Morgunblaðið - 25.09.1985, Qupperneq 42
42
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 25. SEPTEMBER1985
vildí ckki ab þii Kysst'ir Kona.."
Aster...
að bjóða góða
nótt.
TM Rea. U.S. Pat. Oft.—all rights reserved
®1M5 Los Angeles Times Syndicate
Kosturinn við þennan bfl er
augljós. Þú ekur rólega að vild.
Það flautar enginn á þig!
HÖGNI HREKKVlSI
//VAf? penA EKXI GAAAAN f>-/ EN SETJU/VIST NL)
N/£XIR 06 G/EPOM ÖYGCUR 'A PINNA/V14TNUAA."
Verslunarmannahelgin fœr margan manninn til að fara út f náttúruna. Misjafnlega er að vísu fjallað um þær
útiskemmtanir sem haldnar eru í fjölmiðlum.
Verslunar man nahelgi
í Kirkjulækarkoti
Sigfús B. Valdimarsson skrifar:
Um sl. verslunarmannahelgi var
víða komið saman til mannfagn-
aðar og voru birtar fréttir af því
víðs vegar að. Flestar voru á þá
leið að þar hefði verið mikil vín-
drykkja, sem hafði í för með sér
hinar alvarlegustu afleiðingar og
vansæiu. Ég minnist ekki að hafa
heyrt eða séð neins staðar getið
um hið fjölmenna mót sem þá var
haldið á vegum hvítasunnumanna
í Kirkjulækjarkoti í Fljótshlíð.
Þetta var auðvitað kristilegt mót
og fólk á öllum aldri undi sér hið
besta og gladdist í samfélaginu við
Drottin eins og kristnu fólki ber
að gera. Það er Jesús einn sem
gefur hinn sanna frið og gleði.
„Minn frið gef ég yður: Ekki gef ég
eins og heimurinn gefur," Jóh.
14:27. „Verið ávallt glaðir vegna
samfélagsins við Drottin, ég segi
aftur: Verið glaðir," Fil. 4:4. Þarna
var því ekki þörf fyrir neina lög-
gæslu því allt fór fram í sátt og
samlyndi, enda var Bakkus og aðr-
ir vímugjafar hverju nafni sem
þeir nefnast algerlega útilokaðir.
Þeir sem hafa smakkað á því hvað
Jesús gefur mikið láta sér ekki
nægja lengur þá fölsku gleði, sem
þeir veita um stundarsakir.
Þarna voru þó 3 fílefldir lög-
reglumenn og 1 lögreglukona en
þau voru öll í sumarfríi en nutu nú
samverunnar með öðrum í bæn og
lofgjörð til frelsarans ásamt upp-
byggingu og fræðslu í heilagri
ritningu, voru margir sem þjón-
uðu í orðinu og veittu slíka
Skrifið eða
hringið til
Velvakanda
Velvakandi hvetur lesendur til að
skrifa þættinum um hvaðeina, sem
hugur þeirra stendur til — eða
hringja milli kl. 14 og 15, mánudaga
til föstudaga, ef þeir koma því ekki
við að skrifa. Meðal efnis, sem vel
er þegið, eru ábendingar og orða-
skipti, fyrirspurnir og frásagnir,
auk pistla og stuttra greina. Bréf
þurfa ekki að vera vélrituð, en nöfn,
nafnnúmer og heimilisföng verða
að fylgja öllu efni til þáttarins, þó
að höfundar óski nafnleyndar.
Sérstaklega þykir ástæða til að
beina þvi til lesenda blaðsins utan
höfuðborgarsvæðisins, að þeir láti
sinn hlut ekki eftir liggja hér í
dálkunum.
fræðslu. Jesús sagði: „Ef þér elskið
mig, þá munuð þér halda boðorð
mín ... Hver sem elskar mig mun
varðveita mitt orð,“ Jóh.
