Morgunblaðið - 21.11.1985, Blaðsíða 44
44
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 21. NÓVEMBER1985
Meðan Junior
Wellsvará
sviðinu gat
enginn látið
sér leiðast.
Voðfellt og glitrandí tók veitinga-
húsið Broadway á móti gestum
sínum á miðvikudagkvöldið. Það
gerir það reyndar öll kvöld, en að
þessu sinni voru ekki ballgestir á
ferð, heldur íslenskt blúsáhuga-
fólk. Það fjölmennti strax um níu-
leytið og var orðið mjög erfitt að
finna sæti og þó átti eftir að fjölga
töluvert þann klukkutíma sem leið
áður en gleðin hófst.
Tilefnið var þetta: Fulltrúar
hins allra besta á sviði blústón-
listar komu fram í Broadway
þetta kvöld á vegum Jazzvakn-
ingar. Tvær blússtjörnur voru í
fararbroddi, gítaristinn og
söngvarinn Buddy Guy og munn-
hörpuleikarinn og söngvarinn
Junior Wells. Með þeim lék fjög-
urra manna hljómsveit, skipuð
gítaristunum George Bazemore
og Albert Allen, bassaleikaran-
um Noel Nealy og trommaranum
Jerry Porter. nafnið: The
Chicago Blues Band.
Fjórmenningarnir síðast-
nefndu stigu á svið upp úr tíu
við fögnuð viðstaddra og var þá
hvert sæti skipað í húsinu og vel
það. Eftir dálítið kynningarstef
og umræður um menn og málefni
á blússviðinu sviptu þeir sér í
„Kansas City“ og hið eiginlega
blúskvöld var hafið. Það var ljóst
frá upphafi að hér voru á ferð
heimamenn í ríki blúsins og stóð
hljómsveitin vei fyrir sínu
stjörnulaus með öllu. Gítarist-
arnir sungu og þöndu gítarana
Bassaleikarinn Noel Nealy spilaði fönk-
bassa á heimsvísu.
Junior Wells hlaðinn orku og Buddy Guy með tilfinninguna
á hreinu.
Blúsbræður í miklum ham.
Junior Wells og blés aftur pínu-
lítið í munnhörpuna en einhvern
veginn virtist hann ekki alveg í
sambandi við hana þetta kvöld,
lék aðeins á hana stutt í einu,
en þegar það gerðist leyndi sér
ekki að þau voru ansi góð saman,
Júníorinn og harpan. Enda
munnharpa með „blárri" hljóð-
færum að upplagi.
Þetta var mjög velheppnað
blúskvöld enda valinn maður í
hverju rúmi og blúsinn á mikil
ítök meðal landsmanna, ef marka
má þá góðu aðsókn og þær góðu
viðtökur sem þessir frábæru
blúsbræður fengu. Og ef ekki má
marka það, þá er nú vandséð
hvað marka má í þessu sam-
bandi.
Áreiðanlega hafa nokkrar vel
þegnar og verðskuldaðar krónur
klingt í kassa Jazzvakningar
þetta kvöld og víst er að ekki var
vanþörf á eftir stórræðin öll á
þessu glæsilega afmælisári fé-
lagsins. Að svo mæltu bendi ég
á meðfylgjandi myndir Ragnars
Axelssonar máli mínu til stuðn-
ings og þakka Jazzvakningu fyrir
góða skemmtun. SIB.
Junior Wells biður um orðið og blæs f hörpuna góðu.
til skiptis af miklum krafti og
tilfinningu. Ekki veit ég hvor var
Allen og hvor Bazemore, en
annar var áberandi hávaxinn, en
hinn ekki áberandi hávaxinn svo
auðvelt var að þekkja þá í sundur
í sjón.
Það var keyrt á fullu frá fyrsta
lagi og í blús númer tvö var blóð-
hitinn orðinn slíkur að eitthvað
varð undan að láta og E strengur
Kúts hins lága hrökk í sundur.
Kútur lét það ekki á sig fá og
var hrein unun á að horfa er
hann öldungis fumlaust skipti
um streng á mettíma í miðju
lagí, rétt á meðan Kútur hái söng
eins og eitt vers.
Svo var komið að stjörnunum.
Fyrst bættist Buddy Guy í hóp-
inn, sté á svið, kom sér fyrir á
því, fremst fyrir miðju, skrýddist
dökkbláum gítar, lygndi aftur
augunum þar sem hann stóð dá-
lítið gleiður og töffaralegur og
gerði grein fyrir eðli málsins með
nokkrum hnitmiðuðum frösum.
