Morgunblaðið - 21.11.1985, Side 68
ÐTT KDRT ALI5 SUtÐAR
rs
_ _^iglýsinga-
síminn er 2 24 80
FIMMTUDAGUR 21. NÓVEMBER 1985
VERÐ í LAUSASÖLU 35 KR.
Atlantshafssiglingar
Hafskips að stöðvast
MALAÐ YFIR HAFSKIP -
Unnið var aö því í gær að
mála yfír nafn Hafskips, sem
stóð með stórum stöfum á
síðum skipa félagsins. Mál
skipafélagsins stóðu þannig í
gærkvöldi, að alls var óvíst
hvaða nafn verður málað á
skipin í staðinn.
Kostnaður við stöðvun tal-
inn nálgast 80 milljónir
BÚIST ER vid því að yfirlýsing komi frá Hafskip hf. síðdegis í dag,
þar sem greint verði frá því að ákvörðun um að hætta Atlantshafssiglingum
hafi verið tekin. Kagnar Kjartansson, stjórnarformaður Hafskips, sagði í
samtali við blaðamann Morgunblaðsins að hann ætti von á því að ákvörðun
yrði tekin ekki síðar en í kvöld, en hann sagði að enn væri beðið eftir
upplýsingum frá útlöndum, til þess að hægt væri að ákveða hver næstu
skref yrðu. Morgunblaðið hefur hins vegar áreiðanlegar heimildir fyrir því
yð þegar liggi fyrir ákvörðun um að hætta siglingunum, sem stórtap hefur
verið á, og að enginn erlendur kaupandi hafi fundist að þeim viðskiptasam-
böndum sem Hafskip hefur aflað sér á þessum leiðum.
„Það eru ýmsar vísbendingar um
það að við séum að tapa á tima i
þessu máli,“ sagði Ragnar, „og
þessi kjarnorkuvetur sem hefur
umlukt félagið með þessari miklu
opinberu umfjöllun hér heima
hefur ekki létt okkur róðurinn við
að semja við aðila sem við höfðum
hafið viðræður við fyrir nokkru
síðan.“
-i Ragnar upplýsti að tapið af
Atlantshafssiglingunum væri nú
eitthvað á annað hundrað milljón-
ir. Hversu mikið tapið yrði þegar
upp væri staðið og þessum
rekstri hefði verið hætt, sagði
hann að myndi ráðast af þeim
samningum sem tækjust við
stærstu verktaka og samningsað-
ila í útlöndum. Ljóst er þó að tapið
á eftir að aukast verulega, því
mjög kostnaðarsamt er fyrir fyrir-
tæki sem þetta að hætta rekstri.
Til dæmis er Hafskip með 5 til
6.000 gáma á leigu fyrir Atlants-
hafssiglingar að sögn Ragnars
Kjartanssonar. Fyrirtækinu er
samkvæmt samningum skylt að
skila gámunum í jafngóðu ásig-
'komulagi og þeir voru þegar þeir
voru teknir á leigu. Talið er að það
muni að meðaltali kosta 150 til 200
dollara á gám, að gera þá þannig
úr garði. Þannig að það eitt kemur
til með að kosta Hafskip um 1
milljón dollara eða 41 milljón
króna. Þá er ótalinn kostnaður,
sem fylgir því að rifta leigusamn-
ingum við skipaeigendur, þannig
að ekki er talið ólíklegt að kostnað-
ur við að hætta þessum hluta
rekstrarins geti nálgast 2 milljónir
dollara, þegar allt verður talið.
Ragnar sagðist alfarið vilja mót-
mæla þeim áburði að Hafskip hefði
blekkt Útvegsbankann með röng-
um tölum. „Hins vegar,“ sagði
Ragnar, „hefur komið á daginn að
þótt tekjuáætlun okkar hafi stað-
ist, þá hefur kostnaður farið tals-
vert fram úr áætlun. í svona stór-
um rekstri munar mjög mikið um
hver fimm prósentustigin."
Sameining Skipadeildar SÍS og Hafskips:
Morgunblaðið/Júlíus
Skiptar skoðanir inn-
an Sambandsstiórnar
SAMBANDSSTJÓRN tók ákvörðun
um það á fundi sínum í gær að kanna
til hlítar hvort hægt sé að stofna sér-
stakt skipafélag utan um skiparekstur
samvinnumanna, með þátttöku Sam-
bandsins, samvinnufyrirtækja og að-
ila utan samvinnuhreyfingarinnar.
Þetta upplýsti Valur Arnþórsson
stjórnarformaður Sambandsins
blaðamann Morgunblaðsins um í
gærkveldi, og sagði að í framhaldi
þessarar samþykktar hefði verið
ákveðið að ganga til formlegra við-
ræðna við Hafskip hf. og verður fyrsti
formlegi samningafundur aðila hald-
inn í dag. Samkvæmt heimildum
Morgunblaðsins er orðalag sam-
þykktar Sambandsstjórnar svo al-
menns eðlis, vegna þess að mjög
deildar meiningar eru um það innan
Sambandsstjórnar hvort rétt sé að
ganga til slíks samstarfs við Hafskip.
Eru heimildamenn blaösins meira að
segja þeirrar skoðunar að það sé harla
ólíklegt að samningar þessara aðila
geti tekist.
Á sambandsstjórnarfundinum í
gær kom þaö skýrt fram að stjórnin
Sjöstjarnan í Keflavík:
Afurðalán að núvirði
70-80 milli. svikin út
BANKASTJÓRN Útvegsbanka ís-
lands hefur lagt fram kæru á hendur
framkvæmdastjóra Sjöstjörnunnar
hjá bæjarfógetanum f Keflavík.
