Morgunblaðið - 21.11.1985, Qupperneq 18

Morgunblaðið - 21.11.1985, Qupperneq 18
 MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 21. NÓVEMBER1985 Frá upphafi hafa hönnuðir STRIDE tölvunnar sett sér ströng markmið. Þess vegna hefur STRIDE nú forskot, hún uppfyllir kröfur framtíðarinnar NÚ. STRIDE er öflug tölva fyrir stór sem smá fyrirtæki. Hægt er að byrja með einn skjá og einn prentara, bæta slðan við eftir þörfum I allt að 23 jaðartæki og tengja saman margar STRIDE tölvur. STRIDE býður fasta diska frá 20 Mb upp í 448 Mb. STRIDE býður einnig segulbandsstöð til afritatöku. STRIDE framúrskarandi hönnun - á afbragðsverði. STRIDE keyrir BOS fjölnotendahugbúnað, heilsteypt kerfi forr- ita, auðvelt og áreiðanlegt, sem hæfir STRIDE vel. ACO hf. er söluaðili STRIDE á Islandi og leggur áherslu á góða þjónustu og rekstraröryggi. ■ %pr-r; 'Ti&DE i c r a FYRIR STRONGUSTU KRÖFUR a s: acohf Laugavegi 168 105 fteykjavlk Sími 27333 Alvöru- framboð — eftirHarald Blöndal Undanfarna daga hefi ég verið spurður af ýmsum flokkssystkin- um mínum, hvort ég sé í alvöru- framboði í prófkjöri Sjálfstæðis- flokksins um væntanlegan fram- boðslista í borgarstjórnarkosning- unum á vori komanda. Ástæða þessarar fyrirspurnar hefir verið sögð sú, að ég hafi ekki opnað kosningaskrifstofu eða birt af mér auglýsingamyndir í blöðum. Nú á ég erfitt með að skilja, af hverju verið er að flokka framboð í alvöruframboð og annars konar framboð. En ég tel rétt að fram komi, að ég er að þessu „í alvöru“, ella hefði ég ekki gefið kost á mér, þegar kjörnefnd óskaði þess, að ég gæfi kosti á mér í þetta prófkjör. Ég hefi undanfarin ár skrifað fasta dálka um stjórnmál í Vísi og síðar DV. Eru sjálfstæðismönn- um því ljósar skoðanir mínar. Ég hefi starfað mikið innan Sjálfstæðisflokksins. Ég var í stjórn Heimdallar og stjórn Sam- bands ungra sjálfstæðismanna, síða8t sem varaformaður. Ég var ritstjóri Stefnis um hríð. Þá hefi ég átt sæti í stjórnum tveggja hverfasamtaka Sjálfstæðisflokks- ins í Reykjavík. Ég var í flokksráði um skeið. Ég tel, að störf mín innan Sjálf- stæðisflokksins og skrif mín í blöð ættu að duga til þess, að flokks- systkin mín getið metið, hvort þau vilji hafa mig í borgarstjórn Reykjavíkur eða ekki. Haraldur Blöndal „Ég tel, að störf mín innan Sjálfstæðisflokks- ins og skrif mín í blöð ættu að duga til þess, að flokkssystkin mín geti metið, hvort þau vilji hafa mig í borgar- stjórn Reykjavíkur eða ekki.“ Það þarf ekki að taka fram, að borginni hefur verið vel stjórnað undir forustu Davíðs Oddssonar borgarstjóra. Ný verkefni eru þó ætíð fyrir hendi. Nái ég kjöri til þess að eiga sæti í borgarstjórn mun ég sérstaklega beita mér í skólamálum, en auka þarf áhrif foreldra á stjórn skólanna og jafn- framt sjálfstæði einstakra skóla. Höfundur er bæstaréttarlögmaður. Númerað prófkjör — eftirBjörn Vernharðsson Þar. sem valin hefur verið sá kostur að hafa númerað prófkjör hjá Sjálfstæðisflokknum í Reykja- vík finnst mér ástæða til að benda sjálfstæðismönnum sérstaklega á þetta atriði. Það er ástæða til að ítreka það að Davíð Oddsson fái sýndan þann stuðning, sem hann á skilið, og að 1. sætið sé honum ætlað. Þetta atriði er mikilvægt; að Davíð fái ekki bara góða kosningu heldur góða kosningu í 1. sætið. Einnig er nauðsynlegt að benda á að 2. sætið er sæti forseta borgar- stjórnar. Magnús L. Sveinsson, formaður Verzlunarmannafélags Reykjavíkur, er nú forseti borgar- stjórnar og því er mikilvægt að hann fái örugga kosningu í 2. sætið. Þeir sem eru að biðja sjálf- stæðismenn að kjósa einhvern annan í 2. sætið eru í raun að biðja sjálfstæðismenn að víkja Magnúsi L. Sveinssyni úr forsetastóli, slíkt er ekki drengilegt þar sem hann hefur unnið mjög gott verk sem borgarfulltrúi og forseti borgar- stjórnar. Þetta er mikilvægt ekki bara fyrir borgarstjórann, Davíð Odds- son, og Magnús L. Sveinsson, sem forseta borgarstjórnar, heldur Þorskalýsi eða ufsalýsi frá Lýsi hf. heilsunnar vegna ARGUS40 (LYSI Lýsi hf. Grandavegi42, Reykjavík. Björn Vernharðsson „Einnig er þýöingarmik- ið að ekki sé eyðilagður atkvæðaseðill með því að setja annað en núm- eraröðina 1 til 8 eða 12.“ fyrir allan listann. Annað veikir heildarútkomu listans og er vatn á myllu andstæðinga flokksins í komandi kosningum í vor. Einnig er þýðingarmikið að ekki sé eyðilagður atkvæðaseðill með því að setja annað en númeraröð- ina 1 til 8 eða 12. Það er vonandi að Morgunblaðið birti góðar upplýsingar um próf- kjörið og framkvæmd þess þegar nær dregur, þannig að fólki sé auðvelduð þátttaka. Einnig er verðugt að taka það fram að stuðn- ingsmenn flokksins fá ekki að taka þátt i prófkjörinu nema að hafa undrritað inntökubeiðni, það er auðvelt að lagfæra. Að lokum er ástæða til að benda fólki á að góð þátttaka í próflcjöri verður góður vindur í seglin til sigurs í vor. Munið því Davíð Oddsson í 1. sæti og Magnús L. Sveinsson í 2. sæti og númer á hina, allt að 8 eða 12. Höfundur er markaðsstjóri hjá Raftækjarerksmiðjunni Rafha.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.