Morgunblaðið - 21.11.1985, Page 42
42
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 21. NÓVEMBER1985
Einu sinni var
ástarævintýri ...
Kvikmyndir
Árni Þórarinsson
Háskólabíó: Ástarsaga — Falling in
Love irkVi
Bandarísk. Árgerft 1985. Handrit:
Michael Cristofer. Leikstjóri: Ulu
Grosbard. Aðalhlutverk: Robert De
Niro, Meryl Streep, Harvey Keitel.
Leiðir tveggja einstaklinga sker-
ast, liggja saman um hríð og skilur
svo á ný. Ástarsögur af þessu tagi
eru legíó. Ástarsögur af þessu tagi
sem hafa járnbrautarlest að fund-
arstað elskendanna eru líka legíó.
Það er því vandi Falling in Love
að vera ofur venjuleg. Maður hefur
heyrt þetta, séð og lesið oft áður.
En eins og nafngift myndarinnar
bendir til hafa höfundar hennar
gert sér þetta ljóst. Þeir hreinlega
leggja upp úr hinu venjulega.
Falling in Love er venjuleg saga
um venjulegtfólk.
Þessa afstöðu til efnisins móta
handritshöfundur og leikstjóri
með skemmtilegum hætti í upp-
hafi myndarinnar þegar þeir
klippa saman samsvarandi atvik
SNIDUGUR
■WRSIUt
Fullkomið SHARP videotæki á 38.950. - stgr..
Loksins kemur tækifærið sem þú hafðir vit á að bíða eftir:
NokkurSHARP VC-385 videotækiá hlægilega lágu tilboðsverði.
Nú verðurþú að hafa hraðann á nema að þú elskir nágrannann mjög heitt.
Þú geturþá kannski heimsótt hann og nýja SHARP videotækið hans á
morgun (með spólu í vasanum).
• Framhlaðið • Kyrrmynd með lágmarks truflun • Sjálfvirkspilun spólusem
upptökulás er brotinn úr • Leitarsjálfkrafaaðmyndáspólu • Myndleitun (x10)
íbáðaráttir • 7 daga upptökuminni • Stillirfyrir myndskerpu • Spólar
sjálfkrafa til baka • Stórir litaðir hnappar sem auðvelda notkun
• 8 liða þráð-fjarstýring • Verð aðeins
38,950.- stgr.
HLJOMBÆR
HVERFISGÖTU 103 SÍMI 25999
Ósköp venjulegir elskendur -
Robert De Niro og Meryl Streep í
Falling in Love.
og viðbrögð persónanna tveggja
sem þá hafa ekki enn hist en eru
sífellt í námunda hvort við annað.
Þau Frank og Molly búa á sömu
lestarleið. Hann er byggingaverk-
fræðingur en hún er myndlistar-
maður. Þau rekast svo á fyrir
staka tilviljun þegar þau eru að
kaupa jólagjafir í New York og
pakkarnir víxlast. Þegar þau hitt-
ast aftur fyrir staka tilviljun í
lestinni hefst kunningsskapur sem
þróast í vináttu sem þróast í ástar-
samband. Allt þetta hefði nú verið
gott og blessað ef þau Frank og
Molly væru ekki bæði hamingju-
samlega gift öðru fólki.
Þessi einfalda saga er á margan
hátt vel og smekklega sögð, með
þeirri hlýju og kímni sem róman-
tískar kómedíur þurfa á að halda.
I henni eru fjölmörg atriði sem
rifja upp aðrar sögur, aðrar mynd-
ir. Til dæmis er atriðið þegar Molly
er að klæða sig upp fyrir fyrsta
alvarlega stefnumótið og veit
ómögulega hvernig hún á að vera.
Nákvæmlega eins og sams konar
atriði með Bibi Andersson úr ást-
ardramanu Snertingin eftir Ing-
mar Bergman. Falling in Love
væri á hinn bóginn bara venjuleg
ef ekki kæmu til óvenjulega góðir
leikarar í hlutverkum hinna venju-
legu söguhetja. Robert De Niro og
Meryl Streep eru með mestu
galdramönnum í bandarískri leik-
arastétt og þau ná að setja tilfinn-
ingahita í ástarævintýrið sem
kemur áhorfanda til að láta sér
þykja vænt um persónurnar. Þetta
hafa þau reyndar áður gert en með
öðrum hætti í myndinni The Deer
Hunter. Falling in Love stendur
og fellur með frammistöðu þeirra.
Þau bregðast ekki, þótt De Niro
takist ekki að ljá Frank sérstak-
lega eftirminnileg eða skýr per-
sónueinkenni. Streep fær hins
vegar að sýna á sér nýja hlið og
notar tækifærið vel. Hún var orðin
innlyksa í týpunni „leyndardóms-
full kona með erfiða fortíð". í
Falling in Love leikur hún á allt
aðrar nótur og myndin er sýning-
arskápur fyrir fyrsta flokks leik-
tækni. Megineinkenni hennar er
einmitt góð tækni sem tekst að
draga athygli frá stöðlun sögunnar
á meðan á sýningunni stendur.
Fé flutt á Hólmavík
Bæjum, Sna'fjalla-strond, 9. nóvembor.
Þar sem hinn nýi vegur yfir
Steingrímsfjarðarheiði hefur nú
opnað leiðir yfir stóran fjallgarð
þótti þeim er næst við búa heill-
andi að láta flytja sláturfé sitt til
Hólmavíkur, svo ekki er nema um
rúma klukkutímakeyrslu að ræða,
og var þar slátrað úr Nauteyrar-
og Snæfjallahreppum, á vegum
Kaupfélags ísfirðinga 2.722 dilk-
um og 165 rosknum kindum, láta
menn vel af þeirri nýbreytni, að
losna við sjóflutning á fénu, og
gekk þessi fyrsta tilraun með
ágætum vel.
Jens í Kaldalóni
| raöauglýsingar — raöauglýsingar — radauglýsingar
Sjálfstæðiskonur Borgarfirði
Aðalfundur
Sjálfstæöisfélag Borgarfjaröar heldur aöalfund mánudaglnr 25. nóv.
kl. 21.00 í húsi félagsins Drangar braut 1.
Dagskrá:
1. Venjuleg aöalfundarstörf.
2. Önnurmál
Konur mætiö vel og stundvíslega.
Stiórnin.
Vestmannaeyjar
Sjálfstæöiskvennafélagiö Eygló, aöalfundur verður laugardaginn 22.
nóv i Hallarlundi kl. 14.00.
Dagskrá: Venjuleg aöalfundarstörf. Flokksstarfiö.
Stjórnln.
Akurnesingar —
Morgunfundur
Fundur um bæjarmálefni veröur haldinn i sjálfstæöishúsinu viö Heiöar-
geröi, sunnudaginn 24. nóvemberkl. 10.30. BæjarfulltrúarSjálfstæöis-
flokksins mæta á fundinn.
Siálfstæðisfélögin Akranesi.
Sjálfstæðiskvennafélag
ísafjarðar
Fundur þriöjudaginn 26. nóvember nk. kl.
21.00 ísjálfstæöishúsinu 2. hæö.
Dagekrá:
I lok kvennaáratugar: 'Hvaö hefur áunnlst?"
‘Hvaö er framundan?"
Frummælendur: Björg Einarsdóttir, Reykja-
vík. Slgrún C. Halldórsdóttir, isafiröi. Kolbrún
Halldórsdóttir, ísafiröl.
Umræður, Kaffiveitingar. Félagskonur fjöl-
menniö og takiö meö ykkur gesti.
Stjórnln.