Morgunblaðið - 21.11.1985, Page 20
20
MORGUNBLADID, FIMMTUDAGUR 21. NÓVEMBER1985
Þórunn í þriðja sætið
— eftir Kristmann
Magnússon
Þórunn Gestsdóttir, formaður
Landssambands sjálfstæðis-
kvenna, gefur kost á sér í prófkjör
sjálfstæðismanna í Reykjavík, sem
fram fer um næstu helgi. Þess
vegna finn ég mig knúinn til að
skrifa þessa grein í blaðið. Þórunn
hefur víðtæka reynslu á vettvangi
stjórnmálanna og í atvinnulífinu
í Reykjavík. Hún hóf afskipti af
stjórnmálum fyrir nokkrum árum.
Þórunn hefur áður tekið þátt í
prófkjöri fyrir borgarstjórnar-
kosningar og er nú varaborgarfull-
trúi. Hún er varaformaður Æsku-
lýðsráðs Reykjavíkur og á sæti í
fjölmörgum nefndum á vegum
borgarinnar. Um þessar mundir
er hún formaður Landssambands
sjálfstæðiskvenna og tók við því
embætti síðastliðið sumar á lands-
þingi sambandsins á ísafirði af
Halldóru Rafnar, blaðamanni.
Sem formaður Landssambands
sjálfstæðiskvenna á hún sæti í
miðstjórn flokksins og situr m.a.
þingflokksfundi sjálfstæðis-
manna. Hefur Þórunn verið mjög
„Hvar sem hún hefur
beitt sér hefur hún getið
sér gott orð fyrir störf
sín, þrátt fyrir annir á
stóru heimili...“
virk innan Sjálfstæðisflokksins og
á öðrum félagsmálavettvangi, s.s.
innan Lionshreyfingarinnar. Auk
félagsmála hefur Þórunn eins og
áður segir tekið virkan þátt I at-
vinnulífinu, eigin atvinnurekstri
Þórunn Gestsdóttir
og síðastliðin fimm ár hefur hún
starfað sem blaðamaður. Hvar
sem hún hefur beitt sér hefur hún
getið sér gott orð fyrir störf sín,
þrátt fyrir annir á stóru heimili,
en hún er fimm barna móðir.
Þórunn er Reykvíkingur, vestur-
bæingur. Af kynnum mínum af
henni veit ég að henni er annt um
hag borgaranna, sem og borgar-
innar. Að atvinnulífið í borginni
blómstri, umhverfið sé mann-
eskjulegt og að borgararnir þrífist
vel bæði æskufólk og aldraðir.
Þórunn er sjálfstæðismaður í orði
og verki og því treysti ég því að
víðtæk reynsla hennar komi Reyk-
vlkingum til góða, ef hún nær kjöri
sem aðalmaður í borgarstjórn
Reykjavíkur.
Sem formaður Landssambands
sjálfstæðiskvenna hefur Þórunn
lagt áherslu á það núna í barátt-
unni fyrir prófkjörið að konur
skipi veglegan sess í öruggum
sætum á lista sjálfstæðisflokksins
I vor.
I
fjölmiðli íramtíðarinnar.
Islenska útvarpsíélagið hí.
er almenningshlutaíélag
með yíir 300 hluthafa.
Markmið félagsins er að
standa að útvarpsrekstri,
jaínt hljóðvarps sem
sjónvarps. Stefnt er að því
að hefja hljóðvarpsútsend-
ingar strax á vormánuðum
1986 að fengnu leyíi út-
varpsréttarneíndar. íbúar
á öllu Suðvesturlandi munu
ná útsendingum íslenska út-
varpsíélagsins.
Nú hyggst íslenska út-
varpsfólagið auka
hlutafó sitt um 10 milljóniz
króna.
Með því verður hlutaíé fé-
lagsins 15 milljónir króna.
Við bjóðum þér hlut í félag-
inu. Þannig verður þú þátt-
takandi í byltingu íjölmiðl-
unar á íslandi. Hlutur þinn
rœðst aí því hversu mikið
þú vilt og getur lagt fram.