Ástæðan er rangar uppiýsingar um
-^ifgðir fyrirtækisins, sem leitt hafa
il þess að það hefur fengið um það
bil 28 milljónir króna í afurðalán
umfram settar reglur á árunum 1983
til 1984. Á verðlagi dagsins í dag
nemur þessi upphæð 70 til 80 milljón-
um króna.
f frétt frá bankanum segir, að á
síðastliðnu ári hafi bankastjórnin
-►-iekið upp aukið og hert eftirlit
með framleiðslubirgðum fyrir-
tækja vegna afuröalána. í ljós
hafi komið við birgðatalningu hjá
Sjöstjörnunni, að ástæða hafi ver-
ið til frekari könnunar. Banka-
stjómin hafi falið löggiltum end-
urskoðanda að kanna bókhald
fyrirtækisins og við það hafi fyrr-
greind niðurstaða fengizt. Fram-
kvæmdastjóri Sjöstjörnunnar hafi
staðfest hana og hætt störfum hjá
fyrirtækinu. Nýir eigendur hafi
tekið við rekstri fyrirtækisins og
tryggingar verið settar fyrir áður-
greindri upphæð. Þá er í fréttinni
tekið fram að við bókhaldsrann-
sókn hafi ekkert komi* í ljós, sem
bent geti til fjárdráttar viðkom-
andi aðila.
Fyrirtækið Langeyri í Hafnar-
firði hefur verið sameinað Sjö-
stjörnunni og eru helztu hluthafar
í sameinaða fyrirtækinu íslenzka
umboðssalan og Bjarni V. Magnús-
son. Togararnir Keilir og Dag-
stjarnan munu sjá fyrirtækinu
fyrir hráefni.
Veiting afurðalána fer þannig
fram, að lántakendur leggja fram
skjal þar sem tiltekið magn birgða
er veðsett fyrir láni í ákveðnu
hlutfalli af verðmæti birgða, 75%.
Bankarnir hafa síðan eftirlit með
því, hvort birgðir þessar séu til og
hefur það eftirlit nú verið hert.
telur ekki koma til greina að kaup-
verð Islandssiglinga Hafskips, þeg-
ar íslenzka skipafélagið yfirtók
reksturinn, þ.e.a.s. 625 milljónir,
verði lagt til grundvallar í samn-
ingaviðræðunum. Ekki hafa neinar
tölur verið nefndar, en þessi tala
er sögð fjarri láfei. Einkum var
rætt um það hversu mikið fé S
gæti sett inn í slíkt fyrirtæki, ef
af yrði, á móti þeirri viðskiptavild
sem Hafskip myndi leggja til. Segja
sambandsmenn að skuldamál Haf-
skips séu Sambandinu og samn-
ingaviðræðunum með öllu óviðkom-
andi, en það verði að liggja Ijóst
fyrir hversu mikið hlutafé og
hversu mikið af flutningum Haf-
skips muni fylgja með i kaupunum,
ef af verður. Er samstaða um það
innan sambandsstjórnar að Sam-
bandið og samvinnufyrirtæki verði
að eiga afgerandi meirihluta í nýju
fyrirtæki, ef það verður stofnað.
Viðmælendur Morgunblaðsins úr
röðum sambandsmanna voru á einu
máli um að kanna bæri þennan
samstarfsmöguleika til hlítar, en
meirihluti þeirra var þó þeirrar
skoðunar, að ólíklegt væri að af
slíku samstarfi gæti orðið.
„Við munum reyna að leiða málið
til lykta sem allra fyrst, og ekki
síðar en í vikulokin," sagði Ragnar
Kjartansson, stjórnarformaður
Hafskips hf. „Það kemur á daginn
á hvaða grundvelli verður unniö,
þegar þríhliða viðræður með þátt-
töku Útvegsbankans hefjast," sagði
Ragnar er hann var spurður hvaða
vonir stjórnendur Hafskips gerðu
sér um umræðugrundvöll.
„Við ræðum einfaldlega á við-
skiptalegum grundvelli við þá aðila
sem koma til með að óska eftir
því. Það verður bara að koma í ljós
hvað menn eru reiðubúnir að tala
um,“ sagði Lárus Jónsson banka-
stjóri Útvegsbankans er hann var
spurður sömu spurningar.
Lárus var spurður hvernig
stjórnendúm Útvegsbankans litist
á þá eftirlitsmenn sem ríkisstjórn
og Seðlabanki hefðu skipað til þess
að taka þátt í samningaviðræðum:
„Við höfum að undanförnu átt í
miklum viðræðum við viðskiptaráð-
herra og Seðlabanka um þessi mál.
1 framhaldi af því hefur þetta orðið
niðurstaðan og við höfum út af fyrir
sig ekki nema gott eitt um hana
aðsegja."
Sji ennfremur fréttir
i bls. 2 og 4.
Okurlánamáliö:
Gæsluvarð-
hald framlengt
GÆSLUVARÐHALD yfir Her-
manni Björgvinssyni var í gær
framlengt til laugardagsins 30.
nóvember næstkomandi að kröfu
Rannsóknarlögreglu ríkisins.
Hermann Björgvinsson hefur
setið í gæsluvarðhaldi síðan 2.
nóvember síðastliðinn vegna
rannsóknar á okurlánamálinu
svonefnda og átti gæsluvarð-
hald hans að renna út í gær.
Vegna rannsóknar málsins
gerði RLK kröfu um að gæslu-
varðhaldið yrði framlengt til 30.
nóvember og féllst Sakadómur
Kópavogs á þá kröfu.