Morgunblaðið - 14.08.1985, Síða 55

Morgunblaðið - 14.08.1985, Síða 55
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 14. ÁGÚST 1985 55 „Lengi dreymt um þennan árangur“ segir Eðvarð Þór Eðvarðsson, sundkappi úr Njarðvík „Arangurinn af þrotlausum æfingum skilaði sér á Evrópumeistaramótinu og er þetta árangur sem mig hefur lengi dreymt um,“ sagöi sundmaöurinn snjalli, Eövarö Þór Eövarðsson, sem náöi frábærum árangri í 100 metra baksundi á Evrópumeistaramótinu í Sofia. Setti glæsilegt ís- landsmet og náói sjötta sæti og jafngildir tími hans 10. besta tímanum í þessari grein í heiminum. skóla Suðurnesja og er þar á íþróttabraut. „Ég er á góöri leið með aö sanna það að viö íslendingar þurf- um ekki aö fara til útlanda til aö æfa og ná svo góöum árangri. Ég Eðvarð Þór Eövarðsson er 18 ára og hóf að æfa sund er hann var 11 ára. Hann er úr Njarövík og hefur æft þar aö mestu að undan- skildum tveimur árum í Keflavík. Hann stundaöi nám í Fjölbrauta- Morgunbiaðiö/Bjarni •Eövarö Eövarösson sagöi í spjalli við Morgunblaðið aö sig heföi lengi dreymt um aö ná langt í sundíþróttínni og nú er draumur hans að rsstast. Eövarö á án efa eftir aö gera enn betur í framtíðinni en hann er aðeins 18 ára gamall. Þetta er jafnframt í fyrsta sinn sem keppni fer fram í Suöur- Ameríku. 94 keppendur eru skráö- ir til leiks og þar á meöal eru þeir Pirmin Urbriggen frá Sviss sem varð efstur í heimsbikarnum á síð- asta keppnistímabili og Lúxem- borgarinn Mark Girardelli. Flestir skiöamannanna hafa aö- eins æft í nokkrar vikur, þar sem siöasta keppnistimabili lauk um hef alla tíö æft hér á landi aö und- anskildum fjórum mánuöum í Danmörku fyrir einu ári. Aöstaöan er hér yfirleitt góö til æfinga, ef þjálfarinn er góöur aö sama skapi eins og minn, sem er Friðrik Ólafsson, " sagöi Eövarð. Kanarnir jákvæðir Eövarð hefur mest stundaö æf- ingar upp á Keflavíkurflugvelli þar sem hann segir aö sé besta sund- laug landsins. „Sundlaugin er 25x20 metrar og er mjög góö, viö fáum aö æfa þar eins og viö viljum. Ég hef æft tvisvar á dag og synt þá 12—16 kílómetra, auk þess fer ég á eina þrekæfingu daglega, svona æfi ég sex sinnum i viku. í æfingar hjá mér fara um 8 tímar á dag. Ég hef ekkert unniö í sumar, heldur snúiö mér eingöngu aö sundinu." — Áttir þú von á góðum árangri á mótinu? „Ég átti von á góöum árangri en ekki svona góöum. Þaö var margt sem hjálpaöist aö, aöstæöur voru mjög góöar og sundlaugarnar meö því besta sem gerist, svo var farar- stjórnin og þjálfarinn mjög góöur og andinn sem ríkti i islenska hópnum." Fjórum sinnum ís- landsmeistari í körfubolta Eövarö var lengi mjög liötækur í körfuknattleik hjá Njarövíkingum, enda hefur hann fjórum sinnum oröiö islandsmeistari í yngri flokk- unum. Síöan snéri hann sér aifariö aö sundinu. — Hvað er framundan hjá þér? „Ég ætla aö reyna aö komast á Evrópubikarkeppnina í sundi sem fram fer í Amsterdam