Morgunblaðið - 10.12.1985, Blaðsíða 2
2
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR10. DESEMBER1985
Alvariegt umferðarslys á Hringbraut
V~>5%
_ &T: ..M
Morgunbladið/Júlíus
Liðlega sjötugur maður slasaðist alvarlega þegar
hann varð fyrir bifreið á Hringbraut, skammt fyrir
austan Hofsvallagötu, laust eftir klukkan hálffjögur
á laugardag. Maðurinn axlar- og mjaðmagrindar-
brotnaði, auk annarra meiðsla sem hann hlaut og
liggur nú á gjörgæsludeild Borgarspítalans. Hann var
á leið norður yfír Hringbraut þegar hann varð fyrir
FIAT-bifreið, sem ekið var í austurátt. Maðurinn
kastaðist upp á bifreiðina og lenti á framrúðunni,
sem brotnaði.
Ólafur G. Einarsson formaður
þingflokks sjálfstæðismanna
Tel að þingskip-
uð nefnd sé ekki
heppilegasta leiðin
ÞINGFLOKKAR Sjálfstæðisflokksins og Framsóknarflokksins fólu í gær ráð-
herrum sínum að ákveða með hvaða hætti staðið skuli aö rannsókn á viðskipt-
um Hafskips hf. og Útvegsbankans. Það mun því ekki verða þingkjörin rann-
sóknarnefnd sem rannsakar þau viðskipti, eins og tillögur Alþýðubandalags
og Alþýðflokks gera ráð fyrir.
Albert Guðmundsson iðnaðarráðherra:
Það kemur ekki til
greina að ég víki
ALBERT GUÐMUNDSSON iðnaðarráðherra hefur ekki í hyggju að víkja
úr ríkissjórn á meðan rannsókn fer fram á viðskiptum Hafskips og Ut-
vegsbankans. Albert sagði í samtali viö Morgunblaðið í gær að slíkt kæmi
ekki til greina af sinni hálfu en hann sagðist síður en svo hafa nokkuð
á móti því að rannsókn færi fram. Hann hefði reyndar þegar óskað eftir
því við ríkissaksóknara að hann léti fara fram opinbera rannsókn.
„Mér finnst sjálfsagt að rann-
sókn fari fram í málinu, ef forsæt-
isráðherra heldur að það sé eitt-
hvað að rannsaka," sagði Albert.
„Ég túlka ummæli forsætisráð-
herra þannig að hann vilji hreinsa
ríkisstjórnina af þeim ámælum
sem fram hafa komið að undan-
förnu. Ámælum sem tengjast
ríkisstjórninni vegna þess að einn
ráðherra hennar er borinn sök-
um.“
Albert var spurður álits á
ályktun Sambands ungra fram-
sóknarmanna sem ályktuðu að
honum bæri að segja af sér á
meðan rannsókn málsins færi
fram: „Það er svo sem ekki nýtt
að hægt sé að bera á menn alls
konar sakir, og segja síðan sann-
aðu sakleysi þitt. Því fer hins
vegar fjarri að ég hyggist standa
upp úr ráðherrastól á meðan á
rannsókn stendur. Það kemur
ekki til greina í mínum huga,“
sagði Albert.
Iðnaðarráðlierra var spurður
hvernig honum litist á tillögur
þær sem komnar eru fram frá-
þingmönnum Alþýðubandalags
annars vegar og þingmönnum
Alþýðuflokks, Framsóknarflokks,
Kvennalista og Bandalags jafnað-
armanna hins vegar þess efnis að
Alþingi kjósi sérstaka rannsókn-
arnefnd til þess að rannsaka öll
viðskipti Hafskips og Útvegs-
bankans: „Það er búið að tala svo
mikið um að þingmönnum sé ekki
treystandi fyrir nokkrum sköpuð-
um hlut. Það er búið að draga
Alþingi og virðingu þess niður í
svaðið í þessu máli, þannig að ég
treysti þeim sem svo hafa talað
ekki í neina rannsóknarnefnd.
Aftur á móti þarf að rannsaka
þetta mál af hlutlausum aðilum.
Þar kæmi til greina utanaðkom-
andi aðilar sem hefðu þekkingu
og hæfileika á þessu sviði. Það
gæti að mínu mati komið til
greina að biðja Hæstarétt að velja
slíka nefnd, eða jafnvel ríkissak-
sóknara," sagði ráðherra.
Albert var spurður hvað honum
fyndist um ályktun Sambands
ungra sjálfstæðismanna þess
efnis að selja beri Útvegsbank-
ann: „Samband ungrasjálfstæðis-
manna er orðin afskaplega furðu-
leg stofnun, sem hefur farið afar
mikið aftur með tilkomu nýrrar
forystu. Ég held að það væri mjög
röng ákvörðun að selja Útvegs-
bankann, en hins vegar tók sam-
bandið undir það sem ég sagði í
sjónvarpinu um daginn í seinni
hluta ályktunar sinnar, þar sem
sagt var að rannsaka bæri allar
peningastofnanir þjóðarinnar og
samskipti þeirra við stærri fyrir-
tæki.“
Sjá bls. 4 bréf iðnaðarráðherra
til ríkissaksóknara.
