Morgunblaðið - 28.11.1985, Blaðsíða 49
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 28. NÓVEMBER 1985
49
komast yfir? Ég hef reynt allar
leiðir en árangurslaust! Og fljótið
svaraði, „Farðu yfir af eigin
rammleik!" Og hún lagði út í og
komst yfir.“(Óþekktur höfundur.)
Það er sorglegt þegar jafn ungur
og heilbrigður strákur og hann
Steinar, sem hafði svo gaman af
að lifa lífinu, er kvaddur svo snögg-
lega yfir í annan heim, en ég trúi
því að sál hans sé meðal okkar
núna, og muni verða, og því vil ég
bera henni kveðju frá lítilli vin-
konu hans sem var — á hverjum
degi leitar hún að Steinari frænda,
eða Dínari eins og hún kallaði
hann. Það var eitthvað sérstakt
við samband þeirra, og það verður
langt þangað til þessi litla mann-
eskja skilur hvert hann Dínar
frændi fór.
Megi trúin styrkja foreldra hans
á þessari stundu.
Hann Steinar var góður strákur.
Unnur og Unnur Birna.
Að morgni mánudagsins 25. nóv-
ember sl. barst sú harmafregn, að
frændi minn, Steinar Skúlason,
hefði látist í bílslysi um nóttina.
Enn einu sinni er maður minntur
á, hversu skammt er á milli lífs
og dauða. Það er erfitt að trúa
því, að hann sé dáinn. Hann var
svo lífsglaður, svo hjálpsamur og
góður vinur allra.
Þegar ungur og frískur maður í
blóma lífsins er hrifinn á brott svo
skyndilega er erfitt að skilja
hversvegna. Hver tilgangurinn er,
veit aðeins sá sem öllu ræður.
Glaðvær rödd er þögnuð og góður
sonur horfinn.
Elín
Guðnadóttir
Kveðjuorð
Nú kveð ég ailt og alla, sem unnað hefí
éghér
og allt sem hinir liðnu dagar geyma.
Alla sem að liðsinni vildu veita mér
og vonirnar sem fæddust hérna heima.
Hún Elín Guðnadóttir er flutt
inn í andans friðar geim, sem við
áttum svo oft tal um. Ég veit að
hún er sæl nú eftir allar þær
þrautarstundir sem hún var búin
að líða síðustu tvö árin. Já, í þetta
sinn var dauðinn líknargjafi eins
og svo oft. Ég kynntist þessum
systrum, Elínu og Þórdísi, á Báru-
götu 8. Þær systur voru austan
frá Eyrarbakka. Sonardóttir mín
og fjölskylda hennar leigði hjá
þeim systrum. Það var eins og ég
væri búin að þekkja þær alla mína
ævi svo elskulegar voru þær mér.
Ég hafði yndi af að koma til þeirra
og reyndi að stytta þeim stundir
eftir mætti. Þórdís er sérstök kona,
enda ekki á allra færi að taka á
móti því sem á hana hefur verið
lagt á þessu hausti. Fyrir utan að
hafa systur sina sárþjáða heima
hjá sér varð hún fyrir þeirri miklu
reynslu að missa son sinn, Guðna,
mann á besta aldri og móður sinni
mikil hjálparhella í veikindum
Elínar. En Drottinn leggur líkn
með þraut, það hefur Þórdís sann-
fært mig um. Aldrei æðruorð frá
henni þótt hún, sjónlítil, yrði að
þreifa sig áfram um húsið. Elín
sagði oft við mig verst finnst mér
að leggja ailt þetta á hana Dísu,
ég sem ætlaði að hjálpa henni
þegar hún fór að missa sjón, en
þá er ég bara byrði á henni. En
nú er stríðið búið og Elín áreiðan-
lega búin að hitta Guðna, systur-
son sinn, eins og ég sagði þeim
systrum að hann yrði til að taka
á móti þeim er þær kæmu. Ég bið
algóðan Guð að styrkja og blessa
mína kæru vinkonu, Þórdísi og
alla hennar fjölskyldu í þessum
erfiðleikum og Elínu mína kveð ég
með þessari bæn.
Sál mín er sæl ef Ijós þitt lýsir mér til
lífsins heim.
Kærleikans lind er upptök á hjá þér
minnandageym.
Tár mín á jörð þú tókst í strauminn
þinn.
Ó tak þú mig í heiminn til þín inn.
(Finnbogi Arndal)
Elísabet Helgadóttir
Ekkert andlát hefur komið jafn
sárt við mig. Ég hef fylgst með
þessum unga frænda mínum öll
hans uppvaxtarár, fjölskylda mín
átt með honum og fjölskyldu hans
margar gleðistundir og við höfum
orðið aðnjótandi hjálpsemi hans
og ljúfmennsku svo oft, nú síðast
á sunnudaginn.
Steinar fæddist þann 20. apríl
1964. Hann var því aðeins 21 árs
gamall þegar hann féll frá. Hann
var sonur hjónanna Erlu Vil-
hjálmsdóttur og Skúla Jóhannes-
sonar. Einn bróður átti Steinar,
Vilhjálm, sem er giftur Unni
Steinsson. Mjög kært var á milli
Steinars, foreldra hans og bróður.
