Morgunblaðið - 25.09.1985, Side 4
4
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 25. SEPTEMBER1985
Enginn ferskfiskur
til vesturstrandar
Bandaríkjanna í vetur
EKKERT virðist ætla að verða úr
vikulegum ferskfiskflutningum flug-
leiðis til vesturstrandar Bandaríkj-
anna í vetur, eins og gert var í fyrra-
vetur á vegum fyrirtækisins Royal
Iceland í San Francisco en það er
eign Sigurðar Ágústssonar í Stykkis-
hólmi og selur m.a. hörpudisk víðs-
vegar um Bandaríkin. Þýska flug-
félagið Lufthansa, sem hafði gert
tilboð í flutningana, dró tilboð sitt
til baka og er því allt útlit fyrir að
ekkert verði úr þessum flutningum,
sem áttu að hefjast í byrjun næsta
mánaðar, að því er Magnús Þrándur
Þórðarson, framkvæmdastjóri Royal
Iceland í San Francisco, sagði í
samtali við blm. Morgunblaðsins.
og var hann því ekki kominn i
verslanir á San Francisco-svæðinu
fyrr en seint á fimmtudegi eða á
föstudegi. Það er hins vegar um
miðja vikuna sem helstu verslanir
þar vestra auglýsa vöru sína og
þá er nauðsynlegt að fiskurinn sé
til, að því er Magnús sagði. „Það
var ekki hægt að fá Cargolux til
að breyta til og taka fiskinn heima
á sunnudögum," sagði hann, „og
því var leitað annað. Það virtist
ætla að takast en eftir að Luft-
hansa hætti við sýnist mér þetta
vera dautt mál enda teljum við
grundvallarskilyrði að fiskurinn
sé kominn í verslanir í byrjun
vikunnar."
Morgunblaði9/Ámi Scberg
Það var Cargolux sem annaðist
flutninga á íslenska fiskinum í
fyrravetur. Voru flutt að minnsta
kosti 22 tonn vikulega, einkum frá
Bæjarútgerð Reykjavíkur, alls á
milli 300 og 400 lestir af flökuðum
fiski. En sá hængur var á þeim
flutningum, að flogið var með fisk-
inn frá Reykjavík á miðvikudegi
Magnús sagði að ágætur mark-
aður væri fyrir ferskan fisk í San
Francisco yfir veturinn þegar
fiskimenn þar um slóðir veiddu
minna en á sumrin. „Við hefðum
helst viljað gera þetta með Cargo-
lux en það virðist ekki vera hægt,
að minnsta kosti ekki eins og er,“
sagði hann.
Smalamennskan endaði illa:
Ríkissáttasemjari hefur boðað
til nýs fundar í dag. Ríkisstjórnin
samþykkti á fundi sínum í gær-
morgun að halda fast við fyrri
stefnu sína I málinu, það er að
styðja stjórn Áburðarverksmiðj-
unnar í því að láta ekki undan
kröfum iðnaðarmannanna.
Féll af hesti og fótbrotnaði
FULLORÐINN maöur, sem var við smalamennsku skammt frá Geitafelli í
Ölfusi í gærmorgun, féll af hesti sínum rétt fyrir hádegið og fótbrotnaði
illa. Hann var fluttur með þyrlu Landhelgisgæslunnar í sjúkrahús í Reykjavík.
Slysið varð um 3 km suðvestur
af Geitafelli laust fyrir hádegið
þegar hestur, sem maðurinn var á,
lenti í gjótu með þeim afleiðingum
að maðurinn féll af baki. Hann var
í félagi við tvo aðra og reið annar
þeirra þegar til byggða til að sækja
hjálp en hinn beið með slösuðum
félaga sínum. Erfitt er yfirferðar
á þessu svæði og engin leið að
koma bílum þar að. Þyrla Gæsl-
unnar var kölluð út og lagði hún
af stað með lækni innanborðs um
kl. 12:40 og kom með hinn slasaða
til Reykjavikur um kl. 13:15. Mað-
urinn er nú á batavegi.