„Það eru auðvitað allir þingmenn
Sjálfstæðisflokksins áfram um það
að öll kurl komi til grafar í þessu
máli,“ sagði Ólafur G. Einarsson
formaður þingflokks Sjálfstæðis-
flokksins í samtali við Morgunblað-
ið. Hann sagði að áherslumunur
væri í flokknum milli manna um
hvaða rannsóknaraðferðum ætti að
beita. Hann lagði áherslu á að málið
væri til skiptameðferðar og skiptar-
áðandi hefði víðtækar heimildir
m.a. til þess að senda einstaka þætti
í sakadómsrannsókn.
ólafur var spurður hvort ekki
hefði komið til greina að samþykkja
að þingkjörin rannsóknarnefnd
kannaði málið, eins og ofangreindar
tillögur gera ráð fyrir:
„Eg vil ekki segja að það sé neinn
meirihluti þingflokksins andvígur
slíkri nefnd, því það fór engin at-
kvæðagreiðsla fram um slíkt, og í
sjálfu sér útilokum við enga aðferð.
Eg tel ekki að þingskipuð rannsókn-
arnefnd samkvæmt 39. grein stjórn-
arskrárinnar væri heppilegasta
leiðin. Alþingi hefur alla tíð farið
mjög varlega í að beita þessari
grein, auðvitað fyrst og fremst
vegna þess að svona rannsókn er
verkefni dómstóla, en ekki alþingis-
manna. Það er viss þversögn fólgin
í þeirri afstöðu þingmannanna,
a.m.k. sumra sem standa að tillögu-
flutningnum um þingkjörna nefnd
að þeir skuli treyst þingmönnum
svona vel til þess að framkvæma
slíka rannsókn, en treysta þeim ekki
til þess að sitja í bankaráðum, eða
að hafa yfirleitt afskipti af peninga-
málum.“
Ólafur sagði að niðurstaða rann-
sóknar þingkjörinnar nefndar yrði
fyrst og fremst pólitísk, en búast
mætti við annarri niðurstöðu rann-
sóknar sem framkvæmd væri af
hlutlausum aðilum en ekki stjórn-
málamönnum.
Þingflokkur Framsóknarflokks-
ins samþykkti í gær að fela ráð-
herrum sínum að sjá til þess í
samráði við ráðherra Sjálfstæðis-
flokksins, að ríkisstjórnin, án þess
að trufla á nokkurn máta störf
skiptaráðanda, setti menn til þess
að fylgjast með málinu og gæta
þess að allt í samskiptum Útvegs-
bankans við Hafskip komi fram.
Þetta upplýsti Steingrímur Her-
mannsson forsætisráðherra ða
afloknum þingflokksfundi í gær-
kveldi. Steingrímur sagði ekki ljóst
á þessu stigi hverjir yrðu fengnir
til þess af ríkisstjórninni til sinna
þeim störfum. Taldi hann vissa
annmarka vera á því að fá Hæsta-
rétt til þess að skipa rannsóknar-
nefnd, því svo gæti farið að málið
kæmi til hans kasta.
Steingrímur Hermannsson forsætisráðherra:
Skylda ríkisvaldsins að
upplýsa um viðskiptm
„ÉG HEF aldrei nokkurn tíma sagt
aö Albert eigi að hverfa úr ríkis-
stjórninni á meóan á rannsókn máls-
ins stendur, því með því væri verið
að sakfella manninn fyrirfram, og
slíkum vinnubrögðum er ég ósam-
mála,“ sagði Steingrímur Hermanns-
son forsætisráðherra í samtali við
Morgunblaðið. „Ég sé ekki ástæðu til
þess að óska eftir því að Albert víki
úr ríkisstjórninni,“ sagði Steingrímur
ennfremur.
Forsætisráðherra sagðist í gær hafa
kallað á sinn fund þrjá fyrrverandi
bankastjóra Útvegsbankans, þá
Jónas Rafnar, Bjarna Guðbjörnsson
og Árna Jakobsson. „Þeir sögðu allir
að þann tíma sem þeir störfuðu með
Albert Guðmundssyni, er hann var
Þorsteinn Pálsson formaður Sjálfstæðisflokksins:
Aðalatriðið er að ekk-
ert verði undandregið
ÞORSTEINN PÁLSSON formaöur Sjálfstæðisflokksins og fjármálaráð-
herra telur ekki nauðsynlegt að Albert Guðmundsson iðnaðarráðherra
hverfi af ráðaherrastóli á meöan á rannsókn á viöskiptum Hafskips og Út-
vegsbankans stendur.
„Ég tel nauðsynlegt að málið
verði upplýst að fullu og það verði
gert á þann veg að allur almenn-
ingur í landinu geti treyst þeim
vinnubrögðum sem beitt verður.
