Morgunblaðið - 21.11.1985, Blaðsíða 49
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 21. NÓVEMBER1985
49
í hretviðri
þurfum
við skjól
— eftir Guðjón B.
Baldvinsson
Hvad get ég gert?
Er það ekki spurning miðaldra
kynslóðar, þegar foreldrar hennar
búa við erfið og ófullnægjandi
húsnæði, sem íþyngja bæði lík-
amskröftum og efnahag?
Við heimtum aðgerðir af hálfu
samfélagsins til að búa öldnum
borgurum húsaskjól við hæfi síð-
ustu æviárin. Samfélagið bregst
misjafnlega við þessum kröfum
okkar, en margt hefur verið gert
og er gert í höfuðborginni, þó enn
skorti mikið á að fullnægt sé þðrf-
inni. Efagjörn sjáum við ekki fyrir
endann á því að svo verði. Er hægt
að flýta fyrir?
Einstaklingar og samtök hafa
tekist á við það verkefni að búa
öldruðum samastað. Nefnum Elli-
heimilið Grund og Ás í Hveragerði,
Hrafnistuheimili sjómannasam-
takanna í Reykjavík og Hafnar-
firði. Þekkt dæmi. Og svo sjáum
við framtak samfélagsins í nafni
ríkis og borgar, þar sem B-álma
Borgarspítalans stendur að ytra
byrði en fátæk að innviðum.
Eru einstaklingarnir hættir að
hreyfa hendi til að flýta fyrir? Sem
betur fer ekki ennþá. Fólkið á sterk
Guðjón B. Baldvinsson
samtök, sem fást við ýmis hags-
muna- og menningarmál. Nokkur
þeirra telja rétt að virkja afl og
áhuga þegnanna sem sjálfhuga
einstaklinga er tengjast böndum
samúðar og miskunnsemi, sjálfs-
eignarstofnunin Skjól var stofnuð
og gengur ótrauð til verka.
Nágrannabæjarfélag byggði sína
Sunnuhlíð með atorku og áhuga fbú-
anna, hvað skyldi þá vera ofverk
Reykvíkinga?
Samtökin Skjól eru mynduð á
grunni mannúðar og miskunnsemi,
og hafa bjartsýnina sem vopn í
sóknarbaráttu sinni. Bjartsýni á
hug fólksins í þessari borg, hjálp-
fýsi þess og stórhug. Þar sem ein-
staklingarnir leggjast á eitt, þar
munu og stofnanir þeirra, félög og
fyrirtæki leggja fram liðsinni sitt
eftir getu og hugarfari.
Söguna um peningaleysi þekkjum
við vel, en við þekkjum líka söguna
um miskunnsama Samverjann, og
við eigum að þekkja boðorðið um
að heiðra föður og móður. Kynslóð-
in, sem nú er kölluð öldruð, hefur
lagt fram krafta sína til þess að
byggja upp þessa borg, þetta þjóð-
félag, án þess væru ekki til félög,
ekki fyrirtæki, ekki stofnanir í
blóma, engir peningar. Enginn fer
með aurana sína eða krónurnar
yfir landamærin milli lífheima, og
þessi hverfula eign getur á engan
hátt ávaxtast betur en í því skjóli,
sem veitt er öldnum og einmana
og þroskaheftum. Vegna þess að
dýrmætasta framtak mannins er
aðþjóna. .
Höíundur er formaAur Sambands
lífeyrisþega ríkis og bæja.
Jólasendingin í ár til vina
og viðskiptamanna eriendis.
Nýlega kom út hjá Bókaútgáfunni Vöku viðamikil og sérlega
vönduð bók á ensku um það fjölbreytilega listalíf sem er í
deiglunni hér á íslandi.
Bókin ber heitið Iceland Crucible. A modem Artistic Renaiss-
ance. Hún er um 200 blaðsíður í stóru broti. í bókinni er leitast
við að veita innsýn í lifandi menningarlíf íslensku þjóðarinnar,
sem sýnt hefur að á þessu sviði stendur hún jafnfætis mörgum
mun fjölmennari þjóðum.
Sigurður A. Magnússon rithöfundur tók saman efnið og
skrifaði textann, en heimskunnur ljósmyndari, Vladimir Sichov,
tók þær rúmlega 170 ljósmyndir af íslenskum listamönnum sem
bókina prýða.
KYNNINGARVERÐ TIL ÁRAMÓTA
Iceland Crucible býðst nú á sérstöku kynningarverði sem
gildir til áramóta: kr. 2.840,-. 1. janúar hækkar verðið í kr.
3.680,-. Bókinni fylgja traustar umbúðir sem verja hana fyrir
hugsanlegu hnjaski á leiðinni yfir hafið.
GÓÐ LANDKYNNING
Viljir þú styrkja viðskiptasambönd þín erlendis eða gleðja
vini handan hafsins, er tilvalið að senda þeim eintak af þessari
stórglæsilegu bók.
-£<c----------------
Iceland Crucible er einhver athyglisverðasta kynning á íslandi
samtímans sem kostur er á. Með henni er sleginn nýr tónn: Þar
er vakin sérstök athygli á að í okkar fagra landi býr þjóð sem
unnið hefur mikil afrek á sviði lista og menningar. Við eigum
að vera stolt af því að gera umheiminum þetta ljóst.
HAFÐU SAMBAND VIÐ OKKUR
STRAX I DAG!
Jólunum er ekki hægt að fresta og því er ekki eftir neinu að
bíða ef bækumar eiga að berast tímanlega til útlanda.
Sláðu á þráðinn til okkar við fyrsta tækifæri.
Síminn er: 32800.
Við afgreiðum pantanirnar á svipstundu.
VflKA ljriöflftU
Bókin Iceland Crucible býðst nú á sérstöku kynningarverði sem gildir til áramóta: kr. 2.840,-
1. janúar næstkomandi hækkar verð bókarinnar í kr. 3.680,-
Ef þið kaupið fleiri en 10 eintök munum við semja um sérstakan viðbótarafslátt.
Við óskum eftir að kaupa
Nafn kaupanda
eintök af bókinni Iceland Crucible og fá þau send sem allra fyrst.
Heimilisfang
Póstnr.
Staður
VAKA - HELGAFELL
Síðumúla 29
108 Reykjavík.
Sfmi
Undirskrift þess sem pantar