Morgunblaðið - 25.09.1985, Síða 19
MORGUNBLAÐIÐ, MIDVIKUDAGUR 25. SEPTEMBER1985
19
„Jazzballett er líka
tómstundagaman“
— segir Bára Magnúsdóttir, skólastjóri Jazzballettskóla Báru
MorgunblaftiS/Árni Sæberg
Bára Magnúsdóttir til hægri og kennarinn Agnes við hlið hennar.
„Jazzballettskóli Báru átti 20
ára afmæli í vor og ætli hann hafi
ekki barasta verið fyrsti jazzball-
ettskólinn hérlendis. Ég hugsa
það,“ sagði Bára Magnúsdóttir en
hún er eigandi og skólastjóri Jazz-
ballettskóla Báru. Bráðmyndarleg
kona.
Hvað heldurðu að margir tipli i
tánum á vetri hverjum?
„Það eru mörg hundruð manns
sem við kennum alla virka daga
vikunnar í 3 sölum. Áhugi á þessu
er orðinn svo mikill að við kom-
umst ekki af með minna en 3 sali.“
Og hér er fólk auðvitað á öllum
aldri?
„Rétt er það. Krakkarnir eru í
jazzinum frá 7 ára aldri. Jazzball-
ett er bara viss grein af listdansi
og því fyrr sem þau byrja, því
betra, alveg eins og í ballett. Það
er þjálfunin sem skiptir öllu máli
og þau þurfa að læra þau undir-
stöðuatriði sem nauðsynlegt er að
kunna til að geta orðið dansari."
Samt byrja ekki allir 7 ára?
„Nei. Það er nefnilega þannig
með jazzballettinn að hann getur
líka verið tómstundagaman. Það
er hægt að hafa gaman af jazz-
ballett án þess að ætla að þjálfa
sem dansari. Það er líka hægt að
leika sér í jazzballett."
Örlítið um skólastarfið sem slíkt?
„Skólinn tekur til starfa um
miðjan september og er búinn í
mai alveg eins og aðrir skólar.
Einnig bjóðum við upp á stutt
sumarnámskeið sem eru þá gjarn-
an eitthvað öðruvísi en það sem
aðhafst er yfir vetrartímann. Á
sumrin leikum við okkur enn
meira. Við höfum líka sér leikfimi-
og líkamsræktardeild. Þar eru
reyndar allar æfingarnar úr jazz-
ballett."
Hve langur er hver tími?
„Frá 60 mínútum og upp í 80
mínútur."
Heldurðu að allir nemendur skól-
ans líti á jazzballett sem listgrein?
„Númer eitt: Jazzballett er list-
grein. Það er sko engin spurning
um það en vissulega er hægt að
fara fleiri leiðir. Jazzballett er
miklu hagnýtari en klassískur
ballett. Þegar ég var lítil telpa þá
voru nær allar stelpur sendar í
klassískan ballett til að fá fallegar
hreyfingar og svoleiðis. Eins og ég
sagði áðan, getur jazzballettinn
líka verið fínt tómstundagaman.
Þetta er mjög þroskandi. Það er
þroskandi að einbeita sér og læra.
Fólk fær innsýn í hlutina. Þetta
er bara eins og hver önnur list-
þekking. Þú þarft ekkert að verða
heimsfrægur en þú hefur vit á
hlutunum. Manneskja sem æfir
dans, hefur dans að áhugamáli
alla ævina.“
Jazzballett er stundaður mjög víða
hérlendis, ekki satt?
„Jú, jazzdans hefur sjálfsagt
aldrei verið jafn vinsæll og einmitt
núna. Það er varla til sá skóli sem
auglýsir ekki jazz-eitthvað. Jazz-
leikfimi, jazzaerobic, freestyle—
jazz og diskó-jazz. Allt þetta hefur
maður séð auglýst. Nú er jazzinn
vinsæll og þá er eins og allir þurfi
að bæta jazz við hina og þessa
dansa. Þetta gengur í bylgjum.
Bráðum kemur örugglega
rúmbujazz og cha-cha-cha-jazz.“
Hvað með karlpeninginn?
„Þeim er alltaf að fjölga. Flestir
þeirra koma samt ekki fyrr en
þeir þykjast sjá einhvern pening í
þessu. Karlpeningur er rétta orðið.
Þeir koma þegar hægt er að ráða
fastan flokk einhvers staðar og
dansarar eru komnir á samning,
með föst laun. Þegar þessi staða
kemur upp eru þeir svo fljótir að
koma að brátt eru þeir orðnir
„stjórnendur" flokkanna. Svona er
þetta alltaf, þeir láta okkur vinna
þetta upp fyrir sig.“
Viltu þá ekkert fá blessaða pilt-
ana?
„Jú, jú,“ svarar Bára og hlær.
„Þó þeir vilji ráða öllu. Hins vegar
eru þeir alltof fáir vegna þess að
atvinnumöguleikarnir eru svo litl-
ir fyrir dansara á íslandi."
Þú segir það. Er erfitt fyrir dans-
ara að fá vinnu?
„Mjög erfitt. Við höfum ellefu
atvinnudansara hjá Þjóðleikhús-
inu og þeir hafa ekki nóg að gera.