Aðalatriðið er að ekkert verði
undandregið. Að svo miklu leyti
sem rannsókn þessa máls fer ekki
fram í skiptarétti og hjá saksókn-
ara, viljum við gjarnan að óvil-
hallir menn fái það verkefni að
kanna málið til botns," sagði Þor-
steinn, er hann var spurður með
hvaða hætti hann hugsaði sér
framkvæmd slíkrar rannsóknar.
Fjármálaráðherra var spurður
hvort valdsvið nefndar „óvilhallra
rnanna" yrði ekki skertara en vald-
svið þingkjörinnar nefndar væri í
svona rannsókn: „Við munum ekki
standa að þessu á þann veg, að
þeir sem til verksins koma hafi
ekki fullt umboð til þess að draga
fram þær upplýsingar sem nauð-
synlegar eru til að varpa ljósi á
málið."
Formaður Sjálfstæðisflokksins
var spurður hvort hann teldi eðli-
legt að iðnaðarráðherra víki úr
ríkisstjórn, á meðan rannsókn fer
fram: „Iðnaðarráðherra hefur ósk-
að eftir því að ríkissaksóknari
kanni þann áburð sem á hann
hefur verið borinn vegna for-
mennsku í bankaráði Útvegsbank-
ans á sama tíma og hann var for-
maður í stjórn Hafskips. Ég tel
rétt að sjá hver niðurstaða verður
úr þeirri rannsókn. Það eru allir
saklausir þar til sekt þeirra hefur
verið sönnuð," sagði Þorsteinn
Pálsson.
bankaráðsformaður, hefði hann
aldrei reynt að hafa minnstu áhrif
á þeirra ákvarðanir gagnvart Haf-
skip,“ sagði forsætisráðherra. „Þeir
sögðu reyndar að þeir minntust þess
ekki að viöskiptamál við Hafskip
hefði sérstaklega borið á góma á
bankaráðsfundum þann tíma sem
Albert var formaður stjórnar Haf-
skips og bankaráðs Útvegsbankans.
Vissulega hafa orð þessara manna
áhrif á mína afstöðu," sagði Stein-
grímur.
„Ég álít það skyldu ríkisvaldsins,
að upplýsa um þessi viðskipti ríkis-
fyrirtækisins Útvegsbankinn hf. og
Hafskips hf. sem koma til með að
kosta skattgreiðendur mikla pen-
inga,“ sagði forsætisráðherra. For-
sætisráðherra sagðist telja að öll
slík rannsókn á viðskiptum Útvegs-
bankans og Hafskips þyrfti að vera
í nánu samráði við skiptaráðanda,
sem myndi rannsaka marga þætti
þessa máls. „Það má hvergi nokkurs
staðar hindra skiptaráðanda í
starfi," sagði Steingrímur, „en það
er afar óliklegt að hann rannsaki
sérstaklega þessi siðferðilegu atriði
sem Útvegsbankinn, bankaráðs-
formaður fyrrverandi og aðrir þar
eru ásakaðir um. Því er ég þeirrar
skoðunar að sjálfsagt sé að fram-
kvæmdavaldið skipi nefnd til þess
að starfa með skiptaráðanda, og
nánast undir hans handleiðslu, til
þess að upplýsa þennan þátt máls-
ins. Ég tel það alveg sjálfsagt og
nauðsynlegt að þegar ráðherra í
ríkisstjórn er borinn svona sökum,
verði hann að hreinsa sig af þeim.“
Matthías Bjamason
yiðskiptaráðherra:
Rannsóknín
í höndum
skiptaráðanda
MATTHÍAS BJARNASON banka
og viðskiptaráðherra telur enn að
rannsókn á viðskiptum Hafskips og
Útvegsbankans eigi að vera í hönd-
um skiptaráðanda, og sagði hann í
samtali við Morgunblaðið að þings-
ályktunartillögur þess efnis að Al-
þingi kjósi rannsóknarnefnd hafi þar
í engu breytt sinni afstöðu.
Ráðherra sagði þær raddir frá-
leitar sem gera kröfu um það að
Albert Guðmundsson víki úr ráð-
herraembætti á meðan rannsókn
fer fram. „Slíkt kemur ekki til
greina," sagði Matthías.
Vilja frjálsan aðgang að hafnarað-
stöðu Hafskips f Austurhöfninni
TÓLF fyrirtæki í Reykjavík skrifuðu
í gær bréf til Hafnarstjórnar Reykja-
víkur, þar sem þess er farið á leit, að
hafnaraðstaða Hafskips í Austurhöfn-
inni fylgi ekki með við yfirtöku Eim-
skips á eigum Hafskips, heldur verði
þar skapaður frjáls aðgangur að hafn-
araðstöðu í Reykjavík.
Undir bréfið rita fulltrúar eftir-
talinna fyrirtækja: BYKO sf.,
Andra hf., Þorvaldar Jónssonar
skipamiðlara, Sjóleiða hf., Nesskip
hf„ Karnabæjar hf„ Veltis hf„
Skipafélagsins Víkur hf„ Skipafé-
lagsins Nes hf„ Vífilfells, Húsa-
smiðjunnar hf. og íslensku umboðs-
sölunnar.