Morgunblaðið - 25.09.1985, Page 43
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 25. SEPTEMBER1985
43
lÆírz'i.
l S '/ i j f.
? ! I M
f. 1 '4 5. "
HmJIkíj
VELVAKANDI
SVARAR í SÍMA
10100 KL. 14—15
FRÁ MÁNUDEGI
TIL FÖSTUDAGS
Athugasemd vegna skrifa rokkunnanda
»
„Eitt liggur alveg Ijóst fyrir: Þad er hungursneyð í Eþíópíu og milljónir
ósjálfbjarga einstaklinga skortir mat, fatnað og læknishjálp.
Rúnar Sig. Birgisson skrifar fyrir
hönd aðstandenda hljómplötunn-
ar:
Það er varla að það sé eyðandi
í það tíma að svara dylgjum og
fullyrðingum einhvers sem kallar
sig „rokkunnanda" í Velvakanda
þann 19. þ.m.
Það liggur Ijóst fyrir að viðkom-
andi skrifar undir dulnefni, þar
sem hann ræðst á ómaklegan hátt
á útgáfu hljómplötu til styrktar
sveltandi fólki í Eþíópíu.
Aðstandendur íslensku Eþíóp-
íu-hljómplötunnar eru: Hjálpar-
stofnun kirkjunnar, auglýsinga-
stofan Nýtt útlit hf., sem hefur
umsjón með útgáfunni og íslenskir
hljómlistarmenn undir forystu
Björgvins Halldórssonar. Auk þess
tengist fjöldi fyrirtækja og ein-
staklinga útgáfunni á einn eða
annan hátt, með framlögum sínum
og ötulu starfi, enda er flest sem
viðkemur hljómplötunni gefið af
þeim. Hér er um algjöra sjálf-
boðavinnu að ræða hjá öllum sem
koma við sögu í þessu söfnunar-
átaki.
Um það hvort hljómplatan skili
gróða, eins og það er orðað, eða
ekki, eru eingöngu vangaveltur
þessa dularfulla „rokkunnanda".
Við sem stöndum í þessu erum þó
ekki í nokkrum vafa um góðar
viðtökur hjá landsmönnum. Eitt
liggur alveg ljóst fyrir: Það er
hungursneyð í Eþíópíu og milljónir
ósjálfbjarga einstaklinga skortir
mat, fatnað og læknishjálp. Það
er einnig ljóst að bregðast verður
við þessum stórbrotna vanda á
skjótan og markvissan hátt, og
þessi hljómplata er aðeins einn
liður í þeirri viðleitni okkar að
hjálpa þeim sem minna mega sín,
hvar sem þeir búa í heiminum.
Hjálparstofnun kirkjunnar mun
sjá um að koma söfnunarfé til
skila í þessari söfnun, enda hefur
það sýnt sig að allt söfnunarfé sem
fer um þeirra hendur hefur skilað
sér á áfangastað. Það fer því ekk-
ert af söfnunarfé í rekstur hér
heima, enda notar Hjálparstofnun
kirkjunnar aldrei söfnunarfé til
eigin reksturs.
Undirbúningur að útgáfu hljóm-
plötunnar er í fullum gangi, með
þátttöku flestra af okkar þekkt-
ustu hljómlistarmönnum. Hljóm-
platan mun væntanlega sjá dags-
ins ljós fljótlega, en endanleg
dagsetning útgáfunnar liggur ekki
fyrir að svo stöddu. Að endingu
er það von okkar sem að útgáfunni
standa að „rokkunnandi" samein-
ist okkur og öðrum landsmönnum
í því átaki sem framundan er. Það
er varla hægt að hugsa sér ömur-
legra hlutskipti en það að reika
um hungraður og þjáður af alls-
kyns sjúkdómum, en það er einmitt
sá raunveruleiki sem blasir við
fólki í Eþíópíu og reyndar víðar í
heiminum f dag.
Fleiri skrifum undir dulnefni
verður ekki svarað að okkar hálfu,
hvorki frá „rokkunnanda" né öðr-
um.
Einstæð þjónusta
Maður hringdi og hafði eftir-
farandi að segja:
Konan mín keypti skó í skó-
verslun Axels ó. síðastliðið vor
og núna í september þurfti að
gera við þá í annað sinn frá því
að þeir voru keyptir. Henni var
sagt að koma fjórum dögum
seinna til að ná í þá en þegar
komið var að sækja þá voru þeir
ekki tilbúnir. Þá voru henni
fengnir nýir skór orðalaust til
eigin nota því óvíst væri hvort
þeir gætu gert við skóna.
Finnst mér þetta lýsa alveg
einstæðri þjónustu hjá þessu
fyrirtæki, og hef ég aldrei
kynnst neinu í líkingu við þetta
hvorki fyrr né síðar.
Hvar er viljinn?
Þórður Ragnarsson hringdi og
hafði eftirfarandi að segja:
Eftir að hafa hlustað á útvarps-
fréttir undanfarið er mér spurn
hvort raunverulegur vilji sé fyrir
hendi til að reyna að koma í veg
fyrir skattsvik fyrirtækja. Þar á ég
við þá rannsókn sem verið er að
ráðast í um þessar mundir. Hvers
vegna er verið að blása það út I
fjölmiðlum að rannsaka eigi þetta
áður en rannsóknin hefst? Vinnu-
brögðin eru slík að jafnvel hefði
mátt búast við að nöfn þeirra
Hvort sem það heitir söluskattur eða
virðisaukaskattur er æskilegt að
hann skili sér i ríkiskassann.
fyrirtækja sem rannsaka á yrðu
nefnd.
Ég hélt að það stæði til að rann-
saka þetta af fullri einurð en það
svekkir mig þegar svona er staðið
að hlutunum. Það er alveg augljóst
mál að forstjórar fyrirtækja reyna
allt hvað af tekur að lappa upp á
bókhaldið þegar þeir vita að rann-
sókn á borð við þessa á að fara
fram.
Ég taldi það alveg víst að þegar
ljóst væri hversu stórt fjárlagagat
að fylla upp í yrði staðið að svona
rannsókn á almennilegan hátt. 1
hvert sinn sem ég kaupi vöru eða
þjónustu af einhverju tagi borga
ég jafnframt skatt til samfélagsins
og ég vil að sá skattur lendi i
rikiskassanum en ekki í vasa kaup-
mannsins.
Ég vona að þeir sem að þessum
málum standa geri sig ekki seka
um svona lagað í framtíðinni.
Hvar er hægt að
fá „Slendertone“
Stína hringdi og hafði eftirfar-
andi að segja:
Fyrir nokkrum árum var mik-
ið talað um tæki sem kallað er
„Slendertone". Upphaflega var
það ætlað fólki sem lent hafði í
slysi og þurfti að styrkja vöðv-
ana. Síðan fór fólk að nota þetta
tæki sem vildu styrkja sig án
þess að fara sérstaklega í lík-
amsrækt eða annað þess háttar.
Er nokkur sem getur bent mér
á hvar hægt er að nálgast þetta?
Bóklegt
einkaflugmanna-
námskeiö
Flugskólinn Suöurflug heldur einkaflug-
mannanámskeiö í Reykjavík ef næg
þátttaka fæst. Hámarksfjöldi á nám-
skeiöi 15 manns. Reyndir kennarar.
Skráning og upplýsingar í símum,
44805 og 52386.
Bladburöarfólk
óskast!
Austurbær Kópavogur
Laugavegur 34—80 Birkihvammur
Hverfisgata 63—120 Kársnesbraut 2—56
Kársnesbraut 57—139
Bræöratunga
fltorgtisiMaMb