Það er hrein hörmung hvernig
farið er með þá dansara. Það eru
engin hús til að sýna í nema ball-
húsin og það er ekki skemmtilegt
að sýna þar.“
Þið eruð með góðan dansflokk,
er ekki svo?
„Jú við höfum ágætan dansflokk.
Stærsta stykkið sem hann hefur
sett upp er Jazz-inn í Háskólabíói,
Evita tókst líka vel. Hér eru
nemendasýningar á hverju ári,
bæði um jól og vor.“
Af hverju jazzballett?
„Af hverju ekki?“
— Galvaskir sveinar í stuttu spjalli
Blaðamaður rak upp stór augu
þegar hann hugðist yfirgefa Jazz-
ballettskóla Báru, því hann mætti
þremur galvöskum piltum í dyrun-
um með æfingatöskur og til i slag-
inn, að því er virtist. Við nánari
athugun kom í ljós að þeir stun-
duðu jazzballett af kappi. Óttar
Ellingsen, Þórarinn Þórarinsson
og Jóhann Stefánsson voru og eru
nöfn þeirra. Tveir Verslunarskóla-
nemar og einn úr Menntaskólanum
við Sund. Báðir skólarnir rómaðir
fyrir stórbrotið félagslíf.
Af hverju jazzballett?
„Af hverju ekki?“ svaraði Óttar.
Jóhann bætti við: „Það er einfalt
mál. Okkur þykir gaman að dansa,
það er mikil hreyfing í þessu líka.“
Líður ykkur vel innan um allar
þessar stelpur?
„Það er ekki hægt annað.“
Morgunbladiö/Árni Sæberg
Piltarnir Jóhann, Þórarinn og Óttar, talið frá vinstri til hægri.
Af hverju eru svona fáir strákar f
þessu?
„Einhver hræðsla líklega," svar-
aði Þórarinn og enn bætti Jóhann
við: „Það er merkilegt hve félagar
manns gera sér rangar hugmyndir
um þetta. Halda að þetta sé bara
teprulegt sem þetta er alls ekki.
Hér er krafturinn ekki síður mikil-
vægur en mýktin."
Spjallinu lauk á þennan hátt.
Stutt var það en ekki dugði að tefja
piltana frá áhugamálinu, jazzball-
et.
Utboð hjá Vegagerðinni:
Lægstu tilboð 60 %
af kostnaðaráætlun
LÆGSTU tilboð í tveimur útboðum
hjá Vegagerð ríkisins, sem tilboð
voru opnuð í sl. mánudag, voru um
60 % af kostnaðaráætlun.
Suðurverk sf. á Hvolsvelli átti
lægsta tilboðið f lagningu Skeiða-
og Hrunamannavegar um Stóru—
Laxá, 2.766 þúsund kr., sem er 59%
af kostnaðaráætlun Vegagerðar-
innar. 15 verktakar buðu í verkið
og voru 11 undir áætlun en hún
var 4.689 þúsund kr. Lengd vegar-
Kafli úr
„Kári litli í
skólanum“
í danska
lesbók
FYRIK skömmu kom út í Danmörku
ný lesbók fyrir 3. bekk barnaskóla. Er
bókin hin vandaðasta aö öllum frá-
gangi og fylgja henni vinnubækur og
snælda með texta bókarinnar.
Höfundar bókarinnar eru þrír,
Jan Bachmann, Sören Graff og
Henning Damtoft Pedersen. Hafa
þeir samið efnið, valið og búið til
prentunar. Margar myndir prýða
bókina, bæði ljósmyndir og teikn-
ingar, eftir Birgitte Larsen og
Charlotte Clante. Bókin nefnist:
„Dansk for os — i tredje" og er 188
bls.
í bókinni er kaflinn Þegar Svanur
sökk úr bókinni Kári litli í skólan-
um eftir Stefán Júlíusson. Tvær
teikningar eftir C.C. eru í kaflanum.
Kári litli í skólanum er ein af
Kárabókunum þremur. Hún kom út
í Danmörku árið 1980 í þýðingu
Þorsteins Stefánssonar rithöfundar.
ins er 2 km og á verkinu að vera
lokið fyrir 15. maí 1986.
Sjö tilboð bárust í styrkingu 6,9
km vegarkafla í Arnarfirði, öll
undir kostnaðaráætlun nema eitt,
sem var örlítið yfir áætlun. Rækt-
unarsamband Vestur-Barðstrend-
inga átti lægsta tilboðið, 1.299
þúsund kr., sem er 61,8% af kostn-
aðaráætlun, sem var 2.100 þúsund
kr. Verkinu á að skila fyrir 1.
desember nk.
HÁÞRÝSTI-
VÖKVAKERFI
Sérhæfó þjónusta.
Aóstoóum vió val
og uppsetningu
hvers konar
háþrýstibúnaóar.
r ^
Vökvamótorar
= HÉÐINN =
VÉLAVERZLUN-SIMI: 24260
LAGER-SÉRPANTANIR-WÓNUSTA
Rceðiö við
okkur um
raf-
mótora
Þegar þig vantar
rafmótor þá erum
við til staðar. Við
bjóðum nánast allar
stærðir rafmótora
frá EOF í Danmörku.
Kynnið ykkur verðið
áður en kaupin eru
gerö.
HEÐINN
SELJAVEGI 2, SÍMI 24260