það stöð-
ugt lengra og lengra í náttúru-
ránskp sínum. Óendurnýjanleg
náttúruauðævi ganga til þurrð-
ar. Velferðarafurðirnar, sorp og
skarn og skolp, einnotaumbúðir
og úrgangur verksmiðjuiðnaðar
verða óumflýjanlegt hlutskipti
mannheims.
Hér er aðeins miðað við
óbreyttan eyðslumátt, þ.e. enga
„kjarabót" næstu 41 ár. Ef á
hinn bóginn væri reiknað með
hagvaxtarloforðum atvinnulýð-
ræðismanna, nefnilega 7% ár-
legri aukningu, sem hingað til
hefir þótt snyrtilegt loforð, þá
yrði djöfulmóðurinn orðinn 867
sinnum magnaðri en hann er nú
eftir 100 ár.
Slíkt væri auðvitað hrekkja-
lómaskrítla, móðgun við alla,
sem vilja teljast með fullu viti.
Eftir stendur óhaggað, að ríkj-
andi og dafnandi óheillakrákur
mata hver aðra með víxl-
verkandi margföldunarafli:
— Því meira líf á jörðu,
þeim mun vonlausari verða allar
tilraunir til að halda því í líf-
vænlegu horfi,
— því meira, sem gengur á
hráefnaforða jarðar, þeim mun
meiri verða náttúruspjöllin,
— því fleiri atómsprengjur,
sem framleiddar verða, þeim
mun sterkari verður vissan um,
að þær komist í hendur hryðju-
verkabófa.
O.s.frv. O.s.frv. Ef annars
nokkuð verður þá „framvegis".