Morgunblaðið - 21.11.1985, Qupperneq 21
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 21. NÓVEMBER1985
21
Tveir ungir
frambjóðendur
— eftirGeirH.
Haarde
í komandi borgarstjórnarkosn-
ingum veltur á miklu að framboðs-
listi sjálfstæðismanna verði skip-
aður dugandi fólki, sem standa
mun þétt að baki borgarstjóra við
stjórn borgarinnar en getur jafn-
framt haft frumkvæði í málum
jar á þarf að halda.
því prófkjöri sem fram fer um
næstu helgi bjóða sig fram óvenju
margir einstaklingar, sem Sjálf-
stæðisflokknum og borgarbúum
öllum yrði sómi að af hafa sem
fulltrúa sína í borgarstjórn
Reykjavíkur. Það er því ekki auð-
velt verk að gera upp á milli fram-
bjóðenda og raða þeim i sæti.
Ég vil þó leyfa mér að vekja
athygli á tveimur frambjóðendum,
sem ég þekki af löngu og góðu
samstarfi innan raða ungra sjálf-
stæðismanna. Þetta eru Anna K.
Jónsdóttir varaborgarfulltrúi, sem
gegndi starfi varaformanns í
Sambandi ungra sjálfstæðis-
manna á síðasta kjörtímabili og
Árni Sigfússon rekstrarráðgjafi,
sem var formaður Heimdallar í tvö
ár og var auk þess framkvæmda-
stjóri SUS um hríð sem og full-
trúaráðs sjálfstæðisfélaganna i
Reykjavík.
Báðir þessir ungu frambjóðend-
ur hafa aflað sér mikillar reynslu
i starfi innan flokksins og i al-
mennu félagsstarfi og hvarvetna
getið sér gott orð.
Árni Sigfússon var formaður
Heimdallar haustið 1981 þegar
gengið var til sögulegs SUS-þings
á ísafirði. Hann hafði nokkrum
mánuðum áður verið kjörinn for-
maður stærsta félags ungra sjálf-
stæðismanna með glæsibrag á
fjölmennasta aðalfundi i sögu fé-
lagsins. í formannsstarfi mfnu
hjá SUS var afar mikilvægt að
eiga Árna að samstarfsmanni
enda höfðum við mikil samskipti,
ekki sízt efir að hann varð fram-
kvæmdastjóri sambandsins. Að-
stæður voru um margt óvenjulegar
á þessum tima, m.a. vegna mis-
munandi afstöðu sjálfstæðis-
manna til þáverandi ríkisstjórnar
en ágreining tókst með timanum
að jafna og mikil eindrægni hefur
rikt innan samtakanna undanfarin
ár. Árni átti stóran hlut að þvi að
svo fór og ávann sér hvarvetna
mikið traust með framkomu sinni
og störfum. Það er ánægjulegt hve
stuðningur við hann f prófkjörinu
nú er viðtækur þótt það komi ekki
þeim á óvart sem til þekkja.
Anna K. Jónsdóttir lyfjafræð-
ingur var kjörin í stjórn SUS
haustið 1981 og varð snemma einn
af máttarstólpum í starfinu. Fyrir
SUS-þingið 1983 hafði hún forystu
um að marka stefnu ungra sjálf-
stæðismanna varðandi nýjar at-
vinnugreinar á sviði örtölvu- og
hátækniiðnaðar og bar ábyrgð á
málaefnaundirbúningi fyrir þingið
að þessu leyti. Þingið var að veru-
legu leyti helgað þessum málum
undir kjörorðinu „Afl nýrra tíma“
og var hið glæsilegasta eins og
undirbúningur stóð til. Anna hlaut
mikið lof fyrir sfna aðild að þing-
inu og var kjörin annar af varafor-
mönnum samtakanna að þinginu
loknu. Hún hefur einnig átt sæti
í borgarstjórnarflokki sjálfstæðis-
manna frá 1982 sem varaborgar-
fulltrúi og tekið þar að sér ýmis
trúnaðarstörf. Þar hefur hún haft
frumkvæði að þvi að leita nýrra
lausna á ýmsum vandasömum
málum svo sem dagvistarmálum.
Af kynnum minum og samstarfi
við önnu K. Jónsdóttur og Árna
Sigfússon treysti ég mér til að
fullyrða að þau myndu sóma sér
vel sem fulltrúar Sjálfstæðis-
flokksins í borgarstjórn Reykja-
víkur og að mikill fengur yrði að
starfskröftum þeirra þar.
Höfundur er adstoðarmadur fjár-
málaráðherra og rar formaður
Sambands ungra sjálfstæðismanna
1981-85.
„Af kynnum mínum og
samstarfi við Önnu K.
Jónsdóttur og Árna Sig-
fússon treysti ég mér til
að fullyrða að þau
myndu sóma sér vel sem
fulltrúar Sjálfstæðis-
flokksins í borgarstjórn
Reykjavíkur og að mikill
fengur yrði af starfs-
kröftum þeirra þar.“
Geir H. Haarde
Anna K. Jónsdóttir
Arni Sigfússon