Hlutabréíin eru gefin út í
stœrðum 1000, 10.000 og
100.000 krónur. Eitt atkvœði
fylgir hverjum 1000 króna
hlut. Hœgt er að greiða
hlutaféð með 6 mánaða
skuldabréfi.
^ÐS^1
Um leið og þú leggur þitt
af mörkum tryggir þú
arðsemi peninga þinna.
í rekstraráœtlun íslenska út-
varpsíélagsins* er gert ráð
fyrir 22,24% arðsemi hluta-
íjár. Þetta þýðir með öðrum
orðum það að fjáríesting
þín gœti skilað 22,24%
ávöxtun umfram verðbólgu
á fyrsta ári!
* Rekstraráœtlunln er unnln al
Endurskoðunarmiðstöðlnni hf. - N.
Manscher.
r
fjArfestingarfélag
ÍSLANDS HF
Halnarstrœti 7-101 Rvik, s. 28566 og 28466
Fjáríesting þín í Í.Ú. er
lika frádráttarbœr frá
skattskyldum tekjum*
Hún skilar því arði strax.
Einstaklingur getur dregið
allt að 25.000 krónum frá
skattskyldum tekjum. Hjón
mega draga allt að 50.000
krónum írá tekjum sínum."
* sbr. 1. no. 9/1984 og samþykktir
Ríkisskattstjóra.
•• Þessar tölur giltu árið 1984. Ekki
er ólíklegt að þœr hœkki um u.þ.b.
30% á þessu ári.
Bréfin eru seld hjá Fjár-
festingarfélagi íslands
hí. Haínarstrœti 7. Sölutími
er írá 14. nóvember -31.
desember 1985.
Allar nánari upplýsingar
um þetta útboð fást hjá
Fjárlestingaríélagi íslands.
ÍO mllljón króna
hlutafjárútboö
Þetta kjörtímabil hafa sjálf-
stæðiskonur sett svip sinn á störf
borgarstjórnar og svo verður að
vera áfram. Af þessu tilefni vil ég
sérstaklega benda kjósendum I
prófkjörinu á mikilvægi þess, að
sjálfstæðismenn geri sigur Sjálf-
stæðisflokksins veglegan í borgar-
stjórnarkosningunum í vor með
því að styðja konur í prófkjörinu
i sama mæli og karla. Vegna skoö-
ana Þórunnar og reynslu hennar
á þessum vettvangi ítreka ég
stuðning minn við athafnasama
og virka nútímakonu, sem formað-
ur Landssambands sjálfstæðis-
kvenna er. Þórunn í þriðja sæti á
prófkjörslistanum.
Höfundur er framkvæmdastjóri í
Reykjavík
JÁRNINGAR
OG HOFHIRÐA
Bók umjárning-
ar og hófhiröu
SKJALDBORG hefur gefið út bók-
ina Járningar og hófhirða eftir
Lars-Erik Magnusson í þýðingu
Guðmundar Jónssonar. Sérstakur
kafli er um sögu járninga á íslandi
og er Jón Guðmundsson frá Eiríks-
stöðum í Svartárdal höfundur hans.
Bókin fjallar um járningar og
hófhirðu, eins og nafnið bendir
til. Á bókarkápu eru tilfærð
ummæli Brynjólfs Sandholt, hér-
aðsdýralæknis, um bókina.: „Sí-
fellt fjölgar nýjum hestamönn-
um, sem þurfa á upplýsingum
að halda um meðferð hrossa
sinna, og er því útgáfa þessarar
bókar á íslensku mjög þörf. Bók-
in eykur þekkingu og skilning
« lesandans á mikilvægi og nauð-
syn réttrar hófhirðu og auðveld-
ar honum að meta, hvenær er
þörf að leita aðstoðar dýralæknis
eða járningameistara í þeim
efnum."
Bókin Járningar og hófhirða
er 208 blaðsíður með minnis-
blöðum og orðalista. Bókin er
unnin í Prentsmiðju Björns Jóns-
sonar.