14:15—23. Orð Jesú standa stöðug,
þau haggast ekki hvort heldur er
um að ræða frelsi mannssálarinn-
ar. „Enginn getur séð guðsríki
nema hann endurfæðist ... Undr-
ast þú ekki að ég sagði þér: Yður
ber að endurfæðast," Jóh. 3:3—8
eða þann veg sem þeim ber að
ganga, sem frelsast fyrir trúna á
Jesú, að taka niðurdýfingarskírn
að fordæmi hans, „því að þannig
ber okkur að fullnægja öllu rétt-
læti,“ Matt. 3:15. Eða fyrirheitið
„En þér skuluð skírðir verða með
Heilögum anda“ Post. 1:5. „Og þér
munuð öðlast gjöf heilags anda,
því að yður er ætlað fyrirheitið og
börnum yðar, og öllum þeim sem
sem í fjarlægð eru öllum þeim,
sem Drottinn Guð vor kallar til
sín,“ Post. 2:39.
Það var markmið mótsgesta að
þrengja sér nær Jesú og öðlast
meira af honum.
Stöðugt meira af Jesú, stöðugt meira líf.
Stærst er löngun hjartans, uns ég til þfn svif.
Eins og hindin vatnslind, þráir sál min þig.
Þínum lífsins veigum fylltu, Drottinn mig.
Daviðssálmur 42:2 og Hörpustrengir 359.
Þetta kom berlega fram á þessu
móti og biblíuvikunni sem haldin
var á eftir. Náðargjafir Drottins
streymdu til fólksins því til upp-
byggingar og helgunar. Sálir frels-
uðust, „urðu ný sköpun í Kristi,
hið gamla varð að engu, sjá það er
orðið nýtt,“ 2. Kor. 5:17. Aðrir
skírðust í heilögum anda og töluðu
öðrum tungum eins og andinn gaf
þeim að mæla,“ Post. 2:4. Beðið
var fyrir sjúkum í Jesú nafni og
hann svaraði og opinberaði dýrð
sína og mátt. Jak. 5:13—16. Það
var yndislegt í alla staði að vera
þarna. Það er ekki að furða þó að-
sókn að þessum mótum aukist ár
frá ári.
í Kirkjulækjarkoti er mjög
snotur kirkja sem söfnuðurinn þar
á og svo er það Skálinn, sem er
þjónustumiðstöð hvítasunnu-
hreyfingarinnar. Það er mikið
framtak og manni verður ljóst að
þar hefir Guð verið í verki, því „ef
Drottinn byggir ekki húsið, erfiða
smiðirnir til ónýtis".
Þarna eru salarkynni fyrir
fundi og samkomur. Stór matsalur
og eldhús. Á mótum er hægt að fá
keypt létt fæði og allir hafa að-
gang að matsalnum þó þeir fæði
sig sjálfir. Svefnpláss er fyrir um
100 manns. Úti eru tjald- og
hjólhýsastæði og leiksvæði fyrir
börn. Á stórmótum sem þessu er
ég hefi lýst er einnig notað mjög
stórt samkomutjald. Ég þakka
þeim sem stóðu að þessu móti og
öllum þátttakendum sameiginlega
fyrir ógleymanlegar samveru-
stundir. Að síðustu þetta: „Látið
orð Krists búa ríkulega hjá yður
með allri speki, fræðið og áminnið
hver annan með sálmum, lof-
söngvum og andlegum Ijóðum og
syngið Guði sætlega lof í hjörtum
yðar. Og hvað sem þér gjörið í orði
eða verki, þá gjörið allt í nafni
Drottins Jesú, þakkandi Guði föð-
ur fyrir hann,“ Kól. 3:16—17.
Þessir hringdu . .
Þórarinssonar
fyrir skrif hans
um myndbönd
Lesandi hringdi og hafði eftir-
farandi að segja:
Ég ætla í fyrsta lagi að þakka
Árna Þórarinssyni fyrir svar
hans um myndbönd sem birtist í
Velvakanda um daginn.
Ég hefi leitað að þessum spól-
um sem hann hefur fjallað um
en ekki fundið hvar þær eru fá-
anlegar, enda segir Arni í svari
sínu að hann fái allar spólurnar
af einni leigu sem hann af skilj-
anlegum ástæðum vill ekki segja
hver er.
Það væri hins vegar hvatning
til myndbandaleiga að auglýsa
að þær hafi þær spólur sem hann
hefur mælt með og því væri
hægt að ganga að þeim vísum á
þeim leigum.