Morgunblaðið - 21.11.1985, Page 39
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 21. NÓVEMBER1985
39
Morgunblaðift/Tobbe Guatavasson
KARL Gústav Svíakonungiir afliendir Sigurði Guðmundssyni myndiistarmanni Eugen-orðuna í Konungshöliinni
í Stokkhólmi. Fjölskyida listamannsins var viðstödd: eiginkona Ineke, börnin Katrín, Árni og Tómas og
tengdadóttirin Yvette.
Svíakonungur sæmir Sigurð
Guðmundsson Eugen-orðunni
Stokkhólmi, 20. nóvember. Frá Erik Liden, fréUaritara Morgunblaósins.
KARL Gústav Svíakonungur sæmdi
í gær íslenskan myndlistarmann,
Sigurð Guðmundsson, Eugen-
orðunni fyrir framlag hans til list-
sköpunar. Var orðan veitt við hátíð-
lega athöfn í konungshöllinni í
Stokkhólmi.
Sigurður er fjórði fslendingur-
inn, sem hlýtur þessa viðurkenn-
ingu Svíakonungs. Áður hefur
hann heiðrað Einar Jónsson, Jó-
hannes Kjarval og Erró með sama
hætti. Eugen-orðan er æðsta við-
urkenning, sem Svíar veita lista-
mönnum. Hún er kennd við Eugen
prins og til hennar var stofnað af
Gústav V þegar Eugen varð átt-
ræður 1. ágúst 1945. Orðan, sem
er veitt einu sinni á ári, fellur í
hlut þriggja sænskra listamanna
og eins frá hverju hinna Norður-
landanna.
Sigurður Guðmundsson, sem var
einn helsti forvígismaður SÚM-
hreyfingarinnar hér á landi, á
sjöunda áratugnum, hefur verið
búsettur í Amsterdam í Hollandi
undanfarin ár. Nýlega er þar
komin út listaverkabók eftir hann,
sem nefnist With Landscape. Bók-
in er viðhafnarútgáfa með skáld-
legum texta eftir höfundinn sjálf-
an og 20 viðhafnarteikningum eftir
hann að auki. Teikningar þessar
eru um þessar mundir til sýnis á
galleríinu Bama í París, en síðar
verður hluti þeirra sýndur í
Slunkaríki á ísafirði og í Gallery
Riis í Osló.
Listaverkabók Sigurðar er
saumuð og bundin inn í náttúruhör
og bókartitill er silkiprentaður.
600 eintök eru prentuð á hollensku
og 400 á ensku. Unnt er að kaupa
bókina fyrir milligöngu nokkurra
bókaverslana í Reykjavík og fylgir
þeim íslensk þýðing á texta höf-
undar.
Bókin verður kynnt og seld með
kynningarafslætti í Bókaverslun
Snæbjarnar í Hafnarstræti milli
kl. 17 og 18 í dag, fimmtudag.
Gallerí Borg:
Sýning á skipulags-
tillögum Kvosar-
innar opnar f dag
SÝNING á skipulagstillögum Kvos-
arinnar eftir arkitektana Dagnýju
Helgadóttur og Guðna Pálsson verð-
ur opnuð í dag í Gallerí Borg við
Pósthússtræti. Á sýningunni verður
sýnt líkan, teikningar og kort af
svæðínu, sem afmarkast af Geirsgötu
að norðan, Lækjargötu að austan,
Aðalstræti að vestan og Tjörninni
að sunnan.
Að sögn Vilhjálms Þ. Vilhjálms-
sonar, formanns skipulagsnefnd-
ar, samþykkti nefndin á fundi
sínum 14. október síðastliðinn að
gefa almenningi kost á að kynna
sér þessar skipulagstillögur, sem
lagðar hafa verið fram í skipulags-
nefnd og borgarráði. „Við vonumst
til þess að með þessum hætti geti
borgarbúar fengið innsýn í þá
vinnu sem unnin hefur verið varð-
andi skipulag gamla miðbæjarins
og eins látið í ljósi viðhorf sín til
þessara skipulagshugmynda,"
sagði Vilhjálmur.
Sýningin verður opin í viku og
á föstudag og' laugardag verða
fulltrúar borgarskipulags og
skipulagshöfundar á sýningunni
til að svara fyrirspurnum.
Líkan af skipulagstillögum Kvosar-
innar, sem verður ásamt teikningum
og kortum til sýnis á sýningunni í
Gallerí Borg. Á myndinni eru Vil-
hjálmur Þ. Vilhjálmsson, formaður
skipulagsnefndar (t.h.), og Þorvaldur
Þorvaldsson, forstöðumaður Borgar-
skipulags.
