Morgunblaðið - 25.09.1985, Side 7
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 25. SEPTEMBER1985
7
Athugasemd við
athugasemd
— frá sveitarstjóranum í Garði
Morgunblaðinu hefir borist eftir-
farandi athugasemd frá sveitarstjór-
anum í Garði:
Vegna athugasemdar bæjar-
stjórans í Njarðvík sl. laugardag
hér í blaðinu skal eftirfarandi
tekið fram: Öllum sem til þekkja
finnst það eðlilegt, ég endurtek
eðlilegt að vegagerð ríkisins sjái
um og greiði að fullu nýframkv. —
viðhald — lýsingu og snjóruðning
í gegnum Njarðvík frá bæjarskrif-
stofum Njarðvíkur að bæjarmörk-
um Keflavíkur. Það er því mis-
skilningur hjá bæjarstjóranum að
halda annað.
Hins vegar er það óeðlilegt, ég
endurtek óeðlilegt, að til dæmis
Keflavík og Garður njóti ekki
sömu þjónustu, það er að vegagerð-
in, sjái um Hringbrautina í gegn-
um Keflavík eða Garðbraut í gegn-
um Garðinn, á sama hátt og með
sömu skilmálum og Reykjanes-
braut í gegnum Njarðvík.
öll sveitarfélög á íslandi fá
framlag miðað við íbúa til viðhalds
á þjóðvegum í þéttbýli og er Njarð-
vík þar engin undantekning, en
mjög mislangt og misþungt er
sveitarfélögunum vegakerfið.
f Garði er Skagabraut og Gerða-
vegur þjóðvegir í þéttbýli á sama
hátt og Njarðvíkurbraut og Sjáv-
argata í Njarðvík. Þar að auki er
Garðbraut þjóðvegur í þéttbýli í
Garði, viðhald kostað af Garð-
búum en engin sambærileg gata í
Njarðvík kostuð af Njarðvíking-
um, þar skilur á milli.
Eg vil nota tækifæri og ítreka
ennþá einu sinni þá ósk til þing-
manna Reykjaneskjördæmis að
Garðbraut í Garði verði tekin í
tölu þjóðvega, á sama hátt og
Reykjanesbraut í Njarðvík. Yfir-
lýsing bæjarstjórans í Njarðvík
um að tvær götur þar í bæ, Njarð-
víkurbraut og Sjávargata, væru
akfærar er hárrétt. Það get ég
staðfest hvenær sem er, verði þess
óskað.
Ellert Eiríksson,
sveitarstjóri Gerðahrepps.
Hækka tölvur og hug-
búnaður um mánaðamót?
BÚAST má við að á næstunni hækki útsöluverð á tölvum og hugbúnaði
hvers konar verulega, þar sem ekki þarf lagabreytingu til þess að hægt
verði að afnema söluskattsundanþágur af slíkum innflutningsvörum,
heldur nægir reglugerðarbreyting þar til. Er jafnvel búist við að slík
breyting taki gildi, þegar frá næstu mánaðamótum.
Albert Guðmundsson fjármála- því að breyta reglugerðinni sem
ráðherra var í gær spurður hvort fyrst, þá fengjust meiri peningar
slíkrar reglugerðarbreytingar í ríkiskassann, en á það er einnig
væri að vænta úr ráðuneyti hans að líta, að með því að draga breyt-
á næstu dögum, og sagði hann þá: ingarnar svolítið, þá kem ég
„Það hefur engin ákvörðun þar að minna aftan að fólki sem er að
lútandi enn verið tekin. Vissulega hugleiða að fjárfesta í slíkum bún-
má til sanns vegar færa að með aði.“
Alþýðuleikhúsið:
Frum-
sýning í
kvöld
Alþýðuleikhúsið frumsýnir í
kvöld á Hótel Borg leikritið
„Þvflíkt ástand“, eftir brezka
leikritaskáldið Graham Swann-
el. Þetta er fyrsta sýning leik-
hússins á 10 ára afmæli þess.
Leikstjóri er Kristbjörg
Kjeld en með hlutverkin fara
Arnar Jónsson, Helga Jóns-
dóttir, Sigurður Skúlason,
Margrét Ákadóttir og Bjarni
Steingrímsson.
í kynningu leikhússins er
leikritinu lýst þannig:
„Þvílíkt ástand var frum-
sýnt í Lyric Studio-leikhús-
inu 1 London þann 14. febrúar
1985 og hlaut lof gagnryn-
enda og áhorfenda. Það er
fyrsta leikhúsverk höfundar.
Leikritið er súr/sæt kómedía
um nútíma líf og fólk á 9.
áratugnum, samskipti þess
og reynslu er sterkasti
bjarmi yngri áranna fer
hratt dvínandi og það stend-
ur andspænis nýrri ábyrgð. í
meðferð höfundar endur-
speglast þetta aðallega í
kynsamskiptum innan og
utan hjónabandsins."
Næstu sýningar eru á
fimmtudag kl. 20.30 og
sunnudag kl. 15.30.
NÚ ER ’ANN
ENN Á NORÐAN
Á boðstólum:
Sport- og gallabuxur, úlpur,
mlttisjakkar, sokkar, margs kon-
ar barnafatnaöur, peysur og
jakkar.
Ennfremur:
Prjónajakkar, peysur, vettllngar,
treflar, húfur og legghlífar.
Líka:
Mokkafatnaöur margs konar á
góöu veröl, herra- og dömujakk-
ar, kápur og frakkar og mokka-
lúffur, húfur og skór á börn og
fulloröna.
Einnig:
Teppabútar, gluggatjöld, buxna-
efnl, kjólaefni, gullfalleg ullar-
teppi á kostakjörum og margs
konar áklæöi.
Og auóvitað:
Qarn, meöal annars í stórhesp-
um, loðband og lopi.
Útsölutímabil: 26/9 tíl 5/10
Mán.—míöv.d. 10—18,
fimmtud. lO—20,
föstud. lO—19,
laugard. 10—16.
og hús Vöruloftsins
Sigtúni 3 er að fyllast
af norðanvörum