Morgunblaðið - 21.11.1985, Qupperneq 24
24
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 21. NÓVEMBER1985
'Atáltö#-
UMSJON JÓN ÓLAFSSON
Bekkjar-
keppni
í mælsku-
list
Litið við í Verzló
„Ég get aldrei haldið
ræðu,“ er setning sem
margir hafa tautað í barm
sér. Jafnmargir hafa komið
sjálfum sér á óvart með
ágætri frammistöðu í
ræðumennsku hvers konar.
Gildir þá einu hvort um er
að ræða stutta þakkarræðu
í 10 manna samkvæmi eða
á 500 manna málfundi í
stórum sal.
Sá sem þetta ritar hélt
að það myndi líða yfir hann
er fyrst var stigið í
ræðustól. Ræðan var ekki
nema 2 mínútna löng í
mesta lagi en varaði sem
eilífð. Loftslagið þynntist
hreint ótrúlega á þessum 2
mínútum. Alla vega fannst
greinarhöfundi það.
Nokkrum vikum síðar
var önnur ræðan flutt. Það
var líka erfitt en ekki eins.
Sú þriðja var aðeins léttari
og í þeirri fjórðu var líðanin
mjög góð. Þetta leiddi til
þess að það að halda ræðu
varð að ávana og munaði
minnstu að
greinarhöfundur yrði
sendur í meðferð og
kannski ekki að furða.
Haldandi ræður, oftast
óbeðinn í tíma og ótíma,
bara vegna þess að líðanin
var svo góð á meðan.
Áheyrendur hreinlega liðu
fyrir að vera nærstaddir.
Með hálp góðra manna
tókst þeim sem þetta ritar
að venja sig af þessu. „Allt
er best í hófi, það er okkar
trú,“ sungu Stuðmenn og
það eru orð að sönnu.
Ræðumennska er iðkuð
af kappi í framhaldsskólum
landsins og er þaö vel því
fáar íþróttir eru jafn
þroskandi. Hún stuðlar að
betra málfari, auknu
sjálfstrausti og þroskar
dómgreind.
Ræðunámskeið eru
haldin í skólum og
leiðbeina þá færir menn og
reyndir. Skólarnir keppa
sín á milli í
MORFÍS-keppninni sem er
fjölmennasta keppnin.
Allskyns aukakeppnir,
innanskólakeppnir og
málfundir fara fram í
hverjum skóla.
Bekkjarkeppni í
mælskulist hófst í
Verzlunarskólanum á
mánudagskvöld og var þar
líf og fjör.
Blm. og maðurinn með
myndavélina kíktu inn.
„Fengum frí í bók-
færslu og íslensku"
- segir Anna Þ. Þorgrímsdóttir, ræðumaður kvöldsins
„Undirbúningur okkar í 3D fyrir þessa
keppni var langt frá því að vera fullnægj-
andi. Okkur langaði samt að vera með svo
við bara slógum til þó við hefðum aðeins
eytt 2 klukkustundum í að semja ræður
okkar,“ sagði ræðumaður kvöldsins, Anna
Þorbjörg Þorgrímsdóttir.
„Við fengum frí í bókfærslu og íslensku
í dag og páruðum eitthvað niður á blað á
bókasafninu. Við höfðum því miður ekki
meiri tíma en það var samt gaman að
þessu," sagði Anna ennfremur.
Þú hefur greinilega farið upp í pontu
áður. Hvenær?
„Það var bara nokkrum sinnum í Kópa-
voginum þegar ég var í Þinghólsskólanum."
Hvernig er góður ræðumaður?
„Fyrst og fremst eðlilegur og sannfær-
andi. Ekki endilega eins og þeir sem koma
úr JC sem oft vilja verða svo formlegir og
óeðlilegir. Svo eru það hreinar línur að
maður verður helst að segja eitthvað snið-
ugt í hverri ræðu til að öðlast athyglina
óskipta," sagði þessi snöfurmannlega snót
að síðustu.
Elsku besta rúsínan mín“
99
Ræðumenn veittu góðfúslega
leyfi fyrir því að birtar yrðu glefs-
ur úr ræðum þeirra. Hér eru nokk-
ur sýnishorn úr ræðu önnu Þ.
Þorgrímsdóttur:
„Hvernig dettur ykkur annars í
hug að 18 ára unglingur hafi
nægan þroska til að kjósa. Þetta
er persóna vart af barnsaldri. Útlit
skiptir miklu máli á þessum árum
og algengt myndi að heyra: „Oh,
kosningar og hvern á ég nú að
kjósa. Ah, auðvitað Svavar Gests-
son, hann er með svo falleg augu.“
- O -
„Þið viljið meiri erlenda skulda-
söfnun með auknum kostnaði í
heilbrigðiskerfinu. Þið viljið að
einkaframtakið verði drepið niður,
því t.d. bíóhúsin fara öll á hausin
þegar banna á myndir eins og
Brot úr ræðum
Gremlins innan átján. Og þið viljið
að lögleysa fái að blómstra m.a.
þegar píurnar yrðu ekki lögráða
fyrr en tveimur árum seinna en
nú er. Þó er þjófstartað í mörgu
horni í dag. Eruð þið kannski á
móti kynlífi, kannski hræddir?"
Andri Þór Guðmundsson beindi
orðum sínum að andmælendum
tillögunnar meðal annars á þennan
hátt:
„í Guðs bænum verið ekki að
flíka þessum vanþroska ykkar. Það
er jú fólk að hlusta á ykkur. Takið
frekar mark á okkur er við segjum
að það sé öllum fyrir bestu að
samræma aldursmörk hinna ýmsu
skylda og réttinda í 18 ár. Þið
viljið það kannski ekki því að þá
fáið þið bílprófið ári seinna. Jú,
þið látið eiginhagsmuni ganga
fyrir almenningsheill."
- O -
„Kæru andmælendur: Þið sögð-
uð að lækka aldurstakmörk í vín-
veitingahús og í Ríkið munu auka
enn á áfengisvandann. Blessuð lá-
tið ekki eins og einhver J. Helga-
son!“
Loks komst Heimir Jónasson
einhverju sinni svona að orði:
„Hjördís, rúsínan mín. Þú segir
að ég hefði hvort sem er klesst
þessa bíla 18 ára. En elsku, besta
sveskjan mín, þá er ég orðinn svo
þroskaður að ég lendi ekki í svona
rugli."
Að mörgu
að hyggja
Það eru sjö atriði sem dóm-
arar í keppni sem þessari
þurfa að taka til greina þegar
ræðumönnum eru gefin stig.
Ræðutími, framkoma, sann-
færing, rökfesta, svör við
rökum mótherja, uppbygging
ræðu og rétt íslenskt mál.
Fari ræðumenn út fyrir tíma-
takmörk þau sem þeim eru
sett fyrir hverja ræðu eru
dregin frá stig f.vrir hverja
sekúndu. 3jubekkingunum f
þessari keppni tókst ekki
betur upp en svo að aðeins í
1 af 6 ræðum fengu þau ekki
frádrátt út af þessu atriði.
Það munar um minna!