Þremenningarnir eru úr Þor-
lákshöfn og Selvogi.
Fulltrúar frá Rio Tinto Zink hingað í dag:
„Svars er að vænta
frá þeim á næstunni“
— segir Birgir ísleifur Gunnarsson, formaður stóriðjunefndar
Morgunblaðið/Friðþjófur
Rólegir dagar hjá starfsmönnum Áburðarverksmiðjunnar. Þessir drepa
tímann með spilum og kókdrykkju.
Áburðarverksmiðjan:
Ekkert þokast
í samkomulagsátt
EKKERT þokast i samkomulagsátt í samningum iðnaðarmanna í Áburðar-
verksmiðjunni og stjórnar verksmiðjunnar. Ríkissáttasemjari boðaði samn-
inganefndir aðila til sáttafundar í gær. Fundurinn stóð í fjórar klukkustund-
ir, en ekkert þokaðist í samkomulagsátt, samkvæmt heimildum Morgun-
blaðsins.
TVEIR fulltrúar breska stórfyrirtækisins Rio Tinto Zink eru væntanlegir
til landsins í dag, og á morgun munu þeir sitja fundi með stóriðjunefnd
og fleiri aðilum til þess að afla sér frekari gagna varðandi Kísilmálmvinnsl-
una á Reyðarfirði, til þess að forráðamenn fyrirtækisins geti gert upp hug
sinn hvort áhugi er fyrir hendi hjá fyrirtækinu að gerast meirihlutaeignarað-
ili að verksmiðjunni á Reyðarfirði.
Verkfall 18 iðnaðarmanna í
Áburðarverksmiðjunni hefur stað-
ið í rúmar 6 vikur og hefur það
lamað rekstur fyrirtækisins að
verulegu leyti. í fyrradag ákvað
stjórn verksmiðjunnar að segja
starfsmönnum verksmiðjunnar
upp ef deilan ekki leysist strax.
Að sögn Birgis ísleifs Gunnars-
sonar, formanns stóriðjunefndar,
má vænta þess að svör frá Rio
Tinto Zink af eða á um áhuga á
þátttöku í verksmiðjunni berist
fljótlega eftir þennan fund á
morgun.
Þá standa fyrir dyrum funda-
höld með Elkem í Ósló nk. mánu-
dag, þar sem þátttaka Norðmann-
anna i kísilmálmvinnslu hér á
landi verður einnig á dagskrá.
Birgir ísleifur sagði í samtali við
Morgunblaðið í gær að hann ætti
von á því að það skýrðist á þessum
fundi í Ósló á mánudag, hver
raunverulegur áhugi Norðmann-
anna væri. Þeir væru búnir að
vera með til skoðunar gögn ýmis-
konar og upplýsingar, og sagðist
Birgir ísleifur eiga von á því að
þeir hefðu kynnt sér málin það
vel, að þeir væru nú í stakk búnir
til þess að gera upp hug sinn.
Birgir ísleifur var spurður hverju
stóriðjunefndarmenn svöruðu,
þegar fulltrúar Rio Tinto og Elkem
spyrðu um hugsanlegt raforkuverð
til kísilmálmverksmiðju: „Við höf-
um gert það með þeim hætti að
gefa upp ýmiskonar raforkuverð,
sem þeir hafa svo matað tölvur
sinar á í útreikningum, en jafn-
framt látið það fylgja að slíkt yrði
efni frekari samningaviðræðna
eða tilboða af þeirra hálfu, ef
málin gengju svo langt," sagði
Birgir Isleifur.
