Morgunblaðið - 10.12.1985, Blaðsíða 50

Morgunblaðið - 10.12.1985, Blaðsíða 50
50 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR10. DESEMBER1985 Áfengísmál í Hafn- arfirði og víðar — eftir Kristófer Magnússon Áfengi og áfengisneysla er stað- reynd, sem mikill meirihluti allra landsmanna sættir sig við eða er samþykkur, og geng ég út f rá þeirri staðreynd í þessari grein minni en ekki að ég sé hér talsmaður vín- neyslu. Ástand áfengismála í Hafnarfirði Ég hef ekki heyrt neinn halda því fram með fullgildum rökum, að áfengisneysla Hafnfirðinga sé minni en annar staðar tíðkast á landinu. Aftur á móti hafa margir Hafnfirðingar neitað að horfast í augu við þá staðreynd að um 80% af íbúum bæjarins njóta áfengis, og jafnvel margir þeir sem neyta víns, hafa hafnað áfengisútsölu í Hafnarfirði, vegna þess að þeir hafa aöstöðu til að nálgast það á annan hátt, og einnig með þeim rökum, að þeir séu að reyna að hafa vit fyrir öðrum, sérstaklega þó unglingum. Ég þekki ekki þau tilfelli að unglingar geti ekki nálg- ast vín, ef það er ætlun þeirra á annað borð. Eða er áfengisneysla unglinga úti á landi, þar sem áfengisútsölur eru ekki, eitthvað minni en hér á höfuðborgarsvæð- inu? Reynsla mín hefur sýnt mér annað. Líður Hafnfirskum foreldrum eitthvað betur, vitandi af afkvæmi sínu undir áhrifum áfengis í mis- jöfnum veðrum, leitandi að leigu- bílum í Reykjavík, er þeir þurfa að greiða fyrir of fjár til að komast heim, en hafa þá í Hafnarfirði. Mín reynsla sem foreldri og sem forustumanns æskulýðsstarfsemi er sú að besta aðhaldið er að hafa unglingana í sjónmáli og taka þátt í starfi þeirra og skemmtunum, en ekki að loka augunum og senda þau í önnur byggðarlög, til að sletta úr klaufunum og látast þar með ekkert vita um hátterni þeirra. Væri ekki skynsamlegra að þeir íbúar Hafnarfjarðar, sem óskuðu að neyta áfengis utan heimilanna, gætu sótt hafnfirska vínveitinga- staði, sem væru undir lögsögu og leiðsögu þeirra manna sem þeir þekktu og bæru traust til, og sem þeir um leið gætu haft áhrif á til góðs, hvað varðar alla umgengni. Það er sjálfsblekking, ef Hafn- firðingar halda að áfengisvanda- mál unglinga í Hafnarfirði sé minna en annars staðar, og að þeir geti ýtt vandamálinu frá sér með því að senda ungmenni sín til annarra byggðarlaga til að neyta áfengis. Þannig ber ekki að „leysa" vandamál. Að minnka áfengis- neyslu við ríkjandi hugsunarhátt, verður ekki gert með boði og bönn- um. Til þess þarf hugarfarsbreyt- ingu almennings. Að leyfa áfengis- útsölu og veita veitingahúsinu full vínveitingarleyfi breytir engu um áfengisneyslu Hafnfirðinga. Eða hvað halda Hafnfirðingar að hægt sé að reka veitingahús lengi í Hafnarfirði án vínveitingaleyfis, þegar mikill meirihluti viðskipta- vina þess óskar eftir slíkri þjón- ustu, og sú þjónusta stendur þeim til boða í náglægum byggðarlög- um. Neytandinn í hvaða skilningi sem er leitar einfaldlega þangað, sem hann fær þá þjónustu sem hann sækist eftir, og hvorki ég eða þú getum breytt þar um. Hafnfirðingar hafa horft upp á bæinn sinn dafna og þróast úr tiltölulega stöðnuðu og einhæfu byggðarlagi í mesta iðnaðarbæ landsins á aðeins tveimur til þrem- ur áratugum. Verslun innan bæj- arfélagsins hefur stórlega aukist, og flest sú þjónusta er fólkið þarfnast í nútíma þjóðfélagi hefur flust til byggðarlagsins, öllum íbú- um þess til hagsbóta. Á þessum árum hefur allt yfir- bragð bæjarins gerbreyst og er nú Hafnarfjörður talinn einn af feg- urstu og hreinlegustu bæjum landsins. Það ætti að vera stolt okkar Hafnfirðinga að gera hann enn eftirsóknarverðari t.d. með eflingu verslunar og ferðamanna- þjónustu. Þeim takmörkum náum við ekki með því að troða upp á ferðamenn þeim framandi hafn- firskum hugsunarhætti að við telj- um okkur hafa fullan rétt á að kaupa áfengi í Reykjavík, en gestir okkar megi ekki kaupa áfengi í Hafnarfirði. Þessir ágætu gestir okkar leita einfaldlega annað, er fram líða stundir, og láta okkur afskiptalausa með sérvisku okkar og tvískinnungshátt. Ég efast um að nokkrum manni detti það í hug í alvöru, að hægt sé að gera Hafn- arfjörð að alvöru ferða- og safnabæ við núverandi aðstæður og ríkjandi hugsunarhátt þorra erlendra og innlendra ferðamanna gagnvart áfengi. Lauslega áætlað eyða Hafnfirð- ingar um 10 milljónum króna á ári í ferðakostnað til að afla sér áfengis fyrir utan vinnutap. Önnur hlið þessa máls er sú að