Morgunblaðið - 28.11.1985, Blaðsíða 12
12
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 28. NÓVEMBER1985
Grettísgata. Einstakl.ib. á 2.
hæðísteinh.
Efstasund. 2ja herb. 50 fm íb.
ikjailara.
Hamraborg. 2ja herb. 65 fm íb.
á 1. hæð. Bílskýli. Góð íb.
Smyrlahraun. 3ja herb. 90 fm
íb. á 1. hæð í fjórb.húsi. 28 fm
bílsk. Lausstrax.
Engihjalli. 3ja herb. 90 fm íb. á
7. hæð.
Mosfelissveit. 3ja herb. 95 fm
ib. á 2. hæð ínýju húsi. Bílsk.
Engjasel. 3ja herb. íb. á 2.
hæð. Bilskýli. Góö sameign.
4ra herb. og stærri
Krummahólar. 4ra herb. ib. á
3.hæðmeðbílsk.
Suöurhólar. 4ra herb. 110 fm
íb. áefstu hæð. Falleg íbúð.
Tjarnarbraut Hf. 4ra herb. 80
fmíb.á2.hæö.
Mávahlíó. 4ra herb. risíb. Suö-
ursvalir.
Kaplaskjólsvegur. 4ra herb.
110 fm endaíb. á 3. hæð.
Seljabraut. Mjög skemmtileg
4ra herb. íb. á 2 hæðum. Bíl-
skýli.
Álfaskeió. 4ra herb. 117 fm íb.
á2.hæð með bílsk.
Breióvangur Hf. Glæsil.
4ra-5 herb. 120 fm íb. á
2. hæö. Gott aukaherb. í
kj. Bilskúr.
Granaskjól. Neðri sérhæö í
þríb.h. um 117 fm. 4 svefnherb.
Bílsk.r. Sk. mögul. á 3ja herb.
Rauðalækur. 4ra-5 herb. 130 fm
efri hæö í fjórb.húsi meö bílsk.
Tvennarsvalir.
Grænatún. Efri sérhæö í tvibýl-
ishúsi ca. 147 fm auk bílsk.
Ekki fullbúin ibúö.
Kársnesbraut. Ca. 130 fm sérh.
með bílsk. Þvottah. á hæöinni.
Logafold. Sérhæö um 140 fm
auk bílsk. Að auki er 60 fm
pláss í kj. T æpl. tilb. undir trév.
Einbýlishús og raöhús
Rjúpufell. Einlyft raðhús um 140
fm auk bílsk. Falleg og vel
umgengin eign.
Fífumýri Garðabæ. Einb.hús,
kjallari, hæö og ris, samt. um
300 fm. Tvöf. innb. bílsk. Ekki
fullbúiö hús en íbúöarhæft.
Urriðakvtsl. Stórglæsil. 400 fm
einbýlish. á þremur hæðum.
Vel staösett hús.
Verslunarhúsnæói. Heimar, 70
fm verslunarhúsnæði.
HÍBÝLI & SKIP
Garðastræti 38. Sími 26277.
Brynjar Fransson, sími: 39558.
Gylfi Þ. Gislason, sími: 20178.
Gísli Ólafsson, simi: 20178.
Jón Ólafsson hrl.
Skúli Pálsson hrl.
Morgunblaöiö/Bjarni
Skyrið er hin mesta heilsufæða. Það var niðurstaða rannsóknar fæðudeildar RALA, og kemur víst fáum á óvart. Þau kynntu niðurstöðurnar, f.vj Jón
Óttar Ragnarsson, Guðjón Þorkelsson, Ragnheiður Héðinsdóttir og Elín Hilmarsdóttir.
íslenska mjólkin aðeins
frábrugöin annarri mjólk
ÍSLENSKA mjólkin er ekki að öllu leyti eins og mjólkin í nágrannalöndum
okkar. Hún er með ívið meira af A-vítamíni og mangani en heldur minna
af kalki og magníum. Þetta kom fram í rannsókn fæðudeildar Rannsókna-
stofnunar landbúnaðarins á næringargildi mjólkur sem nú er lokið.