EFTIR8PURN eftir byggingarlóðum á
Reykjavíkursvæðinu er nú Iftil sem
engin og hefur mörgum lóðum sem
úthlutað var á þessu ári verið skilað,
eins og kom fram í samtali við Gunnar
Ólsen-björgunargálgar seld-
ir fyrir 20—25 milljónir
HAGVANGUR og sænska fyrir-
tækið Lars Veibull A/B hafa á
undanförnum mánuðum unnið að
markaðskönnun fyrir björgunar-
gálga frá Vélsmiðju ól. Ólsen í
Njarðvík. Þessi markaðskönnun
hefur nú leitt til þess að gerður
hefur verið samningur við fyrirtæk-
ið Kockums sem er stór skipa-
smíðastöð í Malmö. Kockums ætl-
ar að taka að sér umboð fyrir
björgunargálgana í Svíþjóð, Finn-
landi, Austur-Evrópu, Grikklandi
og Kýpur. Um er að ræða samning
upp á 20-25 milljónir króna. Hann
er gerður til næstu fimm ára og til
að byrja með er gert ráð fyrir að
selja 300 björgunargálga.
Að sögn Sveins Hjartar Hjart-
arsonar rekstrarráðgjafa hjá
Hagvangi hf., sem hefur unnið
að þessum markaðsmálum í
samvinnu við forráðamenn Vél-
smiðju ól. ólsen, felur samning-
urinn í sér að Kockums kaupir
björgunargálgana af Vélsmiðju
ól. Olsen og mun síðan sjá um
sölu og dreifingu þeirra í Svíþjóð,
Finnlandi, Austur-Evrópu og
Kýpur. Síðar verða gerðar ráð-
stafanir til að setja gálgann á
markað í Asíulöndum. Einnig eru
samningar um sölu björgunarg-
álganna í Danmörku langt komn-
ir og nýlega var gerður samning-
ur við aðila í Noregi um umboð
þar í landi. Mikill áhugi er fyrir
gálgunum í Bandarikjunum og
hafa fjórir gálgar verið seldir
þangað í tilraunaskyni.
„Hér er um umfangsmikið
verkefni fyrir vélsmiðjuna að
ræða. Samningurinn er mjög
þýðingarmikill fyrir starfsemi
hennar og menn eru bjartsýnir
á að góður árangur náist," sagði
Sveinn Hjörtur.
„Senn líður að því að
markaðurinn mettist“
— segir Ágúst Jónsson skrifstofu-
stjóri hjá Borgarverkfræðingi
S. Björnsson framkvæmdastjóra
Meistarasambands byggingamanna
við Morgunblaðið á laugardaginn.
Morgunblaðiö spurði Agúst Jónsson
skrifstofustjóra hjá Borgarverkfræð-
ingi hvaða skýringar hann teldi vera
á þessu ástandi.
Ágúst sagði að ástæður fyrir þessu
væru margar. „Nefna má að erfitt
hefur reynst að selja gamlar íbúðir
að undanförnu," sagði Ágúst. „Þá
hljóta breyttar lánareglur Hús-
næðisstofnunar ríkisins að hafa sín
áhrif. Nú og svo efnahagsástandið
almennt. Ein skýringin gæti verið
sú að á árinu 1983 varð allt í einu
mjög mikið framboð á lóðum og þá
er spurning hvort ekki líði að því
að markaðurinn mettist og eftir-
spurnin minnki þess vegna."
Svo dæmi sé tekið hefur 172 ein-
býlishúsalóðum verið úthlutað í
Reykjavík á þessu ári og 101 skilað
þannig að eftir er 71 lóð. I fyrra var
aftur á móti úthlutað 317 einbýlis-
húsalóðum nettó. I fyrra var út-
hlutað í Reykjavík fjölbýlishúsalóð-
um fyrir 215 íbúðir, en í ár hefur
verið úthlutað lóðum undir 188 íbúð-
ir nettó. í apríl hafði verið úthlutað
36 fjölbýlishúsalóðum undir 248
íbúðir, en síðan hefur sex lóðum
undir 60 íbúðir verið skilað.
Ólsen-björgunargálgi prófaður.