Árleg kynning
Modelsam-
takanna í kvöld
MODELSAMTÖKIN halda ár-
lega kynningu á starfsemi sinni
í kvöld í veitingahúsinu Broad-
kynningunni koma fram
40 model og verða þau kynnt
og sýndur verður fatnaður frá
ýmsum verslunum. Meðfylgj-
andi mynd var tekin á æfingu
sl. sunnudag.
Mýyatnssveit:
Sandfok á Akranesi:
Hundruð tonna af sandi
eru á götum og lóðum
Akranesi, 20. nóvember.
MIKIÐ sandfok var af Langasandi
í óveðrinu um síðustu helgi og var
víða Ijótt um að litast á lóðum og
götum í næsta nágrenni. Sandfok
hefur aukist mikið á undanfornum
árum og kenna menn að mestu um
breytingum á hafnargarði vegna
hafnarframkvæmda, sem hafi áhrif
á sandinn.
Sandurinn hefur hækkað mikið
og nú er hægt að ganga á fjöru
alveg eftir Faxabrautinni neðan
við Sementsverksmiðjuna. Þeir
íbúar sem verst hafa farið í þessu
sandfoki búa við Jaðarsbraut og
Sandabraut og er þetta mjög til-
finnanlegt tjón því erfitt reynist
að hreinsa sandinn upp svo vel sé.
Þá verður íþróttavallarsvæðið illi-
lega fyrir barðinu á sandfokinu og
ljóst er að einhverjar ráðstafanir
verður að gera til að sporna við því.
Daníel Arnason, bæjartækni-
fræðingur, sagði í viðtali við Morg-
unblaðið, að hundruð tonna af
sandi hefðu borist upp á lóðir 1
nágrenni Langasands og menn
muni ekki eftir svo miklum sand-
burði áður. Sandurinn er alltaf að
hlaðast meira og meira upp að
bökkunum og þorna, þar sem hann
nær ekki að fara undir sjó og
blotna á flóði. Fýkur hann í vax-
andi mæli upp á Skagann.
Miklar breytingar hafa orðið á
sandinum nú á síðustu árum og
menn hafa komið með ýmsar skýr-
ingar á því, meðal annars byggingu
■
hver niðurstaða fundin þá,“ sagði
Daníel. jg
Nýr barnaskóli
í byggingu
Mývatnssvcit, 18. nóvember.
NÝLEGA var byrjað að taka fyrir
grunn barnaskóla í Reykjahlíð. Er
skólinn staðsettur skammt fyrir
austan sundlaugina. Þetta verður
mikil bygging. Núverandi skóla-
húsnæði í Reykjahlíð var orðið
allt of lítið, enda byggt á sínum
tíma sem íbúðarhús, en síðan var
reist viðbygging við húsið fyrir
fáum árum.
Kristján.
Nafn féll niður í myndatexta
ÞAU leiðu mistök urðu í frétt um
tækjagjöf til Háls-, nef- og eyrna-
deildar Borgarspítalans í gær, að
niður féll nafn annars tveggja manna
á myndinni, sem fréttinni fylgdi.
Réttur er textinn þannig: Gef-
andinn Karl Lúðvíksson (t.v.)
ásamt Páli Stefánssyni lækni, sér-
fræðingi í ofnæmisfræði, en hann
starfar við deildina.
Morgunblaðið biðst velvirðingar
á þessum mistökum.
Sandurinn hefur hlaðist upp á götunum á Akranesi.
Morgunblaftift/Jón Gunnlaugsson
sjóvarnargarða við höfnina. En
það er erfitt að sanna, að það sé
orsök breytinganna. Daníel sagði,
að eldri menn hefðu sagt sér, að
svona breytingar hafi áður orðið á
sandinum, svo þetta væri ekki
einstakt fyrirbrigði. Aðspurður
hvort eitthvað væri hægt að gera
til að sporna við þessu, sagði
Daníel, að gerðar hefðu verið til-
raunir með sandgirðingar og eins
og, sá melgresi í bakkann. Ekki
væri komin nógu mikil reynsla til
að dæma um árangur af þeim
aðgerðum. „Vissulega er um mikið
tjón að ræða og til einhverra ráða
verður að grípa. Hús eru mikið
skemmd, bæði gler og málning, svo
og stálklæðningar utan á húsum.
Þessi vandi verður ræddur á bæj-
arráðsfundi næstkomandi
fimmtudag og vonandi verður ein-