í samskiptum þeirra ríkti gagn-
kvæm virðing. Var aðdáunarvert
hve Steinar studdi foreldra sína
vel og dyggilega ekki síst í rekstri
og uppbyggingu fyrirtækis þeirra.
Samhliða námi sínu starfaði Stein-
ar við fyrirtæki foreldra sinna í
flestum frístundum sínum. Það
vakti eftirtekt hversu mikinn
áhuga og dugnað hann sýndi í öllu
starfi sínu þar.
Hjálpsemi hans við afa sína og
ömmur var einnig viðbrugðið.
Hann var þeim stoð og stytta í
önnum hversdagsins og var boðinn
og búinn til að aðstoða þau. Hann
var vinur þeirra og félagi og skilur
eftir skarð í lífi þeirra, sem ekki
verður uppfyllt.
Steinar flíkaði ekki mikið til-
finningum sínum. Hann var
grandvar ungur maður, hrein-
skiptinn og einlægur. Hann vand-
aði líf sitt sem best hann gat, og
var nærgætinn í framkomu við
aðra. Hann var góður vinur barna
okkar og þau nutu oft þeirrar
einlægu hlýju og góðsemi, sem
hann hafði í svo ríkum mæli. Þau
sakna hans sárt nú.
Steinar stundaði nám í rafvirkj-
un og hugðist ljúka því námi næsta
vor. Hann var ákveðinn í að ljúka
stúdentsprófi og afla sér frekari
menntunar á sviði tölvu- og raf-
eindafræði. Hann hafði þegar
hafist handa við undirbúning þess.
Allt sem hann tók sér fyrir hendur
var skipulega gert og vel ígrundað.
En nú er þessi ungi frændi okkar
svo skyndilega á brott kallaður.
Það setur að okkur þögn og það
er sem ský dragi fyrir sólu.
Elsku systir, Skúli, Vilhjálmur
og Unnur. Fjölskylda mín, foreldr-
ar, systkini og fjölskyldur þeirra
biðja góðan guð að styðja ykkur
og styrkja í sorg ykkar.
Minningin um góðan dreng sem
öllum vildi gott gleymist okkur
aldrei.
Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson
t
Alúöarþakkir til allra þeirra er sýnt hafa viröingu, samúö og vinarhug
viöandlat ogútför
TORFA GUOBRANDSSONAR,
Suöurgötu 12,
Keflavík.
Elín Sigurjónsdóttir,
og aöstandendur
t
Innilegar þakkir sendum viö öllum þeim sem sýndu okkur samúö
og hlýhug vegna fráfalls eiginmanns míns, fööur okkar, tengdafööur
og afa,
HAFSTEINS DAVfDSSONAR,
Patreksfiröi.
Erna Aradóttir,
börn, tengdabörn og barnabörn.
Lokað
vegna jaröarfarar til kl. 13.00 í dag.
Davíð S. Jónsson og Co. hf.
Lokað
Verzlunin veröur lokuö í dag vegna útfarar STEINARS
SKÚLASONAR.
TÉKK-KRISTALL,
Laugavegi15.
Lokað
í dag frá kl. 1-3 vegna jarðarfarar STEINARS SKÚLA-
SONAR.
Stefánsblóm,
Barónsstig.
í meira en 20 ár hefur Iceland Review komið lesendum sínum á óvart.
Landið, fólkið, og menning okkar. Nú átt þú leik. Komdu vinum þínum
og viðskiptamönnum í útlöndum á óvart með gjafaáskrift að Iceland
Review. Kærkomin gjöf, sem treystir tengslin.
Við sendum gjafakort og tilkynnum nafn gefenda. Síðan berast blöðin
eitt af öðru allt næsta ár. Gjöf, sem berst aftur og aftur og er alltaf ný.
Hvað er betra?
Sértilboð til nýrra áskrifenda: Við sendum allan árganginn 1985, þú
greiðir aðeins sendingarkostnaðinn, kr. 220.-
Gjafaáskrift 1986
□ Undirritaöur kaupir____gjafaáskrift(ir) aö lceland Review 1986 og
greiöir kr. 950 pr. áskrift. Sendingarkostnaður um allan heim innifal-
inn.
□ Árgangur 1985 verði sendur ókeypis til viötakanda(enda) gegn
greiöslu sendingarkostnaðar kr. 220 pr. áskrift.
Tilboð þetta gildir til 31. jan. 1986. Áskrift öölast gildi þegar greiösla
berst.
□ VISA □ Eurocard Kortnr___________________________ Rennurút________
Undirskrift
Nafnáskrifanda
Síml
Heimilisfang
Nafn móttakanda
Heimilisfang
Nöfn annarra móttakenda fylgja meö á ööru blaöi.
Sendið til lceland Review, Höföabakka 9, Reykjavík,
eða hringið í síma 84966.
Iceland Review
Höfðabakka 9, sími 84966, Reykjavík.