í Hollandi í desember. Á næsta ári er heims- meistaramótiö í sundi sem fram fer í Madrid á Spáni og veröur þaö eitt sterkasta mót sem haldiö hefur verið á síöustu árum, þar sem allir bestu sundmenn Evrópu auk Bandaríkjanna veröa meö sina sterkustu menn. Ég reyndi aö ná ekki síöri árangri á þvi móti. Þessi árangur sem ég náöi nú gefur manni aukinn styrk og áhuga." sagöi Eövarö sem slær ekki slöku viö æfingar. — Hvernig ferð þú að því að fjármagna þetta? „Nú foreldrar mínir hafa stutt mig vel og einnig Njarðvíkurbær og fleiri aðilar hér á Suöurnesjum. Þetta væri ekki hægt án aðstoöar frá þessum aðilum.“ EÐVARD Þór Eövarösson é fullri ferð í baksundi sem er hans sterkasta keppnisgrein. Eövarö, sem er aðeins 18 ára gamall, náöi frábærum árangri á Evrópumeistaramótinu í sundi og varö í 6. sæti í úrslitunum í 100 m baksundi og náöi jafnframt 10. besta tíma í heiminum í ár. Morjfunblaöið/Rjarni • Golflandsliðið sem keppir ( Noröurlandamótinu sem fram fer í Finnlandi dagana 24. og 25. ágúst nk. er skipað þessum: Siguröur Pétursson, Úlfar Jónsson, Hannes Eyvindsson, Ragnar Ólafsson, Gylfi Kristinsson, og Óskar Sæmundsson. Kvennaliöið er skipaö Ragnhildi Sigurðardóttur, Steinunni Sæmundsdóttur, Ásgeröi Sverrisdóttur og Þórdísi Gísladóttur. Kylfíngarnir hafa æft af kappi fyrir mótiö aö undanförnu og eru vel undir það búnir. Heimsbikarlnn af stað á ný Keppnin fer fram í Suöur-Ameríku Heimsbikarkeppnin í alpa- greinum skíðaíþrótta byrjar um næstu helgi. Þetta er í fyrsta sinn í sögunni sem keppni hefst svo snemma. Keppt veróur í tveimur brunkeppnum í Júpiter-fjöllunum í Argentínu. miöjan mars. Urbriggen og Girard- elli komu til Argentínu fyrir 12 dög- um og hafa æft þar af fullum krafti siðan. Brautin i Argentínu er 3.814 metrar aö lengd og er talin mjög erfiö. Lengi leit út fyrir aö fresta þyrfti keppninni vegna snjóleysis, en i endaöan júli snjóaöi og verður því keppnin á tilsettum tíma. Besta timann á æfingu i gær í brautinni náöi heimsbikarhafinn, 79, og 80 Peter Muller frá Sviss. Annar varö landi hans Karl Alpig- er, 69 hundruöustu úr sekúndu á eftir. Helmut Hoflehner frá Austur- ríki varö þriöji og Bandaríkjamaö- urinn, Doug Lewis fjóröi. Girardelli varö í 12. sæti og Ur- briggen í 42. sæti. BATAR TIL SÖLU Flipper 620 Sómi 600 Lengd: 6,20, br. 2,45. Vél: Suzuki 85 HP. Ganghraði: 28 mílur. Fullfrágenginn með svefnplássi ffyrír 4—5, vask og eldunaraðstöðu. Sumar- hús á sjó. Lengd: 6,15, br. 2,42. Vél: BMW 190 HP. Ganghraði: 38 mílur. Ekki alveg fullfrágenginn, en sjóklár. Góður sjóbátur. Báöir bátarnir eru nýir og ónotaðir. Viöurkenndir af sigl- ingamálastofnun ríkisins. Greiðslukjör möguleg. Bátarnir eru til sýnis í Snarfarahöfn Elliðaárvogi. Upplýsingar eftir kl. 17.00 í síma: 41020. Upplýsingar veitir Vélar & Taeki hf. Tryggvagata 10. Símar 21286 og 21460.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.