Morgunblaðið - 21.11.1985, Síða 56

Morgunblaðið - 21.11.1985, Síða 56
félk í fréttun Stefania föður sínum enn á óvart Rainier fursta af Mónakó og Karólínu dóttur hans brá heldur betur í brún þegar Stef- anía, vandræðabarnið í fjölskyldunni, skellti sér út í sundlaug ásamt annarri sýningarstúlku, á tískusýningu sem haldin var nýlega til kynningar á nvjum baðfötum sem Stefanía hefur hannað. A myndinni sem tekin var af þeim feðginum við þetta tækifæri, má sjá undrunarsvipinn á andlitum þeirra en hins vegar virðist eiginmanni Karólínu, Stefano Casiraghi, vera sTcemmt. Stef- anía er föður sínum enn mikið áhyggjuefni enda hegðar hún sér oft þveröfugt við það sem hefðar- fólki sæmir. Gefum Rainier fursta orðið: „Ég get verið góður faðir en ég er alveg ómöguleg móðir. Ég vona bara að Stefanía hafi vit fyrir sjálfri sér.“ f Leikarinn Robert Wagner sést hér með 13 ára gamalli vinkonu sinni, Samönthu Smith, sem lést í flugslysi sl. sumar. Samantha komst í heimsfréttirnar fyrir þremur árum þegar hún sendi Yuri Andropov, leiðtoga Sovétríkjanna, bréf og skoraði á hann að stuðla að friði í heimin- um. Samantha og Robert léku saman í bandaríska framhaldsþættinum „Lime Street" og búið var að taka upp fimm þætti fyrir sjónvarp þegar Samantha lést. Myndin var tekin skömmu fyrir dauða hennar. «5* 9% ♦ Johanna Zimmerman komin úr bjarnar- búningnum. Moðir eins barnsins á tali við Amöndu. Pandabjörninn Amanda gleöur veiku börnin Johanna Zimmerman, 44 ára tveggja barna móðir í Iowa í Banda- ríkjunum, ákvað fyrir fimm árum að verja kröftum sínum til að hjálpa sjúkum börnum. Hún varð sér úti um pandabjarnarbúning og fór að heimsækja sjúk og dauðvona börn á spítala í grennd við heimili sitt. Nú hefur pandabjörninn Amanda, eins og Zimmerman kallar sig, eignast hundruð vina sem hún heimsækir reglulega á hina ýmsu spítala. Nú vinnur Zimmerman 14 klst. á sólarhring - kauplaust. Henni berast reglulega styrkir frá einstaklingum og fyrirtækjum og notar hún þá peninga til að kaupa leikföng handa börnunum, bensín á bílinn sinn o.fl. Litlu vinirnir hennar Amöndu, sem flestir eru krabbameinssjúkl- ingar, bíða ævinlega spenntir eftir heimsókn hennar og vinsælast er að fá að sitja í kjöltu Amöndu og hjúfra sig upp að henni. Zimmer- man er ákveðin í að helga líf sitt sjúkum börnum, „ég get ekki hugsað mér að gera annað það sem eftir er ævi minnar," segir hún. Kamantha Smith og Robert Wagner. Vinur fær koss frá Amöndu. MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 21. NÓVEMBER1985 sjónvarpsþáttum Léku saman í ■> Stefanía prinsessa Lv. ásamt annarri sýningarstúlku. Á innfelldu myndinni sést Rainicr fursti ásamt dóttur sinni, Karólínu og eigin- manni hennar, Stef ano Casiraghi.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.