Rannsókn fæðudeildarinnar á
mjólkinni hefur staðið yfir í fjögur
á og er hún fyrsti áfanginn í heild-
arrannsóknum á næringargildi
íslenskrar fæðu. Á blaðamanna-
fundi sem fæðudeildin efndi til í
þeim tilgangi að kynna niðurstöð-
urnar kom fram hjá Jóni óttari
Ragnarssyni, forstöðumanni fæðu-
deildar RALA, að á undanförnum
árum hafa ekki verið til neinar
heildarupplýsingar um næringar-
gildi íslenskrar fæðu, þrátt fyrir
að íslendingar væru jafn miklir
matvælaframleiðendur og raun
bæri vitni. Væru slíkar upplýsing-
ar þó forsenda allra vörumerkinga,
vöruþróunar og forvarnar- og
hjúkrunarstarfs á sviði næringar.
í rannsókninni voru mæld öll
orkuefni, fjögur vítamín og níu
steinefni í mjólk og fjölmörgum
mjólkurafurðum. Hafa þessar nið-
urstöður þegar verið notaðar við
merkingar á ýmsum mjólkurvör-
um. Niðurstöður sýna að íslensk
mjólk er afar góð uppspretta fyrir
A- og B-vítamín, kalk og zink.
Íslenska mjólkin er með ívið meira
af A-vítamíni og mangani en ívið
minna af kalki og magníum en
mjólk í nágrannalöndunum.
Töluverðar sveiflur eru í nær-
ingarefnainnihaldi mjólkurinnar
eftir árstíðum. Þannig er til dæmis
um 70% meira A-vítamín og 230%
meira beta-karotín (undanfari
A-vítamins) í haustmjólk en vor-
mjólk. Auk þess er munur á efna-
innihaldi eftir landsvæðum. Þann-
ig er vítamíninnihald í mjólk úr
Eyjafirði meira en annars staðar
á landinu en steinefnainnihaldið
mest í mjólk sem framleidd er á
Suðurlandi.
Áberandi er hvað skyrið er
næringarríkt og að öllu leyti kjörin
heilsufæða. Er það bæði fitusnautt
og hvíturíkt. Rannsóknir fæðu-
deildar RALA hafa sýnt að marg-
víslegir möguleikar eru á því að
nýta íslenska skyrmysu, m.a. í
svaladrykki. Rannsóknin staðfest-
ir mikið næringargildi mysunnar,
en um 7 milljónir lítra fara nú til
spillis.
Nú stendur yfir efnagreining á
kjötvörum hjá fæðudeildinni auk
margvíslegra verkefna annarra, til
dæmis við tækni og vöruþróun.
Áætlað er að grunnrannsóknum á
íslenskum matvælum muni ljúka
innan 10 ára ef nægilegt fjármagn
fæst. Kelleggs-stofnunin í Banda-
ríkjunum styrkti fæðudeildina í
upphafi til tækjakaupa og Fram-
leiðsluráð landbúnaðarins hefur
kostað rannsóknirnar að verulegu
leyti. Að sögn forsvarsmanna
. deildarinnar er nú verið að athuga
með möguleika á áframhaldandi
fjármögnum rannsóknanna því
samkvæmt nýju búvörulögunum
hefur Framleiðsluráð ekki lengur
það hlutverk að standa fyrir slík-
um verkefnum.
ÓKEYPIS BÆKLINGUR
Starfsframi, betri vinna, betri laun
Eftir nám í ICS-bréfaskólanum átt þú möguleika á auknum
starfsframa og betur launaöri vinnu. Þú stundar námiö heima
hjá þér á þeim hraöa sem þér hentar. Nú stunda rúmar 8 milljón-
ir manna nám í gegnum ICS-bréfaskólann! Líttu á listann og
sjáöu öll þau tækifæri sem þér gefast. ICS-bréf askólinn hefur
örugglega námskeiö sem hæfir áhuga þínum og getu. Prófskír-
teini í lok námskeiöa. Sendu miðann strax í dag og þú færö
ÓKEYPIS BÆKLING sendan í flugpósti. (Setjiö kross í aöeins
einn reit). Námskeiöin eru öll á ensku.
