Morgunblaðið - 21.11.1985, Qupperneq 62
n Tpe-ttc*- er -Prc-ttoriÍJcuri úti/cxrpsins
i' AtLa/vtió."
Úr því þú spyrð: Því er svo
varið með manninn minn
að fái hann sér í glas á hann
erfiðara með að gera sig
skiljanlegan.
Með
morgunkaffinu
Mamma mín og pabbi fluttu
inn í gær. — Ekki gætir þú
lánað mömmu: sykur, kaffi,
mjólk, smákökur og sígar-
ettur?
HÖGNI HREKKVÍSI
„EKKI AtEi(2ATE,STKAMR, f»/lO ER LOKONAKTÚai/'
Mezzoforte
og frægðin
Myndin er tekin nýlega við opnun Pósthússins á horni Austurstrætis
og Pósthússtrætis.
Gamla Pósthúsið
öðlist fyrri sess
Til vinsældalistans og Mezzoforte.
Þegar vinsældalisti Rásar tvö
var leikinn 14. nóvember síðastlið-
inn, ítrekaði Páll Þorsteinsson
stjórnandi listans, að allt svindl
væri bannað, enda leiðinlegt að
þurfa að hlusta á vinsældalista þar
sem sumir hefðu hringt 10 til 20
sinnum til að koma sínu uppá-
haldslagi á listann.
Einu sinni hefur þurft að fella
lag af lista vegna svindls en það
var lagið „A View to a kill“ með
Duran Duran, en þá hvatti maður
nokkur á skemmtistað unglinga í
borginni til að hringja 1 listann
og fá lagið í fyrsta sæti.
Nú gerðist það fimmtudagskvöld
eitt á unglingaskemmtun á Broad-
way á vegum Æskulýðsráðs, að
söngkona og hljóðfæraleikari í
íslenskri hljómsveit sem lék fyrir
okkur, segir í hljóðnemann: Ef
allir unglingar sem á staðnum
myndu hringja í næsta vinsælda-
lista og koma lagi Mezzoforte
„This is the night“, í fyrsta sæti
fengjum við annað ball með hljóm-
sveitinni Mezzoforte.
Ég vil spyrja forráðamenn vin-
sældalistans hvort ekki hefði átt
að fella lag Mezzoforte af listanum
eins og gert var þegar hljómsveitin
Duran Duran átti í hlut. Mér skilst
að tveir félagar hljómsveitarinnar
umrætt kvöld séu einnig í Mezzo-
forte.
Stína
Full ástæða er til að samfagna
póstþjónustumönnum og bæjar-
búum almennt með þá endurnýjun
sem fram hefur farið á okkar gamla
Pósthúsi. Leyfir maður sér að
vænta þess, að með stórbættri
aðstöðu verði póstþjónustan þar nú
tekin til endurskoðunar, með það
fyrir augum að bæta hana. Sannast
mála hefur henni hnignað, þó svo
að þar sé aðalpósthús hins gamla
miðbæjar Reykjavíkur. Þar er t.d.
engin þjónusta um helgar. Þeir sem
þangað eiga erindi verða að fara
alla leið suður í Umferðarmiðstöð!
Eðlilegast er eftir hina gagngerðu
endurnýjun að hún verði flutt aftur
í Pósthúsið. — Hér er um að ræða
lið í þeirri endurvakningu sem nú
á sér stað hér í miðbænum. Póst-
húsið ætti að öðlast sinn fyrri sess
í þjónustumynstrinu. Hér er um að
ræða brýnt hagsmunamál, sem mér
virðist falla innan ramma hins ný-
stofnaða félags til verndar mið-
bæjarlífinu. Gæti stjórn þessara
samtaka tekið þetta upp á sína
arma. Ekki síður á þetta mál erindi
til borgarfulltrúa. Fullviss er ég um
það að póstmeistarinn muni vilja
ljá þessu máli lið. Mér sýndist hann
koma þannig fyrir í sjónvarpinu á
dögunum, að hann vilji stuðla að
framgangi mála sem snerta bætta
póstþjónustu og hann vilji viðhalda
mikilvægi gamla Pósthússins okkar
íbæjarlífinu.
Sverrir
Mezzoforte á tónleikum.
Víkverji skrifar
Yfirleitt tóku þingmennirnir því
fremur fálega, þeir sem inntir
voru eftir því hér í blaðinu fyrir
skemmstu, hvernig þeim hefði lit-
ist á könnun Hagvangs á áliti
almennings á stjórnmálamönnum.