mikill meirihluti þess fólks, sem fer til áfengiskaupa í Reykjavík, sækir þar um leið margháttaða aðra þjónustu. Viðskipti upp á hundruð milljóna glatast þannig úr rekstri hafnfirskra fyrirtækja, og um leið umtalsverð atvinnutækifæri og fjárstreymi, sem annars kæmi öllum bæjarbúum til góða. Það er almennt viðurkennt að stofnun Hagkaups í Reykjavík var umtals- verð kjarabót til handa reykvísk- um launþegum, og það sama má segja um stofnun Fjarðarkaups í Hafnarfirði. Því tek ég þessi tvö fyrirtæki sem dæmi, þar sem þau voru hvort um sig brautryðjendur lækkaðs vöruverðs í sínum byggð- arlögum. Eigendur Fjarðarkaups hafa sýnt okkur og sannað, að þeir hafa fyllilega staðist samkeppn- ina, og jafnvel bætt um betur. Það sýna verðkannanir Verðlagsstofn- unar. Síðan hafa önnur samskonar fyrirtæki fetað í fótspor Fjarðar- kaups, og boðið oft ágæta þjónustu og lágt vöruverð. Kristófer Magnússon „Það er sjálfsblekking ef Hafnfirðingar halda að áfengisvandamál unglinga í Hafnarfirði sé minna en annars staðar, og að þeir geti ýtt vandamálinu frá sér með því að senda ung- menni sín til annarra byggðarlaga til að neyta áfengis.“ Hagkaup er nú að reisa stærstu verslunarmiðstöð landsins við hliðina á Húsi verslunarinnar i nýja miðbænum í Reykjavík er liggur sérlega vel við allri umferð til og frá Hafnarfirði með nóg af bílastæðum. í húsakynnum Hag- kaups verða ótal sérverslanir og þar með talin áfengisútsala á meðan engin útsala er í Hafnar- firði, hvort sem mér eða þér eða jafnvel Jóni Helgasyni dómsmála- ráðherra líkar það betur eða verr, hvernig sem Jón eða við reynum að hafa vit fyrir Hafnfirðingum. Þetta er einföld staðreynd, sem engum dettur í hug innst inni að neita hvorki fyrir sjálfum sér né öðrum. En nú er svo komið að Jón Helgason dómsmálaráðherra er orðinn helsta tákn svartnættisins með afstöðu sinni í áfengisvarnar- málum. Á margan hátt óverð- skuldað að mínu áliti það sem ég hef aldrei heyrt annað en að hann væri heiðarlegur. Afstaða Jóns hefur aðeins mótast af þeirri áráttu sem íslensks stjórnmála- manns, að hann sem alþingismað- ur og ráðherra eigi einn að hafa vit fyrir lýðnum, án þess að gera minnstu tilraun til að breyta við- horfum almennings. Að ráðast með valdbeitingu að samþykktum bæjarstjórnar Hafnarfjarðar hef- ur sýnt sig að vera Jóni lítt til framdráttar, og hefur honum ekki einu sinni tekist að snúa sjálfum forsætisráðherranum á sveif með sér en hann er nú farinn að tala um að svifta dómsmálaráðuneyt- inu leyfisveitingu og láta bæjarfé- lögin alfarið um vandann. Það hlýtur að liggja í augum uppi að forystumenn og íbúar hvers sveit- arfélags fyrir sig hljóta að vera hæfari til að ákvarða hvað sé sveitarfélögum þeirra fyrir bestu, frekar en eitthvert ríkisrekið miðstjórnarvald. Hvað ætlar Jón Helgason að standa lengi í vegi fyrir að hafn- firskum veitingamönnum verði veitt fullt vínveitingaleyfi á sama hátt og bændur fá til að reka Hótel Sögu í Reykjavík? Það verður fróð- legt að fylgjast með viðbrögðum Jóns er Hótel Saga þarf að end- urnýja vínveitingaleyfi sitt. Eða verður það hér eins og svo víða annars staðar í þjóðfélaginu að sumir mega en aðrir ekki? Ég leyfi mér að taka dæmi sem þessu máli er raunverulega náskylt og sýnir tvískinnung landsmanna og ráða- manna til áfengis. Hvers vegna er þeim landsmönnum sem ferðast til útlanda, leyft að kaupa áfengan bjór? Hves vegna hefa ákveðnar stéttir þjóðfélagsins eins og til dæmis flugmenn og flugfreyjur ótakmarkaðan aðgang að bjór, þegar t.d. fiskvinnslufólk sem afl- ar mest alls gjaldeyris lands- manna hefur engan aðgang eða aðstöðu til að kaupa bjór, nema þá helst af þeim er stunda „ólög- lega“ sölu slíkra drykkjarfanga? Eða er Jóni ef til vill ekki kunnugt að slík sala er stunduð hér á landi? Það yrði eflaust mörgum frjáls- lyndum manninum í Hafnarfirði minnisstætt ef Jóni Helgasyni tækist að koma frjálsri verslun á vonarvöl með því að neita Hafn- firðingum um áfengisútsölu, ef íbúar bæjarins kveða upp þann ÞU LEGGUR AFSTAI í flugferð er ströngum öryggisreglum fylgt og öll siglingatæki yfirfarin og kannað hvort þau eru í fullkomnu lagi. Einnig er öllum farþegum bent á hvar björgunarvesti og gúmmíbjörgunarbátar eru geymd. REYNSLAN SÝNIR AÐ EKKERT KEMUR í VEG FYRIR SLYS Á SJÓ NEMA ÁRVEKNI, DÓMGREIND OG KUNNÁTTA SJÓMANNA SJÁLFRA. OryggismAlanefnd sjómanna
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.