Guy spilar og syngur eins og
sá sem valdið hefur. Tæknilega
séð er hann ekkert sérstakur
gitarleikari, en það skiptir bara
engu máli í þessu tilfelli, vegna
þess að það er einlægnin sem
skiptir sköpum og Buddy Guy
virðist vera af þeim skóla hljóm-
listarmanna þar sem menn
meina það sem þeir spila eins og
allir félagar hans þetta kvöld.
Gítarhandverksmaður eins og
Tommy Tedesco hefði fengið
menningaráfall.
Leikin voru þekkt blúslög og
viðstaddir tóku undir í viðlögum
sem þeir þekktu. Svo kom að því
að hin stjarna kvöldsins lét sjá
sig. í glansandi jakkafötum og
með vígalegan hatt á höfði birtist
Junior Wells á sviðinu, hlaðinn
orku. Hann spilaði nokkra mikil-
væga tóna á munnhörpu sína og
söng síðan. Þá hafði hann í
frammi sérlega skemmtilega til-
burði til að stjórna leik hljóm-
sveitarinnar. Meðan hann var á
sviðinu gat enginn látið sér leið-
ast.
Eftir alllangt hlé hófst leikur-
inn á ný eins og í upphafi. The
Chicago Blues Band spilaði eitt
og óstutt og byrjaði á Rolling
Stoneslaginu „Miss you“ og eftir
fáein hvatningarorð frá Kúti
hinum háa drifu margir sig upp
á danspall og tjáðu sig í dansi.
Það var reyndar einn af hápunkt-
um kvöldsins þegar Junior Wells
brá sér einn út á dansgólfið um
stund fyrir hlé eins og til að losa
sig við umframorku. En núna var
sem sagt komið að tónleikagest-
um.
Það bar til tíðinda í þessu
ágæta lagi að bassaleikarinn
Nealy tók geysiöflugt sóló og
drap þá óspart á með þumlinum.
f fúlustu alvöru hefur annað eins
rafbassasóló varla sést eða
heyrst á þessu landi áður.
Eftir nokkur blússtef í viðbót
mætti Buddy Guy til leiks á ný
og flutti m.a. „Dust My Blues"
eftir Elmore James með eftir-
minnilegum hætti. Síðan kom
sem meina það
sem þeir spila
Buddy Guy,
Junior Welís og
félagar f Broadway
Menn
Egilsstaðir:
Húsfyllir hjá Tónlistar-
félagi Fljótsdalshéraðs
KgilsstöAuni, 17. nóvember.
TÓNLISTARFÉLAG Fljótsdalshér-
' aós efndi til sinnar árlegu fjölskyldu-
skemmtunar í dag og þrátt fyrir
slagveóursrigningu var húsfyllir og
hvert sæti setið í samkomusal
Menntaskólans á Egilsstöóum.
Það hefur verið siður undan-
gengin ár að Tónlistarfélag Fljóts-
dalshéraðs efni til fjölskyldu-
skemmtunar í nóvember, þar sem
sitthvað hefur verið til skemmtun-
ar.
í dag lék nýstofnuð skólahljóm-
sveit Egilsstaða undir stjórn
Magnúsar Magnússonar, en
grunnskólinn og tónskólinn á Eg-
ilsstöðum stóðu að stofnun hljóm-
sveitarinnar fyrir réttu ári. Þá
léku tveir nemendur Tónskóla
Fljótsdalshéraðs á píanó, þær
Vigdís Viggósdóttir og Jónína
Einarsdóttir, auk þess sem nokkrir
félagar úr Félagi harmonikkuunn-
enda á Fljótsdalshéraði þöndu
dragspil sín við góðar undirtektir
samkomugesta.
Milli skemmtiatriða gæddu
gestir sér á heimabökuðu hnoss-
gæti og kaffi við landsþekkta
píanótóna Árna ísleifs. Að lokum
var spilað „bingó".
Allur ágóði af skemmtun þessari
rennur til starfsemi Tónlistarfé-
lags Fljótsdalshéraðs, sem hefur
Skólahljómsveit Egilsstaða
verið gróskumikil undangengin ár. listarfélags Fljótsdalshéraðs.
Olöf Blöndal er formaður Tón- _ ólafur