□ Tölvuforritun
□ Rafvirkjun
□ Ritstörf
□ Bókhald
□ Vélvirkjun
□ Almenntném
□ Bifvélavirkjun
□ Nytjalist
Stjórnun
□ fyrirtækja
□ Garöyrkja
□ Kjólasaumur
Innanhús-
□ arkitektúr
Stjórnun hótela
□ og veitingastaöa
□ Blaöamennska
Ksslitakni og
□ loftrnsting
Nafn:.......................................................
Heímilisfang:...............................................
ICS International Correspondence shcools Dept. YYS, 312/314 High
Street, Sutton, Surrey SM11PR, England.
Ný hljómplata:
„Ég lít í anda
liðna tíð“
Ólafur Magnússon frá Mosfelli syngur,
Jónas Ingimundarson leikur með á píanó
BÓKAÚTGÁFAN Örn og Örlygur
hefur gefið út hljómplötu með einsöng
Ólafs Magnússonar frá Mosfelli og
píanóundirleik Jónasar Ingimundar-
sonar. Platan er gefin út í tilefni af
75 ára afmæli Ólafs fyrr á þessu ári
og er hér um nýjar upptökur að ræða
sem allar fóru fram I Hlégarði sl.
sumar.
Lögin sem ólafur syngur eru:
Suðurnesjamenn, Kom ég upp í
26600
atiir þurfa þak yfir höfudid
Neshagi — sérhæð
Vorum að fá í sölu ca. 120 fm glæsilega sérhæð (1. hæö)
í fjórbýlishúsi auk ca. 36 fm bílsk. Þetta er falleg eign í
sérflokki. Einkasala. Verö 4,5 millj.
Laugateigur — sérhæð
Ca. 120 fm sérhæö (2. hæö) í þríb.húsi auk bílskúrs.
Falleg eign á góöum staö í bænum. Getur veriö laus fjót-
lega. Verö3,2millj.
Arnarnes — lóð
Til sölu ein glæsilegasta einbýlishúsalóöin í Arnarnesi.
Lóöin er 1692 fm. Gatnagerðargjöld eru greidd. Verð
1500 þús. sem má greiöa meö 5 ára skuldabréfi.
26600
ál
Fasteignaþjónustan
Autlunlrmti 17,«. 2BtOO.
Þorsleinn Steingrímsson.
lögg. fasteignasali.
Bladburðarfólk
óskast!
Vesturbær
Faxaskjól
Austurbær
Hverfisgata65—115
Skerjafjörður
Gnitanes
Hörpugataog Fossagata
fyrir noröan flugvöllinn.
Úthverfi
Hvassaleiti 18—30
Kvíslarskarð, Horfinn dagur, Nótt,
í dalnum, Þei, þei og ró, ró, Ég lít
í anda liðna tíð, Vorvindur, Ása-
reiðin, Plágan, Nirfillinn, Fyrir
átta árum, Bergljót, Vor, Til Unu,
Góða veislu gjöra skal, Helgum frá
döggvum himnabrunns, Kveðja,
Sunnudagur selstúlkunnar, Litla
skáld, Aleinn reika ég um dimman
stíg, Rauði sarafaninni, Vögguljóð.
Þorsteinn Hannesson ritar nokk-
ur orð um söng Ólafs á umslag
plötunnar og segir m.a.: „Þess á
eftir að verða getið í annálum að
maður á þessum aldri skuli syngja
inn á hljómplötu. Það á eftir að
verða sífellt undrunarefni að rödd
hans skuli þar hljóma með allt að
því æskublæ. Maður hlustar — og
dettur ekki aldur í hug.“
Upptökurnar eru stafrænar (dig-
ital) og fóru eins og áður segir fram
í Hlégarði. Upptökurnar annaðist
Halldór Víkingsson.