Morgunblaðið - 28.11.1985, Blaðsíða 19
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 28. NÓVEMBER1985
19
Næröll
virkjana-
ráðgjöf ernú
í höndum
Islendinga
RAFORKUFYRIRTÆKI hér á landi
reiða sig nú að mestu leyti á ráðgjafar-
þjónustu íslenskra verkfræðinga við
virkjanaframkvœmdir. Hlutdeild ís-
lenskra ráðgjafa í heildarkostnaði
Landsvirkjunar af aðkeyptri verk-
fræðiþjónustu á síðustu fimm árum
er 78%, en útlendinga 22%. Á árunum
1966—1970 var hlutfallið öfugt; þá
var hlutur íslenskra verkfrsðinga um
18%og erlendra 82%.
Þessar upplýsingar komu fram
í erindi Halldórs Jónatanssonar,
forstjóra Landsvirkjunar, um
virkjanaframkvæmdir og verk-
fræðiþjónustu á vetrarfundi Sam-
bands íslenskra hitaveitna og
Sambands íslenskra rafveitna,
sem haldinn var dagana 14. og 15.
nóvember. Halldór sagði, að þjón-
usta verkfræðilegra ráðunauta
væri stór liður í virkjanarannsókn-
um svo og öðrum undirbúningi og
framkvæmd virkjana. Kostnaður
við þessa þjónustu er yfirleitt um
10% af stofnkostnaði vatnsafls-
virkjana. Er nú unnið að bættum
samningum við ráðgjafa til að gera
starf þeirra markvissara með
auknu aðhaldi, án þess að gæði
þjónustunnar minnki.
Dr. Sigurður B. Stefánsson,
verkfræðingur, flutti á fundinum
fyrirlestur um lánamál orkufyrir-
tækja. Hann ræddi þá miklu erfið-
leika, sem orkufyrirtæki hér á
landi hafa lent í vegna erlendra
lána frá um 1982, þegar gengi
krónunnar lækkaði um 18% á einu
og hálfu ári. Þá ræddi hann um
fjárhagsstöðu orkufyrirtækjanna,
sem er mjög misjöfn. Hann gat
um leiðir sem unnt er að fara til
að létta erlenda skuldabyrði og
taldi að Landsvirkjun væri það
orkufyrirtæki, sem mest hefði
orðið ágengt í að hagræða skuldum
sínum til hins betra.
Fjölmörg önnur mál voru til
umræðu á vetrarfundinum, þ. á m.
stjórnkerfi Landsvirkjunar og
Hitaveitu Reykjavíkur, stöðlun i
rafmagnstækni, orkusparnaðar-
átak o.fl. í erindi sem Þorbjörn
Karlsson, prófessor, flutti um
orkunýtingu í hitaveitum kom
fram, að Verkfræðistofnun Há-
skóla íslands hefur gert samkomu-
lag við Samband íslenskra hita-
veitna um athuganir á rekstri
hitaveitna. Er það m.a. gert í því
skyni að skapa traustari hönnun-
arforsendur, t.d. við gerð hita-
veitumælis. Þorbjörn greindi frá
því, að meðalnýting vatnshita væri
talsvert meiri en áður var talið.
Gerir þetta hagkvæmni hitaveitna
þeirra sem í hlut eiga meiri t.d. í
samanburði við aðra orkugjafa.
Stal bflum
af bflasölu
LIÐLEGA þrítugur piltur var hand-
tekinn um helgina eftir að hafa stolið
þremur bifreiðum af bílasölunni Bfla-
torg við Borgartún. Ein bifreiðin
fannst vestur á Granda og kom í Ijós,
að brotist hafði verið inn í fyrirtæki
þar og talstöðvum stolið. Önnur bif-
reið fannst vestur í bæ og hafði verið
skipt um númer á henni. í stað Reykja-
víkurnúmers hafði M-númer verið sett
á hana. Þriðja bifreiðin fannst á bfla-
stæði við Sparisjóð Reykjavíkur. Ný
númer höfðu verið sett á hana og í
henni fannst þýfið frá innbrotinu á
Grandagarði.
Bifreiðin var mannlaus og biðu
lögreglumenn eftir að þjófurinn
léti sjá sig. Liðu nokkrar klukku-
stundir án þess að hann kæmi og
hugðust lögreglumenn þá flytja
bifreiðina inn í Borgartún, en I
sömu svifum bar þjófinn að og var
hann umsvifalaust handtekinn. I
ljós kom, að hann hafði í vikunni
brotist inn í fyrirtæki, sem fram-
leiðir bílnúmer og hafði hann
nokkur á brott með sér.
tormerhi
Svigskíði og gönguskíði við
hæfi hvers og eins.
gönguskíðastafir úr
fíber.
í/j Svigskíðaáburður og
3 gönguskíðaáburður
handa þeim kröfuhörðu
ásamt ýmiss konar tækj-
um handa byrjendum
jafnt sem keppendum.
TYROLIA
Total diagonal
bindingar - meira öryggi
en áður þekktist. Svig-
stafir fyrir byrjendur og
keppendur. Gott tösku-
úrval.
adidas =
gönguskíðaskór
sem hinn kröfuharði
göngumaður biður um.
DACHSTEIN
Skíðaskór sem koma
til móts við þínar þarfir.
Bindingar settar á meöan beðiö er.
TOPPmerkin
í íkíðavörum
öfiið d CtiJAfyXrictaqum
ÞEKKING - REYNSLA - ÞJONUSTA
FÁLKINN
SUÐURLANDSBRAUT 8 - SÍMI 91-84670
Aðrlr útaöluataðir:
Pipulagningarþj ónustan
Ægisbraut 27
300 Akranes versl.
Vélsmidjan Þór Einars Gudfinnssonar h/f
400 ísafjörður 415 Bolungarvík
Versl. Húsið Bókaversl. Kaupf. Fram Jón Halldórsson
340 Stykkishólmur Þórarins Stefánssonar 740 Neskaupstað Drafnarbraut 8
640 Húsavík skiðaþjónustan 620Dalvík
Gestur Fanndal Fjölnisgötu 4. Versl. Skógar
580 Siglufjörður 600 Akureyri 700 Egilsstaðir