„Ókunnugleiki um störf þing-
manna," var tíðasta svarið, og svo
áttu fjölmiðlarnir ekki síst sína
sök á því hve dómarnir voru
misjafnir af því fréttamenn
brengluðu myndina sem fólk fékk
úr sölum Alþingis.
Þó kemur fleira til, vill Víkverji
leyfa sér að fullyrða. Satt best að
segja gefa þingmennirnir sjálfir
æði einhæfa mynd af sér þegar
þeir eru sjálfir á ferðinni í fjöl-
miðlunum, leika þar lausum hala.
Lítum snöggvast á sjónvarps-
skjáinn þegar þeir sitja þar fyrir
svörum eða karpa upp á eigin spýt-
ur. Svara þeir spurningum undan-
bragðalaust? Skyldu þeir nokk-
urntíma fara undan í flæmingi?
Eru þeir málefnalegir? Og kannski
umfram allt: Láta þeir hver annan
njóta sannmælis eins og þeir ætl-
ast til af fréttamönnunum sem
fyrr eru nefndir?
Það kynnu nú að vera deildar
meiningar um það. Hve oft höfum
við ekki setið undir því (og bölvað
í hljóði) að fá í fyrsta lagi af skján-
um loðin svör og í öðru lagi bara
alls engin svör og í þriðja lagi
langlokuna sem ætti að banna með
lögum og sem hefst ævinlega á
þeim fleygu orðum: „Áður en ég
svara spurningunni langar mig
aðeins að fá að víkja örfáum orðum
að öðru rnáli."
Annað mál er svo það að þing-
menn eru vitanlega þegar allt
kemur til alls rétt eins og fólk er
flest, standa hvorki nær eða fjær
guðdómnum en hin sígildu Jón og
Jóna, hafa einfaldlega sína mann-
legu bresti. Það er eintóm ímyndun
að til sé eitthvert fyrirbæri sem
kalla mætti þingmannlega bresti.
XXX
Ahugamenn um knattspyrnu og
ekki síst þá bresku eiga sann-
arlega hauk í horni þar sem er
hann Bjarni Felixson sjónvarps-
maður. Menn átta sig kannski ekki
á því en á sama tima sem hann
færir okkur hvern leikinn á fætur
öðrum á silfurfati þá er knatt-
spyrnuaðdáandinn breski sjálfur í
banni.
Það er deilt um peninga eins og
fyrri daginn, og fer þetta raunar
að verða árviss atburður, fastur
liður í dagskránni hjá Bretanum.
Félögin vilja fá hærri þóknun fyrir
sjónvarpsréttinn að leikjunum og
formælendur sjónvarpsstöðvanna
berja sér á brjóst og segjast ekki
eiga grænan túskilding. Nú þykj-
ast menn samt loksins grilla í von
um samkomulag, svo að Bjarni
okkar fær væntanlega að pústa og
getur lagt af kraftaverkin að sinni.
ósvikinn töframaður þegar
knattspyrnán er annarsvegar og
kvað að auki vera dugnaðarforkur.
Hinsvegar finnst sumum honum
takast misvel upp þegar leikjalýs-
ingarnar fara á skjön við fjar-
skiptahnettina og hann þarf að
hlaupa í skarðið fyrir bresku þul-
ina. Er hann ekki einum of mál-
glaður annað veifið? „Hann skor-
ar“, æpir hann hástöfum þegar
„knötturinn þenur möskvana" eins
og það heitir í íþróttafréttunum,
rétt eins og við hin sem erum líka
límd við skjáinn höfum ekki augu
í hausnum.
Sjón er sögu ríkari, segir mál-
tækið. Talið á bara að vera eins-
konar uppbót á sæluna.
XXX
Að lokum biessað móðurmálið
enn á ný. Til eru þeir fræðing-
ar að visu sem segja að allt sé
gott og blessað sem menn segi í
ræðu og riti: tungan sé bara „að
þróast" eins og þeir kalla það.
Hvað finnst nú þessum frjáls-
hyggjumönnum um „Hollywood
models"? Þau skutu upp kollinum
í fjarska fínni auglýsingu sem
dreift var um landsbyggðina fyrir
skemmstu. Fer þá skörin ekki að
færast upp í bekkinn ef slettumenn
okkar láta sér ekki nægja að sletta
heldur sletta llka á sletturnar
erlendum fleirtðluendingum?